Þjóðviljinn - 03.03.1984, Side 12

Þjóðviljinn - 03.03.1984, Side 12
12 SIÐA - ÞJOÐVILJINN jHelgin 3. - 4. mars 1984 Atómstöðin í dag (laugardag) frumsýnir kvikmyndafé- lagið Öðinn kvikmyndina Atómstöðin sem gerð er eftir samnefndri sögu Halldórs Lax- ness. Leikstjóri myndarinnar er Þorsteinn Jónsson, kvikmyndatöku annaðist Karl Ósk- arsson en upptökustjóri er Þórhallur Sigurðs- son og framkvæmdastjóri Örnólfur Árnason. Kvikmyndin var tekin upp síðastliðið sumar og haust í Reykjavík, Skaftafelli í Öræfum og Hvalfirði. Myndin gerist fyrirtæp- um 40 árum og hefur verið leitast við að endurskapa umhverfi þess tíma í bygging- um, húsbúnaði, farartækjum, fatnaði o.s.frv. Atómstöðin er fyrsta íslenska bíómyndin sem gerð er eftir verkum Halldórs Laxness og jafnframt dýrasta mynd sem íslendingar Atómstöðin i hafa gert til þessa, en kostnaðarverð hennar er áætlað um 14 miljónir króna. Aðalhlutverk- in í myndinni eru leikin af Tinnu Gunnlaugsdóttur (Ugla) og Gunnari Eyjólfs- syni (Búi Árland). Onnur helstu hlutverk leika Arnar Jónsson, Árni Tryggvason, Jónína Ól- afsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Helgi Björnsson, Hannes Ottóson, SigurðurSigur- jónsson, Barði Guðmundsson, Rúrik Har- aldsson, Baldvin Halldórsson, Róbert Arnfinnsson, Herdís Þorvaldsdóttir og Þóra Friðriksdóttir. Þjóðviljinn tók nokkra aðstandendur myndarinnar tali í vikunni og spurði þá nánar um gerð myndarinnar. dögunum, en þar voru mættir 40-50 íslendingar og höfðu sumir lesið söguna en aðrir ekki. Þeir, sem At- ómstöðina þekktu áður, sögðust einmitt vera ánægðir með það, hvemig við færðum út söguna án þess að gefa upp hollustu við hana. En þetta var semsagt erfitt verk- efni. Mikið af leikurum, miklar framkvæmdir við leikmynd, skipu- lagsflækjur margar. Það er ljóst að við gerð þessarar myndar spenntum við bogann eins og hægt var og kannski enn betur. Við vomm frá upphafi ákveðnir í að fara í sam- keppni við erlendar myndir sem kosta kannski tífalt meira en þessi. En það getur enginn sagt neitt um það fyrirfram hvemig til tekst. Það er heldur ekki hægt að reikna út fyrirfram hinn íslenska áhorfanda. Við reynum blátt áfram að gera eins vel og hægt er - og vonum að það skili árangri. -áb. irnar hér í bænum hafa enn á boð- stólum húsmuni sem tilheyra þess- umtímaog eldri. Innisenurnar voru síðan allar gerðar í upptökusal, en útisenur og inn- og útgöngur fengum við að taka seinna í Garðastrætinu, og þá fyrst sá ég hvernig þetta hús lítur nú út að innan. Óvissan um raunveru- lega innviði hússins gerði mér auðveldara að leika mér frjálst með fúnksjónalismann í sviðs- myndinni. Hvaðan völduð þið hús organ- istans? Jú, þessi saga er saga tveggja húsa og j afnframt tveggj a heima. Við völdum okkur framhlið bak- húss nokkurs við Laufásveginn, þar sem Veturliði Gunnarsson listmálari hefur vinnustofu sína. Það gerðum við vegna hlýlegs um- hverfis og vegna þess hvað hvönnin meðfram stígnum að húsinu var falleg. Það hvílir látleysi og hlýja yfirþessu húsi. En hvað um sviðsmy ndagerð utandyra? Jú, við þurftum líka að byggja steinkirkju, og henni var valinn staður í túninu á Hæðum við Skaftafell. Það var ekki lítið verk að koma henni upp. Falur bóndi byggði hús yfir guðdóminn en ekki yfir skepnurnar sínar, hestarnir fengu að ganga úti. Fyrir mér var þessi kirkj a eins konar fjárhús fyrii almættið, og þar er barn Uglu skírt í lok myndarinnar. Þá koma einnig fyrir í myndinni atburðirnir á Aústurvelli 30. mars 1949, og verksummerki á Alþingishúsinu eftir slaginn urðum við að gera með bellibrögðum þar sem við fengum hvorki að brjota rúður þar né klína það útímálningu. Hvað voruð þið lengi að vinna þetta verk? Þetta tók um það bil 10 vikur og við höfðum4smiði, leikmunavörð, 2 aðstoðarmenn o.fl. Alls vorum við um 8 manns í þessu. Ég held að um 3/4 hlutar myndarinnar séu teknirístúdíói. Hvað segir þessi kvikmynd okk- urídag? Atómstöðin er saga ungrar sveitastúlku sem afræður að fara suður til þess að læra orgelspil. Jafnframt er sagan saga þjóðarinn- ar á þessum tíma, séð með augum Uglu. Þetta ersú þjóðarsagaogsú veraldarsaga sem enn er að gerast, við sjáum að nú í dag er verið að leggja hornsteininn að atómstöð- inniEvrópu. Þannighefurþessi mynd áhrifaríka skírskotun til af- drifaríkustu vandamála samtímans og á erindi til allra. _ Atómstöðin Ugla og Gunnar (Tinna og Arnar Jónsson). Þorsteinn Jónsson kvikmyndleikstjóri: Breytum sögunni en ekki merk- ingu hennar Já, ég er ánægður með út- komuna, segir Þorsteinn Jónsson sem stjórnar Atóm- stöðinni. Kannski er ég orðinn of samdauna myndinni eftir þriggja ára starf- þar af 10-16 tíma vinnu á dag síðustu tvö árin, kannski er ég hættur að sjá hana utanfrá. En mér finnst leikur góður og hljóð- upptaka og bygging myndar- innar hafi lukkast, og alltént hafa allir lagt sig vel fram. Ég held það hljóti að skila ár- angri. Þorsteinn var spurður að því hvað hefði verið erfiðast við gerð þessarar myndar. - Aðbreytasögunniíkvikmynd, það er að segja handritsgerðin sjálf, sem tók langan tíma. Enda þurfti að gera margar atrennur, til að atburðir þegar sagan verður til og því sem við höfum í hy ggj u núna, þegar her- stöðvamálið sjálft er ekki eins mikið hitamái og þá. En þá viljum við reyna að sýna málið í víðtækara samhengi, smáþjóð í glímu stór- velda, spuminguna um það hvort sjálfstæði verði haldið. Og sem fyrr segir: Það er líka talsverður eðlis- munur á skáldsögu og kvikmynda- handriti, þráðurinn verður að vera einfaldari, kvikmyndin getur ekki leyft sér eins mikla útúrdúra. - Þegar skáldsaga er kvikmynd- uð, koma menn sem hafa lesið hana gjama að horfa á hana með mjög fastmótaðar hugmyndir um það, hvemig hlutimir eiga að vera? - Já, sagði Þorsteinn, við vildum einmitt koma slíku fólki á óvart. En við viljum reyna nýtt sjónarhom án þess að breyta merkingu sögunnar, án þess að snúa út úr henni. Þetta kom einmitt til tals á prufusýningu sem var haldin í Kaupmannahöfn á Sigurjón Jóhannsson leiktjaldasmiður: Aldinblóö (Sigrún Edda Björnsdóttir) Þorstelnn Jónsson sögunnar reki sig sem skyldi í kvik- mynd; til að móta persónur þannig að þær gangi upp. Það er talsverður munur á þeim hita- og átakatímum Híbýiin iýsa personunum Kvikmyndin Atómstöðin er að stórum hluta tekin í upp- tökusal og slíkt krefst að vonum mikillar sviðsmynda- gerðar. Það var Sigurjón Jó- hannsson leikmyndasmiður Þjóðleikhússins sem gerði þessa umfangsmestu leik- mynd í íslenskri kvikmynd til þessa, og við leituðum til hans til að forvitnast hvernig það verk hefði gengið fyrir sig. Við unnum þetta í upptökusaln- um Aðstaða í Vatnagörðum, þar sem við höfðum 400 ferm. gólf- rými,segirSigurjón. Þarhöfðum við 300 ferm. vinnuflöt sem við byggðum leikmyndina á. Hvað var vandasamast við það að gefa þessari mynd umhverfí? Eg held að það hafi verið að skapa Búa Árland og hans undar- legu fjölskyldu hið rétta umhverfi, sem hlaut um leið að vera eins kon- ar lýsing á íbúunum eins og híbýli ávallt eru. Við völdum að fyrirmynd húsið að Garðastræti 37, sem er byggt 1939 eftir teikningu mjög framsæk- ins arkitekts á þessum tíma. Hús þetta sem er í fúnkisstíl og ber ein- kenni Bauhaus-stefnunnar er nú aðsetur Síldarútvegsnefndar, en var teiknað af Gísla Halldórssyni arkitekt með smekklegri viðbygg- ingu eftir Helga Hafliðason. Við byggðum þetta hús upp á nýjan leik á 2 hæðum í stúdíóinu. í 1. áfanga var 1. hæðin gerð hálf, síðan hinn helmingurinn með stig- apalli og anddyri og síðan var 1. hæðinni breytt í 2. hæð hússins. Auk þessa húss byggðum við einnig heimili organistans, her- bergi Gunnars og stofuna í Eystri- Dal og að lokum ath varf Búa í þessu sama stúdíói. Var ekki erfítt að fínna við- eigandi húsmuni? Jú, því svo virðist sem þjóðin hafi losað sig við alla innanstokks- Sigurjón Jóhannsson. muni með hinum nýja smekk eftir- stríðsáranna. Ég varð meðal ann- ars að leysa þetta með því að grípa til klassískra húsgagna í renaissans og barokk-stfl. Þó er því ekki að neita að bestu húsgagnaverslan- Ugla og guöinn Jens (Tinna og Siguröur Sigurjónsson) Búi Árland (Gunnar Eyjólfsson) og Ugla.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.