Þjóðviljinn - 11.02.1984, Page 20

Þjóðviljinn - 11.02.1984, Page 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 11.-12. febrúar 1984 bacjarrölt Veistu... að árið 1960 sótti Krúsjeff Alls- herjarþing Sameinuðu þjóð- anna og tók þá af sér skóinn og barði með honum í borðið er honum mislíkaði ræðu- flutningur. Til þess að þagga niður í honum notaði þing- forsetinn fundarhamarinn svo ótæpilega að hann brotn- aði. Þessi hamar var smíðaður af Ásmundi Sveinssyni mynd- höggvara. j að það var fyrst árið 1961 sem samþykkt var á Alþingi að launataxtar karla og kvenna skyldu vera jafnir fyrir svipuð störf. , að styttan af Ingólfi Arnarsyni er ekki bara á Arnarhóli í Reykjavík, heldur er sama styttan einnig í Hrífudal í Noregi, á bernskuslóðum Ingólfs. að þegar hipþaæðið stóð sem hæst fóru bandarískir hippar í stórum stfl með Loftleiðum yfir Atlantshaf, enda ódýrast að ferðast með þessu flugfé- lagi. Gekk það þá undir nafn- inu The Hip-hop Airlines í er- lendum blöðum. að árið 1964 samþykkti borgar- ráð Reykjavíkur einróma að ráðhús Reykjavíkur skyldi byggt í norðurenda Tjarnar- innar. Þrátt fyrir þessa ein- róma samþykkt runnu fyrir- ætlanirnar út í sandinn. að eldgosið í Surtsey á árunum 1963-1966 er lengsta óslitna gos hér á landi frá því að fs- land byggðist. að þegar Margrét, núverandi Danadrottning, og Henrik prins giftust gáfu íslendingar þeim tvo reiðhesta: Stjömu og Perlu. að það eru víðar Þingvellir en við Öxará. Skammt fyrir ofan Stykkishólm er bær og gamall fjórðungsþingstaður með þessu nafni. að árið 1944 slitnaði burðar- strengur á þáverandi Ölfusár- brú með þeim afleiðingum að tveir bflar féllu í ána. Mann- björg varð. að Stykkishólmur heitir eftir skeri, sem bryggja liggur nú fram í. Nefnist það Stykkið. Drepinn úr dróma bílsins Þorri slær nú kuldaklóm, kalt við hlær og gefur grið ei nein. Við í borginni hörmum þó ekki afla- tjón eða minnkandi stabba, held- ur höfum við áhyggur af bflunum okkar. Er það þó lítilvægt miðað við hitt. Við óttumst að klaka- hryggir rífi undan bflunum, þeir renni utan í aðra bfla eða strandi á skafli. Satt að segja er þetta vfl okkar þó hálf hlægilegt því bflar eru - eins og allir vita - gjörðir úr einskis verðu blikki og járni og endast okkur sjaldnast nema í hæsta lagi í 10 ár. Ég hef reynt að aka á skrjóðn- um mínum öðru hverju síðan Vetur konungur fór að byrsta sig fyrir alvöru snemma í janúar og var satt að segja kominn með harðræðishnúta víða um líkam- ann af eintómri streitu. Ég setti jafnan í axlirnar undir stýri og var með lífið í lúkunum í bókstaflegri merkingu þess orðs. Um síðustu helgi var mér nóg boðið og tók þá skynsamlegu ákvörðun að láta bfldrusluna eiga sig þar sem hún er og fara ferða minna gangandi eða með strætisbílum. Er skemmst frá því að segja að þetta er allt annað líf. Nú geng ég bros- andi upp og niður stíga sem hafa myndast um snjófjöllin á gang- stéttunum eða þá á miðri götu, rjóður í vöngum og streitulítill. Hreyfingin og frostið örvar blóð- rásina og stælir hug og dug. Nýtt landslag hefur myndast í borginni. Síðumúlinn sem venju- lega er marflatur og sviplítill er t.d. orðinn eins og lítil útgáfa af Vatnsdalshólum. Þar eru brekk- ur, farvegir, hólar hér og hvar með margbreytilegu móti, gljúf- ur, flákar og hvítar kynjamyndir. Þessa getur maður ekki notið nema vera frjáls og óbundinn af blikkbeljunni. Því fylgir líka barnsleg unun að fara ótroðnar slóðir í þessu nýja landslagi, ryðja brautina fyrir aðra sem fylgja í fótmál manns eða eiga þátt í að troða slóð annarra og gera hana betri og traustari. Þess- ir nýju gangstígar eru ekki lagðir með reglustrikum heldur hlykkj- ast þeir eftir duttlungum og sköpunarþrá brautryðjenda. Beint fyrir utan gluggann í vinnunni minni hef ég undanfarn- ar vikur fylgst með rauðum Fólksvagni sem kúrir í geysi- legum snjóskafli undir löngum steinvegg. Ég er að skemmta mér við tilhugsunina um hvflík orka færi í að moka bflnum farveg út úr snjófarginu. Svona er ég illgjarn. Ég ætla að fylgjast méð þessum vanmáttuga bfl það sem eftir lifir vetrar. Ég held nefnilega að hon- um skili ekki út fýrrení vorleys- ingum. Svo stór er þessi skafl og svo langt er í ruddan veg. Hitt er annað mál að kannski eru eigendur þessa bfls fullorðið fólk sem ekki þorir út af ótta við að hrasa eða renna og beinbrjóta sig. Kynjaveröld Vetrarkonung- sins er nefnilega ekki jafn spenn- andi fyrir alla. En mér er skemmt - eftir að hafa leyst mig úr læðingi bflsins. - Guðjón sunnudasshrossaátan 1 2 3 4 5~ (o 7 22 8 T~ á> ? 22 2 L )0 e // S? !2 2 V 9 3 )3 /3 22 14 Jó' ? 10 V ig ? 3 9 J3 22 3 /3 14 20 21 22 T~ /? /g 20 22 /? ID /2 7- // 22 )/ 4 ? Zi 22 T' II 4 22 (í> 21 3 23 4 ? 22 24 3 ? // V 26> )6> Zo 2? 24 /2 ? // 4- 22 ? 5^ 22 3 23 3 ? 22 2 20 °) )3 y 22 24 M O /3 T 4 7- (d // 22 9 )(? )3 12 23 22 2 22 ? é V 2 4 7 4/ 3 ? 22 20 & 27 2é? 13 22 21 )g 25 ? 20 ? 22 12 30 22 31 2/ 20 22 13 20 2b 22 23 18 ? 24 3 y vz 9 13 3 )5 i U 26> 3o 3 2? 23 20 24 24 )3 b 26 22 20 & 24 20 // 2(p 22 23 22 27 (p 2 20 20 4 Nr. 410 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á stórborg í Evrópu. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 410“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 2 5 26 30 )(s> 26 20 ? Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér- hljóða og breiðum t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt. Verð- launin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 407 hlaut Snjólaug Guðmundsdóttir, Brúarlandi, 311 Borgarnesi. Þau eru skáldsaga Heinrichs Böll: Og sagði ekki eitt einasta orð. Lausnarorðið var Grindavík. Verðlaunin að þessu sinni er Ráð við illum öndum eftir William Heinesen.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.