Þjóðviljinn - 31.03.1985, Page 14
SOFINN BÆLDUR
® LAUSAR STÖÐUR HJÁ
_____I REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.:
Forstöðumaður óskast viö skóladagheimiliö Hóla-
kot.
Umsjónarfóstra óskast við eftirlit með dagmæðrum
og umsjón með gæsluvöllum.
Fóstrur, þroskaþjálfar eða starfsmenn með aðra
uppeldislega menntun til þess að sinna börnum með
sérþarfir.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónar-
fóstrur á skrifstofu dagvistar barna, í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
mánudaginn 15. apríl 1985.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.:
Hjúkrunarfræðing óskast til afleysingar og lengri
tíma við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og einnig á
kvöldvakt í heimahjúkrun.
Sjúkraliðar óskast til afleysinga og lengri tíma við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Ljósmæður óskast til afleysinga og lengri tíma við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Læknaritarar í 50% starf frá 1. júní n.k. á
heilsugæslustöð - Asparfelli, starfsreynsla æskileg.
Hjúkrunarfræðingur við ungbarnaeftirlit í 100%
starf, frá 1. júní n.k.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 75100 og
framkvæmdastjóri heilsugæslustöðva í síma 22400.
Umsókn ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 16.
apríl 1985.
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur 29. og 30. mars
Kjarabaráttan 1985
Aðferðir og áherslur
Föstudag 29. mars kl. 20.00.
1. Verkalýðssamtökin sem baráttuafl. Samvinna ASI, BSRB og
annarra samtaka launafólks. Frummælandi: Guðmundur Árna-
son varaformaður Kennarasambands íslands.
Laugardag 30. mars kl. 10.00
2. Kjarbaráttan og kröfugerð 1985
Launakerfi - launajöfnuður - kaupmáttartrygging - skatta-
breytingar - velferðarþjónusta. Frummælandi: Guðmundur Þ.
Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks.
Laugardag 30. mars kl. 13.00
3. Tengsl verkalýðsbaráttu og flokksstarfs.
Samvinna Alþýðubandalagsmanna í verkalýðshreyfingunni -
störf verkalýðsmálaráðs. Frummælandi: Bjarnfríður Leósdóttir
formaður verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins.
Almennar umræður frá kl. 15 til 17.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opið hús
ABK býður þér að koma við í Þinghóli Hamraborg 11 á skírdag milli
kl. 15 og 18. Á borðum verða kaffi og kökur. Ávörp og
skemmtiatriði. Allir velkomnir!
Stjórn ABK
Umboðsmenn
vantar í Hafnarfjörð strax.
ÞJÓÐVILJINN.
Skáld,
oi
og
grunnmá
Ég hefi verið að ganga svona
um bæinn í góða veðrinu og
sumir hafa brosað framan í mig
og ég hef brosað framan í þá.
Þannig líður okkur öllum vel. Af
hverju er líka þessi fúlmennska
og óstand á fólkinu? Ég skil það
ekki. Ég vil viðhalda
manngildinu og brosa framan í
fólk, eins þótt það sé á kafi í löngu
dragúldnum lífsviðmiðunum.
Eg hitti til dæmis eitt af þessum
fimmtán þúsund króna skáldum
sem var verið að útnefna og
óskaði honum hjartanlega til
hamingju.
Farðu í fjandans rass, sagði
hann. Verk mín eru ekki metin
að verðleikum til peningalegra
launa.
Mér þótti leiðinlegt hve illa
manninum leið en ég gat svosem
ekki gert margt.
Þá bar þar að Árna Johnsen
þingmann og hann lýsti strax
samúð með manninum, sem var
víst úr Suðurlandskjördæmi.
Mikið skil ég þig vel, sagði
Árni. Þú sem skrifar á sjálfu
grunnmálinu sem ég fer með rétt-
argæslu á. Þú færð skid og ingen-
ting meðan einhverjir apar úti í
Svíþjóð sem alltaf eru að þrengja
að lunganum úr menningunni
með því að tala sænsku eða
dalamál en ekki grunnmálið, þeir
kannski fá ekta valútu og verð-
laun og vita ekki einu sinni að það
er sitthvað jaðarmál og grunnmál
og skilja það ekki að grunnmálið
okkar góða er hinn sanni sleppi-
búnaður á menningarskútunni.
Svona menn ættu að fá á kjaftinn.
Og þó fyrr hefði verið.
Mér er sama, sagði skáldið.
Þeir geta átt sína valútu. Ég vil fá
uppreisn æru gagnvart rógburð-
inum í markaðsöflunum. Hér og
nú. Það er ekkert náttúrulögmál
að ég sé fátækt skáld.
Elsku vin, sagði Árni. Skáldið
er alltaf ríkt. Spurðu bara Matthí-
Manngildið er fyrir öllu, sagði
ég hughreystandi.
Skáldið tók stein af götu sinni
og henti í mig en hitti ekki sem
betur fór. Ég hefi alltaf verið á
móti því að fá í mig grjót, það er
svo ómanneskjulegt.
Heyrðu mig, sagði Árni. Þér er
sama um grunnmálið og þú ert
með öfund og leiðindi. Ertu
sænskdanskur kommakrati? Ertu
fæddur á höllum stöðum? Ertu
skakkur hornsteinn undir þjóðar-
vitundinni? Ertu slitinn þráður í
þjóðarvefnum? Ertu lekur björg-
unarbátur á varðskipi andans? Er
du gal í hovedet?
Mér fannst þeir ætla að rjúka
hvor á annan og ég stillti mér á
milli þeirra og minnti þá á það, að
gott væri blessað veðrið, sólin
björt og útsýnið mikilfenglegt.
Þá réðust þeir á mig og börðu
mig. Ekki mjög fast samt, svo
það var allt í lagi. Þeim er það
velkomið þessum stóru mönnum
sem eiga sér hugsjónir og list. Ég
mun halda áfram að ganga um
göturnar og stuðla að því að
öllum líði vel sem mega vera að
því þar til minkurinn, bjórinn,
saltverksmiðjan og grunnmálið
dembast yfir okkur aftur.
Meira ljós.
Alexander.
as.
Éttu skít, sagði skáldið.
ALÞYÐUBANDALAGK)
Áhugafólk um landbúnaðarmál
Umræðufundur um stöðu landbúnaðarmála í flokksmiðstöðinni
Hverfisgötu 105 sunnudaginn 31. mars kl. 13.00 (daginn eftir
miðstjórnarfund). - Stjórn LAL.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Stjórn ÆFR
boðar til fundar sunnudaginn 31. mars kl. 17.00. Tekin verða fyrir
fjármál ÆFR og því nauðsynlegt að sem flestir mæti. Fundurinn er
opinn öllum félögum í ÆF. - Stjórnin.
Framtíð með friði
Ráðstefna ÆFAB í tilefni 40 ára í skugga kjarnorkusprengjunnar
verður haldin að Hverfisgötu 105 á skírdag 4. apríl og hefst kl.
13:30.
Dagskrá:
13.30 Setning ráðstefnunnar: Ragnar A. Þórsson.
13.40 Orsakir vígbúnaðarkapphlaupsins og hersetunnar: Árni
Björnsson, þjóðháttafræðingur.
14.05 Tengsl kjarnorkuvígbúnaðarins við herstöðvar á íslandi og
þróunina á Norður-Atlantshafi: Árni Hjartarson, formaður SHA.
14.30 HLÉ.
14.40 Afleiðingar hugsanlegra kjarnorkuátaka. Kjarnorkuveturinn:
Páll Bergþórsson, veðurfræðingur.
15.10 Hlutverk og staöa friðarhreyfinga á (slandi og erlendis: Mar-
grét Björnsdóttir, félagsfræðingur.
15.35 HLÉ
15.45 Nýjar leiðir í friðarbaráttunni. Þriðja aflið sem mótvægi við
hernaðarbandalögin: Ólafur Ragnar Grímsson, foseti PWO.
16.10 Nýjustu fréttir af samnorrænum vettvangi: Anna Hildur
Hildibrandsdóttir og Guðmundur Auðunsson.
16.40 Almennar umræður.
18.00 Ráðstefnuslit: Ólafur Ólafsson.
Fyrirspurnir og stuttar athugasemdir að loknu hverju erindi.
Fundarstjóri: Ragnar A. Þórsson.
Kaffi og meðlæti á staðnum. Ráðstefnan er öllum opin.
ÆFAB.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. mars 1985
Stóra stundin
nálgast
Nú eru aðeins 5 dagar til stefnu.
Skirnarhátíð ÆFAB verður hald-
in 4. apríl.
Húsið opnað kl. 20.00 og verður
létt tónlist til kl. 21.30, þá byrja
skemmtiatriði. Það verður happ-
drætti, leiklistarhópur ÆF treður
upp, auk ýmissa annarra kunnra
skemmtikrafta. Gleymið bara
ekki að mæta að Hverfisgötu 105
kl. 20.00 þann 4. apríl... Sjáumst.
Skemmtinefndin
SKJLVRÐI
Þau krefjast réttra viðbragða
ökumanna. Þeir sem að jafnaði
aka á vegum með bundnu slit-
lagi þurfa tíma til þess að
venjast malarvegum og eiga
því að aká á hæfilegum hraða.
Skilin þar sem malarvegur
tekur við af bundnu slitlagi
hafa reynst mörgum hættuleg.
yUMFERÐAR
RÁÐ