Þjóðviljinn - 31.03.1985, Blaðsíða 9
Lúsfluga
berst með
gráhegra
Á síðasta ári fannst lúsflugu-
tegund, sem ekki hafði sést áður
hér á landi, á gráhegra sem hing-
að barst. En gráhegrar eru tíðir
gestir hér á landi að haustlagi.
Lúsflugur eru blóðsugur á fugl-
um og spendýrum, en ein og
sama tegund leggst að öðru jöfnu
ekki á bæði fugla og spendýr,
þannig að við ættum að vera
óhult fyrir þessum nýja gesti.
Fyrir eru tvær lúsflugutegundir
landlægar hér á landi, önnur hin
svokallaða fuglafluga sem leggst
á margar tegundir fugla en hin er
færilúsin, sem lifir á sauðkind-
inni. Jafnframt hafa þrjár aðrar
lúsflugutegundir fundist á flæk-
ingsflugum hér á landi.
Þessi fundur er merkilegur að
því leyti að hann sýnir hvernig
nýjar tegundir geta borist landa á
milli.
Þessar upplýsingar koma fram
í grein eftir Erling Ólafsson í
Blika, tímariti um fugla sem
Náttúrufræðistofnun gefur út í
samvinnu við Fuglaverndarfélag
íslands.
ÖS
Betra
kynlíf
á mat-
seðlinum
Margar konur eiga við kyn-
ferðisleg vandamál að stríða í
sambandi við streitu sem fylgir
því að tíðir fara í hönd. Nú hafa
breskir læknar komist að þeirri
niðurstöðu, að hægt sé að bæta
kynlífið stórlega með því að
breyta um mataræði.
Þeir telja það einkar skaðlegt
fyrir heilbrigt kynlíf og spennu-
aukandi fyrir tíðir að éta „rusla-
fóður“ - hamborgara og franskar
og annað þessháttar. Þeir mæla
með því að dregið sé mjög úr
neyslu sykurs, salts, tes, kaffis og
alkóhóls. En aftur á móti er
æskilegt að konur borði sem mest
af grænmeti og trefjafóðri ýmis-
konar.
Þegar heilnæmt mataræði er
svo tengt við útivist og slökun
segja læknar þessir, þá mun fyrir-
tíðastreita minnka og kynlíf
batna stórum.
Swaziland
Dauða
refsing
fyrir
manna
kjöt
Þingmaður í Swazilandi hefur
lagt til, að dauðarefsing verði
látin ná yfir þá sem nást með
mannakjöt eða líkamsparta af
mönnum í fórum sínum. En í
Swazilandi er slíkt notað til ým-
issa trúarathafna sem enn tíð-
kast. „Maður sem finnst með
mannakjöt, til dæmis handlegg
ætti að hengjast," sagði þingmað-
urinn.
Járniðnaðarmenn
Vegagerð ríkisins óskar að ráða járniðnaðarmenn til
starfa í járnsmiðjunni í Grafarvogi.
Upplýsingar veitir Ingimar Sigurðsson í síma 81130 á
daginn og í síma 40232 á kvöldin milli kl. 18 og 20.
1 15 80
Allir með Steindóri!
ALLAR STÆRÐIR SENDIBÍLA
SYSTEWl^uw
panasonic
SYSTENl
kassettutseWi
útvarps
kassettutaeki
útvarps
Panason'C
hncci ntrúlega samstæð einst3ett.
pessi ótrú'ega
^ l emu
eðakr.T*-4
wJAPIS hf
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI27I33
Sunnudagur ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9