Þjóðviljinn - 11.02.1984, Page 7
Helgin 11.—12. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
vefnaðarvöruversfun
í porti JL — hússins
Ver/ð velkomin
TAU OG TÖLUR 1
JL — portinu Hrinjlbraut l^i Hc-ykjavík Sími 23675
m 11 nvi rn 111111 • 111 n ri i rn i rriVm n rrrn rrmn 11 u • • n nnvi ri
Samkeppnin er hörð
segir Alfreð
Jóhannesson
framkvæmdastj óri
ísfugls h.f.
Sumir dagar eru svo leiðinlegir í
Reykjavík að það er beinlínis
nauðsynlegt að yfirgefa það pláss
um stund. A einum slíkum skrupp-
um við Magnús Bergmann Ijós-
myndari upp í Mosfellssveit, það
þarf svo sem ekki að fara langt. Við
Reykjaveginn þar í sveit er fugla-
sláturhús Isfugls. Framkvæmda-
stjórinn, snaggaralegur maður um
þrítugt, Alfreð Jóhannsson heitir
hann, segir okkur fúslega frá
starfseminni og sýnir okkur stað-
inn.
Sláturhúsið annast slátrun fyrir 3
stóra kjúklingabændur þarna í ná-
grenninu, sem allir framleiða undir
Isfuglsnafninu og er framleiðslan
um 30.000 þúsund fuglar á mánuði
eða 30-35 tonn. ísfugl kaupir fram-
leiðsluna af bændum og sér þar af
leiðandi um sölu hennar. ísfugl er
hlutafélag og eru hluthafar bæði
einstaklingar og fyrirtæki, um 60
talsins.
- Hvernig gengur svo að selja
framleiðsluna?
- Stöku sinnum framan af vott-
aði fyrir offramleiðslu. Við brugð-
umst við henni með ýmsum hætti,
minnkuðum framleiðsluna, settum
á markaðinn ýmsar nýjungar og
lækkuðum verðið. Núna er mark-
aðurinn í jafnvægi og hefur verið
um langt skeið. Við eigum nokk-
urra vikna birgðir jafnan, jú, þær
eru nauðsynlegar til að mæta
óvæntri eftirspurn og árstíða-
bundnum sveiflum, t.d. toppunum
um jól, páska, á sumrin o.s.frv.
Fyrirtækið hefur lagt í verulega
fjárfestingu í vélakosti sláturhúss-
ins t.d. fer öll slátrun fram við færi-
band, þar sem vélar vinna flest
störfin, eins og gerist hjá
fullkomnustu sláturhúsum er-
lendis.
Alfreð segir okkur að sam-
keppnin sé allhörð í þessari bú-
grein. Á undanförnum fjórum
árum hefur fyrirtækið og kjúkling-
abændur náð mjög góðum árangri í
að kynbæta kjúklingana, með því
m.a. að flytja inn nýja stofna frá
Noregi. Þessir nýju stofnar hafa
náð sláturþyngd (1200 g) á 7-8 vik-
um í stað 10-12 vikum hjá gömlu
stofnunum. Við þetta stórminnkar
fóðurkostnaðurinn sem er um
helmingur kostnaðar við kjúkl-
ingauppeldið.
- Við stefnum að því að auka
vaxtarhraðann meira, niður í 5-6
vikur eins og hann er t.d. í Dan-
mörku. Þetta ásamt bættri aðstöðu
á búunum (vatn, fóður, loftræst-
ing, hitastig o.fl.) hefur orðið til
þess að verð á kjúklingum hefur
verið tiltölulega stöðugt miðað við
verð annarra landbúnaðarafurða.
Aðalávinningurinn er nú samt hve
kjötið af þessum nýja stofni er
betra en af þeim gömlu. Það er
meyrara, safaríkara og þarf styttri
steikingartíma. Helsti út-
litsmunurinn á þessum kjúklingum
og þeim af gamla stofninum er að
þeir eru lappastyttri, lærin hold-
meiri og fuglinn allur mun kjöt-
meiri.
Sem helstu nýjungar í fram-
leiðslunni nefnir Álfreð „Rúllett-
IAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
urnar“ sem komu á markaðinn í
haust og eru þegar orðnar frægar
um allt land. Hér er um að ræða
úrbeinaða kjúklinga bragðbætta
ýmist með bacon, sveskjum eða þá
að þeir eru léttreyktir. Þá talar Al-
freð einnig um gæsir, endur og
kalkún, sem líkur eru til að komi á
markaðinn áður en langt um líður.
Þess má geta að Alfreð er ný-
kominn af stórri sýningu í Atlanta í
Bandaríkjunum þar sem sýndar
voru helstu nýjungar í framleiðslu
og meðhöndlun kjúklingakjöts í
heiminum í dag og mega menn
vænta ýmissa nýrra rétta úr kjúkl-
ingakjöti frá ísfugli á næstunni. Nú
starfa hjá ísfugli hf. um 20 manns.
Unnið við kjúklingapökkun hiá ís-
fugli h.f..
Alfreð Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri ísfugls hf.með eina af auglýs-
ingum fyrirtækisins í bakgrunni.
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Fóstrur
á eftirtalin dagvistarheimili:
Laufásborg,
Iðuborg,
Holtaborg,
Tjarnarborg e.h.
Upplýsingar veitir forstöðumaður viðkom-
andi heimilis.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 20. febrúar
1984.
FULLTRÚASTARF
Ein af aðaldeildum Sambandsins óskar eftir
að ráða starfsmann í fulltrúastöðu. Leita að
manni með góða bókhalds- og rekstrarþekk-
ingu ásamt þekkingu á tölvubúnaði.
Viðskiptafræði- og/eða endurskoðunar-
menntun æskileg.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra er veitir nán-
ari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 20. þessa mánaðar.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðar-
mál.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALO
Samvinnubankinn á Akranesi
mun frá og með þriðjudeginum 14. febrúar nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um kaup og sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að kaupa innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERI .END
\TÐS
Akranesi
Auglýsið í Þjóðviljanum