Þjóðviljinn - 31.05.1984, Qupperneq 20
DWDVIUINN
Fimmtudagur 31. maí 1984
Aðalsimi Þjó&viljans er 81333 kl. 9 -20 mánudag til töstudags. Ulan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aðra startsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn ' A&alsínú Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Uaugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Mikilvægt fulltrúaþing Kennarasambands Islands um helgina
Baráttuhugur í kennurum
Stjórn leggur til að samningum verði sagt upp 1. september
Næstum 160 kennarar munu safnast
saman frá næsta föstudegi og til mánu-
dags til að halda þriðja fulltrúaþing
Kennarasambands Islands.
Auktillögu umað
stofna Kennarafélag íslands,
sem er þrep að því að sameina alla
kennara í eitt stéttarfélag, þá mun
kjaramálin að öllum líkindum bera
hæst, en fyrir þinginu liggur meðal ann-
ars tillaga stjórnarinnar um að BSRB
segi upp samningum sínum 1. sept-
ember næstkomandi.
Valgeir Gestsson formaöur KÍ sagöi á
fréttamannafundi að lýðræðisleg vinnu-
brögð samtakanna mætti sjá af því að um
fimm prósent allra meðlimanna ættu sæti á
fulltrúaþinginu, en tók jafnramt fram að
öllum kennurum væri leyfilegt að sitja þing-
ið sem haldið verður í Borgartúni 6.
Nú munu hátt í fimmtungur kennara í
grunnskóla vera réttindalaus og Valgeir
kvað lögverndun kennarastarfsins verða
eitt af höfuðmálunum á þinginu, og taldi
aðspurður að nokkurt samband væri á milli
lélegra kjara kennara og þess að réttinda-
laust fólk ætti greiðan aðgang að kennara-
störfum.
Á fundinum kom fram að mikill hugur er
í kennurum varðandi kjaramál og Valgeir
sagði að „á þinginu verður rætt um fjölda-
uppsagnir í haust til að leggja áherslu á
kröfur okkar, þó ekki sé formleg tillaga um
það fyrir þinginu“. Frá því var greint til
dæmis um hug kennara að sambandinu
hafði borist frá einum skóla í Reykjavík
staðfestar skuldbindingar 48 kennara af 50
um að segja upp störfum í haust ef ekki fást
leiðréttingar á kjörunum.
Svanhildur Kaaber sem var einnig á fund-
inum kynnti tillögur og ályktanir sem skóla-
málaráð KÍ leggur fyrir þingið, en ráðið er
vinnuhópur sem hefur fyrst og fremst fjall-
að um málefni sem lúta að faglegum mál-
efnum kennarastéttarinnar. Meðal mála
sem ráðið hefur lagt á gjörva hönd eru
Námsgagnastofnun og jafnréttisfræðsla.
-ÖS
Litlu börnin læra að ganga yfir götu:
8 skref beint
13 á ská yfír
Magðalena Guðmundsdóttlr 4 ára og Bergllnd Þóra Árnadóttlr 5 ára hlusta af athygll á söguna af Fíu fiörkálfl í
umferðarfræðslu sem var í Kársnesskóla í vlkunnl. Mynd ATLI
Sölusýning á verkum Appels í Listasafni íslands:
Málverkið á miljón!
Framlag Listasafns ís-
lands á Listahátíö er sýn-
ing á verkum eins af kunn-
ustu málurum heimsins
um þessar mundir, Holl-
endingsins Karels Appel,
sem búsettur er í New
Yori. Verkin á sýningunni
spannatímabilið 1959-83
og eru alls 48 talsins, flest
stór oltumálverk en einnig
akrýlmyndir, grafík og
myndir unnar í blandað
efni. Þettaersölusýning
og kosta olíumálverkin um
eða yfir eina miljón króna
og geta menn nú notað
tækifærið og selt íbúðina
sína og keypt eitt eða tvö
málverk
fyrirandvirðið!
Ef menn eru hins vegar ekki fúsir
til þess má geta þess að hægt er að
fá grafíkmyndir meistarans fyrir
mjög skikkanlegt verð, jafnvel
innan við 10 þúsund krónur. Selma
Jónsdóttir, forstöðumaður Lista-
safns íslands, komst í persónuieg
kynni við Appel í New York í fyrra
og þau urðu til þess að hægt var að
fá sýninguna hingað. Selma gat
þess á blaðamannafundi í gær að
Appel hefði sýnt mikinn áhuga á að
koma og vera við opnun sýningar-
innar, en gat ekki komið því við t cl- ver*ð að opna stóra sýningu á
vegna anna. Um þessar mundir er verkum hans í Amsterdam. - GFr
„Mér flnnst mest gaman að vera
komin í skóla og svo finnst mér líka
mest gaman að læra að vera úti á
kantinum á götunni“, sagði Berg-
lind Þóra Árnadóttir 5 ára gömul
þegar I’jóðviljinn hitti hana í um-
ferðarfræðslu í Kársnesskóla í
Kópavogi.
„Mamma kenndi mér að vera í
kantinum og svo læri ég það líka
hér. Svo segir löggan að það eigi að
ganga beint yfir götu af því að það
eru 8 skref. Ef ég fer á ská yfir
götuna eru það 13 skref, segir
löggan.“ Við hittum Berglindi
Þóru eftir að hún hafði hugfangin
hlustað á söguna um Fíu sem kom í
heimsókn til bæjarins og þekkti
ekkert á umferðina. Unnur Stef-
ánsdóttir fóstra sagði krökkunum
sögu og jafnhliða voru sýndar leik-
myndir eftir Sjöfn Ólafsdóttur.
Tveir lögreglumenn tóku einnig
þátt í umferðarfræðslunni.
„Ég ætla alltaf bara að leika mér
á grasinu. Það má alls ekki leika sér
á götunni því þá kemur bíll akandi
og kannski sér ekki bílstjórinn
mann“, sagði 4 ára stúlka úr Holt-
agerði, Magðalena Guðmunds-
dóttir. -jp
Frá og með 1. júní
hækkar áskriftarverð
Þjóðviljans í kr. 275.00
á mánuði. í lausasölu
hækkar blaðið í kr.
22.00 virka daga og í
Kr. 25.00 um helgar.
Grunnverð auglýs-
inga hækkar í kr.
165.00 pr. dálksm.
Mogginn og Hagvangskönnunin
Ofært að menn geti keypt sig
upplýsingum
frá óæskilegum
segir Hrafnkell A. Jónsson á Eskifirdi
Fyrir skömmu birti Morgun-
blaðið niðurstöður úr skoðana-
könnun sem Hagvangur hf. gerði
fyrir blaðið. Eitt af því sem spurt
var um var afstaða til stjórnmála-
flokkanna, en það hefur vakið at-
hygli nokkurra þátttakenda I
könnuninni að Morgunblaðið
hefur tO þessa hliðrað sér hjá því
að birta þennan þátt niðurstaðn-
anna. Einn þeirra, sem þátt tók í
könnuninni var Hrafnkell A.
Jónsson en hann er fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn á
Eskiflrði.
„Þetta var ákaflega víötæk
könnun", sagði Hrafnkell í stuttu
símaviðtali við Þjóðviljann „og
spumingar iutu meðal annars af-
stöðu fólks til stjórnmálaflokk-
anna. Ég var þannig spurður
bæði að því hvemig ég hefði kos-
ið við síðustu kosningar og hverj-
um ég myndi greiða atkvæði
núna. Um þetta hefur hins vegar
ekki birst stafkrókur í Moggan-
um“.
„Við þetta hef ég ýmislegt að
athuga", sagði Hrafnkell. „í
sjálfu sér er ég ekki mótfailinn
því að leitað sér eftir afstöðu
manna til stjórnmálaflokka, en
hinu er ég mótfaliinn að hægt sé
að gera svona könnun og selja
hana svo aðila út f bæ sem þá
getur ráðið hvort upplýsingarnar
sem fram koma við könnunina
eru birtar eða ekki. Sjálfum var
mér alls ekki sagt að Morgun-
blaðið myndi fá könnunina, ein-
ungis að það væri Hagvangur sem
að henni stæði“.
„Þegar verið er á annað borð
að hnýsast í einkamái einsog
stjómmáiaskoðanir, þá er ófært
að einhver aðili geti í rauninni
keypt sig frá óæskilegum niður-
stöðum, einsog þetta mál í raun-
inni sýnir að er hægt. Nú vitum
við að úrslit skoðanakannana eru
oft leiðandi í skoðanamyndun al-
mennings, og það er þessvegna í
fyllsta máta óeðlilegt að úrslit
skoðanakannana s'éu ekki brúk-
uð ef þau em á einhvern hátt ekki
æskileg fyrir þann aðila sem
kaupir þau af fyrirtækinu sem
gerir skoðanakönnunina. Ég veit
náttúrlega ekkert um úrslit þess
hluta könnunarinnar sem laut að
fylgi stjórnmálaflokkanna, og
veit því ekkert hvort þau em
óhagstæð Morgunblaðinu eða
ekki. En ég er ekki ánægður með
þessi vinnubrögð og heldur ekki
að fyrirtæki geti gert svona skoð-
anakannanir og selt svo einhverj-
um aðilum, án þess að láta þátt-
takendur vita um það fyrirfram.
Og ég held hreinlega að tími sé
kominn til að setja lög um þessi
mál“.
Hrafnkell kvaðst líka hafa
spurt Styrmi Gunnarsson rit-
stjóra Morgunblaðsins um málið:
„Styrmir sagði mér að þetta hefði
verið svo gömul könnun þegar
blaðið fékk hana ýhendurnar að
þeir væfu að meta hvort hún sé
fréttnæm lengur. Ég hygg þó
sjálfur að hún hafi eigi að síður
nokkurt fréttagildi, menn sjá all-
Hrafnkell A. Jónsson: Ég velt ekk-
ert um úrsllt könnunarlnnar þar
sem spurt var um fylgi flokka, en
ég er ekkl ánaAjöur með vinnu-
brögðln.
avega hvernig staðan var á þeim
tíma sem hún var tekin“.
Þess má geta að DV birti í gær
könnun sem sýndi talsverða
minkun á fylgi ríkisstjórnarinnar.
/ -ÖS