Þjóðviljinn - 31.03.1985, Síða 2
FLOSI
af formála
Það er æði oft, þegar ég hef ákveðið að skrifa um
tiltekið efni, að formálinn verður svo langur að greinin
er komin í fulla lengd áður en ég kem að því sem ég
ætlaði upphaflega að fjalla um. Þessir formálar eru
náttúrlega svona upp og niður eins og gengur og
gerist með formála. Nú, ég get svosem játað það hér,
þó ég kæri mig ekki um að það verði á allra vitorði, að
stundum hafa slíkir formálar, án eftirmáls, birst eftir
mig, en þá hef ég líka verið kominn í verulega tíma-
þröng og hugsað sem svo:
- Oft er forleikurinn að Rakaranum frá Sevilla fluttur
einn, eða Leónóru-forleikurinn og prólógusinn að
Gullna hliðinu. Hversvegna skyldi mér ekki vera leyfi-
legt að birta forleik líka?
Nú ætla ég ekki að hafa þennan formála lengri en
snúa mér beint að efninu.
Ég ætla að skrifa um dularfullan miðaldra mann,
sem undanfarna daga hefur sést á vappi hérna í Vest-
urbænum. Þessi maður er dökkur yfirlitum með svart
alskegg, hár, grannur og hinn vörpulegasti, gengur í
dökkbrúnum leðurfrakka og fer jafnan einn. Eitthvað
er það í fari mannsins, sem vekur meiri athygli en góðu
hófi gegnir og kem ég nú að því.
Við heiðurshjónin vorum semsagt í gær að aka
hérna vestur Hringbrautina í fína bílnum okkar nýbón-
uðum og búin að borga bæði rafmagnið og símann.
Sem við komum að horninu á Hofsvallagötunni og
Hringbraut, hrópar konan mín, viltu hægja á þér. Við-
brögðin hjá mér verða þau sömu og venjulega, þegar
ég held að hún sé að blanda sér í ökulagið hjá mér. Ég
stíg bensínið í botn. Og þá er það að ég er hérumbil
búinn að aka yfir hávaxinn, vörpulegan mann í dökk-
brúnum leðurfrakka. Ég klossbremsa og konan mín
segir, einsog í svolítilli geðshræringu:
- Hver er hann eiginlega þessi?
Þetta fer einhver ósköp í taugarnar á mér og ég
hugsa sem svo:
- Hvurn djöfulinn er hún að góna á Pétur og Pál.
Auðvitað get ég ekkert sagt, því þetta hefur alla tíð
verið einn af mínum veikustu blettum, einsog það er
kallað, semsagt að góna á eftir fallegum konum.
Sannleikurinn er sá, að þegar ég sé fallegri konu
bregða fyrir, beiti ég mig hörðu til að verða mér ekki til
skammar. Þá fer ég í lás, fæ störu og verð einsog
vankaður bolakálfur sem fengið hefur slaghamars-
högg í ennið.
Þá segir konan mín stundum eitthvað si sona:
- Þú ert bara einsog slefandi vanviti. Hvað heldurðu
að manneskjan haldi?
Og ég svara afskaplega skemmtilega og spontant,
eitthvað á þessa leið:
- Ef ég hefði ekki auga fyrir fögrum konum, þá hefði
ég ekki fallið fyrir þér.
Þessu fellur hún ekki fyrir - ekki lengur, en segir:
- Ég veit ekki hvort þú ert líkari aflóga hrúti um
fengitímann eða gömlum vagnhesti, sem lent hefur
innanum nýkastaðar folaldsmerar.
Og ég hugsa með mér:
- Hún er bara sjellú greyið og ekkert við því að gera.
Og nú erum við komin vestur í Vörumarkað, en
þangað var förinni heitið.
Þessar ferðir okkar í Vörumarkaðinn byrja venju-
lega á því að við týnum hvort öðru. Ég vil fara einn
hring og kaupa það sem til þarf, borga við kassann og
fara svo út. Hinsvegar er engu líkara en hún sé komin í
kokteilpartí í einhverju sendiráðinu um leið og hún
kemur inn fyrir dyrnar á þessu vöruhúsi. Allir eru teknir
tali og samræður hafnar á því plani sem ég nenni ekki
að tíunda hér.
Það er í grænmetinu sem hún týnist fyrst. Gengur
bókstaflega amok í púrrum og persíli, radísum og
rófum, kálum og spínötum, grasi og gulrótum og hvað
allar þessar fóðurblöndur nú heita. Tapar sér í græn-
metinu. Það er einsog hún viti það ekki enn, eftir meira
en þrjátíu ár, að ég vil ekki annað en ket, kartöflur og
sósu._
Þegar ég er svo orðinn leiður á að bíða eftir henni,
veit ég svosem fullvel, hvar hana er að finna. Þær eru
að sjálfsögðu að segja hvor annari ævisögu sína, hún
og konan í kálinu.
Ég veit að eina leiðin til að laða konuna mína úr
kálinu, er að ná af henni hjólagrindinni og aka burt.
Þetta virkar. Hún kemur hlaupandi á eftir mér með
fangið fullt af grænmeti, skellir því í körfuna og segir:
- Ég held þú sért ekki almennilegur.
Og ég svara eins stillilega og mér er unnt:
- Ég hélt að þú yrðir ellidauð í þessari djöfulsins
súrheysgryfju. Eða er konan í kálinu svona ómót-
stæðileg?
- Æ, hún er svo indæl.
Nú erum við komin að fiskborðinu. Þar liggur meters
langur þorskur, einsog til skrauts. Ég sé strax að þetta
er sami þorskurinn og var þarna í gær og hef orð á því
og segi:
- Þetta er sami þorskurinn og var hér í gær.
Þá segir hún:
- Þú ert nú svo ómannglöggur að þú þekkir ekki
einu sinni hestana þína í sundur. Mér þykir þú orðinn
þorskglöggur.
Þessu svara ég ekki.
Svo förum við að kassanum. Þeirri för stjórnar hún
jafnan og gætir þess að við lendum alltaf við þann
kassann sem ómótstæðilegasta stúlkan er við, því
hún veit að ég pexa ekki um peninga í viðurvist fegurð-
ardísa.
Þegar við erum svo að ganga útúr þessari dæma-
lausu stórverslun lít ég á hana og sé að hún er orðin á
svipinn einsog hún hafi fengið slaghamarshögg í enn-
ið.
Ég lít í kringum mig til að athuga hverju svipurinn
sæti. Er þá ekki dularfulli maðurinn í dökkbrúna leður-
jakkanum að ganga inní Vörumarkaðinn, einmitt mað-
urinn, sem ég ætlaði að skrifa þennan Vikuskammt
um.
Það verður sýnilega að bíða betri tíma.
Ólafur Laufdal
kaupir
Vörumarkaðinn
Haft er fyrir satt að Ólafur
Laufdal veitingamaður hafi
eða sé að ganga frá kaupum
á húsnæði Vörumarkaðarins
við Ármúla. Ólafur rekur sem
kunnugt er Broadway og
Hollywood með það góðum
árangri að hann telur sig geta
keypt þetta stóra verslunar-
húsnæði. Um leið hyggst
hann ekki hverfa frá fyrirætl-
unum um byggingu risastórs
skemmti- og ráðstefnuhúss í
Breiðholti. I Vörumarkaðnum
hyggst Ólafur hins vegar reka
diskótek á jarðhæð en ekki
vitum vér hvaöa starfsemi á
að fara fram á efri hæðum
hússins... ■
Kukl á uppleið
Fyrir röskri viku áttu Björk og
Sigtryggur úr Kuklinu feyki-
góða spretti á gjörningakvöldi
í Safarí, raunar með ágætri
ásláttaraðstoð Abdús,
kroppatemjara úr Kramhús-
inu. Nýjast af Kuklinu er ann-
ars það að í maí munu þau
halda til Englands og halda
tónleika með hinni þekktu
„underground" rokksveit
Psychic TV, sem hingað kom
sællarminningar. Tónleikarn-
ir verða í Hammersmith Pal-
ace, og gjörvöll breska
popppressan verður að sjálf-
sögðu viðstödd.
Um svipað leyti mun koma
út breiðskífa með Kuklinu
sem verður gefin út af annarri
þekktri rokkgrúppu í Bret-
landi, Crass. Skömmu síðar
mun svo Kuklið koma fram á
Roskilde festivalinu í Dan-
mörku sem er að verða með
þekktari rokkhátíðum Evrópu.
Kuklið er því svo sannarlega á
hraðri leið uppá sumarhimin-
inn...B
Nú fáiði frí
Ragnhildur Helgadóttir er
sem kunnugt er mikill áhuga-
maður um framgang skóla-
starfs í landinu. Að vísu átti
hún nokkurn þátt í allmiklu
vorfríi í framhaldsskólum fyrir
nokkru, en ráðherrann hefur
líka sýnt að hann kann að
bregðast við kvabbi af reisn
og röggsemi og er skemmst
að minnast svars hennar við
beiðni um frí til að hjálpa ein-
hverjum útlendum og þel-
dökkum trantaralýð suðrí Afr-
íku. En nú er ráðherrann kom-
inn í vanda. Nokkrir nemend-
ur framhaldsskólanna hafa
sem sé tilkynnt að þeir geti
ekki mætt í skólann 11., 12.
og 13. apríl næstkomandi
vegna áríðandi fundar í
Reykjavík. Bíða skólamenn
nú spenntir viðbragða ráðu-
neytisins, en við erum ekki í
neinum vafa um úrskurðinn.
Þessa daga er nefnilega hald-
inn landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins...B
Gunnar Steinn
og mjólkin
Aðalfundur Sambands ísl.
auglýsingastofa var haldinn í
gær. Fundarstjóri var Gunnar
Steinn Pálsson forstjóri
Auglýsingaþjónustunnar,
sem hannaði mjólkurauglýs-
ingarnar, sem stöðvuð var
birting á þar til texta þeirra
hafði verið breytt. Það bar svo
til tíðinda á fundinum í gær að
þegar öðrum var boðið kaffi
eða einhver drykkur þaðanaf
betri var Gunnari boðin mjólk.
Fótboltapakki
Nýjustu tíðindi úr bók-
menntaheiminum herma, að
væntanleg sé í sumar stærðar
knattspyrnubók ásamt með
myndsnældu (svokölluðu
spyrnubandi). Samkvæmt
fremur áreiöanlegum heimild-
um mun Sigurður Svavarsson
íslenskumaður vinna að þýð-
ingu og staðfæringu bókar-
innar sem unnin er m.a. í sam-
ráði við Tækninefnd KSÍ. Að
sögn munu íslenskir knatt-
spyrnumenn koma við sögðu
bæði í bókinni og á spyrnu-
bandinu. Upprunalega er hér
um að ræða hollenska fram-
leiðslu og eru (slendingar
meðal þeirra fyrstu sem þýða
og staðfæra þetta verk, sem
ætlað er að verði byrjendum í
knattlistinni mikil lyftistöng. Á
spyrnubandinu eru m.a. svip-
myndir úr þekktum og al-
ræmdum knattleikjum. Mál og
menning gefur út þetta verk.B
íslenska
skáldsagan
Allt bendir til þess að mikið
verði um íslenskarskáldsögur
á jólamarkaðnum næsta.
Þannig hefur spurst að vænta
megi skáldsögu eftir Einar
Kárason, eins konarframhald
Djöflaeyjunnar, sem gerði
skáldið frægt fyrir nokkru.
Nafni hans Einar Már Guð-
mundsson mun einnig hafa
sett upp útgáfufésið, - og
mun vera væntanleg skáld-
saga frá honum. Þá hefur
einnig heyrst að ekki væri úti-
lokað að skáldsaga komi út
fyrir jólin eftir Pétur
Gunnarsson.B
Alþjóðlegir
kratar
Það hefur farið fyrir brjóstið á
mörgum í fjandvinaher Al-
þýðubandalagsins að í flokkn-
um skuli vera uppi hugmyndir
um að ganga til liðs við Al-
þjóðasamband sósíalista.
Margir hafa þannig reynt að
búa til heilagt stríð í flokknum
milli fylgjenda og andstæð-
inga aðildar. Besta leikinn átti
að líkindum Magnús Ólafsson
ritstjóri NT, sem sagði að
deilan stæði á milli þeirra sem
vildu fara í Alþjóðasamband
sósíalista og svo hinna sem
vilja ganga í Alþjóðasamband
jafnaðarmanna. En þarskripl-
aði ritstjórinn heldur betur á
Framsóknarskötunni: Al-
þjóðasamband jafnaðar-
manna og Alþjóðasamband
sósalista eru nefnilega einn
og sami hluturinn, hvort
tveggja þýðing á heitinu „Soc-
ialist International". Reyndu
betur næst, Mangi... ■