Þjóðviljinn - 24.03.1984, Page 13
t-'iVi .•>» .• »uj»/'VyH iiVVOVi - AST; r
Helgin 24.-25. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
þau ólík fyrri verkum mínum.
Þetta eru verk sem ekki mundu
þola að vera smækkuð.“
Hvað viltu segja um þín verk,
Þór? Þetta eru höggmyndir,
teikningar og málverk af dýrum
komnum beint úr frumskóginum.
Er þetta gamla góða þrjú-bíó
stemmningin?
„Tsja, þetta er í ætt við það sem
ég hef áður gert. Ég er að reyna að
finna form og tjáningarmáta sem
gæti hentað mér og verið einfalt um
leið. Ætli stemmningin sé ekki
komin úr því umhverfi sem maður
lifir og hrærist í. Annars er meiri
ævintýrablær yfir þessum verkum
vegna þess að þau eru svo mörg og
ólík að lit og lögun. Ég sýndi svona
verk í Sviss fyrir nokkru. Þá voru
dýrin færri og samstæðari og eng-
inn ævintýrablær yfir þeim.“
Þið Þór eruð gjörólíkir, segi ég
og sný mér að ívari. Eru þessi
steinsteypuverk dæmigerð fyrir
Þig?
Samsýning
fjögurra
listamanna
að Kjarvals-
stöðum
Rúna Þorkelsdóttir og þrykkmyndir
hennar, unnar með hjálp náttúrunn-
ar: „Náttúrustemmningar og hug-
renningar tengdar þeim.“
ívar Valgarðsson með höggmyndir sínar í baksýn: „Efniviðurinn og glíman við formið er aðalinntakið í þessum
verkum."
„Já, ég hef unnið ansi lengi að
skyldum hlutum þó svo að
steinsteypan sé ekkert dæmigerð-
ari fyrir mig en járn eða eitthvað
annað. En ég er mjög bundinn
náttúrunni, eða hef verið það að
minnsta kosti og þessi form byggja
mjög á henni. Annars er þetta mest
spurning um glímuna við efnið.
Mér finnst gaman að fást við hin
margvíslegustu efni. Svo er það
formið. Ég hef tilhneygingu til að
skera burt allt sem flækir verk mín
og gerir þau óskýr.“
Rúna Þorkelsdóttir er nokkuð
sér á báti þar eð engar höggmyndir
er að finna meðal verka hennar.
Hún er vefari að mennt og þess
gætir að vissu leyti í verkum henn-
ar, þó svo að hún vinni ekki sem
hefðbundinn vefari.
Ég spyr hana um eitt af verkum
hennar sem er langt pappírsverk
undir gleri, ákaflega ljóðrænt og
fínlegt.
„Ég hef gaman af að vinna með
orð, nokkurs konar prósa. f þessu
verki er það eiginlega nætur-
stemmning við ströndina og alls
konar hugrenningar bundnar stund
og stað. Eg sæki prósann mikið til
náttúrunnar og einnig í goðsögur,
ævintýri og þjóðsögur. Þetta
blandast saman í verkum mínum
og verður að heildarhrifum."
Nú ertu vefari, en þess gætir ekki
efnislega heldur er eins og maður
finni það að baki verkunum. Er
vefnaðurinn þér ekkert kærkomn-
ari en annað?
„Nei, ég vinn í hvaða efni sem er.
Enda hef égaldrei lært textíl. En ég
hef gaman af dútli í smágerðum
hlutum og þar kemur vefarinn helst
í ljós.“
Við höldum áfram að ræða ýmis
málefni sem koma myndlistinni
við, en viðtalinu er lokið. Orð eru
til margra hluta nýt en duga þó
skammt þegar jafn ágæt verk eru
annars vegar og þau sem þessi fjór-
ir listamenn sýna í sölum Kjarvals-
staða.
Að öllum líkindum tölvan sjálf.
Fyrir það fyrsta þá kostar hún
minna en þú gætir haldið.
IBM PC einkatölva með 128000
stafa vinnsluminni, 83ja tákna
lyklaborði,360000 stafa diskettu,
prentara sem skrifar 80 stafi á
sekúndu, litaskermi, auk nokk-
urra grunnforrita, kostar minna
en nýr smábill.
Og hún skapar þér aukinn
tima. Með því m.a. að losa þig
undan svo mörgum timafrekum
verkum eins og að endurreikna,
endurmeta, endurvélrita, endur-
útgefa, endurvinna og endur-
taka. Hún getur sparað þér
margar klukkustundir á viku.
H vers virði er hver klukkustund i
þinu starfi? Hafir þú ekki gert
þér grein fyrir þvi, láttu þá IBM
PC einkatölvuna leiða þig i allan
sannleikann.
Og annað, hún ætti að geta
hjálpað þér að gera nokkrar
skarplegar ákvarðanir i hverjum
mánuði - t.d. varðandi lausn á
verkefnum, i íjárfestingum, verð-
lagningu, skráningu á upplýs-
ingum, i útgjöldum og bættri
samkeppnisstöðu.
Allt þess eðlis að leiða til meiri
hagnaðar og meiri sparnaðar.
Að lokum, IBM PC einka-
tölvan er fjárfesting i réttari
ákvarðanatökum, betri stjórnun
og framleiðni og þægilegra
vinnuumhverfi - hún er fljót að
borga sig!
Farðu og hittu einhvem söluaðil-
ann fyrir IBM PC einkatölvuna.
S
CD
3
<
s
5
a
s
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna:
Gísli J. Johnsen
Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8,
Kópavogi, sími 73111
Skrifstofuvélar hf.
Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33,
Reykjavík, sími 20560
Örtölvutækni sf., Ármúla38,
Reykjavík, sími 687220