Þjóðviljinn - 11.02.1984, Page 4

Þjóðviljinn - 11.02.1984, Page 4
4 'SÍÐA ÞjaÐVlÍLjÍNN Helgin 11! -12. febrúar 1984 Vináttan opnar augu okkar fyrir þeim göllum ífari vina, sem orð- ið geta þeim til ógœfu. Hins vegar sjáum við þá galla eina i fari þeirra, sem við elskum, er bitnað geta á sjálfum okkur. La Bruyére. Kristján Fjallaskáld ,Einn ég harma, einn ég styn“ Kristján Jónsson Fjallaskáld (1842- 1869) varð aðeins 27 ára gamall en náði þó langt á skáldabrautinni. Hann var í vinnumennsku í átthögum sínum og átti lítilla kosta völ til menntunar. Ævi Kristjáns var oft dapurleg, enda bera kvæði hans þess vott. Hér eru nokkur dæmi: Einmana Engan trúan á ég vin, auðnudagar þverra. Einn ég harma, einn ég styn, einn ég tárin þerra. Einn ég gleðst, og einn ég hlœ, er amastundir linna. Aðeins notið einn ég fœ unaðsdrauma minna. Staka Við skulum ekki víla hót, það varla léttir trega, og það er þó ávallt búningsbót að bera sig karlmannlega. Haust Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða. Nú er komið hrímkalt haust, horfin sumars blíða. Tárið Pú sæla heimsins svalalind, ó, silfurskœra tár, er allri svalar ýtakind og ótal lœknar sár. Æ, hverf þú ei af auga mér, þú ástarblíða tár, er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mér himneskt Ijós í hjarta skín í hvert sinn, er ég græt, því drottinn telur tárin mín, - ég trúi og huggast læt. Spjallað við Jóhanrt Hjartarson, nýbakaðan alþjóðlegan meistara í skák - Ætlarðu ekki að fara út í frekara nám? - Ég býst við að innrita mig í Háskólann í haust. - í hvað grein? - Lögfræði. Það virðist eiga vel við skák- menn. - En hvernig gengur það upp fjárhags- lega að helga sig skákinni? - Menn virðast alltaf geta komist í það að skrifa eitthvað um skák og hafa tekjur af því. - En fá titilhafar einhvern fjárhagsstuðn- ing? - Allir nýir titilhafar fá eina stóra greiðslu úr svokölluðum Landsbankasjóði og ég vonast til að fá hana. Það er hins vegar ekki fyrr en menn verða stórmeistarar að mögu- leiki er á launum. - Þarf ekki mikið líkamsþrek til að standa sig í sterkum mótum? Jóhann: F.kkert að hugsa um stórmeistaraáfanga. Ljósm.: Atli. „ Ég villtist inn í Taflfélag Reykjavíkur“ Ámiðvikudagskvöld bættist nýrtitilhafi í hóp íslenskra skákmanna og er hann sá sjötti í þann hóp. Þetta er ungur og yfirlætislaust piltur, aðeins 21 árs gam- all, og heitir Jóhann Hjartarson eins og flestum mun vera kunnugt sem fylgjast með skák og fjölmiðlum. Þetta kvöld vann hann biðskákir við tvo alþjóðlega meistara, þá Jón L. Arnason og De Firmian og ertaplaus á mótinu þegar tvær skákir voru eftir. Við slógum á þráðinntil Jóhannsá fimmtudagsmorgun og ætluðum að biðja um dálítið gott viðtal en Jóhann sagðist þá vera á kafi í skákpælingum en seinna um daginn átti hann að keppa við HelgaOlafsson, helsta keppinautinn á mótinu. Það varð þvíúr að hafa stutt símaviðtal við Jóhann og bíða með stóra viðtalið þar til eftir að mótinu lýkur. - Er langt síðan þú byrjaðir að tefla, Jó- hann? - Ætli það séu ekki svona 10 ár síðan ég byrjaði af einhverju viti? - Og hvað olli því að þú fékkst þennan áhuga? - Það var ekkert sérstakt. Ég villtist inn í Taflféiag Reykjavíkur á sínum tíma. - Og hvenær vaktirðu fyrst verulega at- hygli? - Það var kannski helst þegar ég varð íslandsmeistari í skák árið 1980. Þá komst ég í sveit íslendinga á Ólympíumótinu í skák sem haldið var á Möltu þannig að það ár var ansi mikilvægt fyrir mig. - Er skákáhugi á heimili þínu? - Enginn sérstakur. Pabbi teflir og hefur gaman af að fylgjast með en það er allt og sumt. - Hverjir eru foreldrar þínir? - Þau heita Hjörtur Magnússon og Sigur- laug Jóhannsdóttir. - Teflirðu við pabba þinn? - Ekki lengur. - Nú átt þú möguleika á að ná stór- meistaraáfanga í tveimur síðustu umferð- um mótsins. Hvernig leggst það í þig? - Ég er ekkert að hugsa út í það. Ég hugsa bara um hverja skák fyrir sig, kæri mig ekk- ert um að klúðra mínum málum með því að þenja mig einhver ósköp og sprengja mig svo kannski fyrir bragðið. Maður hefur horft á hvernig hefur farið hjá hinum al- þjóðlegu meisturunum hérna. - Helgar þú þig eingöngu skák núna? - Ég lauk stúdentsprófi sl. vor og vann svo í Búnaðarbankanum fram að jólum en nú hef ég hugsað mér að helga mig skákinni þetta árið. - Það er mjög nauðsynlegt til að hafa gott úthald. Ég er farinn aó stunda sund og svo labba ég dálítið mikið. - Hefurðu önnur áhugamál en skákina? - Það er ekki mikill tími fyrir annað. Mér finnst gaman að fara á skíði þegar ég get. - Finnst þér íslenskir skákmenn fá nóg tækifæri? - Nei, árangurinn byggist náttúrulega töluvert á að þeir fái tækifæri til þess að taka þátt í sterkum mótum eins og þetta er. Það eru allir mjög ánægðir með þetta framtak Búnaðarbankans og hann gefur með þessu öðrum fyrirtækjum gott fordæmi. Það væri t.d. í lófa lagið fyrir fyrirtæki eins og Flug- leiðir að halda sterk skákmót meðan ferð- amannatíminn stendur ekki sem hæst. Þá eru þeir bæði með hálftómar flugvélar og hótel. - En það er allgóð tíð hjá ykkur núna? - Já, þetta er hálfgert skákfestival. Og mót eins og þetta Búnaðarbankamót eru ekki svo dýr. Ég reikna með að það kosti ekki nema svona 500 þúsund krónur að halda það. - Hverja telurðu bestu skák þína fram að þessu á mótinu? - Líklega síðasta skákin í gærkvöldi sem 1 ég tefldi við DeFirmian. Hún var löng, erfið og fjörug. -GFr. 9rtii Þetta póstkort ereitt hið frcegasta í sögu íslands. Þarna ríða þeir hlið við hlið vinirnirFríðrik VIII. konungur Dana- veldis ogHannes Haf- stein rúðherra íslands við Kambabrún úrið 1907. Erþeir komu til Kolviðarhóls talaði kon- ungur í rœðu um ríkin sín tvö en varð að taka ummœlin til baka vegna kröfufrd Danmörku. Eftir þessari Ijósmynder eittfrœgasta mdlverk ÞórarinsB. Þorldks- sonarmúlað.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.