Þjóðviljinn - 07.01.1984, Qupperneq 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. janúar 1984
Musica Nova
í N.H. á mánudag:
Webern-tónleikar
Musica Nova heldur sína aðra
tónleika á þessum vetri í Norræna
húsinu á mánudagskvöld kl. 20.30.
Verður þar minnst aldarafmælis
austuríska tónskáldsins Antons
Webern.
Anton Webern var mikill áhrifa-
valdur á tónlist þessarar aldar, en
nýjar tónsmíðaaðferðir sem hann
og félagar hans í Vínarborg tileink-
uðu sér í byrjun 20. aldarinnar
urðu leiðarljós margra yngri tón-
skálda í áratugi.
Webern fæddist í Vínarborg 3.
desember 1883, og þar starfaði
hann mestan hluta ævinnar sem
hljómsveitarstjóri, tónskáld og
kennari. Hann lést árið 1945.
Á tónleikunum í Norræna Hús-
inu verða flutt verk frá hinum ýmsu
tímabilum ævi hans. Sex Bagatell-
ur fyrir Strengjakvartett, Fjögur
verk fyrir fiðlu og píanó, Þrjú Smá-
lög fyrir selló og pínó, Tilbrigði
fyrir píanó, Fimm sönglög op. 4, og
Kvartett fyrir fiðlu, klarinett, sax-
ófón og píanó.
Nýlistasafnið Vatnsstíg
leiklist
Anton Webern
Flytjendur eru Þórhallur Birgis-
son, Kathleen Bearden, Helga
Þórarinsdóttir, Nóra Kornblueh,
Snorri Sigfús Birgisson, Guðríður
Sigurðardóttir, Rut Magnússon,
Jónas Ingimundarson, Óskar Ing-
ólfsson, Vilhjálmur Guðjónsson
og Svana Víkingsdóttir.
Alþýðuleikhúsið, Kjarvalsstaðir:
Alþýðuleikhúsið sýnir „Katfitár og frelsi"
eftir Fassbinder I vestursal Kjarvals-
staða í dag laugardag kl. 16.00 Fimm
sýningar eru fyrirhugaðar á Kjarvals-
stöðum á næstunni. Næsta sýning verð-
ur á þriðjudagskvöldið kl. 20.30.
Stúdentaleikhúsið:
Svívirtir áhorfendur eftir Peter Handke, í
þýðingu Bergljótar Kristjánsdóttur og
undir leikstjórn Kristínar Jóhannesdótt-
ur. Sýningar í kvöld og annað kvöld (
Tjarnarbæ kl. 20.00.
Leikfélag Reykjavíkur:
Hart i bak eftir Jökul Jakobsson er í Iðnó í
kvöld, laugardag, en alls er búið að sýna
verkið i 30 skipti í vetur. Leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson en meðal leikenda:
Soffía Jakobsdóttir, Jón Sigurbjörnsson,
Kristján Franklín Magnússon og Edda
Heiðrún Backman.
Þjóðlelkhúslð:
Gamanleikritið Skvaldur er tvisvar á
stóra sviðinu ( kvöld, laugardagskvöld.
Fyrri sýningin hefst kl. 20.00 en sú síðari
kl. 23.30. Lina langsokkur sprellar siðan
á sama sviði á morgun, sunnudag kl.
15.00. Nú fer hver að verða síðastur að
fylgjast með fjörinu ( Línu.
fslenska óperan:
Frumsýning á gamanóperunni Rakarinn
í Sevilla eftir Gioacchino Rossini á
sunnudagskvöld. Önnur sýning á mið-
vikudagskvöld. Þettaer þekktasta ópera
Rossinis en hún var fyrst flutt í Róm árið
1816.1 aðalhlutverkum eru Kristinn Sig-
mundsson, Sigríður Ella Magnúsdóttir,
Júlíus Vifill Ingvarsson, Kristinn Halls-
son, Jón Sigurbjörnsson, Elísabet F.
Eiríksdóttir og Guðmundur Jónsson.
Afmœlistónleikar
Kammersveitar
Reykajvíkur:
Árstíð-
irnar
Leikklúbburinn Saga á Akureyri
ímyndunarveikin
eftir Moliére
Leikklúbburinn Saga á Akureyri
sýnir nú um þessar mundir gleði-
leikinn ímyndunarveikina eftir
franska leikritaskáldið Moh'ére.
Fimmtán hlutverk eru í sýninguni
sem þrettán leikarar fara með í helstu
hlutverkum eru: Magnús Sigurólason,
Ema Hrönn Magnúsdóttir, Anna
Jóna Vigfúsdóttir, Inga Vala Jóns-
dóttir, Ólafur Hilmarsson og Jóhann
Pálsson. Leilcstjóri: Þröstur Guð-
bjartsson.
Leikritið gerist í París 1673 og er
skopleg ádeila á læknastéttina. Það
fjallar í stuttu máli um aldraðan
auðkýfing, Argan að nafni og sam-
skipti hans við lækna og lyfsala.
Imyndunarveikin var fyrst sýnd hér
á landi 1886 í Reykjavflc síðan hefur
það marg oft verið sýnt við miklar
vinsældar bæði hjá atvinnuleikhúsum *
og áhugahópum.
Næsta sýningar hjá Leikklúbbnum
Sögu verða í Dynheimum: Föstudag-
inn 6. jan. k. 23.30, laugardaginn 7.
jan. kl. 20.30 og þriðjudaginn 10. jan.
kl. 21.00.
Kammersveit Reykjavíkur
minnist þess með tónleikum í
Áskirkju sunnudaginn 8. janúar og
þriðjudaginn 10. janúar að 10 ár
eru liðin frá því að sveitin var stofn-
uð. Á tónleikum verða Árstíðirnar
eftir A. Vivaldi fluttar, eitt feg-
ursta og vinsælasta verk barokk-
tímans.
Það voru 14 hljóðfæraleikarar
sem stofnuðu Kammersveit
Reykjavíkur 1974. Hefur hún
starfað samfellt síðan og að jafnaði
haldið fjóra tónleika á ári og auk
þess tekið þátt í listahátíðum í
Reykjavík, leikið útvarp og sjón-
varp og haldið tónleika á Norður-
löndum.
Árstíðirnar eftir A. Vivaldi eru
fjögur einleiksverk fyrir fiðlu. Á
tónleikunum á sunnudag leikur
Helga Hauksdóttir á fiðluna í Vor-
inu, Unnur María Ingólfsdóttir í
Sumrinu, Þórhallur Birgisson í
Haustinu og Rut Ingólfsdóttir í
Vetrinum.
Þorsteinn Gylfason, lektor, hef-
ur þýtt sonnetturnar Árstíðirnar
Kammersveitin æfir fyrir afmælistónleikana.
sem A. Vivaldi orti sjálfur um leið
og hann samdi tónverkið og verður
þýðingin birt í tónleikaskránni.
Tónleikarnir á sunnudag hefjast kl.
17 og er uppselt á þá.
Aðgöngumiðar að tónleikunum
á þriðjudaginn verða seldir í ístóni,
Freyjugötu 1 Rvík, og að auki við
innganginn í Áskirkju fyrir tón-
leikana.
Óperumynd í MÍR-salnum
Fyrsta kvikmyndasýningin í
MÍR-salnum á nýju ári verður nk.
sunnudag, 8. janúar kl. 16. Sýnd
verður óperumyndin „Boris Go-
dúnov“. I mynd þessari flytja ein-
söngvarar, kór og hljómsveit
Bolsoj-leikhússins í Moskvu óperu
þá sem Mússorgskí samdi eftir
harmleik Púskins um Godúnov
keisara er uppi var um aldamótin
1600. Óperan var frumflutt í St.
Pétursborg 1872 en „sló í gegn“
aldarfjórðungi síðar, þegar Fjodor
Shaljapin fór með titilhlutverkið.
Síðan er „Boris Godúnov" talin í
hópi öndvegisverka rússneskrar
óperu.
Næsta mynd í MÍR-salnum (15.
jan): „Gamalt og nýtt“ eftir
meistara Eisenstein. Aðgangur að
MÍR-salnum, Lindargötu 48, er
ókeypis.
Guðmundur Thor
-grafík og málverk
eftir Vivaldi
Guðmundur Thoroddsen opnaði í
gær sýningu á grafíkmyndum og mál-
verkum í Nýlistasafninu við Vamsstíg.
Guðmundur stundaði myndlistar-
nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur
hjá Hringi Jóhannessyni vetumar
1974 og 75, en hélt síðan út til Frakk-
lands þar sem hann var við myndlist-
ardeild Parísarháskóla og Beaux-arts
akademíuna árin 1976-78. Frá haust-
inu 1981 hefur hann verið við Rfldsak-
ademíuna í Amsterdam.
Þetta er önnur einkasýning Guð-
mundar hér á landi, en hann hefur
einnig tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum í Danmörku, Hollandi og hér
heima.
Verkin á sýningunni eru flest unnin
á sl. ári og eru til sölu. Sýningin er opin
daglega kl. 16-20, og 16-22 um helgar
fram til 15. janúar.