Þjóðviljinn - 31.03.1985, Blaðsíða 7
enga stærðfræðigráðu og er stúd-
ent úr máladeild. Þessi nýju störf
eru ákaflega fjölbreytt, í sumum
þeirra nýttist tækni- og stærðf-
ræðiþekking, en í öðrum er ein-
mitt þörf fyrir fólk með ólíkan
bakgrunn. Það er þörf fyrir fólk
sem hefur áhuga og þekkingu á
þeim störfum sem verið er að
tölvuvæða. Tölvurnar eru orðnar
svo auðveldar í notkun og það er
mikilvægt að konur fari í þessi
nýju störf ef þær ætla ekki að
missa af lestinni.
Það ríkir áberandi ótti við tölv-
uvæðinguna. Þessi ótti hefur við
rök að styðjast ef þróunin er
óskipulögð. Þá getur hún leitt til
atvinnuleysis og tæknihyggju sem
tekur ekkert tillit til hins mann-
lega þáttar. Þetta má ekki eiga
sér stað. Það er vissara fyrir bæði
konur og karla að ná tökum á
þróuninni og notfæra sér tæknina
til að skapa það þjóðfélag sem við
viljum. Það er ágætt ef einhæf og
erfið störf hverfa ef það leiðir til
styttri vinnutíma.
Þetta er mikið mál fyrir verka-
lýðshreyfinguna. Hún verður að
móta ákveðna stefnu og athuga í
tíma hvaða áhrif þær miklu
breytingar sem óhjákvæmlega
munu fylgja í kjölfar tölvuvæð-
ingarinnar hafa á störf sinna fé-
lagsmanna. Hún mun breyta
miklu fyrir félagsmenn í VR svo
dæmi sé tekið af mínu félagi. Það
þarf að móta sér stefnu og setja
fram kröfur um endurmenntun,
forgang starfsmanna að nýjum
störfum o.fl. Tölvuvæðingin er
ekkert einkamál ' sérfræðinga.
Það eru ekki tölvuseljendur sem
eiga að ráða því hvernig tæknin
nýtist þjóðfélaginu."
- Að hvaða leyti standa konur
verr að vígi en karlar andspœnis
tölvuvœðingunni?
„Aðalvandinn er í hve fáum
störfum konur eru. í samræmi við
hefðbundið starfsval kvenna
þjappa þær sér saman í u.þ.b. lA
af öllum störfum og það eru ein-
mitt mörg af þessum störfum sem
tölvuvæðingin mun gera óþörf.
Það skiptir sköpum að tekið sé
tillit til þessa við þá nýsköpun
sem í undirbúningi er. Og konur
þurfa að velja sér fjölbreyttari
menntun en þær hafa gert, til þess
að vera færar um að taka við nýj-
um störfum sem skapast og þeim
sem nú eru nefnd karlastörf.
Við ræddum þessi mál á kvenn-
astefnunni og urðum sammála
um að hvatning til kvenna um að
velja sér fjölbreyttari menntun
verði að koma í skólunum. Þar
þarf að ýta við hefðbundnu
starfsvali kynjanna. í þessu felst
ekkert vanmat á hefðbundnum
kvennastörfum. En konur munu
innan skamms standa frammi
fyrir úrslitakostum: annað hvort
verða þær að taka sér tak í
menntunarmálum eða þeirra bíð-
ur atvinnuleysið. Þriðji kosturinn
er að konur sætti sig við að sitja
áfram á botninum sem lægst
launaði hópurinn."
Stelpur
missa áhugann
- Nú hefur það komið fram að
börn standa sig vel í tölvunámi,
burtséð frá kynferði, en svo helt-
ast konurnar úr lestinni. Hvað
veldur?
„Já, börn sýna mikinn áhuga á
tölvutækninni en þegar kemur
fram á unglingsárin missa stelp-
urnar áhugaunn en strákamir
halda áfram. Strákamir em
miklu ákveðnari í að verða
eitthvað, en stelpurnar em miklu
óráðnari og þurfa meiri hvatn-
ingu. Það er eins og þær hugsi
sem svo að þær eigi eftir að giftast
og eignaðist börn og þurfi því
ekki eins mikið á starfsmenntun
að halda. En staðreyndin er sú að
flestar konur eyða meirihluta
ævinnar á vinnumarkaði og þurfa
að treysta algerlega á sjálfa sig til
framfærslu.
Þarna þarf að koma til starfs-
fræðsla. Það þarf að sýna stelpun-
um fram á að þær þurfi starfs-
menntun til að geta framfleytt sér
og gera þeim ljóst að það em til
fleiri störf en hefðin býður upp á.
Þær þurfa mikla hvatningu til að
fara ótroðnar slóðir og okkur ber
skylda til að miðla þessum stað-
reyndum til þeirra, án þess þó að
þeim finnist að það sé verið að
þvinga þær.“
- Hvernig geta konur á vinn-
umarkaði bœtt stöðu sína?
„Fyrir þær er endurmenntun
og símenntun ákaflega brýn. Nú
er boðið upp á endurmenntun
hér og þar en hún þarf að vera
kerfisbundin og þeim sem hennar
njóta að kostnaðarlausu. Þarna
gætu stéttarfélögin lagt sitt af
mörkum. Ég komst t.d. í mitt
nám fyrir tilstilli stéttarfélagsins,
fyrst á bókhaldsnámskeið en þar
var mér bent á tölvuskólann.
Það er ekki síður mikilvægt að
konur sigrist á eigin ótta við
tæknina. Konur eru ragar við að
taka að sér störf sem ekki eru
hefðbundin og þær eru feimnar
við að taka að sér ábyrgðarstörf.
Þær eru líka gjarnar á að mikla
fyrir sér böndin sem binda þær
heimilinu. Auðvitað eru ýmis
ljón í vegi þeirra kvenna sem vilja
láta til sín taka á vinnumarkaði en
oft finnst mér konur nota þessar
hindranir sem afsökun fyrir því
að takast ekki á við vandasama
hluti. Ég þekki þetta frá sjálfri
mér, ég finn fyrir ákveðinni
tregðu þegar ég þarf að setja mig
inn í eitthvað nýtt. Þá segi ég
stundum við sjálfa mig að best sé
að halda sig að því sem maður
kann. Einnig eru konur hræddar
við að gera mistök. Þær þurfa að
sannfæra sjálfar sig um að þær
séu jafnokar karla og að karlar
geri líka mistök."
Breytt samspil
kynjanna
- Hvernig líkar þér í þínu
„karlastarfi"?
„Mjög vel, það er skemmtileg
lífsreynsla að koma úr hefð-
bundnu kvennastarfi á skrifstofu
inn á vinnustað þar sem konur og
karlar vinna saman á
jafnréttisgrundvelli. Það ríkir allt
annað andrúmsloft á slíkum
vinnustað. Auðvitað hefur
kvennasamfélagið á vinnustöð-
um sína kosti, en mér finnst
heilbrigðara að þurfa ekki að
pæla í því hvors kyns vinnufélag-
arnir eru. Svona blöndun getur
líka breytt samspili kynjanna á
vinnustaðnum. Fólk sem upplifir
hvert annað sem jafningja i vinnu
fer að upplifa það eins á öðrum
sviðum," sagði Helga Sigurjóns-
dóttir.
-ÞH
TILGLDGGVUNAR
Til að sjá
eru páskaegg eiginlega ekki
mjög frábrugðin hvert öðru.
En vegna þess
hve þau eru ólík að bragðiog innihaldi
er mikilvægt
að geta greint á milli tegunda.
Hér fylgir því
ofurlítill leiðarvísir um páskaegg
frá Nóa og Síríus.
Verði ykkur að góðu!
ímod ö iras
öruggasta leiðm er auðvitað að kaupa egg, brjota það og bita i
Pá finna bragðlaukarmr hvort um rétt egg er að ræða
En það má lika treysta þvi, að ef miði með
5 litlum og sætum ungum prýðir pokann, er eggið frá Nóa Siríus
Poki úr glæru plastefni
Ganga má úr skugga um að um réttan poka sé að ræða,
með þvi að blása hann upp, halda fyrir opið og slá siðan
þéttingsfast á botninn með lausu höndinm.
Á pokinn þá að gefa frá sér hátt og hvellt hljóð
tilmerkisumaðhannsé frá Nóa Sírius
Súkkulaðibragðið á að minna ákveðið á bragðið
af Sirius hjúpsúkkulaði og Pippi
Kúlur, kropp, konfekt, karamellur og brjóstsykur
benda eindregið til þess að eggið sé
frá Nóa Sirius
Pó þvi aðeins að bragðið sé Ijúffengt.
Gulur ungi af vandaðri þýskri gerð
Athugið þó að aðrir framleiðendur
hafa einnig gula unga á eggjum sinum
Hnyttinn, rammislenskur málsháttur
skráður með svörtu letri á litaðan borða.