Þjóðviljinn - 31.03.1985, Page 5
'
30. mars
Viðviljum
finna
nýja leið
Eiríkur Hjálmarsson fulltrúi
œskunnar á 30. marsfundinum í
Háskólabíói tekinn tali
Þetta verður hugleiðing um
valdakerfið í heiminum:
Hvernig risaveldin tvö skipta
heiminum í áhrifasvœði og
um stöðu íslands meðal
þessara risa: kórdrengur hjá
Bandaríkjastjórn, sagði Eirík-
ur Hjálmarsson sagnfrœði-
nemi fspjalli við Þjóðviljann
en hann flytur rœðu á fundi
herstöðvaandstœðinga í
Háskólabíói, í dag laugar-
dag 30. mars kl. 17.00.
Eiríkur Hjálmarsson hóf nám í
háskólanum sl. haust og er ötull
félagsmálamaður. Hann var í ne-
mendastjórn MH í fyrra, á árum
áður í stjórn Æskulýðsfylkingar-
innar, er nú í stjórn félags sagnf-
ræðinema og stúdentaráði. Þá
hefur hann leikið með Leikfélagi
Kópavogs og Stúdentaleikhús-
inu.
- Fólk er í auknum mæli að
afneita þessu kerfi gjöreyðinga-
vopnanna, svosem friðarhreyf-
ingarnar bera vott um. Friðarbar-
áttan á mikinn hljómgrunn meðal
ungs fólks, - þó sú barátta sé
undir mismunandi formerkjum. í
fljótu bragði kann að vera erfitt
að átta sig á því hvar skilur á milli
raunverulegrar friðarbaráttu og
vopnfíkni sem kölluð er „friða-
rbarátta“, saman ber þegar talað
er um að hernaðarbandalagið
Nató sé friðarhreyfing. -
- Fólk er almennt orðið þreytt
á tvískiptingu heimsins í skugga
þessara tveggja risavelda og það
vill finna nýjar leiðir bæði sem
einstaklingar og þjóðir. Ég held
Eiríkur Hjálmarsson. Við erum að tala um von mannkynsins. (Mynd - eik).
að vaxandi gengi friðarhreyfinga
auki líkurnar á því að aðrar þjóð-
ir en risaveldin og þó sérstaklega
þjóðir þriðja heimsins finni hina
þriðju leið friðsamlegrar sam-
búðar. Von mannkynsins er sú að
hægt verði að stöðva vígbúnaða-
ræðið og þess vegna viljum við
friðarbaráttu, sagði Eiríkur
Hjálmarsson.
- Að lokum var Eiríkur spurð-
ur hvernig hann kynni við sig í
sagnfræðinni.
- Blessaður vertu, prýðilega.
Margir halda að þetta sé rykfallin
fræðigrein en hún er þvert á móti
afskaplega lifandi og skemmti-
leg. Og uppí sagnfræðideild ríkja
ferskir straumar í greininni, sagði
Eiríkur Hjálmarsson að lokum.
-óg
* s
^ " *
Listama5urinn Karl Lagerfeld hefur í samvinnu við CHLOÉ-safnið í Paris hannað þessi
gullfallegu matar- og kafTistell ..Kalablómið ’sem Hutschenreuther framleiðir úrpostulini
af bestu gerð.
® SILFURBUÐIN
Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066