Þjóðviljinn - 26.05.1984, Side 22
Þeir tveir tónlistarmenn sem
lítillega verður minnst á hér eiga
fátt sameiginlegt. Eitt atriði, ein
míta, tengir þá þó á skrítilegan
hátt; þeir eru fremur ófríðir báðir
tveir. Það vill nefnilega svo illa til
að það þykir hin mesta synd í
rokk-bransa, sem og annarsstað-
ar, „að hafa ekki útlitið með sér“.
Hefði Elvis nokkur Presley átt
mikið uppá pallborðið ef hann
hefði verið ljótur eða, sem er enn
syndsamlegra; svertingi? Heill
aragrúi þeldökkra manna gátu
ekki bara sungið eins og hann,
heldur höfðu gert það miklu fyrr.
En það er önnur saga.
Fyrstan vil ég nefna írann Van
Morrison, fæddan 31. ágúst ’45 í
Belfast. Hann gekk snemma á vit
tónlistargyðjunnar og átján ára
stofnaði hann hljómsveitina
Them. Ryþmi & blús átti hans
hug allan og hjartað sló taktinn
trega sem svo fábreyttur og upp-
runalegur mylur steina af ein-
skærri sorg. Þegar árið 1968 tekur
Morrison þátt í þeirri sálarbylt-
ingu sem öld Vatnsberans stend-
ur fyrir, orð hans og tilfinningar
flæða úr djúpum sálarinnar og
vefjast lystilega um tónana. Ast-
ral Weeks heitir sú sköpunin.
Fjöldinn allur af plötum liggur
eftir þennan listamann, sem í dag
væri í vitund almúgans súper-
stjama ef hann fæli ekki fegurð
sína undir rauðgráum hárum. Nú
hefur hann fjölgað afkvæmum
sínum og enn og aftur tókst fæð-
ingin með afbrigðum vel. Platan
er tekin upp á tónleikum Morris-
ons í Grand Opera húsi þeirra í
Belfast á síðasta ári og sé mið af
því tekið hvað varðar hljómburð
þá er platan ein sú mest heillandi
konsert skífa sem í mínum eyrum
hefur hljómað.
Hinn síðari sem á hér verður
minnst er breskúr og heitir Joe
Jackson. Lítt veit ég um sögu
hans og feril annað en að hann
hefur aldrei einskorðað sig við
neina sérstaka stefnu í tónlist til
langframa, hefur reynt flest og er
einnig „ljótur“.
Það hefur verið fundið honum
til foráttu hve honum þykir gam-
an að blanda saman hinum ólík-
ustu formum af músík, djassi,
reggí, „big-band“stfl, dægurtón-
list, ýmsum poppstefnum og
rokki. Fyrir vikið er hann aðeins
verðugri áheyrnar og fjöl-
breyttari. Fjölhæfur músíkant
sem spilar á næstum hvaða hljóð-
færi sem hendi er næst.
Á nýjustu plötu sinni Body and
Soul heldur Joe Jackson áfram að
leika af fingrum fram, og svei mér
ef ég þykist ekki heyra afrískan/
suðurhafseyja-takt þarna ein-
hversstaðar. Platan er tekin upp í
New York ’83, og er hin áheyri-
legasta. Þetta er líkast til sjötta
sólóskífa Joes Jacksons, en hann
hefur einnig samið tónlist fyrir
kvikmynd, Mike’s Murder. Það
má segja um Joe Jackson að
styrkur hans í tónlist sé hve góður
hljóðfæraleikari og lagasmiður
hann er. Ólíkt Van Morrison sem
hefur sálina í raddböndunum, þá
hefur sá fyrmefndi hana í fingr-
unum. O
Ikarus: Bragl, Beggi, Tolll og Megas (Komma vantar á myndina).
Svo skal böl bœta
á Rás 5-20
launaþrœllinn hnígur niður
lafmóður með œgilegan sting
& -lánskjaravísitalan
hverfur útvið sjóndeUdarhring
en ástandið í póllandi
fer hríðversnandi dag frá degi
það dylst þeim ekki sem er hér
við hungurmörk svo ég held ég bara þegi
ég veit ekki betur en það sé sýnt & sannað
að svo skal böl bceta að benda á eitthvað
annað
Kynngimagnaðar línur, ekki
satt? Enda á þrælmagnaðri plötu,
Rás 5-20 með Ikarusi. Ein besta
plata sem komið hefur út hér í
háa herrans tíð. Þetta er önnur
plata hljómsveitarinnar og gefur
þeirri fyrri ekkert eftir nema
síður sé.
Við verðum að láta okkur
nægja plötur frá hljómsveitinni
því ekki er líklegt að hún komi
fram á tónleikum í bráð. Á blaða-
mannafundi sem var haldinn til
að kynna plötuna voru þeir
Megas og Beggi, hinir voru fjar-
verandi, spurðir að því hvort lík-
ur væri á að Ikarus kæmi fram á
tónleikum til að kynna plötuna.
Megasi leist bara vel á hugmynd-
ina. En þegar hann var inntur
nánar eftir því hvort hann hygðist
koma fram á tónleikum svaraði
hann að bragði: „Nei, en hug-
myndin er góð!“ Ekki þýðir að
súta það heldur fagna útkomu
Rásar 5-20. Hún er ein af þessum
plötum sem límast hreinlega við
plötuspilarann hjá manni. í 10
daga hefur ekki annað verið spil-
að á mínum bæ. Meir’að segja,
„ormurinn“ minn sem nú er
„gjörspilltur" af rás tvö lætur sér
vel líka.
Rás 5-20 var hljóðrituð fyrir
síðustu áramót. Satt að segja var
ég orðinn ansi langeygur eftir
henni. En öll él styttir upp um
síðir og með hækkandi sól og
sumarkomu birtir enn meira til
þegar slíkar plötur líta dagsins
ljós. Þau sem voru á tónleikunum
Við krefjumst framtíðar í Höll-
inni síðastliðið sumar kannasat
eflaust við lögin „Kondór“, „MX
Geir“, „Svo skal böl bæta“ og
„Sjakalíneyja". En þessi lög er að
finna á Rás 5-20. Jafnvel þó að
textarnir séu sumir hverjir samdir
út af ákveðnum atburðum og í
ákveðnum tilgangi þá eiga þeir
fullt erindi til okkar. Þannig á
„Sjakalíneyja" ekki síður erindi
tíl okkar í dag en fyrir ári. At-
burður sem ekki má gleymast og
á ekki að gleymast frekar en svo
margt annað er rykfellur í hugum
okkar.
Tónlistin á plötunni er ansi hrá
enda nánast tekin upp „live“.
Þetta bitnar á gæðunum en fyrir
vikið er platan öllu meira lifandi
en gengur og gerist. Tónlist Ikar-
usar er engin nýjung, þetta hefur
allt saman heyrst áður, engu að
síður tekst þeim að glæða hana
lífi og er það meira en sagt verður
um marga aðra.
Hljóðfæraleikurinn ber þess
nokkur merki að platan skuli
vera hljóðrituð næstum „live“.
Ýmsir agnúar eru á honum en
þeir hverfa í skuggann fyrir kraft-
inum og þróttinum sem ríkir á
plötunni. Hljómsveitin nær furðu
vel saman og er það merkilegt því
að þeir félagar koma hver úr sinni
áttinni, eða er það kannski skýr-
ingin? Söngur þeirra Megasar og
Tolla er eins og við var að búast
þokkalegur, annars er alltaf jafn
gaman að hlusta á Megas syngja,
það syngur enginn eins og hann.
Það er athyglisvert að textarnir
á Rás 5-20 eru eftir alla meðlimi
hljómsveitarinnar. Kommi
trommuleikari á einn, Beggi gít-
arleikari og Bragi bassaleikari
eiga sinn hvor og Tolli og Megas
eiga sína þrjá hvor. Ég veit ekki
til þess að þeir þrír fyrst nefndu
hafi áður fengist við textagerð en
þessi fyrstu spor þeirra eru góðs
viti. Kommi á t.d. ansi svæsinn
texta, „Súsí fer í bað“, og ef hann
fer ekki fyrir brjóstið á sómakær-
um siðgæðispostulum verð ég
hissa.
Textar Tolla og Megasar (ann-
ars er vafasamt hvort hægt er að
kalla það sem Megas yrkir texta)
eru meiri ádeila en textar þre-
menninganna. Textar Megasar
eru miklu betur saman settir og
djúphugsaðri en hinna sem texta
eiga á plötunni.
Ekki vil ég spilla ánægju fyrir
lesendum með að birta glefsur úr
textum þeirra. Sjón er sögu rfk-
ari. Tryggðu þér eintak áður en
allt er um seinan. Rás 5-20 er
plata sem er prýði hvers plötu-
safns. Það er tilvalið að enda
þennan pistil á sama hátt og hann
hófst, með tilvitnun í texta Meg-
asar „Svo skal böl bæta“:
fjögur ár líða
& loks er allt endanlega í steik
& loforðin fínu
þau reyndust öll tómt djöfulsins feik
þá fréttirðu það hungraður
með húsfylli af konu & krökkum
að horfur fari versnandi
hjá þrœlunum á volgubökkum
þú flettir mogganum & ég sé að það er sannað
að svo skal böl bœta að benda á eitthvað
annað
JVS
Með sál í rödd og fingrum