Þjóðviljinn - 31.12.1983, Page 30

Þjóðviljinn - 31.12.1983, Page 30
30 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. desember - 1. janúar 1984 Sjúklingasöfnunin í Garðabœ: Brýtur bærinn líka samninga? Auglýsingum skal háttað eftir lœknalögum segir Páll Pórðarson, framkvœmdastjóri LÍ. „Þetta mál kemur væntanlega til kasta félagsstjórnanna beggja stax eftir áramót“, sagði Páll Þórðarson, framkvæmdastjóri Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur í gær um sjúklingasöfnunina í Garðabæ. Páll sagði að læknarnir í Garðabæ störf- uðu eftir númerasamningi sem læknafé- lögin hafa gert við sjúkrasamlögin og enn- fremur væri í samningi læknanna tveggja við Garðabæ ákvæði um að auglysingum skuli háttað í samræmi við reglur félaganna og Læknalögin. „í þeim er skýrt kveðið á um hvernig læknar megi auglýsa sig“, sagði Páll, „og þarna er farið út á ystu nöf eða jafnvel yfir mörkin í þeim efnum. Það er vissulega gert gegn vilja læknanna sem í hlut eiga, en spurningin er hvort rekstrar- aðili eins og bærinn í þessu tilfelli, falli ekki einnig undir þessi ákvæði". Páll sagði ljóst að úr þessu yrði dreifibréf- ið sem búið er að bera í hvert hús ekki stoppað. „Það er langt frá því að læknafé- lögin séu ánægð með þá kynningarstarf- semi, sem þarna hefur verið beitt“, sagði hann. „Okkur var ekki ljóst að annað bréf væri á leiðinni, en fyrra kynningarbréfinu, sem sent var út, hafði reyndar verið breytt að ósk félaganna". Páll sagðist að lokum hafa verið í sam- bandi við bæjarstjóra Garðabæjar vegna þessa máls og þeir væru á sama máli um hvað bænum væri heimilt í þessum efnum. - ÁI Engin önnur leið var fær Öllu fé úr fjárbúi í Laugardal slátrað vegna gruns um riðuveiki „Grimmileg aðför að gömlum manniu segir bóndinn, Stefnir Ólafsson segir Sigurður Sigurðarson dýralœknir að Keldum „Það var því miður ekki hægt að gera þetta öðruvísi og enginn vafí leikur á að riðuveiki var komin upp í fénaði Stefnis. Við höfum verið með markvissar aðgerðir til að halda riðuveikinni niðri á þessu landsvæði, en til þess að það takist þarf ávallt að grípa til skjótra ráð- stafana strax og minnsti grunur leikur á að sýkin hafí stungið sér niður‘% sagði Sigurður Sigurðar- son dýralæknir á Keldum, en hann hefur umsjón með rannsóknum á riðuveiki ■ sauðfé. „Það hefur fengist staðfest að riðuveiki var í þeim tveim ám sem við tókum til rannsóknar úr fjár- stofni Stefnis á Reykjaborg. At- hugun stendur nú yfir á heilum þeirra kinda sem við slátruðum í lok nóvember sl. og ættu niður- stöður að liggja fyrir innan tíðar“, sagði Sigurður ennfremur. „Það var árið 1978 sem við hóf- um skipulegar aðgerðir til að kveða niður riðuveikina í landbúnaði Ing- ólfs og var þá slátrað öllu fé hjá mörgum fjáreigendum á svæðinu. Einnig voru nokkrar hjarðir skornar niður árið 1979. Síðan hef- ur allt þetta svæði verið undir stöðugu eftirliti og engin dæmi fundist um þessa veiki hér fyrr en í þessum tveim ám frá Stefni. Það var því miður útilokað að veita ein- hverjar undanþágur frá settum reglum í þessu eina tilfelli. Þar með hefði verið hætta á að endurnýjun og uppbygging fjárstofna hjá fjölda bænda yrði að engu gerð. Við ger- um okkur alveg ljóst að slátrun úr búi Stefnis og Reykjaborg er hon- um mikið áfall, og hann hefur alla mína samúð, en því miður var ekki hægt að standa öðru vísi að þessu en við gerðum“, sagði Sigurður Sigurðarson að lokum. _ v. Stefnir Ólafsson, fyrrum fjárbóndi að Reykjaborg í Laugardal: Al- gjörlega ófært að menn geti ruðst inn á heimili manns með þeim hætti sem hér var gert og lífsbjörginni rænt frá manni. Ljósm. eik. „Ég kalla þetta svívirðilega aðför að gömlum manni og fínnst fram- koma dýralæknisins og þeirra hjá Sauðfjárveikivörnum fyrir neðan allar hellur. Að ryðjast svona inn á heimili manns og ræna frá mér lífsbjörginni með harðneskju hlýtur að brjóta í bága við ákvæði laga um mannréttindi", sagði Stefnir Ólafsson bóndi á Reykja- borg í Laugardai en i lok nóvember var öllu fé hans slátrað þar sem dýralæknir taldi að riðuveiki hefði komið upp ■ fjárstofni hans. „Ég hef beðið lögfræðing minn um að gerð verði rannsókn á þessu athæfi og að rannsakað verði hvort kindurnar mínar sem þeir stálu frá mér hafi verið veikar. Ég er sannfærður um að þær voru stál- hraustar utan ein sem hafðí sýkst af öðru fé. Ég skrifaði aldrei undir samning um að þeim væri þetta heimilt og trúi því ekki að menn geti ráðist svona að manni. Það er víst að ég skrifa ekki undir neitt nema kæru á hendur Sigurði dýra- lækni", sagði Stefnir ennfremur. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég verð fyrir ofsóknum vegna fén- aðar míns. Haustið 1968 rændi Reykjavíkurborg frá mér 20 kind- um, vorið eftir 6 ám fullorðnum, komnum að burði. Nú er enn höggvið að mér. Svona er jólagleð- in hjá þessum mönnum og það segja mér fróðir menn að þessi . slátrun alls fjárstofnsins míns hefði vel mátt bíöa. Það vita það allir að riðuveiki er landlæg um allt land og búin að vera hér í yfir 100 ár. Hvers vegna mátti ekki bíða með þessar aðgerðir, að minnsta kosti þar til sýnt yrði að fé mitt væri raunveru- lega sjúkt?“, spurði Stefnir Ólafs- son að lokum. - v. Jón Helgason landbúnaðar- ráðherra:_____________ Ég fékk bréfið - Það liggur ljóst fyrir að ég fékk þetta umrædda bréf frá Fram- leiðsluráði, og ég hef aldrei þrætt fyrir það, sagði Jón Helgason land- búnaðar- og dómsmálaráðherra við Þjóðviljann í gær, en hann hafði samband við blaðið í tilefni fréttar á forsíðu í fyrradag „Hví neitar Jón?“ - Ég hafði þegar samband við tollstjóra og tollgæslustjóra, enda skiptir mestu að koma í veg fyrir svona afbrot í framtíðinni. Það gerði ég í framhaldi af bréfi Fram- leiðsluráðsins. Hins vegar vissi ég ekki um kæru Framleiðsluráðsins síðar og ég taldi blaðamann Þjóð- viljans þá vera að spyrja mig um hana. I því kann misskilningurinn að vera fólginn. Hins vegar hef ég ekkert með vinnubrögð rann- sóknarlögreglu að gera. Það er ekki dómsmálaráðuneytisins að segja fyrir um hvað eigi að rann- saka og hvað ekki, sagði Jón Helgason dómsmálaráðherra, en Framleiðsluráðið hafði farið þess á leit við hann í bréfinu að hann beitti áhrifum sínum sem yfirmað- ur lögreglumála að kannað yrði hvað hæft væri í ásökunum um kjötsmygl. -óg Svartá í Bárðardal Maður féll í ána og drukknaði Laust eftir hádegi í fyrradag vinna við íshreinsun á vatnsinn- varð það slys við Svartá í Bárðar- taki, ásamt öðrum manni, cn var á dal að maður sem var að vinna við leið niður í stöðvarhúsið er slysið virkjun í ánni féll í hana og druk- varð. Þar sem maðurinn féll í ána knaði. Maðurinn hafði verið að er djúpur hylur undir fossi. Hafði Undirbúningur í fullum gangi Sj ávarútvegsstefna Alþýðubandalagsins haldin síðla í janúar Undirbúningur fyrir sjávarút- vegsmálaráðstefnu Alþýðubanda- lagsins sem halda á í byrjun næsta árs, er í fullum gangi. Samkvæmt landsfundarsam- þykkt Alþýðubandalagsins verður haldin ráðstefna um sjávarútvegs- mál í byrjun næsta árs. Þremenn- ingarnir, Margrét Frímannsdóttir, Engilbert Guðmundsson og Steingrímur J. Sigfússon hafa með höndum undirbúning fyrir ráð- stefnuna. Stefnt er að því að ráð- stefnan verði haldin í Reykjavík eða nágrenni helgina 21.-22. janú- hann runnið til á klakahröngli og henst í hylinn. Leit var þegar hafin af heima- mönnum og mönnum úr Björgun- arsveitinni Þingey og nokkru síðar komu menn úr Björgunarsveitinni Stefáni til leitar. Stóð leit fram á nótt en án árangurs. í birtingu í gærmorgun var svo leit hafin á ný af sömu björgunarsveitum ásamt Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík. Líkið fannst kl. 11.15 í gærmorgun. Veður var gott meðan á leit stóð en aðstæður við ána mjög erfiðar. - mhg ar. Dagskráin er í burðarliðunum, en sjávarútvegsmálin hafa mjög verið í brennidepli að undanförnu. Talsmaður undirbúningsnefndar sagði í viðtali við Þjóðviljann, að greinilegt væri að almenningur í bráðabirgðastjórn Nútímans, hlutafélagsins sem á að taka yfír rekstur Tímans eru þeir Einar Birnir formaður félags íslenskra stórkaupmanna, heildsali, Þor- steinn Ólafsson aðstoðarforstjóri SIS, Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins, Haukur Ingibergs- son framkvæmdastjóri Framsókn-- arflokksins og Hákon Sigurgríms- son stjórnarformaður núverandi Tíma og framkvæmdastjóri Stétt- arsambands bænda. Nýja hlutafélagið mun taka yfir hefði velt sjávarútvegsmálum meira fyrir sér að undanförnu en oft áður, enda mætti segja að kom- ið væri að tímamótun í sjávarút- vegsmálum þjóðarinnar. rekstur Tímans nú um áramótin. Öllum starfsmönnum Tímans nema Þórarni Þórarinssyni hefur verið sagt upp störfum og liggur ekki ljóst fyrir hvernig endurráðn- ingum verður háttað. Hafa menn áhyggjur af ótryggri atvinnu Tíma- manna. Nokkur átök munu vera um það innan Framsóknarflokks að hve miklu leyti flokkurinn á að blanda sér inní hina nýju sameign SÍS og kaupmanna. -og Starfsfólk Tímans hefur fengið uppsagnarbréf Stórkaupmenn og SÍS að taka yfir Tímann

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.