Þjóðviljinn - 31.03.1985, Side 3
Önot í Hallgrím?
Þegar Þjóöviljinn greindi frá
því aö Megas ætlaði að
syngja Passíusálmana opin-
berlega varö einum blaða-
manni Þjóðviljans að orði:
Drottni er eflaust sýndur sómi
og sálirnar borga þar gjöld
sem laglausir gaula
lágum rómi
leirburð frá 17. öld.M
Flokksátök á
okkar kostnað
Klofningurinn og upplausnin
innan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins eru nú farin að taka
á sig alvarlega mynd. Þeir
Sverrir Hermannsson og Al-
bert Guðmundsson eru
komnir í stríð og beita fyrir sig
fjármunum og eignum ríkisins
til að ná sér niður hvor á öðr-
um. Sverrir segir aðríkið sé
hætt að veita peningum til
saltvinnslunnar á Reykjanesi,
þetta sé vonlaust fyrirtæki.
Skömmu síðar veitir Albert 15
miljónum króna til fyrirtækis-
ins og segir að þetta beri að
gera samkvæmt lögum, hvað
sem Sverrir segi. Því næst
leggur Albert fram frumvarp
um ríkisábyrgð til handa
Stálfélaginu. Skömmu síðar
segir Sverrir að frumvarpið
verði afturkallað (það er ekki
hægt samkvæmt lögum, um
það verður að fjalla) og segir
Stálfélagið enga ríkisábyrgð
fá. Það kemur þjóðinni ekki
við þótt allt logi í innbyrðis-
deilum hjá Sjálfstæðisflokkn-
um, en mönnum ofbýður þeg-
ar farið er að tefla með al-
mannafé og eignir í valdata-
flinu í Valhöll.B
Alexander
fékk viðvörun
Áður en Alexander Stefáns-
son réði karl í embætti skrif-
stofustjóra í félagsmálaráðu-
neytinu höfðu nokkrir framá-
menn og -konur í Framsókn-
I arflokknum varað hann við að
ganga framhjá Hólmfríði
Snæbjörnsdóttur, fulltrúa í
ráðuneytinu. Ráðherranum
var kurteislega bent á þá
gagnrýni sem Framsóknar-
flokkurinn hefur sætt um að
vera andvígur jafnréttisbar-
áttu kvenna og sagt að þeim
áróðri verði að hrinda með því
að sýna hið gagnstæða í
verki. Meðal þeirra sem skrif-
uðu undir plaggið og skoruðu
á ráðherra að nota tækifærið
og ráða Hólmfríði voru Þórar-
inn Þórarinsson, Sigrún
Magnúsdóttir, Sigrún Sturlu-
dóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir
og Inga Þyrí Kjartansdóttir. Á-
skorunin mun hafa legiðfram-
mi á skrifstofu flokksins, en
verið snarlega kippt úr um-
ferð.B
Bubbl syngur
um konur
Sósíalísk umræða
er ekki útkljáð
á íslandi
4 þættir til stefnu-
mótunar kommúnista
er brýnt innlegg I umræðuna
Þar er fjallað um: Stéttir — ríkisvald — lýðræði
sósíalisma og pólitískt skipulag.
Fæst í M&M, Bóksölu stúdenta og Gramminu.
Verð kr. 30,-
®i Ritari
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utanríkis-
þjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu öðru tungu-
máli auk góðrar vélritunarkunnáttu.
Eftir_þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að ritar-
inn verði sendur til starfa í sendiráðum íslands erlendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,
Reykjavík, fyrir 10. apríl n.k.
Utanríkisráðuneytið.
Blllffl!
Nætur-
vörður
til sölu
Margar gerðir
sem kosta frá
396 krónum.
/
Bubbi Morthens er nú að
leggja síðustu hönd á sóló-
hljómplötu sem hann hyggst
gefa út í júnímánuði nk.. Á
þessari plötu gætir áhrifa frá
gamalli svingmúsík frá 3. og
4. áratugi aldarinnar og að
sögn Bubba eru lögin öll frek-
ar „djollí" enda ætlunin að láta
fólki líða vel meðan hlýtt er á
söngvana. Textarnir fjalla að
mestu leyti um konur og til-
einkar tónlistarmaðurinn
kvenþjóðinni þessa plötu.B I
Ódýrt en öruggt þjófavarnartœki, sem tryggir nœtursvefninn —
hvort sem þú ert heima eða að heiman. Ódýri nceturvörðurinn
— litla \nterquartz þjófavarnartœkið er hægt að festa innan á
allar hurðir, án nokkurra tenginga, og um leið og óboðinn
gestur gerir tilraun til að komast inn fer kerfið í gang.
í einbýlishúsið, íbúðina, geymsluna, garðhúsið eða verkstæðið.
Öruggur og einfaldur.
^SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMI 68 79/0
OCTAVO 09.31