Þjóðviljinn - 26.05.1984, Síða 23
Listahátíð hefst um næstu helgi:
Forskot á
Listahátíð hefst eins og
kunnugt er eftir tæpa viku
eða nk. föstudag. Mjög mörg
dagskráratriði verða að
venju á listahátíð og hér
verða kynnt nokkur atriði.
Karel Appel f Listasafni Islands
Þegar laugardaginn 2. júní verð-
ur opnuð í Listasafni sýning á verk-
um hollenska listamannsins Karel
Appel. Hann er fæddur árið 1921
og heimsfrægur fyrir list sína. Hann
er ásamt Constant og Comeille,
einn af stofnendum hollenska til-
raunahópsins Reflex sem síðar
sameinaðist Copra-hreyfingunni.
Ekki er hægt að hafa tölu á öilum
þeim sýningum sem Appel hefur
haldið um víðan heim en verk hans
em einnig til sýnis í ýmsum þekkt-
ustu listasöfnum heims.
The Richard Morse Mime The-
atre
Þetta er alþjóðlegur hópur lát-
bragðsleikara frá Bandaríkjunum
sem unnið hefur hug og hjörtu
áhorfenda í meira en tuttugu þjóð-
löndum. í hópnum em sjö lát-
bragðsleikarar sem túlka hið ljóð-
ræna og skoplega í hversdagslífínu.
Hópurinn túlkar ekki aðeins per-
sónur heldur einnig ýmis þau tæki
sem auðvelda okkur dagsamstrið
svo sem brauðristar, vatnsslöngur,
ávaxtapressur og krana (sem lekur
að vísu). Morse-hópurinn kemur
fram á Lækjartorgi nokkmm sinn-
um. Hann mun einnig skemmta
bömum og unglingum og auk þess
sýna sívinsæl atriði eins og Svana-
vatnið í túlkun Síberíuballettsins
og Ólympíuleika í skák í Reykja-
vík.
Tónleikar níu cellóleikara
Sunnudaginn 3. júní verða í Bú-
staðakirkju tónleikar m'u celló-
leikara undir stjórn Gunnars Kvar-
ans og auk þess syngur Elísabet
Erlingsdóttir. Gunnar Kvaran á að
baki glæsilegan feril sem celló-
leikari en hann stundaði m.a. nám
hjá Erling Blöndal Bengtson,
Flachot, Navarra og Piatigorsky.
Hann hefur haldið tónleika á öllum
Norðurlöndum, í Bandaríkjunum,
Hollandi, Frakklandi og Þýska-
landi, bæði sem einleikari og í
kammertónlist. Hinir cellóleikar-
amir em Bryndís Halla Gylfadótt-
ir, Ásdís Arnardóttir, Sigurður
Halldórsson, Barbara H. Guðna-
dóttir. Stefán Öm Amarson,
Bryndís Björgvinsdóttir, Gunn-
hildur H. Guðmundsdóttir, Hrafn
Loftsson og Eyþór Amalds. Flutt
verða verk eftir Bach og Villa-
Lobos.
The Chleftaíns
Á undanfömum tveimur ára-
tugum hafa The Chieftains safnað
írskri tónlist og gert hana sína eigin
á sinn sérstaka og hugljúfa hátt.
Þeir hafa leikið inn á fjölda hljóm-
platna m.a. með Mike Oldfield,
Art Garfunkel, Don Henley og
Dan Fogelberg. Þeir hafa leikið
með Eric Clapton, Van Morrison,
James Galway og Jackson Brown
og munu leika með The Rolling
Stones á næstunni. Þegar Jóhannes
Páll II. páfi sótti íra heim, léku þeir
fyrir hann og 1.350.000 aðra í Pho-
enix Park í Dyflinni. Þeir unnu til
Óskarsverðlauna 1976 fyrir tónli-
stina í myndinni Barry Lyndon og
1983 unnu þeir kanadísku Genie
verðlaunin fyrirtónlist sína í mynd-
inni The Gray Fox. Sama ár urðu
þeir fyrstir tónlistarmanna til að
halda hljómleika í þinghúsi Banda-
ríkjanna og var það í boði Tip O’N-
eill sem auk þess að vera af írsku
bergi brotinn er hæstráðandi í fullt-
rúadeildinni. The Chieftains koma
fram á Broadway 7. juní og í
Gamla bíói 8. júní.
Fflharmoníuh(jómsveitin
Einn af hápunktum Listahátíðar
að þessu sinni verða tónleikar
Fflharmomuhljómsveitarinnar frá
London í Laugardagshöll 9. og 10.
júní.
Fflharmoníuhljómsveitin lék
fyrst opinberlega undir stjóm Sir
Thomas Beecham í Kingsway Hall
í Lundúnum í október árið 1945. Á
mjög skömmum tíma varð Ffl-
harmoníuhljómsveitin viðurkennd
sem ein af bestu hljómsveitum
heimsins og tókst að fá til sín viður-
kennda stjómendur eins og Furt-
wángler, Toscanini, Giulini, Ric-
hard Strauss og Herbert von Kara-
jan, en sá síðastnefndi varð aðal-
stjórnandi hljómsveitarinnar.
Eftirmaður Karajans varð síðan
Klemperer, en upp úr því hófst
sögulegt tímabil hjá Fflharmoní-
unni þegar við bættist kór undir
stjóm Wilhelms Pitz. Á þessu
Vladimir Askenasí stjórnar Fflharmoníuhljómsveltinnl sem er ein af bestu
sinfóníuhljómsveitum f heiml. Gunnar Kvaran stjómar nfu manna
cellósveit og lelkur sjólfur einleik.
kynnin
tímabili dró Walter
og upp úr því lá við að
og kórinn leggðust niður árið 1964.
Meðlimir hljómsveitarinnar
bmgðust skjótt við og mynduðu
sjálfsstjómarfélag er bar nafnið
Nýja Fflharmoníuhljómsveitin
með Dr. Klemperer sem aðal-
stjómanda og var hann einnig ráð-
inn forstjóri ævilangt. Þegar Klem-
perer hætti störfum vegna aldurs
árið 1971 var Lorin Maazel fast-
ráðinn aðstoðarhljómsveitarstjóri
og eftir fráfall Klemperes árið 1973
var hinn sjalli ungi ítalski stjóm-
andi Riccardo Multi ráðinn aðalst-
jómandi hljómsveitarinnar.
Þann 1. september 1977 tók
hljómsveitin aftur upp fyrra nafn
sitt, Fflharmoníuhljómsveitin, og
endumýjaði gömul tengsl við
Carlo Maria Giulini þann sama
vetur undir uppmnalegu nafni
hljómsveitarinnar.
f ágústmánuði árið 1979 varð
Riccardo Muti fyrsti tónlistarfor-
stjóri hljómsveitarinnar, og í lok
tónlistartímabilsins 1981/82 var
hann ráðinn heiðursstjórnandi.
Árið 1980 varð Prinsinn af Wales
fyrsti vemdari hljómsveitarinnar.
Fflharmom'an vinnur einnig mjög
náið með Simon Rattle, Andrew
Davis og Wladimir Ashkenazy. í
janúar í ár tók Giuseppe SinopoU
við stöðu aðalstjórnandans.
Fflharmoníuhljómsveitin hefur #
um árabil leikið inn á fleiri hljóm-
plötur en nokkur önnur hljómsveit
í heiminum og er svo enn þann dag
í dag. Hún ferðast einnig meira en
flestar aðrar hljómsveitir. Fyrir
utan reglubundna konserta t Royal
Festival Hall í Lundúnum og
hljómleika víða á Bretlandseyjum,
þ.m.t. á Edinborgarhátíðinni, ráð-
gerir hljómsveitin í ár tónleikaferð-
ir um Bandaríkin, Ástralíu og Evr-
ópu - og heimsóknir til Spánar,
Norðurlandanna og Japans 1984/
85.
- SÍÐA 23
Helgin 26.-27. maí 1984
Magnús vlð tvö málverka slnna: „Þau fjalla elns og flest verk mín um grlmmd og „sexuality". Myndln tll hægrl
heltlr Árbítur i skóglnum, þekkt mótíf úr myndlistarsögunnl. Ljósm:Atll
„Smábakfallslykkj a“
segir Magnús Tómasson sem
opnar sýningu á olíumálverkum í
Listmunahúsinu í dag
„Þetta er svona smábak-
fallslykkja", sagði Magnús
Tómasson listmálari er við
litum inn í Listmunahúsið í vik-
unni þar sem hann var að
hengja upp 32 olíumálverk.
Þau eru á sýningu sem hefst í
dag, laugardag, klukkan 14.
Sýningin heitir Hamskipti og
skepnuskapur.
- Hvað áttu við með bakfalls-
lykkju?
- Ég hef undanfarið verið í
þessu þrívíða formi sem ég kalla
„visual poetry", mjög smáar og
fi'nlegar myndir, og fann þörf hjá
mér til að sprella svolítið á striga
en upphaflega var ég málari og
málaði í mörg ár. Annars eru
hugmyndimar á bak við þessar
myndir ekki óskyldar því sem ég
var að gera í litlu myndunum.
Þetta er svona blanda af grimmd
og „sexuality“.
- Hið svokallaða nýja málverk
hefur kannski höfðað til þín?
- Ekki segi ég það. Annars
verður maður alltaf fyrir áhrifum
í tímanum. Ég hugsa að það hafi
hjálpað til að losa um ákveðna
stíflu hjá mér. Það var ákveðin
jjörf hjá mér að fara að mála og
svo kemur inn í það „tendens“ í
tímanum. Hins vegar vil ég setja
þetta nýja málverk innan gæsa-
lappa. Éinsog ég sagði áðan þurf ti
égað sprella svolítið á léreftinu
eftir allar litlu myndimar þó að
maður megi kannski ekki dreifa
sér á mörg svið. Ég hef mikið gert
af því að leita útrásar og ánægju
við að gera hlutina í bland. Svo
rankar maður við sér og bláköld
alvaran blasir við og maður þarf
að fara að sýna það sem maður
var að skemmta sér við. Þetta er í
bland kvöl og ánægja. Ég er líka
dálítið að vinna í skúlptúr. Það er
ekki hægt að vita fyrirfram hvort
verið er að gera réttu hlutina eða
hvort komið er í blindgötu.
- Hjálpa sýningamar þér við
að sjá það?
- Já, að nokkm leyti. Þá sjást
myndirnar allar saman og fæst
ákveðin fjarlægð á þær. Maður
verður að hafa kjark til að sjá
hvort maður er á réttri leið.
- Verða gagnrýnendur eða
aðrir sýningargestir til hjálpar við
það?
- Gagnrýnendur hjálpa lítið.
Það er kannski skortur á góðum
gagnrýnendum. Annaðhvort
koma frá þeim óábyrg niðurrifs-
skrif eða hól í orðum, sem geta að
vísu styrkt mig svolítið því að ég
er hégómagjam að eðlisfari, en
þýða etv. htið. Jákvæð svömn er
alltaf mikils virði og mér þykir
vænt um þegar ég fæ jákvæðar
undirtektir hjá venjulegu, vel
menntuðu fólki. Ef slíkt fólk get-
ur ekki dæmt er annaðhvort al-
menningur eða myndlistin í villi-
götum. En í málverkinu er maður
einn og getur ekki hugsað nema
með eigin heila.
Sýning Magnúsar, sem er sölu-
sýning, er opin virka daga frá kl.
10-18 og laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14-18. Lokað á mán-
udögum. Sýningi tendur til 11.
júní.
-GFr
r