Þjóðviljinn - 24.03.1984, Side 16
VI
VtV'
tTiSTT
r a _ ,
16 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Helgin 24.-25. mars 1984
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, verð-
ur haldinn mánudaginn 26. mars n.k., að Hótel Sögu,
Átthagasal, kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga að reglugerðarbreytingum fyrir fræðslu- og
menningarsjóð V.R.
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til að fjölmenna á
fundinn.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Tilkynning Þeir sem telja sig eiga bíla á geymslusvæði „Vöku“ á Ártúnshöfða þurfa að gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja þeirra fyrir 10. apríl n.k. Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslumann „Vöku“ að Stórhöfða 3 og greiði áfallinn kostnað. Að áðurnefndum fresti liðnum verður svæðið hreinsað og bílgarmar fluttir á sorphauga á kostnað og ábyrgð eigenda, án frekari viðvörunar. Reykjavík, 21. mars 1984 Gatnamálastjórinn í Reykjavík Hreinsunardeild.
Styrkir tif háskólanáms í Frakklandi JíivvS Frönsk stjórnvöld bjóöa fram sjö styrki handa Islendingum til háskólanáms I Frakklandi á skólaárinu 1984-85. Þrír styrkjanna eru til náms í frönskum bókmenntum, tveir í málvísindum, einn í leikhúsfræöum og einn í högg- myndalist (Arts plastiques). Umsóknarfrestur um myndlistarstyrkinn er til 4. apríl, en hina sex til 18. apríl n.k. Umsóknum, ásamt staðfestum afritum af prófskírteinum og meðmælum, skal skila til menntamálaráöuneytisins, Flverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Umsókn um styrk til náms í höggmyndalist skulu fylgja myndir af verkum umsækjanda. - Umsóknareyðublðö fást í ráðuneytinu. Uenntamálaráðuneytið 21. mars 1984
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móöur okkar Steinþóru Einarsdóttur frá Siglufirði. Fyrir hönd ættingja, börnin.
Eiginkona min Aðalheiður Jóhannesdóttir Stigahlíð 12 andaðist á Reykjalundi 23. mars. Fyrir hönd vandamanna, Arnór Sigurðsson
Þökkum öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa Kristins Marteinssonar
fyrrverandi skipstjóra Dagsbrún Neskaupstað
Rósa Eiríksdóttir
Elísabet Kristinsdóttir Þórdís Kristinsdóttir
Geir H. Þorsteinsson Kristján Karlsson
Rósa Geirsdóttir Kristinn Pétursson
Þorsteinn Geirsson Gunnar Ellert Geirsson Auður Edda Geirsdóttir Katia Kristjánsdóttir Rósa Benónísdóttir
Sr. Sigfús J. Árnason á Hofi í Vopnafirði:
Sankta María
Boðunardagur Maríu. Sjá Lúk.
1.26-38.
„Heill vertu, hafsins stjarna".
Þannig upphefst gamall lofsöngur
um Guðsmóöur, sem samkvæmt
Orðinu er blessuð og prísuð sæl af
öllum kynslóðum. Og heil verið
þér, sem njótið náðar Guðs og
þetta lesið, því að kveðja himinsins
er einnig ætluð oss.
Kveðjan krefur um svar. Svar
Guðsmóður var: „Sjá, éger ambátt
Drottins; verði mér eftir orðum
þínurn". María meðtók nefnilega
gjöf lífsins með lotningu, með
hlýðni. Því er hún sæl, sælust
kvenna. Og Guð kallar á þig, hver
sem þú ert. Vér, hinirskírðu menn,
höfum meðtekið tákn hins heilaga
kross bæði á enni og brjóst. Því
njótum vér náðar. Vér eigum hlut í
þeirri náð, sem Jesús, sonur Maríu
og sonur Guðs hefur skenkt oss.
En hvernig svörum vér því? Eins
og María: „Verði mér eftir orðum
þínum“? Betur að svo væri, því að
svarið er forsenda þeirrar ham-
ingju, sem flestir leita, en færri
höndla.
María er fyrirmýnd kirkjunnar.
Með hlýðni sinni og þjónustu er
kirkjunni ætlað að vera farvegur
Guðs náðar inní líf mannanna. Það
er erindið, sem Lausnarinn fól
henni að flytja.
María er líka fyrirmynd þín sem
einstaklings. Trú þín og hlýðni er
farvegur sömu náðar inn í líf
þeirra, sem á vegi þínum verða.
Það er reyndar erfitt af ástæðum,
sem þýski guðfræðingurinn Bon-
hoffer orðað svo: „Sá einn sem trú-
ir er hlýðinn.en aðeins hinn hlýðni
trúir“. Trúarhlýðni vorfelst íþví að
lúta viljaGuðs. Hann ætlasttil þess
að vér gjörum ákveðna hluti en
látum annað ógjört. En þá kemur
skynsemin með vankantana og
varnagla og afsakanirnar í efans
nafni. En er ekki efinn, þetta tím-
ans tákn í andlegu lífi, öðrum þræði
óhlýðni, af því að trú og að vera
trúr er hvað öðru skylt? Með Mar-
íu skyldum vér gefa Guði svar trúar
og hlýðni á för vorri um úfið lífshaf-
ið.
Lífsafstaða vor verður gleggst
greind á persónulegum máta vor-
um. Hann er það sem úr sker um
það hver vér erum. Kynslóðir trú-
aðar hafa Maríu sæla sagt kannske
einmitt vegna þessa. Svo mikið er
víst, að ekki er það fyrir mekt
hennar á vísu veraldar. Hún var
snauð útkjálkakona. Jarðneskt
foreldri Lausnarans var með því ó-
merkilegasta sem til var. Meðal
Gyðinga var meydómur hið
snautalegasta hlutskipti fulltíða
kvenna. Dóttir Jefta (Dómarabók
11.37) harmaði ekki svo mjög
óumflýjanlegan dauða sinn, heldur
hitt, að hún var jómfrú. Að
a
messudegi
Lausnarinn skyldi fæðast af slíkri
móður sem María var staðfestir
það, að Guð velur sér verkfæri
meðal fátækra manna og smárra og
auðmjúkra - meðal hinna fyrir-
litnu. Óbyrjan var undir sama
dómi. Þó valdi Guð Söru sem ætt-
móður sinnar útvöldu þjóðar,
Önnu móður leiðtogans Samúels
og Elísabet móður Skírarans.
Þegar Lausnarinn leit fyrst dags-
ins ljós hafði valdræningi sest á há-
sæti Davíðs, frelsi þjóðarinnar og
sæmd hennar glötuð. Þá útvaldi
Guð það, sem heimurinn telur ým-
ist veikleika eða heimsku „til að
gjöra hinum vitru kinnroða. Og hið
ógöfuga í heiminum og hið fyrir-
litna hefur hann útvalið..."
Vér getum verið alveg viss um
það, að Guð lítur á vorn lítilmót-
leik, er vér tökum undir með
Lausnaranum, því að frá honum er
allt það sem gott er, fagurt og
fullkomið í lífi mannsins og
heimsins. Sé vegsögn hans aftur á
móti hafnað umturnast og af-
skræmist hvort tveggja, manneskj-
an og heimurinn.
Hinn einstaki maður kann að
finna sig lítinn er hann horfir til
hins stóra heims og þeirra feikn-
stafa, sem ferill mannsins í heimin-
um er settur, þar sem sterkur níðist
á veikum og ríkur á snauðum.
Minnumst þess þá, að vegur þess
góða og göfuga Guðs sem auglýst-
ur var í Jesú, syni Maríu, liggur frá
hinu lága til hins háa, frá hinu veika
til hins styrka. Sá Guð, sem vér
eigum í Jesú Kristi fæddist í út-
skúfun og meðal forsrrfáðra. Hann
kallar venjulegt hvunndagsfólk til
fylgdar við sig til baráttu fyrir ríki
sitt.
Vér skulum hlýða því með Mar-
íu, svo að ríkið hans komi, svo að
viljum hans verði.
Góðar stundir.
©St. Jósepsspítalinn
Landakoti.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR, lausarstööur nú þegar,
eða eftir samkomulagi á:
- Göngudeild - „ambulatori", magaspeglunar-
deild.
- Augnskoðun - lazer aðgerðir o.fl.
Um dagvaktir er að ræða á báðum deildum.
Hlutavinna gæti komið til greina.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsing-
ar í síma 19600 kl. 11 - 12 og 13 -14 alla virka daga.
Reykjavík 21.03. 84.
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra.
Olympia Rafeindaritvélar
í takt við tímann
Hraði, nákvœmni og nýjasta tœkni við skrifstofustörfin.
Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst, hagkvœmni og
hljóðlátan vinnustað.
Prenthjálið skilar áferðarfallegri og
hreinni skrift. Leiðréttingarminnið
hefur 46 stafi. Pappírsfœrslu og dálkasetningu
er stjórnað án pess að fœra hendur af
lyklaborði. Endurstaðsetning, leturpétting og
ýmsar leturgerðir.
Report 18.500,-
Compact 20.900.-
KJARAINI
ÁRMÚLI 22 - REYKJAVlK - SlMI 83022