Þjóðviljinn - 31.05.1984, Page 15
ts.ti 'ft( •’i-fftj.aiifiMrz írsií.jrt&yt’* - t/ “; »*
Fimmtudagur 31. maí 1984 ÞJOÐVILJIIS'N — SÍÐA 15
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Luther Bllssett - kyrrsettur.
Enskir án
þriggja
Enska landsliðið í knattspyrnu
verður að öllum líkindum án þrig-
gja sterkra sóknarmanna í vináttu-
leik gegn Sovétmönnum á Wembley
á laugardaginn.
Tony Woodcock frá Arsenal
meiddist í leiknum við Skota sl.
laugardag og er líklega tábrotinn.
Mark Chamberlain frá Stoke togn-
aði í baki og Luther Blissett fær
ekki leyfi frá hinu ítalska félagi sínu
AC Mflanó til að leika. _VS
Hannes
aðstoðar
Björgúlf
Björgúlfur Jóhannsson þjálfari
kvennalandsliðsins í blaki hefur
fengið sér til aðstoðar Hannes
Karlsson, þjálfara íslandsmeistara
Völsungs í kvennaflokki. Hannes
hefur aðsetur á Húsavík og er það
heppilegt fyrir landsliðsstúlkurnar
því 9 af 17 verða á Húsavík og Ak-
ureyri í sumar. Ein stúlknanna hef-
ur dregið sig útúr landsliðshópn-
um, Guðrún Hreinsdóttir úr ÍS.
-VS
Vildís
formaður
Vildís K. Guðmundson var kjör-
inn formaður Badmintonsambands
Islands á ársþingi sambandsins sem
haldið var um síðustu helgi. Hún
tekur við af Gunnsteini Karlssyni
sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs.
Aðrir í stjórn eru Sigríður M.
Jónsdóttir, Magnús Jónsson, Sig-
fús Ægir Árnason og Sif Friðl-
eifsdóttir. í varastjóm voru kjörnir
þeir Viðar Karlsson, Jón S. Karls-
son og Nils Zimesen.
Liverpool Evrópumeist-
ari í fjórða skipti
Liverpool varð í gærkvöldi Evróp-
umeistari í knattspyrnu í fjórða
skipti, vann AS Roma frá Ítalíu í
vítaspyrnukeppni eftir lengdan leik
á Ólympíuleikvanginum í Róm,
heimaveUi Roma. Þetta er fjórði
sigur Liverpool í þessari keppni,
ensku meistararnir unnu áður árin
1977, 1978 og 1981. Aðeins Real
Madrid frá Spáni hefur oftar hlotið
þennan eftirsótta titil, sex sinnum,
þar af fimm fyrstu árin sem keppn-
in var haldin. Þetta þýðir að Eng-
land á tvö lið í Evrópukeppni
meistaraliða næsta vetur, auk Liv-
erpool mun Southampton leika þar
í fyrsta skipti þar sem Liverpool
varð einnig Englandsmeistari en
Southampton hafnaði í öðru sæti.
Eins og við sáum í beinni sjón-
varpsútsendingu í gærkvöldi var
leikurinn í jaftivægi og úrslit gátu
orðið á hvom veginn sem var. Li-
verpool var betri aðilinn fyrsta
korterið, pressaði mjög framarlega
á breskan máta, og það gaf mark á
14. mínútu. ítölunum mistókst að
hreinsa eftir fyrirgjöf og bakvörð-
urinn gamalreyndi Phil stakk tánni
á boltann við markteig og sendi
hann í opið markið.
Roma tók leikinn nokkuð í sínar
hendur fljótlega eftir markið; eins
og Kevin Keegan, sem aðstoðaði
sjónvarpsþulinn, sagði, þá varð
Roma að opna leikinn. Allt benti
til þess, að Liverpool stæðist press-
una framað hléi en á hinni frægu
43. mínútu skoraði Roberto
Pmzzo fallegt skallamark eftir frá-
bæran undirbúning og sendingu
Bmnos Conti, útherjans leikna
1:1.
Síðari hálfleikurinn var sveiflu-
kenndur þar til Liverpool tók af
skarið og sótti látlaust síðasta kort-
erið. Það gaf þó ekki mark, og ekki
heldur sviplítil framlenging. í vít-
akeppninni sáum við svo ítalana
Graziani og Conti klúðra sínum
vítum, Steve Nicol sömuleiðis, og
Liverpool vann vítakeppnina 4:2.
Maður þessa leiks var tvímæla-
laust írinn Mark Lawrenson í vöm
Liverpool, hann átti stjörnuleik.
Graeme Souness lék einnig mjög
vel, sívinnandi og skipuleggjandi á
miðjunni, þeir tveir stóðu uppúr
hjá enska liðinu. Af ítölunum var
Pruzzo frískastur þar til hann varð
að fara útaf og Conti var ávallt
hættulegur. Falcao var öflugur á
miðjunni og vörn ítalska liðsins var
ákaflega sterk. Gott lið Roma, en
það vantaði herslumuninn til að
Mark Lawrenson - bestl maður vall-
arlns í gærkvöldi.
geta nýtt sér heimavöllinn til sigurs
á hinni óstöðvandi Liverpool-
maskínu, sem bara getur ekki hætt
að mala gull!
-VS
KR-Fram í kvöld
Reykjavíkurfélögin KR og Frám
hefja 4. umferð 1. deildarinnar í
knattspyrnu í kvöld. Þau mætast þá
í Laugardalnum og hefst leikurinn
kl. 20.
KR-liðið hefur valdið vonbrigð-
Átta kvennaleikir í dag
um í þremur fyrstu leikjunum sem
allir hafa endað með jafntefli. Til
að vera með í efri hluta deildarinn-
ar í sumar þurfa KR-ingar
nauðsynlega á sigri að halda í
kvöld.
Fram, sem vann 2. deildina í
fyrra, hefur byrjað ögn betur, er
með 4 stig úr þremur leikjum.
Framarar unnu Breiðablik í Kópa-
vogi á sunnudaginn og eru til alls
líklegir í sumar.
Keppni í 1. og 2. deild kvenna á
íslandsmótinu í knattspyrnu hefst í
dag. Tveir leikir eru á dagskrá í 1.
deild og sex í 2. deild.
í 1. deild verður leikið í A-riðli.
KR mætir meisturum Breiðabliks á
KR-vellinum kl. 14 og Víkingur og
Reykjavíkurmeistarar Vals leika á
Vflcingsvellinum kl. 20. Þriðji
leikur 1. umferðar verður síðan á
Akranesi annað kvöld. Þar leika
ÍA og ÍBÍ kl. 20. Keppni í B-riðli
hefst ekki fyrr en um miðjan júní.
KA,
Punktar frá Englandi:
Coppell til Palace?
Þar leika Þór Akureyri,
Höttur og Súlan.
Leikirnir í 2. deild eru eftirtaldir:
A-riðill - Fylkir-Haukar á Árbæ-
jarvelli kl. 20, Fram-Víðir á Fram-
velli kl. 14 og Grindavík-FH á
Grindavíkurvelli kl. 20. B-riðill -
Hveragerði-ÍR og á Hveragerði-
svelli kl. 14, Selfoss-ÍBK á Selfos-
svelli kl. 20 og Stjarnan-
Afturelding á Garðabæjarvelli kl.
20.
Ensk knattspyrnufélög leita
grimmt að leikmönnum og fram-
kvæmdastjórum þessa dagana með
næsta vetur í huga. Hér eru helstu
fregnir af þeirri leit:
Fjórir eru taldir koma til greina í
stjórastöðuna hjá Newcastle sem
vann sér 1. deildarsæti í vor. Þeir
eru Jim Smith, Oxford, Mick Bux-
ton, Huddersfield, Graham Turn-
er, Shrewsbury, og Bryan Hamil-
ton, Tranmerre. Stjómarformaður
Newcastle hefur lýst því yfir að
hann vilji ekki sjá fræga kappa á
borð við Jack Charlton, Malcolm
MacDonald og Lawrie McMenemy
sem allir voru orðaðir við stöðuna.
Alan Ball, sá eini sanni, hefur
tekið við stjórn Portsmouth til
bráðabirgða og fær líklega fast-
ráðningu í embættið fljótlega.
IFR
ara
íþróttafélag Fatlaðra í Reykja-
vík er um þessar mundir að minn-
ast 10 ára afmælis félagsins en fé-
lagið var stofnað þann 30. mal
1974.
í tilefni af því mun félagið
gangast fyrir sérstakri afmælis-
hátíð. Hátíðin hófst í gærkvöldi
með aðalfundi félagsins og af-
mælishófi, á laugardaginn verður
seinni hluti aðalfundar sem hald-
inn verður í Hátúni 12 auk þess
sem félagið gengst fyrir dansleik
um kvöldið á Hótel Esju. Alhr
velunnarar félagsins eru vel-
komnir á dansleikinn sem hefst
kl. 21.30.
Stærsta verkefni félagsins er
bygging íþróttahúss í Hátúni og
er vonast eftir að það verði tilbú-
ið í byrjun árs 1986.
Núverandi stjórn félagsins er:
Form. Amór Pétursson, varaf-
orm. Edda Bergmann Guð-
'O ! i/X.
Arnór Pétursson formaður IFR.
mundsdóttir, ritari Elsa Stefáns-
dóttir, gjaldkeri Vigfús Gunnars-
son, meðstj. Guðni Þór Arnórs-
son ásamt 5 manna varastjóm.
-Frosti
Malcolm MacDonald kemur þó
einnig til greina.
Steve Coppell, enski landsliðs-
maðurinn frá Man.Utd sem varð
að hætta vegna meiðsla sl. vetur,
tekur sennilega við 2. deildarliði
Crystal Palace. Locu Macari, félagi
hans frá Man.Utd verður þá að-
stoðarmaður hans.
Luton Town vill kaupa Phil
Thompson, fyrrum landsliðsmið-
vörð, frá Liverpool og hinn mark-
sækna Bob Latchford sem nú leikur
með Roda í Hollandi.
John Chiedozie, Nígeruímaður-
inn marksækni hjá Notts County,
fer að öllum líkindum til Sheffield
Wednesday.
Tottenham er talið eiga besta
möguleika á að ná í Danann unga
Michael Laudrup frá ítalska fé-
laginu Lazio Roma.
Arsenal og Tottenham bítast um
skoska landsliðsmanninn Richard
Gough sem leikur með Dundee
United.
Arthur Cox, sem kom Newcastle
í 1. deild sl. vetur, er tekinn við
stöðu framkvæmdastjóra hjá Der-
by County sem féll í 3. deild.
-VS
Annar hluti
OL fatlaðra
í Englandi
Annar hluti Ólymípuleika fatl-
aðra hefur verið fluttur frá Banda-
ríkjunum til Stoke-Mandeville í
Englandi. Áður stóð til að leikarnir
færu fram í tveimur borgum í
Bandaríkjunum. Fyrri hlutinn fer
fram í New York og hefst þann 16.
júní, og verða 10 íslenskir kepp-
endur þar. Mótið í Stoke-
Mandeville er fyrir mænuskaðaða
og munu 8 íslendingar mæta þar til
leiks en það hefst 21. júlí.
-Frosti
Isiandsmótiö I knattspyrnu kvenna
hefst í dag.
Mótaskráin
tekin af
stjórninni!
Ársþing Blaksambands ís-
lands sem haldið var á dögunum
samþykkti að taka útgáfu móta-
bókar sambandsins næsta haust
úr höndum stjórnarinnar.
Fram kom tillaga frá Þrótti Nes-
kaupstað um að þeir austan-
menn fengju að gefa út mótask-
rána og var það samþykkt. í
Neskaupstað hafa þeir alla að-
stöðu tU prentunar og þá hafa
Þróttarar verið iðnastir við að
safna auglýsingum í mótaskrár
BLÍ, flestar auglýsingar í síð-
ustu skrá voru t.d. frá aðUum I
Neskaupstað. Höfðu menn á
þinginu lúmskt gaman að þess-
ari „vantraustsyfirlýsingu“ á
hendur stjórnarinnar en móta-
skrá BLÍ hefur undanfarin ár
verið ansi lengi að fæðast.
-VS
Norræna sundkeppn-
in hefst í dag
Ákveðið hefur verið að Nor-
ræna sundkeppnin hefjist á morg-
un föstudag. Eins og nafnið bend-
ir tU er hér um að ræða keppni
miUi Norðurlandanna, aUir geta
gerst keppendur með því að
synda 200 metra. Sérstök þátt-
tökuspjöld hafa veríð prentuð og
munu þau liggja fyrir á sundstöð-
um landsin. Úrslit fást síðan í
keppninni með því að finna hlut-
fall sunda við höfðatölu.
í Reykjavík hefst keppnin á 4
stöðum. Þeir eru: Laugardals-
laugin, Vesturbæjarlaugin,
Sundhöllin og Sundlaug
Breiðholts. Ýmsir framámenn í
þjóðfélaginu munu ásamt fasta-
gestum lauganna hefja sundið kl.
7.45 í fyrramálið.
Sundsambandið hefur látið
framleiða barmmerki sem kosta
60 krónur stykkið og verða þau til
sölu á sundstöðunum. Þeir sem
synda 200 metran geta keypt sér
bronsmerki, syndi menn 200
metrana 50 sinnum eiga þeir kost
á að kaupa silfur og fyrir 100 sund
gull.
Norræna sundkeppnin hefur
verið haldin níu sinnum og hafa
íslendingar tekið átta sinnum
þátt í keppninni, þeir hafa einu
sinni sigrað það var árið 1951.
Færeyingar taka nú í fyrsta sinn
þátt í keppninni sem sjálfstæð
þjóð en allar Norðurlandaþjóð-
irnar eru aðilar að keppninni.
Auk þess að vera keppni á milli
landanna hefur þetta einnig verið
keppni milii ýmissa kaupstaða og
sýslna.
Alls komu tvær og hálf milljón
íslendinga á sundstaði í fyrra og
er reiknað með að sú tala verði
hærri á þessu ári, það hefur sýnt
sig að sundáhugi landsmanna
rýkur upp við keppnina. Nor-
ræna sundkeppnin var síðast
haldin 1972.
Til að þessi keppni hefur gæti
orðið að veruleika hafa ýmsir að-
ilar styrkt sundsambandið, má
þar nefna: Rauða Krossinn,
Slysavarnarfélagið, Sól H.f.,
Radíóbúðina og Trimmsam-
bandið.
-Frosti