Þjóðviljinn - 31.03.1984, Side 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. mars — 1. aprfl 1984
bæjarrölt
Bláa augað og Svínastían
Fyrir allmörgum árum var
Jökull heitinn Jakobsson með
þátt í útvarpinu sem fjallaði um
kaffistofuna á Laugavegi 11 en
hún gegndi á sínum tíma ekki all-
litlu hlutverki í lífi skálda og
ungra menntamanna í Reykja-
vík. Þessi upprifjun sagði ekki
svo lítið um tíðarandann á 6. ára-
tugnum. Sj álfur var ég of ungur til
að ná Laugavegi 11 en þó er það
mér í fersku minni að eldri systir
mín gekk ekki svo út úr dyrunum
heima að hún segði ekki: „Bless,
ég erfarin niðurá Laugaveg 11“.
Veitingahús og kaffihús hverr-
ar borgar eru veigamikill þáttur í
menningu hennar og Reykjavík á
sér allmerka fortíð og nútíð í
þessum efnum þó að dauflegt hafi
stundum verið. Nú eru jafnvel
farnar að rísa bjórknæpur þótt
enginn sé bjórinn.
Mér vitanlega hefur aldrei ver-
ið sögð saga skemmtanalífsins í
Reykjavík og væri þó fátt verð-
ugra fyrir unga og hressa sagn -
íræðinga.Það hlýtur að vera af-
skaplega skemmtilegt viðfangs-
efni og taka þá tískuna í leiðinni.
Ætli margt sé t.d. dæmigerðara
fyrir tíðarandann upp úr 1980 en
veitingahúsið Broadway í
Breiðholti. Og þar á ég ekki bara
við fólkið og hætti þess heldur
einnig staðinn sjálfan og
innréttingar hans.
Líklega kæmi ýmislegt sér-
kennilegt upp úr kafinu ef farið
væri ofan í 200 ára sögu Reykja-
víkur að þessu leyti og ég sting því
hér með að Reykjavíkurborg að
hún láti einhvern sagnfræðinginn
fara ofan í saumanáá veitinga- og
kaffihúsarekstri borgarinnar í til-
efni af 200 ára afmælinu árið
1986.
Þá kæmi t.d. í ljós að Gaukur á
Stöng er langt í frá fyrsta bjór-
stofan hér á landi. Einhvers stað-
ar sá ég til að mynda að fyrir tæp-
um 100 árum hafi verið rekin
bjórknæpa í svokölluðu Brekk-.
mannshúsi í Aðalstræti 9. Hún
var illa þokkuð.
Og á síðustu öld var fjörugt
dansleikjahald í Reykjavík., ekki
bara í Klúbbnum og Dillonshúsi
heldur gekk það svo langt að
dansað var í dómsalnum í Yfir-
réttarhúsinu að Austurstræti 22.
Sá sem stóð fyrir píuböllum þar
var enginn annar en H. Hend-
richsen lögregluþjónn og lék
hann sjálfur fyrir dansi, ekki
alltaf allsgáður að sögn. Þetta var
einkar þægilegt fyrir hann því að
á efri hæðinni voru fanga-
geymslur bæjarins.Líklega hefur
aldrei verið efnt til dansleikja-
halds á þessari öld í Hæstarétti
eða á Lögreglustöðinni.
Nöfnin á sumum
skemmtistöðunum hér í eina tíð
hafa líklega verið lýsandi fyrir
það sem fram fór. Einn var t.d.
kallaður Bláa augað og var í
Austurstræti 18 og annar Svína-
stían í kjallara Nýja bíós. Nú
ganga nöfn eins og Sóðal og
Ekkjubær.
Já, þetta er mikil og löng saga.
Ég tel mig ekki vera gamlan en
síðan ég var skólapiltur hefur
skemmtanalífið í henni Reykja-
vík gjörbreytt um svip. Ef ég færi
að rifja upp böllin mín væri það
hrein og klár sagnfræði. Ég lenti
t.d. á skröllum í Breiðfirðinga-
búð, Iðnó, Gúttó og Sjálfstæðis-
húsinu en Báruböllin voru löngu
liðin undir lok fyrir mína daga.
Um þau var ort:
Ættum við ekki öll að hlaupa
og ofan á Báruball.
En fyrst við skulum frekt
oss staupa
svo fjörugt verði rall.
-Guðjón
Veistu...
að fyrsta sjúkrahús í Reykjavík
var í sama húsi og aðalveit-
ingahúsið, svokallaður
Klúbbur (þar sem nú er Her-
kastalinn).
að fyrsta pósthúsið í Reykjavík
stóð þar sem nú er Hótel Borg
og er Pósthússtræti kennt við
það. Húsið var samt ekki rifið
heldur flutt í Skerjafjörð en
þar var það fyrir flugvallar-
framkvæmdum og þá flutt að
Kleifarvegi og þar stendur
það enn.
að Arnarhóll í Reykjavík var
sjálfstæð jörð um aldir og bæj-
arstæðið var þar sem nú er
stytta Ingólfs landnáms-
manns.
að fyrsta tvílyfta íbúðarhúsið í
Reykjavík stendur enn við
Kirkjutorg, lítið blátt hús við
hliðina á rakarastofunni. Það
þótti svo stórt á sinni tíð að
það var kallað Strýtan.
að mjög margir veitingastaðir í
Reykjavík hafa brunnið. Þar
má nefna Hótel Reykjavík,
Hótel ísland, Tjarnarlund í
Kirkjustræti 4, Báruna,
Gildaskálann. og Glaumbæ
árið 1971.
að Jóhannes Stefánsson, einn
þriggja helstu leiðtoga komm-
únista í Neskaupstað, og
Matthfas Bjarnason ráðherra
eru systrasynir.
að Helgi Ólafsson skákmaður er
sonur Ólafs Helgasonar sem
skipaður var bankastjóri Út-
vegsbankans um daginn.
að eitt fyrsta kaffihúsið í Reykja-
vík hét Café og Conditori
Hermes og var í Lækjargötu 4.
Það voru þau Ingibjörg og
Þorlákur Ó. Johnsen sem
ráku það.
að ein landmíla sem oft var notuð
hér áður fyrr er 7.5 km.
að ein þingmannaleið var talin 5
landmílur.
að eitt skippund er 160 kg.
sunnudagsHrossgatan
y Z 3 ¥ 5 (p 7 5 V % 3 (p /0 1/ /2
13 1/ V 13 15 2 ¥ 10 2 V 1 (s> 13 10 s?
ur n 10 17 17 10 T} 1 2 18 17 V b 15
z 5 n 1Z )o 6? /9 12 2T 6> V 20 n 12
15 7 5 z V 15 21 5 2 V 22 17 12 10 /2
-QL W 21 rr u 12 )o 2l JD (p 21 22 Z IV
5 13 5 k> lo V 2 5 ¥ 10 V (e (> 12 '2?
V 18 (o 22 Z V 5 1/ 12 5 V 2T~ )D
2y 21 V /0 ¥ 5 13 7 V 2& 2 á? io Z
12 2 2Ý T 5 V* 10 T 77 10 Z V 22 * o //_ s 6/
S? 15 13 10 b S? 22 (? 22 (p V 2$ JO 13 T
V Z 10 (s> 21 1D (* 2 3o 10 % 10 13
9 5 /3 12 S2 2& £ 17- 10 n !0 3/ 2 28
A Á B D Ð EÉF GHIÍ JKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Nr. 417
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmanns-
nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 417“. Skilafrestur er
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
2? 23 i8 2 21 21 5 (?
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti
hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er
sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Verð-
launin
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 414
hlaut Hrund Einarsdóttir,
Hraunbrún 47, 220 Hafnarfirði.
Þau eru Olympíuleikar að fornu
og nýju eftir dr. Ingimar Jónsson.
Lausnarorðið var Guðbjörg.
Verðlaunin að þessu sinni er bók-
in Varstu að fá hann? eftir Guð-
mund Guðjónsson.