Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 3. - 4. mars 1984 fréttaskyring Kvótakerfið Hœttulegt vald og afleiðingar þess Aflaskipið Friðrik Sigurðsson. Sá er veitt hefur svo miklð á þetta skip undanfarin ár, Sigurður Bjarnason seldi það í fyrra og fékk nýrra í stað- inn. Fyrir bragðið missir hann um eitt þúsund tonn af þeim kvóta sem hann hefði átt að fá, ef ekki hefði verið skipt um skip. Hinn marg umræddi og um- deildi aflakvóti sem ákveðið var að taka upp sl. haust hefur nú litið dagsins ljós. Allir þeir gallar sem margir spáðu að fylgja myndu honum hafa orðið skýrir og engir aðrir sem ekki voru séðir fyrir eða menn nefndu aldíei á nafn. Strax í upphafi, þegar kvóti var fyrst nefndur, lögðust margir gegn honum og færðu rök máli sínu til stuðnings. Allt virðist það hafa komið fram sem sagt var. Aðeins einn kostur fylgir afla- kvótanum. Með honum er hægt að sjá til þess að einungis verði veidd 220 þúsund tonn af þorski, eða því sem næst. Allt annað varðandi þennan kvóta virðist vera neikvætt, hvernig sem á mál- in er litið. Ef til vill var það alitaf vitað og ekkert við því að gera ef taka átti upp kvóta. Þó er ljóst að svo alvarlegir gallar eru á kvóta - kerfinu að þá verður að sníða af ellegar afleggja kvótakerfið og taka upp aðrar aðferðir til sókn- arminnkunar. Þær leiðir eru til. Á þær hefur verið bent. Svikin Eitt af því fyrsta sem kom fram, þegar kvótinn leit dagsins ljós, eru stórfelld svik hvað varð- ar sölu á fiski framhjá vigt, sem leiðir aftur til þess að aflanótum er ekki skilað til Fiskifél. íslands. Samkvæmt aflanótum FÍ er hverjum bát úthlutaður aflai- kvótii.Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands íslands hef- ur í harðorðri bókun í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins bent á að stór svik ættu sér stað í þessum efnum. Fiskur væri seld- ur á uppsprengdu verði, undir borðið og framhjá skiptum til sjó- manna. Þetta hefur kvótinn sann- að. Menn leita nú með logandi ljósiaðaflanótum í tilraun sinni til að auka kvóta sinn. Eins liggj a útgerðarmenn í innflytjendum bátavéla til að gefa falskar nótur um viðgerðir á vélum báta sinna, því að tekið er tillit til bilana við Úthlutun kvóta. Þessu hafna flest- ir vélainnflytjendur á þeim for- sendum að sliíct komi óorði á við- komandi vélategund. í sjálfu sér má telja þetta mál til kosta kvótakerfisins, ef það verð- ur til að upp kemst um þessi svik. En á móti kemur að marir útgerð- armenn, sem sálfir stýra bátum sínum, hafa um árabil selt fisk- kaupendum afla í góðri trú um að í þeir skili inn aflanótum eins og þeim ber. Það hafa fiskkaupend- ur aftur á móti ekki gert, til þess að losna við að greiða ákveðin gjöld sem þeim ber. Útgerðar- menn, sem hafa á þennan hátt verið sviknir, líða fyrir það nú Verðmœtaröskun Aflakvótinn leiðir einnig af sér alvarlega eignaröskun. Hún felst í því að nýir og glæsilegir bátar, sem ekki hefur verið aflað vel á sl. ár, verða nær verðlausir vegna þess að þeim fylgir svo lítill kvóti. Aftur á móti geta gamlir og úr sér gengnir bátar, sem vel hefur ver- ið aflað á, farið í hátt verð. Þess eru dæmi að frægir aflaskip- stjórar, sem skiptu um bát á síð- asta hausti, seldu gamlan og keyptu nýjan, fái kvóta, sem er aðeins brot af því sem þeir hefðu fengið ef þeir hefðu haldið gamla bátnum. Sá frægi aflaskipstjóri Sigurður Bjarnason í Þorláks- höfn er dæmi um þetta. .Hann seldi bát á síðasta ári, sem hann hafði veitt á 1400 til 1600 tonn fyrir árið í ár. Á bátinn sem hann keypti hafði aflast illa og því fær hann aðeins um 200 tonna árs- afla. Sá sem keypti af honum gamla bátinn situr uppi með stór- an kvóta. Sveinn Sigurgeirsson f Grinda- vík skipti um bát á sl. hausti. Hann seldi gamlan og lélegan 10 tonna bát, 25 ára gamlan, en keypti 5 ára gamlan bát, sem lent hafði í reiðileysi. Hann yfírtók allar skuldir bátsins við Fisk- veiðasjóð og aðra og hóf róðra., Ef hann hefði haldið gamla bátn-! um hefði hann fengið vel á annað hundrað lestir í aflakvóta í ár. Þess í stað fær hann 60 lestir allt þetta ár með nýja bátnum. Sveinn sagði í samtali við undir- ritaðan að hann þyrfti að veiða um 300 lestir til að geta staðið f skilum. Nú er útséð um það og ekkert blasir við nema gjaldþrot. Hann segist ekki geta selt nýja bátinn, enginn kaupir bát sem hefur ekki nema 60 lesta árs- kvóta. Svona væri hægt að telja upp fjölmörg dæmi. Ljóst er að gjaldþrot blasir við fjölmörgum, • sem keypt hafa báta nýlega, ef ekki verður gerð leiðrétting hér Atvinnuleysi Þá hefur komið í ljós, að stór útgerðarfyrirtæki eru tilbúin til að kaupa smærri báta, jafnvel gamla og lélega báta, sem að öðru jöfnu væru verðlausir, fyrir gott verð ef þeim fylgir ríflegur kvóti. Þau kaupa ekki'þessi skip til að gera þau út. Þeim á að leggja en færa kvóta þeirra yfír á togara og stóra báta, sem útgerð- arfyrirtækin eiga. Þetta er löglegt samkvæmt reglum kvótakerfis- ins, þar sem leyft er að færa kvót- ann á milli skipa. Afleiðingar þessa geta orðið þær, að fjölmörgum bátum sem eru með 3ja til 5 manna áhöfn verði lagt, kvóti þeirrá færður yfir á önnur skip og sjómenn svo hundruðum skiptir missa vinn- una. Á þetta bentu fulltrúar sjó- manna í kvótanefndinni og lögðust eindregið gegn því að leyft yrði að selja kvóta milli skipa. „Slíkt mun leiða til atvinnuleysis sjómanna“ sagði Óskar Vigfússon formaður Sjó- mannasambandsins í samtali við Þjóðviljann, þegar verið var að semja kvótareglurnar. Frá því ákveðið var að ekki mætti veiða nema 220 þúsund lestir af þorski og ýmsar aðrar fískitegundir takmarkaðar veru- Sigurdór Sigurdórsson skriffar lega, hefur legið ljóst fyrir að til stórfellds atvinnuleysis muni koma hér á landi strax í vor eða sumar. Af samtölum við menn víða um land er ljóst að til þess kemur fyrr en menn uggði. Krist- mundur Halldórssson, skipstjóri í Ólafsvík, sagði í samtali við Þjóðviljann í vikunni sem leið, að nú lægi ljóst fyrir að stór hluti bátaflota Ólsara yrði búinn með sinn kvóta í þessum mánuði. — Ekkert tekur við ef fiskvinnslan bregst ogþví atvinnuleysi|fram- undan. Kristmundur sagði að hann og fleiri ætluðu að fara á rækjuveiðar og að ætlunin væri að stofnsetja rækjuverksmiðju í Ólafsvík. Það myndi vissulega bjarga einhverju. Hinsvegar ætla sér mjög margir að fara á rækju- veiðar, svo nú er haft á orði að hún verði ofveiddd. „Dráttarkarlar“ í ráðuneyti Á mörgum trillum eru tveir menn en þrjár skakrúllur. Þriðja rúlla er þá nefnd „dráttarkarl". Þessum trillukörlum er eins og öðrum úthlutaður'kvótiog nú er verið að fjalla um það í ráðuneyti hvort „dráttarkarlinn" skulital- inn með áhöfn en slíkt skiptir máli varðandi kvótaúthlutun. Kvóti trillanna er með öðrum . hætti en stærri bátanna. Trilluflotanum í heild sinni er út- hlutað ákveðnu fiskmagni, sem síðan er skipt innbyrðis á milli þeirra. Þess vegna skiptir „dráttarkarlinn“ máli. Þegar miðstýring er komin á þetta stig er hún orðin hlægileg. Það vald sem Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra lét Alþingi sam- þykkja sér til handa er slíkt að hann einn ræður stóru sem smáu í sjávarútvegi í dag. Margir telja slíkt vald hreinlega hættulegt. Þegar einn maður, hver sem hann er, hefur líf og dauða allrar út- gerðar í landinu £ hendi sér, er málið komið á afar hættulegt stig. Hæfasti maður sem setið hefur í . stóli sjávarútvegsráðherra hér á, landi, Lúðvík Jósepsson, sagði við undirritaðan á dögunum: Ég hefði aldrei tekið við slíku valdi, ég hefði ekki viljað sjá það, vegna þess að það er hættulegt.- S.dór rítst Jórnargreí n Einokunaríhaldið í borgarstjórn „Stjórnmálamenn eiga ekki að vasast í atvinnurekstri. Það er okkar hlutverk“, sagði formaður Verslunarráðsins nýverið, og þannig tala forkólfar Sjálfstæðis- flokksins sí og æ, þó að þeir for- taki ekki þátttöku opinberra að- ila í fyrirtækjum ef sérstaklega stendur á. „Við viljum hvorki sækja til stjórnmálamanna vernd gegn samkeppni né sérstaka fyr- irgreiðslu heldur almenn starfs- skilyrði og frjálsræði til að ná ár- angri. Við viljum, að stjórnmálin marki leikreglurnar, en taki ekki þátt í leiknum". Hvað sem segja má um þessa stefnu Verslunar- ráðsins þá er engum blöðum um það að fletta að hún er mjög í anda þeirra hugmynda sem Sjálf- stæðismenn halda að kjósendum fyrir kosningar. Samtrygging hœgri afla Nú gerist það að nokkur fyrir- tæki sem hafa átt í erfiðleikum með að hasla sér völl á nýju sviði fjölmiðlunar slá sér saman og fá borgina með í kompaníið. Þó að sum þeirra séu aðilar að Verslun- arráði er öllum meginhugmynd- um varpað fyrir róða til þess að koma á hagsmunasamruna og undirbúa einokun á kapalsjón- varpi og snældugerð fyrir mynd- bönd. Ákvörðun Reykjavíkur- borgar að taka þátt í lokuðu hlutafélagi um fjölmiðlunarfyrir- tæki með fjársterkustu fyrirtækj- um landsins hefur verið harðlega gagnrýnd. íhaldsmönnum í borg- inni hefur gengið afar illa að rétt- læta þessa ákvörðun sína en hafa sýnt þeim mun meiri valdhroka í meðferð málsins. Borgarstjóri hefur að vísu talað f upphöfnum tón um fyrirætlanir ísfilm, nýja framtíðarsýn og annað þvíum- líkt. Sigurjón Pétursson sagði í borgarstjórn að það eina sem stæði eftir þegar séð væri í gegn- um þessar umbúðir borgarstjóra væri hin pólitíska samtrygging hægri aflanna og að skattpening- ar borgarinnar væru betur komn- ir í öðru en þessum bónbjargar- styrk til nokkurra helstu gróða- fyrirtækja landsins. Misbeiting pólitísks valds Allir minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn hafa gert sérstakar bókanir í sambandi við afgreiðslu ísfilm-málsins. í bókun Alþýðu- bandalagsins segir m.a. að Isfilm sé stofriað til að stunda atvinnu- rekstur í beinni samkeppni við önnur fyrirtæki, sem þegar hafa haslað sér völl á sviði kvikmynda- gerðar í Reykjavík, og rutt brautina á þeim vettvangi. Með því að gerast hluthafi í fsfilm sýni meirihluti borgarstjórnar ótrú- lega valdníðslu í garð aðstand- enda þessara fyrirtækja, og efni tvímælalaust til óheiðarlegrar samkeppni við þau. Með því að velja sér lagsmenn í Isfilm h.f. misbeitir meirihluti borgarstjórnar pólitísku valdi og áhrifum, auk þess að misnota fjármuni almennings í þágu þröngra flokkshagsmuna, og beitir borgarkerfínu á blygðunar- lausari hátt en nokkru sinni fyrr fyrir flokksvagn Sjálfstæðis- flokksins. Ekki er síður alvarlegt að einstakir borgarfulltrúar meirihlutans eiga hagsmuna að gæta í einu eða fleiri þeirra fyrir- tækja, sem standa að hlutafé- laginu ísfilm.“ í bókuninni segir einnig að Al- þýðubandalagið hafi haft frum- kvæði að umræðu í borgarstjórn um nýjar leiðir í fjölmiðlun, þar sem opin lýðræðisleg vinnubrögð væru höfð í heiðri, og afl og áhugi almennings virkjaður í opinni umræðu á undirbúningsstigi og með þátttöku fjöldans þegar til framkvæmda kæmi. Síðan segir orðrétt: Eigin hugsjónum fargað ísfilm er andstæða alls þess: 1. Undirbúningurinn fór fram í pól- itískum skúmaskotum klíku- bræðra borgarstjórans. 2. Rekst- urinn verður í höndum lokaðs hlutafélags þessarar sömu cinlitu klíku. 3. Eina aflið sem máli mun skipta þegar markmið og leiðir ísfilms h.f. verða valin, verður afl peninganna. 4. Málatilbúnaður þeirra, sem ráða ferðinni innan borgarstjórnarmeirihlutans, lýs- ir hugarfari þeirra, sem bæði hafa misst sjónar á almennu pólit- isku velsæmi og fargað megin- hugsjón eigin hreyfingar.“ Inn í fortíðina Adda Bára_Sigfúsdóttir sagði í borgarstjórn að borgarstjóri tal- aði um að menn væru að fara inn í heillandi framtíð með ísfilm, en á sama tíma þokaðist borgarstjórn æ lengra inn í fortíðina. Þar er nú allt orðið með einræðisblæ á ný. Enda þótt að ísfilm málið sé allt vafið í þoku af hálfu íhaldsmanna er hverjum manni ljóst að í undir- búningi er einokun sterkra fjár- magnsafla á kapalsjónvarpi með pólitískri aðstoð borgarinnar. Það hefur sannast erlendis, þar sem íhaldsöfl hafa sótt í sama farveg, að með því er með alvar- legum hætti vegið að frelsi í fjöl- miðlun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.