Þjóðviljinn - 20.12.1983, Blaðsíða 16
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. desember 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
bridge
Alþýöubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablót
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugardaginn
28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til
Hað skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu.
Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Opið hús
Opið hús verður í Skálanum (Strandgötu 41) á Þorláksmessu frá ki. 17.00.
Kaffi, kókó, heitar vöfflur. Fáum okkur hressingu í jólaamstrinu og hittum
félagana.
j Stjómin
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Skrifstofan opin
Alla þriðjudaga og fimmtudaga verður skrifstofa Æskulýðsfylkingar-
innar opin frá kl. 17-18.30, í flokksmiðstöðinni, Hverífisgötu 105.
Áhugafólk er hvatt til að líta við eða hringja, síminn er 17500.
Stjórnin.
Nú hafa handverksmennirnir hjá
Old Charm hafist handa um aö
gera 3 nýja hluti í Tudor-stíl úr
eik. Skápar fyrir stereogræjur,
video og sjónvarp. Falleg og
vönduð húsgögn á lágu veröi.
Framleitt í Tudor-brúnu, -Ijósu og
-antik.
Þeir eru komnir aftur.
Vinsamlegast endurnýið pantanir.
Kynniö ykkur fallega bæklinginn
okkar.
Sontag til íslands
Bridgehátíð 1984
Alan Sontag, nv. heimsmeistari í
bridge og góðkunningi okkar, mun
verða gestur á Bridgehátíð 1984,
þriðja árið. Ekki er vitað hverjir
' koma með honum, en það verða án
efa heimsfrægir spilarar frá USA.
Bridgehátíð, sem Bridgefélag
Reykjavíkur, Bridgesamband ís-
lands og Flugleiðir standa að í sam-
einingu, er orðin mesti viðburður í
sögu bridge hér á landi. Ávallt hafa
heimsfrægir gestir sótt okkur heim,
og þá iðulega viðkomandi landslið
þeirrar þjóðar sem gestirnir eru
frá. Nægir þar að nefna norska
landsliðið, bandaríska, danska og
enska, auk annarra.
Ekki er ljóst ennþá hverjir munu
koma hingað, til viðbótar við lið
Sontags, en ítölsku snillingarnir
Belladonna og Garozzo hafa verið
nefndir í því sambandi, ásamt
franska landsliðinu. Hvað verður,
mun væntanlega skýrast á næstu
vikum, en víst er að margir hugsa
vel til þess bridgeviðburðar, sem
Bridgehátíð 1984 mun verða.
Reykjavíkurmótið
í sveitakeppni
Væntanlegir fyrirliðar sveita,
sem hyggjast taka þátt í Reykjavík-
urmótinu í sveitakeppni, sem jafn-
framt er undankeppni fyrir íslands-
mót, eru minntir á að láta skrá
sveitir sínar sínar fyrir áramót.
Mótið hefst miðvikudaginn 4.
janúar og verður þá spilað í Domus
Medica. Þátttökutilkynningum má
koma til Jóns Baldurssonar hjá
Bridgesambandinu í s: 18350 eða
stjórnarmanna Bridgedeildar
Reykjavíkur.
Frá Bridgefélagi
Reykajvíkur
Það fór einsog margan grunaði.
Sveit Úrvals klúðraði aðalsveita--
keppni í síðustu umferð, með því
að tapa 5-15 fyrir sveit Ágústs
Helgasonar (frábær leikur hjá Sig-
urði Sigurjónssyni og Júlíusi Snorr-
asyni í sveit Ágústs), á sama tíma
og sveit Samvinnuferða-Landsýnar
vann sveit Friðþjófs Einarssonar
örugglega 19-1. I lokin skildu að-
eins 3 vinningsstig sveitirnar, sem
báru höfuð og herðar yfir aðrar
sveitir í þessu móti.
Lokaniðurstaða efstu sveita varð
þessi:
stig
1. Sv. Samvinnuferða-Landsýn 250
2. Sv. Úrvals 247
3. Sv. Jóns Hjaltasonar 227
4. Sv. Guðbrands Sigurbergss. 196
5. Sv. Þórðar Sigurðssonar 184
6. Sv. Ólafs Lárussonar 179
7. Sv. Þórarins Sigþórss 178
8. Sv. Runólfs Pálssonar 177
9. Sv. Braga Haukssonar 177
10. Sv. Ágústs Helgasonar 176
11. Sv. Stefáns Pálssonar 175
12. Sv. Gests Jónssonar 172
18. sveitir tóku þátt í mótinu og
meðalskor því 170 stig. Nokkuð
ljóst að talsverður getumunur á
milli efstu sveita og þeirra neðri.
í sveit Samvinnuferða eru: Jón
Baldursson, Sigurður Sverrisson,
Hörður Blöndal og Valur Sigurðs-
son.
í sveit Úrvals eru: Ásmundur
Pálsson, Karl Sigurhjartarson, Örn
Arnþórsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Hjalti Elíasson.
Þátturinn óskar þeim félögum til
hamingju með sigurinn í þessu
stóra móti.
Starfsemi B.R. eftir áramót
hefst ekki fyrr en í byrjun febrúar
með aðaltvímenningskeppni
(barometer), tölvugefin spil og allt
það. Ein skemmtilegasta keppni
ársins, fyrir þá sem gaman hafa af
tvímenning. Skráning hefst eftir
áramót og verður auglýst nánar
síðar.
Einnig má geta um forgjafa-
keppni sem félagið hyggst efna til í
lok starfsársins. Sú keppni verður
nýjung hér á landi, en þar er hug-
myndin svipuð og í golfinu, allir
standa jafnt að vígi, byrjandinn
sem meistarinn. Verður forvitni-
legt að fylgjast með þeirri keppni.
Annars verður nánar greint frá
starfsemi B.R. síðar.
Bridgeklúbbur
Akraness
Starfsemin hófst með aðalfundi
um miðjan september 1983.
í stjórn til næsta árs voru kjörnir:
Formaður Guðmundur Sigur-
jónsson, Brekkubraut 18. Ritari
Kjartan Guðmundsson, Höfða-
braut 16. Gjaldkeri Bent Jónsson,
Vogabraut 16.
1. keppni klúbbsins var firma-
keppni, sem jafnframt var ein-
menningskeppni. Sigurvegari í
þeirri keppni og Akranessmeistari
í einmenning varð Kjartan Guð-
mundsson. Ifirmakeppninni sigr-
aði Samvinnubankinn, spilari Bent
Jónsson.
Ólafur
Lárusson
skrifar
15. nóvember var haldið opna
Akranessmótið, sem kennt er við
Hótel Akraness. Hótel Akraness
gefur 1. og 2. verðlaun á þessu móti
og voru þau vegleg að-venju.
1. verðlaun kr. 15.000 hlutu:
Þórarinn Sigþórsson og Guðm.
P. Arnarson. 2. verðlaun kr.
10.000 hlutu: Sigurður Vilhjálms-
son og Sturla Geirsson.
3. verðlaun kr. 5.000 hlutu: Að-
alsteinn Jörgensen og Runólfur
Pálsson.
Þá var spilaður hausttvímenn-
ingur með barometer fyrirkomu-
lagi. Sigurvegarar urðu: Þórir
Leifsson og Oliver Kristófersson.
Nr. 2. Guðjón Guðmundsson og
Ólafur Gr. Ólafsson. Nr. 3. Árni
Bragason og Sigurður Halldórs-
son.
Þátttakendur í hausttvímenn-
ingnum voru 22 pör.
I október heimsóttu okkur kon-
ur úr Bridgefélagi kvenna í
Reykjavík.
Spiluð var sveitakeppni á 7 borð-
um og unnu Akurnesingar á 5 en
konurnar úr B. K. á tveimur.
Nú stendur yfir sveitakeppni
með 16 spila leikjum.
Efst er sveit Alfreðs Viktors-
sonar með 92 stig. Nr. 2 sveit Vig-
fúsar Sigurðssonar með 71 stig og
nr. 3 sveit Þóris Leifssonar með 64
stig.
Um áramótin er fyrirhugað
boðsmót til minningar um Donna
(Halldór) Sigurbjörns. Spilað
verður um bikar, sem vinur Donna
gaf til þessarar keppni til minning-
ar um hann.
Síðar í vetur verða síðan spilaðar
aðal-keppnir klúbbsins, þ.e.a.s.
sveitakeppni og tvímenningur, auk
þess að keppt er bæjarkeppni við
Hafnarfjörð einhverntíma vetrar.
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 13. des. var spiluð
síðasta umferð í hraðsveitar-
keppni, sem sveit Björns Her-
mannssonar vann með yfirburð-
um. Auk Björns spiluðu í sveitinni
Hannes Jónsson, Lárus Her-
mannsson, Lúðvík Ólafsson og
Rúnar Lárusson.
Stig efstu sveita urðu þessi:
1. Björn Hermannsson 1870
2. Magnús Halldórsson 1781
3. Sigmar Jónsson 1763
4. Erlendur Björgvinsson 1727
5. Guðni Kolbeinsson 1724
Þriðjudaginn 20. des. verður
spilaður jólatvímenningur, kl.
19.30 stundvíslega.
Frá Bridgedeild
Breiðfirðinga
Þegar tveimur umferðum er ó-
lokið í aðalsveitakeppni deildar-
innar, er staða efstu sveita þessi:
stig
Sv. Sigurðar Ámundasonar 248
Sv. Ingibjargar Halldórsdóttur cc 240
Sv. Helga Nielsen 221
Sv. Hans Nielsen 215
Sv. Jóhanns Jóhannssonar 211
Sv. Rögnu Ólafsdóttur 204
Sv. Elíasar R. Helgasonar 195
Sv. Magnúsar Halldórssonar 191
Sv. Guðlaugs Nielsen 191
Sv. Kristínar Þórðardóttur 189
Síðustu tvær umferðirnar verða
spilaðar á þrettándanum, 5. janú-
ar.
Frá Bridgedeild
Barðstrendingafélagsins
Mánudaginn 12. desember lauk
5 kvölda Hraðsveitakeppni félags-
ins með þátttöku 17 sveita.
Sveit Ingólfs Lillendahl sigraði.
Auk hans spiluðu Ásgeir Stefáns-
son, Jakob Kristinsson, Jón
Björnsson og Kristján Lillendahl.
Úrslit 8 efstu sveita:
stig
1. Ingólfur Lillendahl 3135
2. Þórarinn Árnason 3086
3. Ágústa Jónsdóttir 3032
4. Þorsteinn Þorsteinsson 3016
5. Viðar Guðmundsson 3013
6. Sigurður ísaksson 2997
7. Guðmundur Hallsteinsson 2948
8. Jón Karlsson 2935
Bridgedeildin óskar öllum spil-
urum gleðilegra jóla og farsæls árs.
Mánudaginn 9. janúar hefst aðal-
sveitakeppni félagsins. Þátttaka til-
kynnist til Helga Einarssonar síma
71980 fyrir áramót.
Útboð
Vegagerð ríkisins býður út gerð stálbita fyrir
brú á NA-landi. Nefnist útboðið
Stálbitar fyrir brú á Hölkná í Þistilfirði
Helstu magntölur eru:
Heildarlengd bita 143 m
Heildarþyngd stáls 33 t
Útboðsgögn fást hjá aðalgjaldkera Vega-
gerðar ríkisins Borgartúni 5, 105 Reykjavík
gegn 500 kr. skilatryggingu.
Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn
og skila í lokuðu umslagi til Vegagerðar ríkis-
ins í Reykjavík fyrir kl 14.00 þann 20. janúar
1984 og kl. 14.15 sama dag verða tilboðin
opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum,
sem þess óska.
Reykjavík í desember 1983
Vegamálastjóri.