Þjóðviljinn - 03.03.1984, Qupperneq 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3. 4. niars 1984
Borealis
- norrœn myndlist 1983
Fyrsta farsýning myndlist-
ar á vegum Norrænu
listmiðstöðvarinnar í Svea-
borg stendur nú yfir. Hlaut
hún nafnið „Borealis - nor-
ræn list 1983“og voru valdir
til hennar þrír listamenn frá
hverju Norðurlandanna,
nema einn Færeyingur. Af ís-
lands hálfu eru þátttakend-
urnir þau Ásgerður Búadótt-
ir, Gunnar Örn Gunnarsson
og Magnús Tómasson, en
Svíinn Tage Martin Hörling
valdi verkin á vegum Svea-
borgar.
Sýningunni var hleypt af stokk-
unum í Helsingfors Konsthall þann
27. maí á síðasta ári og stóð franr í
júlí, en var þaðan flutt á Charlott-
enborg í Kaupmannahöfn, og nú
inaviskan samnefnara". Það er
fullt af slæmum dæmum slíkrar
meðalmennsku annarsstaðar á
hnettinum.
Borealis sýnir margan vott þess,
að það sé raunverulega mikið um
að vera í listinni nú um stundir. Og
ef til vill með meiri hraða en j afnvel
sá, sem opinn er fyrir flestum nýj-
ungum, getur með góðu móti fylgt.
Borealis er ein af mest spennandi
sýningum sem Listasafn Suður-
Jótlands hefur enn boðið upp á.
í blaði þýskumælandi Jóta, Der
Nordschleswiger, kallar Uwe
Lempelius umsögn sína „Mögnuð
listaverk tjá kalda storma okkar
tíma“. Síðan segir hann: „Hér er
ekki sýnd nein glaðleg stofulist,
sýningin í teikni aflmikillar listar,
þar sem fjallað er um ýmiskonar
mannlegar hneigðir á myndrænan
hátt. Hvergi bregður þar fyrir köld-
íslendingarnir á sýningunni: Ásgerður, Magnús og Gunnar Örn
síðast var hún í Listasafni Suð-
ur-Jótlands, þar sem henni lauk nú
15. janúar. Næsti áfangi hennar
verður Kunstnernes Hus í Osló, en
hingað á Kjarvalsstaði er hún vænt-
anleg næsta sumar.
Allmikið hefur verið um sýning-
una skrifað, og hafa nú borist um-
sagnir um Borealis í hinu nýja og
glæsilega listasafni í Tönder. Ulf
Gudmundsen skrifar í blaðið
Vestkysten og segir: „ísland kemur
á óvart. Vefnaður Ásgerðar Búa-
dóttur, með upphleyptum hross-
hársflötum, er heillandi, og Magn-
ús Tómas ítrekar af snilld hið gam-
algróna hugmyndafrelsi Sögu-
eyjunnar. Kassar hans með upp-
stoppuðum fuglum eru einkar á-
hrifaríkir: Hér gengur eggið á fót-
um, spörinn er sýndur sem stríðs-
þota, leðurblakan hefur sig til flugs
og gott ef steinninn fær ekki líka
vængi! Hér mætir auganu fugl í raf-
magnsstól, gagnnístur söngvari, og
margt annað ótrúlegt er á seyði.
Hinn þriðji íslendinganna er
Gunnar Örn Gunnarsson, sem er
sjálfur talsverður örn í áhrifamiklu
málverki sínu og kröftugu litum.
Bravó ísland!“
í Jydske Tidende segir Morten
Böcker: „Skoðandinn hefur mikið
upp úr Borealis. Sýningin er stór-
kostlega eggjandi, hneykslandi,
„geggjuð“, full af andstæðum-ogí
heild sinni tjáning þeirrar veraldar
sem við lifum í. Og hér er það vel
að merkja, að Norðrið er ekki neitt
einangrað fyrirbæri á jarðarkringlu
þessa áratugar.
Listamennirnir anda frjálslega,
guði sé lof, því skelfing væri það
leiðinlegt ef sýningin hefði verið
skorin niður við einhvern „skand-
um formalisma af ætt l’art pour
l’art-viðhorfa.
Fuglar íslendingsins Magnúsar
Tómassonar verka í senn sem
ákæra og hrollvekja. Hann setur
hluti sína á svið. Rós liggur undir
fallöxi, spörfugl er reyrður niður í
rafmagnsstól. Áhorfandinn hlýtur
að spyrja sig: Hver var dómarinn?
Þessar sviðsetningar Magnúsai
Tómassonar eru listrænt-
fagurfræðilegar, en þær knýja
skoðandann til þess að tengja þær
hliðstæðum úr mannlífinu sjálfu.
Mjög fáir hlutir á sýningunni eru
hugsaðir sem hrein hugleiðingar-
verk (Meditationsobjekte). Helst
væri þar að nefna vefnaðinn. Ás-
gerður Búadóttir sýnir stærð og
formrænan styrk í veggklæðum sín-
um, og með því að vefa í þau stríð
hrosshársform tekst henni að
skapa úr þeim sjálfstæðan hlut-
veruleika.
Þótt málaralistin hafi hvað eftir
annað verið dæmd dauð, og eink-
um snemma á sjöunda áratugnum,
þegar objektið - hlutgervingurinn
- var í hæstum metum, koma samt
stöðugt fram ungir listamenn sem
notfæra sér þann gamla miðil, olíu-
litina, penslana og léreftið. Þannig
skapar íslendingurinn Gunnar Örn
Gunnarsson - mannamyndir og
andlit úr óblönduðum litfíekkjum,
sem eru þó í eðli sínu annað og
meira: ímynd þeirra átakamiklu og
sprengikenndu afla sem stjórna
mannlegri tilvist. í því minnir hann
mjög á Francis Bacon.“ Uwe
Lempelius lýkur grein sinni með
þeirri ósk, sem margir sýningar-
gestir muni taka undir, að Borealis
mætti einnig finna sér gististað
sunnan landamæranna.
g\oa®
Saltkjöt
og
baunir
Lítið við í verslunum okkar
Stórmarkaöurinn. Skemmuvegi 4a
KRON Fellagörðum
KRON Snorrabraut
KRON Stakkahliö
KRON Dunhaga
KRON Tunguvegi
KRON Langholtsvegi
KRON Hliöarvegi
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NAGRENNIS
Sprengidagurinn
Saltkjöt, gular baunir.
Rófur, bacon og laukur.
Opið:
Mánud.-fimmtud. 9-19
föstud. 9-20
laugard. 9-16.
JIS
Jón Loftsson hf.
/A A ▲ A A A »
|~rr^a ocaurj
| crcc r iBuuijLjj
■ rr e» *-JT3i JU~Ll'i
* jM
I ■ 1 I-Ml ’ I
ILJ
Hringbraut 121 Sími 10600