Þjóðviljinn - 03.03.1984, Qupperneq 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN. Helgin 3. - 4. mars 1984
Hjartavernd
Landssamtök hjarta- og æðaverndarfélaga
HELDUR FUND FYRIR ALMENNING UM
KRANSÆÐASJÚKDÓMA
laugardaginn 10. mars 1984 kl. 13.30 í Domus
Medica.
Fundarstjóri Snorri Páll Snorrason prófessor.
Dagskrá:
1. Ávarp. Matthías Bjarnason heilbrigðisráð-
herra.
2. Starfsemi Hjartavemdar, stutt yfirlit.
Stefán Júlíusson framkvæmdastjóri.
3. Útbreiðsla kransæðasjúkdóma á íslandi.
Rannsókn Hjartaverndar.
Nikulás Sigfússon yfirlæknir.
4. Alkohólneysla í hófi. Hvar eru mörkin frá
heilsufarslegu sjónarmiði?
Dr. Bjarni Þjóðleifsson yfirlæknir.
5. Meingerð æðakölkunar.
Dr. Guðmundur Þorgeirsson læknir.
6. Blóðfita og kransæðasjúkdómar.
Hvert er sambandið þar á milli?
Dr. Gunnar Sigurðsson yfirlæknir.
7. Áhættuþættir kransæðasjúkdóms.
Varnaraðgerðir vestrænna þjóða.
Dr. Sigurður Samúelsson prófessor.
8. Getum við breytt lífsvenjum okkar til
bættrar heilsu?
Dr. Jón Óttar Ragnarsson dósent.
9. Hvers vegna borgar sig að hætta að
reykja?
Dr. Þorsteinn Blöndal yfirlæknir.
10. HRINGBORÐSUMRÆÐUR.
Umræðustjóri dr. Þórður Harðarson pró-
fessor.
Starfsmaður
í félagsmiðstöð
Starfsmaður óskast í félagsmiðstöðina Agnar-
ögn Kópavogi, fullt starf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félags-
málastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Umsóknarfrestur er til 9. mars n.k.
Nánari upplýsingar í Agnarögn sími 42902 eða
hjá Tómstundafulltrúa í síma 41570.
Tómstundaráð
Matreiðslumenn
Almennur félagsfundur verður haldinn þriðju-
daginn 7. mars að Óðinsgötu 7, Reykjavík.
Dagskrá:
Nýgerðir samningar.
Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórn F.M.
Hjúkrunarfræðingar
Fræðslufundur verður haldinn í Hjúkrunar-
skóla íslands þriðjudaginn 6. mars kl. 20.30.
Efni fundarins:
Unglingarnir og fíkniefnanotkunin.
Sjálfsmynd vímuefnaneytenda.
Fræðslunefnd HFÍ
Jónsteinn Haraldsson
sextugur
Því var hvíslað að mér í vikunni,
að vinur minn, Jónsteinn Haralds-
son, ætti 60 ára afmæli 4. mars.
Jafnframt var látin í ljós sú ósk að
ég sendi honum línu í blaðinu af
I þessu tilefni. Þessu tók ég fjarri í
i fyrstu. Ekki vegna þess að ég teldi
| hann ekki eiga það margfaldlega
skilið, ef hann kærði sig nokkuð
um það. En sjálfum hefur mér
alltaf leiðst að lesa afmælisgreinar
! - sem oft bera nokkurn eftirmæla-
keim - um fullfríska menn á góðum
aldri.
Get nefnt sem dæmi að einmitt
þegar ég stóð á þessum tíma-
i mótum, skrifaði Magnús Kjartans-
son grein, sem birtast átti í Þjóð-
; viljanum, en ég baðst undan að
! hún yrði birt. Og ekki síst fyrir það
að hún var hlaðin meira lofi en ég
taldi mig rísa undir.
Ekki veit ég hvort Jónsteinn hef-
ur sömu afstöðu til slíkra hluta - en
ég-skal vera stuttorður og stilla lof-
I inu í hóf.
Fyrir 36 árum byrjaði ég að
vinna á blaðinu okkar. Þá var Jón-
| steinn auglýsingastjóri blaðsins.
Ég held að við höfum kynnst
i frekar lítið fyrstu árin, en við áttum
[ eftir að verða nánir samstarfs-
! menn, eftir að hann varð fram-
kvæmdastjóri blaðsins í ársbyrjun
1957. Sú samvinna var að mínu
! mati ákaflega góð. Hvert mat Jón-
steins var skal ég ekki segja um.
Jónsteinn var mjög dugandi
framkvæmdastjóri og bar mikla
umhyggju fyrir gengi blaðsins.
Fjárhagur þess var þröngur eins og
oftast, og kalda stríðið lék það
grátt á þessum árum. En Jónsteinn
stóð fyrir sínu, og satt að segja var
ég stoltur yfir að hafa lagt mitt litla
lóð á vogarskálina, þegar hann var
ráðinn í starfið, sem vissulega stóð
honum nær en öðrum. Og aldrei
hef ég skilið til fulls hversvegna
hann hætti, þó að ekki færi framhjá
mér sá skoðanaágreiningur, sem
myndast hafði um rekstur blaðsins.
En þar fannst mér ekki rétt að mál-
um staðið.
Þetta varð svo til þess að mér var
troðið í þetta starf, sem ég hafði
aldrei haft mikinn áhuga fyrir, en
Jónsteinn réðist sem verslunar-
stjóri að Bókabúð Máls og menn-
ingar. Þar hefur hann lengst af unn-
ið síðan. Undir hans stjórn hefur
búðin vaxið og eflst, svo að nú er
hún ein stærsta og virtasta verslun
landsins í sinni grein.
Ég lofaði að vera stuttorður. Til-
gangurinn var heldur enginn annar
en sá að þakka Jónsteini fyrir mikla
og góða samvinnu á árum áður, og
að senda honum og fjölskyldu hans
hugheilar óskir frá okkur Valborgu
í tilefni dagsins.
Lifðu heill.
Eiður Bergmann
Eitt er það í heimi hér sem
streymir sífellt og hnökralaust, en
það er tíminn. Stundum kemur það
því á óvart að frétta, að vinir og
kunningjar eigi stórafmæli. Eink-
um gildir þetta vitaskuld um þá
sem maður umgengst nær daglega
um lengri tíma, öðru gildir um þá
sem maður sér sjaldan. Það kom
mér því nokkuð á óvart nú í vik-
unni, þegar mér var sagt að hann
Jónsteinn Haraldsson, sem að vísu
hefur verið framkvæmdastjóri
Bókabúðar Máls og menningar í
tuttugu ár og ég hef starfað með
sem formaður stjórnar MM í 10 ár,
yrði sextugur um helgina.
Jónsteinn er fæddur á Fáskrúðs-
firði 4. mars 1924. Foreldrar hans
voru Haraldur Frímannsson og
Sveinborg Björnsdóttir, sem er ný-
látin. Hann ólst upp hjá móður
sinni fyrst á Fáskrúðsfirði og síðar á
Reyðarfirði og Eskifirði. A barns-
aldri veiktist hann af þeim háska-
lega sjúkdómi berklum, sem höfðu
af honum öll unglingsárin, því að-
eins 9 ára lagðist hann á sjúkrahús,
fyrst í Vestmannaeyjum og síðan á
Vífilsstöðum. Þar var hann til 13
ára aldurs að aðeins birti til. Sjúk-
dómurinn tók sig þó upp aftur
skömmu síðar og þurfti hann þá að
dvelja á Landspítalanum þar til
hann var 18 ára. Þessi langa barátta
við berklana hefur verið erfið ung-
lingisem hefðiátt að vera að búa sig
undir lífsstarf eins og jafnaldrarnir
og hefur auðvitað haft mikil áhrif á
ævi hans, þótt sjaldan minnist hann
á það.
Þegar hann loksins losnaði úr
helgreipum sjúkdómsins réðist
hanil til ritfangaverslunarinnar
Pennans í Ingólfshvoli og var þar
síðari stríðsárin. Upp úr stríðinu
hóf hann svo störf á Þjóðviljanum
og var þar til 1963, síðustu árin sem
ffamkvæmdastjóri. Ekki mun
hann alltaf hafa verið öfundsverð-
ur af starfinu ar, því oft hafa verið
örðugleikar á þeim bæ.
Haustið 1963 urðu þáttaskil í ævi
Jónsteins, en þá réðist hann til
Máls og menningar og tók við for-
stöðu nýju bókarbúðarinnar á
Laugavegi 18, en hún var opnuð 5.
okt. 1961. Fyrst var búðin aðeins á
neðsta palli, þar sem nú eru rit-
föng, en smátt og smátt jókst starf-
semin og íslenskar og erlendar
bækur færðust upp á pallinn, þar
sem þær eru nú. Haustið 1969 var
ráðist í það að innrétta sérstaka
barnabókabúð í kjallaranum og er
sú búð enn einstök hérlendis. Þrátt
fyrir að rými fyrir bækur hefði
aukist og þjónusta við viðskipta-
vini batnað, kom fljótlega að því að
of þröngt yrði um bækur í búðinni.
Að því kom svo árið 1979 að ráðist
var í það að byggja palla í efri hluta
verslunarinnar og auka hillulengd í
búðinni um helming, og eru er-
lendar bækur þar nú.
Á þeim rúmu tuttugu árum sem
Jónsteinn starfaði hjá Bókabúð
Máls og menningar hefur aðstaða
og aðbúnaður að viðskiptavinum
og starfsfólki breyst mjög til hins
betra og er þetta nú stærsta bóka-
búð landsins og hin vistlegasta.
Hlutur Jónsteins í þessum umbót-
um er ekki lítill, enda þarf þess oft
við, ef vel á að gera og vanda til.
Eins og ég gat um að ofan
kynntumst við fyrst vel fyrir 10
árum, þegar ég tók við formennsku
í stjórn Máls og menningar, þótt
við könnuðumst hvor við annan
miklu lengur. Samstarf okkar hef-
ur verið ágætt og nær hnökralaust.
Gott hefur verið að leita ráða hjá
honum og gefist vel.
Á sl. ári ákvað Jónsteinn að
skipta um starfsvettvang og lét
hann af starfi framkvæmdastjóra
bókabúðarinnar um áramót, enda
telur hann að enginn eigi að sitja of
lengi í sama starfi og menn eigi að
reyna fleiri svið en eitt um ævina.
Ég vona að hann eigi velgengni að
fagna á nýju starfssviði í framtíð-
inni, hvort sem það verður í versl-
un sinni Skákhúsinu að Laugavegi
46 eða annars staðar. Fyrir hönd
stjórnar Máls og menningar vildi
ég með þessum fáu orðum þakka
Jónsteini störf hans fyrir forlag og
bókabúð, og ég veit að gott er að
eiga hann að. Ég óska honum og
hans ágætu konu, Halldóru Krist-
jánsdóttur, og börnum þeirra til
hamingju með þennan áfanga á ævi
hans og um leið velgengni í fram-
tíðinni.
Þorleifur Einarsson
ITónlistarfélagið á laugardag:
Garðar Cortes og Erik Werba
Aukamiðar verða seldir við inn-
ganginn.
dr. Erik Werba
í dag, laugardaginn 3. mars, kl.
14.00 munu þeir Garðar Cortes
tenorsöngvari og Dr. Erik Werba
píanóleikari halda tónleika í Aust-
urbæjarbíói á vegum Tónlistarfé-
lagsins.
Garðar Cortes hefur að undan-
förnu látið talsvert að sér kveða í
óperusöng, bæði á vegum íslensku
óperunnar og Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, en hann er ekki
síður vel heima í ljóðasöng.
Dr. Erik Werba er víðkunnur
bæði sem píanóleikari og tónskáld,
og hefur verið prófessor við Tón-
listarháskólann í Vín síðan 1948.
Mesta frægð hefur hann hlotið sem
undirleikari við ljóðasöng og hefur
leikið með söngvurum á borð við
Nicolai Gedda, Peter Schreier og
Christa Ludwig.
Á efnisskrá tónleikanna á laug-
ardag eru gamlar ítalskar aríur, lög
eftir Haydn, Strauss og Brahms,
auk þess íslensk lög eftir Kail O.
Garðar Cortes
Runólfsson og Árna Thorsteinsson
og ensk lög eftir ýmsa höfunda.