Þjóðviljinn - 08.10.1983, Síða 25
Helgin 8.-9. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25
um Helgina
Blásarakvintett
á ferð um
Norðurland
Blásarakvintett Reykjavíkur
mun halda þrenna tónleika á Norð-
urlandi um þessa helgi. f dag,
laugardag, tekur kvintettinn þátt í
afmælistónleikum Tónlistarfélags-
ins á Akureyri, og um kvöldið
verða tónleikar á vegum Kirkju-
kórs Ólafsfjarðar í Tjarnarborg kl.
20.30. Á morgun, sunnudag, verða
tónleikar í Félagsheimilinu á Siglu-
firði kl. 14.00.
Á efnisskránni eru verk eftir
W.A. Mozart, Darius Milhaud,
Malcolm Arnold, Jan Pieters Swe-
elinck og Ludwig van Beethoven.
Kvintettinn skipa þeir Bernard
Wilkinson, flauta, Daði Kolbeins-
son, óbó, Einar Jóhannesson, klar-
inett, Hafsteinn Guðmundsson,
I fagott, og Jóseph Ognibene, horn.
I Vetrarstarfsemi
Tónlistarfélags-
ins hefst í dag
Vetrarstarf Tónlistarfélagsins í
Reykjavík hefst í dag, laugardag,
með tónleikum FINLANDIA
TRIO í Austurbæjarbíói og hefjast
þeir kl. 14.30. Vetrardagskrá fé-
íagsins, starfsárið 1983/1984, verð-
ur sem hér segir:
Finlandia Trio, píanótríó 8.10.,
Janos Starker, sellóleikari 29.10.,
Kristján Jóhannsson, söngvari
26.11., Dorriet Kavanna, söng- i
kona, Martin Berkofsky, píanó-
leikari 14.1.84, William Parker,
söngvari 18.2., William Huckaby,
píanóleikari, Garðar Cortes,
söngvari 3.3., Dr. Erik Weba,
píanóleikari, Berwald kvartettinn,
strengjakvartett 10.3., Roger
Woodward, píanóleikari 31.3., og
Jörg Demus, píanóleikari 19.5.
i
; Martin Berkofsky með tónleika
: Bandaríski píanóleikarinn Mart-
| in Berkofsky heldur tónleika ásamt
I eiginkonu sinni, Önnu Málfríði
| Sigurðardóttur, í Háskólabíói,
laugardaginn 8. okt. n.k. kl. 14.00.
Þau munu leika verk eftir Schubert
og Brahms.
Martin Berkofsky var sjúklingur
á Grensásdeild Borgarspítalans sl.
i
vetur og naut endurhæfingar eftir
að hafa lent í umferðarslysi. Pau
hjónin vilja með tónleikum þessum
sýna þakklæti sitt með því að láta
allan ágóða, sem inn kemur, renna
til Grensásdeildarinnar.
Miðar fást í Háskólabíói og á
Grensásdeild Borgatspítalans.
Þjóðleikhúsið
i Skvaldur
og
Lokaæfing
Um helgina verða tvær sýningar
á SKVALDRI eftir Michael Fra-
yn. Uppselt er á sýninguna í kvöld,
íaugardag, en enn eru til miðar á
sunnudagsýninguna.
LOKAÆFING, hið nýja leikrit
eftir Svövu Jakobsdóttur, sem
frumsýnt var á Litla sviði Þjóðleik-
hússins sl. fimmtudag verður sýnt á
Litla sviðinu á morgun sunnudag
kl. 20.30. Rétt er að benda fólki á
að sætafjöldi á sýningar á Litla
sviðinu er ekki mikill og því íétt að
tryggja sér miða tímanlega.
Kyikmyndir í
MÍR-salnum
Sjónarmið Sovétmanna í alþjóð-
amálum, einkum afvopnunar- og
friðarmálum, er meginefni 40 mín.
kvikmyndar, sem sýnd verður í
MÍR-salnum, Lindargötu 48, nk.
sunnudag, 9. okt. kl. 16. Jafnframt
verður sýnd stutt mynd sem nefnist
„Beirut í ágúst 1982” og lýsir ógn-
aratburðum þeim sem þar gerðust í
fyrra. Myndirnar eru með skýr-
ingatali á ensku. - Aðgangur að
MIR-salnum er ókeypis og öllum
heimill.
Revíuleikhúsið er nú byrjað sýn-
ingar á íslensku revíunni eftir Geir-
harð Markgreifa. Að undanförnu
hefur revían verið sýnd í
Breiðholtsskóla fyrir troðfullu húsi
og undirtektir verið frábærar.
Myndin sýnir þau Guðrúnu Þórð-
'ardóttur og Þórhall Sigurðsson,
(Ladda) í hlutverkum sínum.
-mhg
Ragnar að loka
Afmælissýningu Ragnars Kjart-
anssonar myndhöggvara sem stað-
ið hefur yfir síðustu vikur í
Listmunahúsinu. Henni átti að
ljúka um síðustu helgi en var fram-
lengt í viku og lýkur því á morgun
sunnudag. Sýningin er opin frá
14.00-18.00.
Tónleikar í
Háteigskirkju í
í
Kór Langholtskirkju í
Vestmannaeyjum heldur tónleika í
Háteigskirkju í dag, laugardag og
hefjast þeir kl. 17.00. Einsöngvar-
ar með kórnum verða Sigríður
Gröndal, Anna Júlíana Sveinsdótt-
ir, Sigurður Björnsson, Geir Jón
Þorsteinsson, auk þess aðstoða fé-
lagar úr Sinfóníuhljómsveit fs- j
lands. Stjórnandi er Guðmundur j
H. Guðjónsson.
------------------ .
Haustsýning
Ásgrímssafns
Haustsýning Ásgrímssafns er
hafin og að þessu sinni hafa verið
valdar til sýningar myndir eftir Ás-
grím Jónsson frá upphafi ferils
hans 1896 og fram til 1940. Flestar
myndirnar á sýningunni eru frá ár-
unum 1905 til 1930. Ásgrímssafn
að Bergstaðarstræti 74 er opið
sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 13.30 til 16.00.
Aðgangur er ókeypis.
Félagsmálaskóli alþýðu
1. önn 30. október til 12. nóvember.
þýðu dagana 30. okt.-12. nóv. nk. í Ölfus-
borgum.
Viðfangsefni annarinnar er einkum eftirfar-
andi: Félags- og fundarstörf, ræðumennska,
framsögn, skipulag og starfshættir ASÍ, saga
verkalýðshreyfingarinnar, vinnuréttur, stefn-
uyfirlýsing ASÍ, kjararannsóknir, og vísitölur,
undirstöðuatriði félagsfræði, vinnuvernd og
hópefli (leiðbeining í hópvinnu).
Námstarfið fer fram í fyrirlestrum, hópvinnu
og almennum umræðum. Flesta daga er
unnið frá kl. 08.30 -19.00 með hléum. Nokk-
ur kvöld á meðan skólinn starfar verða
menningardagskrár, listkynningar, upplestur
og skemmtanir.
Félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eiga rétt á
skólavist í Félagsmálaskólanum. Hámarks-
fjöldi á önninni er 25.
Umsóknir um skólavist þurfa að berast
skrifstofu MFA fyrir 26. október.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
MFA Grensásvegi 16, sími 84233.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu
Skrifstofustarf
Staða aðalbókara hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknum með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf þarf að skila fyrir 18.
þ.m.
Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 7,
105 Reykjavík.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri,
óskar að ráða hjúkrunarfræðinga á:
Lyflækningadeild, handlækningadeild, gjör-
gæsludeild, svæfingadeild, barnadeild og í
stöðu fræðslustjóra hjúkrunar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVÍK
Skrifstofustarf
Hjá Orkustofnun er laust til umsóknar starf
skrifstofumanns.
Starfið er í afgreiðslu stofnunarinnar við mót-
töku reikninga, vélritun og önnur skrifstofu-
störf. Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf, sendist starfsmannastjóra fyrir 13.
október nk.
Orkustofnun Grensásvegi 9
108 Reykjavík sími 83600