Þjóðviljinn - 24.03.1984, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 24.-25. mars 1984
BIFREIBAEFTIRLIT Á SELFOSSI
Tilboö óskast í innanhússfrágang á hluta stálgrindahúss aö Gagn-
heiði 20 á Selfossi fyrir bifreiðaeftirlitið.
Húshlutinn er um 110 m2 að flatarmáli. Verktaki skal m.a. setja nýjar
dyr og glugga í húsið, setja miliiloft og innveggi, mála, ganga frá
gólfum og smíða innréttingu. Auk þess skal hann leggja vatns-,
skolp-, hita- og raflagnir í húshlutann.
Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík
gegn 1500 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 6. apríl 1984 kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844.
Hefur þú áhuga á
samskiptum við ungling?
Ert þú tilbúinn að takast á við
krefjandi verkefni?
Félagsmálastofnun Kópavogs vill gjarnan komast í
tengsl viö fjölskyldu sem væri fús til að taka 15 ára
ungling í fóstur, sem vegna erfiðra heimilisástæðna
getur ekki búið heima hjá sér.
Nánari upplýsingar veitir Einar Gylfi Jónsson, sál-
fræðingur í síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Auglýsing
Húsafriðunarnefnd auglýsir hér með eftir umsóknum til
húsafriðunarsjóðs, sem stofnaður var með lögum nr. 42/
1975, til að styrkja viöhald og endurbætur húsa, húshluta og
annarra mannvirkja, sem hafa menningarsögulegt eða list-
rænt gildi.
Umsóknir skulu sendar fyrir 1. september n.k. til Húsafriðui >
arnefndar, Þjóðminjasafni íslands, Box 1439, Reykjavík, á
eyðublöðum, sem þar fást.
Husafriðunarnefnd.
Til askrifenda Politiken Verdenshistorie
Við vekjum hér með athugli á að sjöunda bindi Poli-
tiken Verdenshistorie er komið út og kostar kr. 887.50.
Vinsamlega sækið bókina í verslun okkar eða hafið
samband í síma 29311 eða 15597.
Bókabúð Braga
Auglýsing
Ráðuneytið minnir skipstjóra og útgerðarmenn fiski-
skipa á að stöðva ber veiðar þegar því aflamarki er
náð, sem tilgreint er í veiðileyfi þeirra.
Brot á þessum ákvæðum varðar upptöku afla svo og
öðrum viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga og regl-
ugerða.
Sjávarúvegsráðuneytið
Vélritun
Tek að mér vélritunarverkefni ýmisskonar. Hef 10 ára
starfsreynslu við alhliða vélritunar- og skrifstofustörf.
Mjög góð ensku- og dönskukunnátta.
Upplýsingar í síma 74761.
Minning
Ingólfur Steinar
Kristinsson
F. 28.1. 1963 - D. 31.10. 1983
í dag, laugardag er Ingólfur
Steinar Kristinsson jarðsunginn frá
Staðarhólskirkju í Saurbæ, en
hann fórst með Ms. Haferninum
frá Stykkishólmi við Bjarneyjar á
Breiðafirði hinn 31. október s.l.,
en með honum fórust tengdamóðir
hans tilvonandi Kristrún Óskars-
dóttir og Pétur Jack.
Það var þungur óveðursbakki
yfir Breiðafirði þennan örlagaríka
dag. Dimm og drungaleg ský slógu
óhugnanlegum svip yfir land og
haf. „Þrútið var loft og þungur
sjór“. Þannig getur hinn fagri
Breiðafjörður orðið í illviðraham,
og þetta var örlagadagur. Allt um-
hverfið og veðurgnýrinn lagði
áherzlu á þá staðreynd, að við,
mannanna börn, erum svo ósköp
lítil í samspili okkar við náttúruöfl-
in, við erum svo veik og vanmáttug
þegar alvara lífsins blasir við. Og
hér varð engum vörnum við kom-
ið.
Ingólfur var sonur Kristins
Steinars Ingólfssonar, veghefils-
stjóra, að Jaðri í Saurbæ og konu
hans Jakobínu Jóhannesdóttur.
Hann ólst upp í Saurbænum, í fag-
urri sveit með foreldrum sínum og
systkinum, Gunnari og Hönnu
Lóu, og var hann yngstur, Ijúfur
drengur, glaðlyndur og hlýr, og
við, sem fylgdumst með honum,
vissum, að hann átti góða æsku, en
þó mátti hann vita hvað alvara lífs-
ins gat verið erfið, því hann fæddist
með hjartagalla og varð því að
bregðast við ýmsu á annan veg en
alheilbrigður væri, m.a. varð hann
að fara erlendis til lækninga á unga
aldri. En aldrei var hægt að sjá að
slíkt hefði íþyngjandi áhrif á hug
hans. Tiltölulega ungur fór hann að
heiman og vann hjá Vegagerð
ríkisins við þungavinnuvélar víða
um land og við brúa- og ræsagerð
og reyndist þar hinn traustasti
verkmaður af svo ungum manni að
vera, úrræðagóður, áreiðanlegur,
útsjónarsamur og verklaginn.
Hann var nýlega setztur að í
Stykkishólmi, en þar var heimili
unnustu hans, Ingveldar Eyþórs-
dóttur, og þar höfðu þau gert ráð-
stafanir til að stofna eigið heimili.
Framtíðin virtist blasa við, björt og
fögur. Kraftur æskunnar ólgaði í
blóðinu og lífið krafðist útrásar í
starfi og athöfnum. En skjótt
bregður sól sumri. í einu vetfangi
missa foreldrarnir son sinn og
systkinin bróður, og unnustan
unga ástvin sinn og hún missti
meira, hún missti líka móður sína
og faðir hennar bæði eiginkonu og
tengdason. Lífið er stundum harð-
ur skóli, og oftar en ekki finnst
okkur, sem eftir stöndum, að erfitt
sé að sætta sig við slík örlög. En
maðurinn ályktar, en Guð ræður.
Hið jarðneska Iíf átti ekki að verða
lengra, straumur tímans hafði
hrifið þau brott og eftir sitja ástvin-
ir harmi þrungnir. Hafið tekur oft
miklar fórnir og líf sjómannsins er
hættulegt og erfitt, það vitum við,
en hitt vitum við einnig, að á bak
við líf og hel er styrk hönd, sem
styður og verndar, huggar og
græðir, og sú hönd er nálæg á sorg-
arstund, það finnum við svo oft
þegar þannig er ástatt.
Og nú eru minningarnar einar
eftir, góðar minningar um
hugljúfan efnismann, sem alls stað-
ar kom sér vel og reyndist hinn
bezti drengur í hvívetna. Og okkur
verður hugsað til orða skáldsins
sem kvað:
Við rökkur þinna söngva
leið sumarið hjá.
Svo hvarfstu mér, vinur,
og haustið lagðist á.
En hvenœr sem hafrœna
heim í dalinn fer
frá kynjalöndum fjarlœgum
hún kveðju til mín ber.
En ég hef beðið lindina
sem líður mér við kinn
að flýta sér til hafsins
og finna ástvin minn.
Og ómarnir svífa
af sœnum til lands.
Með bergmálum fjallanna
flýg ég til hans.
T.G.
Lífið er ein óslitin ganga, frá
vöggu til grafar, mislöng að vísu og
ólík á marga grein, margslungin og
margvísleg. En allt um það, við
tökum þátt í þessari för og ekkert
okkar getur vikist undan þátttöku í'
þeirri göngu.
Fram hjá, fram hjá fara hópar
ferðamanna nótt og dag.
Líkt og blœr, sem blöðum sópar
berst mér þeirra göngulag.
Pó menn óttist þeirra veg
þykir förin skuggaleg
verða þeir að fylla flokkinn
fyrr en varir - þú og ég.
D.S.
En hvað mætir okkur á leiðinni?
Hvert getum við leitað í sorg og
söknuði? „Ef Guð er með oss, hver
er þá á móti oss?“ Þar höfum við
svarið. Handleiðsla Guðs er með í
för. A því er enginn vafi. Og þegar
dauðinn aðskilur ástvini við hlið
lífsins, þá sjáum við sem í skuggsjá
birtu eilífðarinnar blasa við. Hið
fyrra er farið. Allt er orðið nýtt.
Þetta hefur verið trú kynslóðanna,
og hún hefur ekki brugðist - og
mun ekki gera það.
Því vonin lifir, þótt hver
bátur brotni
vort bezta, sálin, tekur land
hjá Drottni.
M.J.
Minningarnar, sem við eigum
um Ingólf og líf hans hér, geymum
við og varðveitum, því þær eru all-
ar góðar og munu því lifa áfram í
hugum þeirra, er hann þekktu og
vissu, hversu góður drengur hann
var. Ég og mín fjölskylda þökkum
liðnar stundir, því í mörg ár bjó
fjölskylda hans hér á Hvoli, og þau
systkinin voru leikfélagar barn-
anna okkar og fyrir það allt er nú
þakkað að leiðarlokum. Megi góð-
ur Guð leiða hann og vernda á ei-
lífiðarbraut. Við sendum unnustu
hans, foreldrum, systkinum og
öðrum ástvinum hans okkar inni-
legustu samúðarkveðjur svo og
þeim öðrum, er misstu ástvini sína
með honum, og biðjum Guð að
blessa þau og leiða um ókomin ár -
og jafnframt biðjum við þess, að
þau megi eiga þá trú í hjarta sem
gerir þeim kleift að sjá birtu og feg-
urð eilífðarinnar rísa við dauðans
dyr, - og minnist orða Frelsarans er
hann sagði: „Ég lifi og þér munuð
lifa“. Ingiberg J. Hannesson
Kallið er komið
komin er nú stundin,
vina skilnaður viðkvœm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sér loffyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgj’ í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Nú á þessari skilnaðarstund viljum við þakka allar góðu
samverustundirnar sem við áttum með honum. Minning Ingólfs
lifir björt í hjörtum vina hans um ókomin ár. Við biðjum Guð að
styrkja vinkonu okkar Ingu, foreldra hins látna og aðra aðstand-
endur í sorg þeirra. Drottinn blessi minningu Ingólfs Kristins-
sonar.
Teitur og María.
Sóknarfélagar - Sóknarfélagar
Almennur félagsfundur í Borgartúni 6 mánu-
daginn 26. mars kl. 20.30.
Fundarefni: Samninganefnd kynnir nýja
kröfugerð. Önnur mál. Sýnið skírteini.
Stjórnin