Þjóðviljinn - 31.03.1985, Blaðsíða 6
Helga Sigurjónsdóttir: Ríkjandi goðsögn að tölvutæknin krefjist mikillar stærðfræðikunnáttu. Það er allsekki tilfellið, tæknin verðuræ auðveldari í notkun. (Mynd: E.ÖI.).
Tölvuseljendur eiga ekki
aö stjórna þróuninni
Ekki alls fyrir löngu kom út á
vegum Kvenréttindafélags
íslands skýrsla sem bertitil-
inn Tölvutœknin - hlutur
kvenna og karla á vinnu-
markaðnum. Skýrsla þessi er
unnin af þremur ungum kon-
um, þeim Ragnheiði Harðar-
dóttur, Sigrúnu Jónsdóttur og
Sveinþjörgu J. Svavarsdóttur.
íhenni koma fram ýmsar
merkar upplýsingar um áhrif
tölvuvœðingarinna á kynja-
skiptinguna á vinnumarkaði.
f skýrslu þessari er vakin at-
hygli á þeirri staðreynd að „kon-
ur sem starfa innan tölvuiðnaðar-
ins hafa mun minni menntun en
karlar og fá þar af leiðandi ekki
sérhæfð störf á þessum vettvangi,
heldur þau störf þar sem minni
menntunar sé krafist.“ Þegar þær
athuguðu skiptingu kynjanna á
nokkur starfssvið innan fyrir-
tækja sem nota tölvutækni kom í
ljós að karlar voru í yfirgnæfandi
meirihluta (92-98%) á þessum
starfssviðum: þróun hugbúnaðar
og vélbúnaðar, sölustörfum og
stjórnun. Eina sviðið þar sem
nokkurt jafnvægi ríkti voru al-
menn skrifstofustörf. Þetta segir
sína sögu.
Ein þeirra kvenna sem hefur
andæft gegn þessari þróun er
Helga Sigurjónsdóttir. Hún starf-
ar við kerfishönnun, forritun og
skyld störf hjá Verk- og kerfis-
fræðistofunni í Húsi verslunar-
innar. Helga á sæti í stjórn
Kvenréttindafélags fslands og
hún gerði samantekt um konur
og tölvuvæðingu fyrir kvennast-
efnu sem konur í Alþýðubanda-
laginu héldu í Ölfusborgum ekki
alls fyrir löngu. Við báðum hana
fyrst að lýsa starfi sínu og vinnu-
stað.
Eins árs
tölvunám
„Þetta fyrirtæki, VKS, telur
um 20 manns og er í örum vexti.
Það fæst einkum við þróun tækni-
legra eftirlits- og stjórnkerfa ann-
ars vegar, t.d. gerði það nýlega
svonefndan kerfisráð fyrir Hita-
veitu Reykjavíkur. Hins vegar
fæst það við gerð tölvukerfa fyrir
viðskiptafyrirtæki og að því vinn
ég, enda miðast menntun mín við
það.“
- Hvernig ertu menntuð?
„Ég veit nú ekki almennilega
hvaða titil ég hef, en á dönsku
nefnist ég EDB-assistent. Þetta
er ekki háskólamenntun heldur
fór ég í tölvuskóla sem rekinn er í
tengslum við verslunarskólakerf-
ið í Danmörku. Hann stendur í
1-2 ár eftir því hve mikinn undir-
búning maður hefur. Mér nægði
eitt ár en þetta var nokkuð mikil
vinna, 35 tímar á viku og talsvert
heimanám í ellefu mánuði. Þarna
fær maður það góða praktíska
þjálfun að maður getur farið að
vinna að forritun og hugbúnaðar-
gerð strax að námi loknu. Það er
hins vegar ekki mjög fræðilegt.
Mér finnst vanta eitthvað svipað
þessu námi hérlendis. Án þess að
ég viti það nákvæmlega held ég
að hlutfall kynjanna í tölvufyrir-
tækjum sé öllu hagstæðara ícon-
um í Danmörku en hér. Þessi
námsbraut gæti verið ein skýring-
in á því. Þarna var hlutfall kvenna
milli 30 og 40 af hundraði."
Bein lína
í bönkunum
- Hvaða áhrif hefur tölvuvœð-
ingin haft hér á landi?
„Við erum nokkrum árum á
eftir nágrannalöndum okkar á
þessu sviði. Enn er það svo að
tölvuvæðingin í viðskiptalífinu
nær víðast hvar aðeins til ein-
stakra verkþátta, það er einungis
í örfáum stórfyrirtækjum þar sem
tölvurspanna alla starfsemina. Á
þessu hefur þó ekki verið gerð
nein úttekt. Starfshópur á vegum
félagsmálaráðuneytisins er að
rannsaka þessi mál og spá í þró-
unina. Verkefni hans ber heitið
Áhrif nýrrar tækni á íslenska at-
vinnuvegi og ber að skoða það í
ljósi þess markmiðs ríkisstjórnar-
innar að stuðla að nýsköpun at-
vinnulífsins og kanna möguleika
íslands í nýrri tækni.
En það hlýtur að verða mikil
breyting, um það ber öllum sam-
an. Tölvubúnaður verður æ ódýr-
ari og í kjölfar þess hlýtur að
koma til miklu víðtækari tölvu-
væðing í viðskiptalífi og iðnaði en
nú er raunin. Það er alls staðar
reynt að tölvuvæða einhæfustu
störfin, rútínustörfin, og þar er
þróunin lengst komin á sviði
skrifstofuhalds. Nú er bókhaldið
að mestu komið inn í tölvur,
uppflettingar fara fram á skjá en
ekki í bókum og ritvinnsla hefur
leyst vélritun af hólmi.
Þarna erum við enn nokkrum
árum á eftir eins og ég sagði áðan.
í Danmörku er t.d. búið að taka í
notkun svonefnt beinlínukerfi í
öllum bönkum. Það þýðir að þú
snýrð þér beint til gjaldkera sem
afgreiðir þig og skráir innleggið
eða úttektina strax inn í tölvu-
kerfið. Þetta hefur í för með sér
að fólki við afgreiðslu fækkar
mjög. í Danmörku hefur ekki
beinlínis komið til atvinnuleysis
vegna þessarar þróunar. En
bankarnir hafa dregið mjög úr
nýráðningum og störfum hefur
fækkað, störfum sem t.d. konur
hefðu annars átt kost á.
Ég er hrædd um að þessi þróun
bitni verst á konum því það eru
einkum hefðbundin kvennastörf
sem hverfa. Stjórnvöld verða að
taka tillit til þessa í þeiri ný-
sköpun sem stefnt er að. Þetta
gerir kröfur til þess að endur-
menntun kvenna sé gefinn
gaumur.“
Kynslóða-
skipti
- Er ekki hœtta á því að tölvu-
vœðingin leiði til atvinnuleysis?
„Um það er erfitt að segja. Oft
er talað um kynslóðir í tölvuvæð-
ingu. í viðskiptalífinu einkennist
Á þessu súluriti sést
glöggt hvernig kynskipt-
ingin er innan íslenskra
tölvufyrirtækja. Karlar eru
allsráðandi (yfir 90%) í
sölustörfum, þróun hug-
og vélbúnaðar og stjórn-
un. Einastarfssviðið þar
sem jafnvægi ríkir eru al-
menn skrifstofustörf. (Úr
skýrslu KRFÍ um tölvu-
tækni).
t' /\ Karlar
StarfshHiti
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. mars 1985
fyrsta kynslóð hins sjálfvirka
skrifstofuhalds af afmörkuðum
kerfum þar sem viss störf eru
tölvuvædd, t.d. ritvinnslaog bók-
hald. Þetta er algengt hér á landi
og breytir oft ekki svo miklu í
skipulagi fyrirtækja. Næsta kyn-
slóð eru upplýsingakerfi sem t.d.
gætu byggt á svonefndum tölv-
unetum, þar sem einkatölvur eru
samtengdar í gegnum móður-
tölvu og allt starfsferlið er tölvu-
vætt. Þetta býður heim miklu víð-
tækari skipulagsbreytingum og
þar með breytingum á störfum og
verkaskiptingu innan fyrirtækja.
Stjórnendur geta til dæmis leyst
af hendi miklu fleiri störf beint
við tölvuna. Þau störf sem nú fe-
last í ýmiss konar skýrslugerð og
eftirliti fyrir stjórnendur verða þá
óþörf. Við þetta verður hætta á
að starfsliðið skiptist upp í tvo
hópa: annars vegar fáa há-
launaða stjórnendur, hins vegar
marga lágt setta starfsmenn á
lágum launum. Einnig er til í
dæminu að fyrirtæki færi alla
gagnaskráningu o.þ.h. út í tölv-
umiðstöðvar, t.d. í úthverfum
jaar sem húsmæður sætu við skjá-
ina. Þessi þróun er þegar orðin að
veruleika í Bandaríkjunum og
jafnvel víðar en mér finnst þetta
ekkert sérlega freistandi framtíð-
arsýn.“
Ánnars getur verið hæpið að
draga beinar ályktanir fyrir ís-
land af því sem gerist erlendis.
Fyrirtækin eru t.d. miklu smærri
hér. Einnig hefur það áhrif hvort
atvinnuleysi ríkir. Það er hægt að
finna dæmi um störf sem hafa
horfið hér, en það hafa enn ekki
orðið neinar uppsagnir í stórum
stfl eins og reyndin virðist vera
sums staðar erlendis. í Þýska-
landi er því t.d. spáð að á næstu
árum muni tugþúsundir skrif-
stofustarfa hverfa."
Átti við
tölvuvœðingu
- En nýju störfin sem verða til,
eru það einungis „karlastörf'?
„Nei, konur eiga fullt eins
mikið erindi í þessi nýju störf og
karlar. Þessi störf eru umvafin
ýmsum goðsögum, t.d. óttast
margar konur að þær þurfi að
kunna mikla stærðfræði til að
eiga möguleika á þeim. Ég hef