Þjóðviljinn - 31.03.1985, Qupperneq 16
LEIDARAOPNA
Kristinn Gunnarsson
Ný viðhorf
til utanríkis-
mála
Það sem sett hefur mark sitt á
ákvarðanir um staðsetningu rat-
sjárstöðvar hér heima er leynim-
akkið sem ríkt hefur frá upphafi,
sagði Kristinn Gunnarsson
bæjarfulltrúi á Bolungarvík.
- Okkur hefur þótt áberandi
að stjórnvöld hafa ekki lagt fram
upplýsingar um stöðina, þannig
að hægt væri að sjá rök með og á
móti, heldur var einungis gefið út
álit ratsjárverndar, sem var ein-
hliða áróðursplagg fyrir ratsjár-
stöðum.
- Ég held að það sé einkum
tvennt sem ræður því að örfáir
menn hér í byggðarlaginu eru
fylgjandi ratstjárstöð. Annars
vegar er það hagnaðarvon, annað
hvort persónu'eg ellegar fyrir
byggðarlagið - og hins vegar 6-
sjálfstæði í utanríkismálum.Þá er
sagt að vinir okkar vilja þetta, við
erum í Nató og verðum að axla
ábyrgðina og svo framvegis.
- Máske er það einna merki-
legast að 1. desember hreyfingin
hér er afsprengi ákveðinna
breytinga sem orðið hafa í við-
horfum fólks til utanríkismála og
risaveldanna. Áður var ríkjandi
viðhorf, að menn trúðu á ein-
hvern óvin, - í þessu tilfelli So-
vétríkin, og byggðu afstöðu sína
til varna og hernaðarmannvirkja
á þessari óvinatrú. Þetta hefur
breyst þann veg, að sífellt fleiri
hafa breytt fjandaímyndinni,
óvinurinn er orðinn vígbúnað-
arkapphlaupið og allt sem því
fylgir. Þetta er komið í víðara
samhengi, er ekki lengur jafn ein-
falt og það var.
- Samstarf okkar Vestfirðinga
í andófinu gegn hernaðarmann-
virkjum gengur þvert á flokka.
Og í starfinu finnum við engan
mun á afstöðu manna eftir
stjórnmálaflokkum, þetta er lífs-
barátta og mjög gott andrúmsloft
er ríkjandi í þessu starfi. Ég held
líka að svosem skoðanakönnun
DV sýndi, að meirihluti manna sé
andvígur ratsjárstöðvum.
Við erum ekki í nokkrum vafa
um að það sem ræður andstöðu
manna byggir á upplýsingum, ýt-
arlegri upplýsingum og í því felst
starfið í auknum mæli. Að lokum
vil ég minna á að Heiðar Guð-
brandsson frá Súðavík flytur
ávarp á 30. mars fundinum í
Háskólabíói og ég hvet sunnan-
menn að fjölmenna á fundinn,
sagði Kristinn Gunnarsson að
lokum.
-óg
Steingrímur
Sigfússon
Ratsjár-
stöðvar
undirstrikun
á
ósjálfstœði
Steingrímur Sigfússon alþing-
ismaður sem ættaður er úr
Þistilfirði mælti fyrir þings-
ályktunartillögu sem hann
flytur ásamt Kolbrúnu Jóns-
dóttur á alþingi á dögunum.
Steingrímur nefndi nokkur at-
riði sem valda andstöðu við
ratsjárstöðvarnar:
1) Óumdeilanleg aukning á
hernaðarumsvifum.
2) Þær flækja okkur enn fastar í
vígbúnaðarnetið og gerir stöðu
okkar sem eyþjóðar í Norður
Atlantshafinu alvarlegri en ella.
3) Ratsjárstöðvarnar yrðu ef af
yrði, hernaðarmannvirki í lands-
hlutum sem engin slík mannvirki
hafa fvrir.
4) Ákvörðun um framkvæmdir
er um leið lóð íslands á vitlausa
vogarskál, vogarskál áframhald-
andi - vígbúnaðar, áframhald-
andi tortryggni í stað þess að
reyna að stuðla að afvopnun og
slökun.
5) Með ratsjárstöðunum er ætl-
unin að flækja alíslenskar stofn-
anir, svo sem Landsíma, Flugum-
ferðarstjórn, Landhelgiígæslu og
Tilkynningaskyldu inn í hernað-
arlega hluti. Þessar stofnanir
yrðu efnahagslega háðar þessum
umsvifum.
6) Engin haldbær rök eru fyrir
því að tilkoma þessara stöðva
auki á öryggi íslensku þjóðarinn-
ar.
7) Sá málflutningur þeirra
manna sem vilja gagnrýnislaust
beygja sig og taka á móti þessum
ratsjárstöðvum er undirstrikun á
ósjálfstæði fslendinga í utanríkis-
málum.
8) Siðferðislegt skipbrot fyrir
íslendinga, ef alþingi, sem flutt
hefur fjöldann af tillögum um af-
vopnunarmál, læturþað afskipta-
laust að ákvörðun sé tekin til að
auka vígbúnað á íslandi.
9) Málið snýst einnig um rétt
þess fólks sem býr í viðkomandi
héruðum og stöðu þessa til þess
að ráða sjálft málum í sínu byggð-
arlagi.
-ög
Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir
Virða óskir
heima-
manna
Kvennalistinn telur aö virða
beri óskir heimamanna um aö
mannvirki þessi verði ekki
reist við bæjardyr þeirra,
sagði Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir á alþingi
þegar ratsjárstöðvarnar voru
tilumræðu.
„Við kvennalistakonur erum
mótfallnar allri aukningu á her-
búnaði hér á landi, hverju nafni
sem nefnist og þar sem hernað-
arratsjárstöðvar er óumdeilan-
lega ný hernaðarmannvirki og
má þar m.a. vísa til nýútkom-
innar skýrslu Öryggismálanefnd-
ar um Keflavíkurstöðina, þá
erum við mótfallnar því að slíkar
stöðvar verði reistar hér á landi,“
sagði Sigríður Dúna.
-óg
Geir Hallgrímsson
Tryggja
fullveldið
með
ratsjár-
stöðvum
„Ég get ekki fengið mig til að
trúa því að það séu til Islend-
ingar sem í raun og veru vilja
láta undan þrýstingi frá So-
vétríkjunum og halda þvífram
að bygging ratsjárstöðvaog
rekstur ratsjárstöðva til að
fylgjast með umferð í okkar
eigin efnahagslögsögu sé ög-
run við önnur ríki, sagði Geir
Hallgrímsson utanríkisráð-
herra í sl. viku á alþingi. „Til-
gangur ratsjárstöðva erfyrst
og fremst sá, að tryggja
fullveldi landsins," sagði ráð-
herraennfremur.
Geir Hallgrímsson sagði að
hæpið væri að fela íbúum á „af-
mörkuðu landssvæði" úrslitavald
í þessum efnum. Hann sagði í
upphafi ræðu sinnar, að íslend-
ingar væru í Nató og því fylgdu
skyldur sem frjáls og fullvalda
þjóð yrði að taka þátt í, „m.a. að
fylgjast með umferð umhverfis
landið. Það er lágmarksskylda
frjálsrar og fullvalda þjóðar“.
LEIÐARI
Andstaðan við ratsjárstöðvarnar
Um þessa helgi eru liöin 36 ár frá því
ísland gerðist aðili að Nató eftir sáralitla
lýðræðislega umfjöllun og mikið leyni-
makk. Þess er minnst á 30. mars fundi í
Háskólabíó kl. 17.00 á laugardag. Á leið-
araopnu Þjóðviljans er fjallað um áform
ofstækisfullrar ríkisstjórnar um að koma
fyrir ratsjárstöðvum fyrir Nató og Banda-
ríkjaher í tveimur landsfjórðungum. Krist-
inn Gunnarsson bæjarfulltrúi í Bolungarvík
segir að til að byrja með hafi leynimakkið
sett mark sitt á þessi áform stjórnvalda, en
andófsmenn hafi getað miðlað upplýsing-
um um þessar stöðvar, þannig að sífellt
fleiri hafi lagst á árar gegn áformum ríkis-
stjórnarinnar, Nató og Bandaríkjahers.
Aðmírállinn á Keflavíkurvelli mun fyrstur
hafa orðað þá hugmynd að staðsetja rat-
sjárstöðvar á Norðausturlandi og á Vest-
fjörðum. Geir Hallgrímsson varð svo fyrst-
ur hérlendra manna til að vekja máls á
hugmyndinni, sumarið 1983 í Varðarferð.
Mörgum heimamönnum brá í brún þeg-
ar sendimenn frá hernum og stofnanir
ríkisstjórnarinnar hófu að sveima yfir frið-
sælum byggðum vestra og nyrðra einsog
hrægammar í leit að nýjum hreiðrum. Og
þegar Ijóst varð, að hugmyndin væri sú að
koma fyrir ratsjárstöðvum annarsvegar í
námunda við Bolungarvík og hinsvegar á
Langanesi tóku heimamenn höndum
saman um að hrinda af sér þessum vá-
gesti vígbúnaðarkapphlaups stórveld-
anna. Friðarhópar voru settir á laggirnar
bæði á Norð-Austurlandi og á Vestfjörð-
um, settar hafa verið saman bænaskrár að
fornum sið, farnarfriðargöngurog blysfarir
til að vekja athygli á málinu. Þá hafa
heimamenn verið ötulir í greinaskrifum í
dagblöð og andstæðingar ratsjárstöðv-
anna hafa sjálfir gefið út blað og dreift á
hvert heimili á Vestfjörðum og víða á Norð-
Austurlandi.
Á Vestfjörðum ályktuðu stjórnmála-
flokkarnir á kjördæmisþingum 1983 gegn
hernaðarmannvirkjunum: Það gerði Al-
þýðubandalagið, Framsóknarflokkurinn
og Alþýðuflokkurinn. Einungis Sjálfstæð-
isflokkurinn í kjördæminu hefur ekki álykt-
að gegn staðsetningu ratsjárstöðva. Engu
að síður er fjöldi nafnkunnra flokksmanna í
þeim flokki einnig í fylkingarbrjósti þeirra
sem andæfa gegn mannvirkjunum.
Svipaða sögu er að segja úr Norður-
landskjördæmi eystra, þar sem
Framsóknarflokkurinn hefur einu sinni ál-
yktað gegn ratsjárstöðvum og þingmaður
Bandalags Jafnaðarmanna í kjördæminu
er meðflutningsmaður Steingríms Sigfús-
sonar á þingsályktunartillögu gegn stað-
setningu slíkra mannvirkja hér á landi.
Þingmenn viðkomandi flokka hafa hins
vegar ekki að sama skapi endurspeglað
þau viðhorf sem áberandi eru í heima-
byggðunum.
Það er því Ijóst að andstaðan við ratsjár-
stöðvar er þverpólitísk og mjög margir yfir-
lýstir stuðningsmenn Nató eru andvígir
þessum hernaðarmannvirkjum. Það er því
í meira lagi ósmekklegt þegar Geir Hall-
grímsson og förunautar hans í málflutningi
brigsla andstæðingum ratsjárstöðva um
stuðning við utanríkisstefnu Sovétríkj-
anna, óþjóðhollustu og hvað eina sem
þessum smekkmönnum dettur í hug þegar
þeir fjalla um andmælendur sína.
Hinsvegar má binda vonir við friðarstarf
heimamanna, - og gera þá kröfu til
stjórnvalda að þeir ráði umhverfi sínu
sjálfir. Svosem virða ber sjálfsákvörðun-
arrétt einstaklinga og þjóða ber að virða
þann sama rétt fólks á landsbyggðinni. Og
einsog Steingrímur Sigfússon alþingis-
maður sagði í framsögu sinni fyrir tillög-
unni gegn ratsjárstöðvum eru margir ís-
lendingar reiðubúnir að raka sjálfir per-
sónulega nokkra áhættu til þess að reyna
að komast úr þeim vítahring vígvæðingar-
innar sem mannkynið er nú fast í. -óg
LEIÐARAOPNA
Friðarblys. Víðs vegar um landið hafa verið farnar friðargöngur og blysfarir til að mótmæla hernaðarmannvirkjum hér á landi og vígbúnaðarkapphlaupinu.
Þessi mynd var tekín í desember í Reykjavík. Mynd-E.ÓI.
Póll Pétursson
Tvímœla-
laust
hernaðar-
mannvirki
Ratsjárstöðvar eru tvímæla-
laust hernaðarmannvirki ko-
staðaraf vígbúnaðarfé, sagði
Páll Pétursson þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins
á alþingi 21. þessa mánaðar.
„Ég er andvígur auknum hern-
aðarumsvifum á íslandi. Það er
ekki meirihluti fyrir því á alþingi
að láta herinn fara að sinni og því
verðum við að búa við óbreytt
ástand.“ „Ég vil ekki standa að
byggingu mannvirkja sem eru
óvelkomin í þeim byggðarlögum
þar sem þau eru fyrirhuguð. Ég
vil ekki nauðga fólki til að taka
við framkvæmdum sem því eru á
móti skapi“.
-óg
Eiður Guðnason
Bergmál frá
Sovét-
ríkjunum?
„Það kemur auðvitað ekki á
óvart að þingmaður Alþýðu-
bandalagsins skuli flytjatil-
lögu á borð við þessa, það
kemur ekki á óvart,“ sagði
Eiður Guðnason þingflokks-
formaður Alþýðuflokksins í
umræðunni um tillöguna um
að synja öllum beiðnum um
staðsetningu ratsjárstöðva
hérálandi.
„Það er bara í samræmi við
þeirra utanríkisstefnu sem við
höfum alloft rætt hér og ég hef
stundum leyft mér að segja að
mætti líta á sem bergmál af stefnu
Sovétríkjanna í utanríkismál-
um“.
Og í lok ræðu sinnar sagði
Eiður: „Við Alþýðuflokksmenn
erum svo sem ég áður sagði and-
vígir þessari tillögu og munum
greiða atkvæði gegn henni".
-óg
Kolbrún Jónsdóttir
Með Nató
- móti
ratsjár-
stöðvum
'Ég tel að stjórnvöld komist
ekki hjá því að taka tillit til þess
fólks sem mótmælir þessum
stöðvum, þetta er ekki pólitísk
andstaða, heldurandstaða
við uppbyggingu hernaðar-
mannvirkja sem almenningur
sér ekki ástæðu til að reisa,“
sagði Kolbrún Jónsdóttir
þingmaður Bandalags Jafn-
aðarmanna í umræðunni á
þingi.
„Ég er þeirrar skoðunar að ís-
land eigi að vera í Nató með þeim
þjóðum sem við höfum mest sam-
skipti við, bæði á sviði menningar
og efnhagsmála, að ógleymdri
legu landsins. Það kann einhver
að segja með sjálfum sér: Hvað
er hún eiginlega að fara? Hún er
með veru íslands í Nató en samt á
móti ratsjárstöðvum, sem Nató
telur nauðsynlegt að byggja hér-
.. .En það er að mínu mati aðalat-
riðið hvort íslendingar telji þess-
ar ratsjárstöðvar nauðsynlegar
vegna varna landsins eða hvort
þetta sé einn þáttur í hernaðar-
kapphlaupi stórveldanna,“ sagði
Kolbrún m.a.
-óg
N-Austurland
Fjöldi
ályktana,
blaða-
útgáfa,
friðar-
ganga
Á Norð-Austurlandi hefur
komið til greina að komafyrir
ratsjárstöð annað hvort á
Heiðarfjalli eða Gunnólfsvík-
urfjalli. Fólkið í þessum
byggðarlögum hefur haft í
frammi margvíslegaraðgerðir
til að undirstrika andstöðu
sína við hernaðarmannvirki í
héraðinu.
Hreppsnefnd Sauðaneshrepps
ályktaði gegn staðsetningu rat-
sjárstöðva, það var einnig gert á
almennum borgarafundi í Sval-
barðshreppi. Þá má minna á
friðargönguna á Þórshöfn sumar-
ið 1984 þar sem á þriðja hundrað
mannsfóruímótmælagöngu. 107
manns skrifuðu undir bænarskrá
gegn ratsjárstöðvum þar í sveit-
um. Þar voru N-Þingeyingar þátt-
takendur í blaðaútgáfu með
friðarsinnum á Vestfjörðum um
blaðið Ratsjá sem fór inná hvert
heimili vestra og mjög víða á N-
Austurlandi. Þá hafa friðarsinnar
á N-Austurlandi skrifað greinar í
dagblöðin um málið.
—óg
N-Austurland
Víðtœk
andstaða
flokkanna
I Norðurlandskjördæmi ey-
stra hafa auk Alþýðubanda-
lagsins, Framsóknarflokkur-
inn og Bandalag Jafnaðar-
manna lýst andstöðu sinni við
staðsetninga ratsjárstöðva í
kjördæminu.
Alþýðubandalagið hefur álykt-
að margsinnis gegn staðsetningu
ratsjárstöðva í kjördæminu,
Framsóknarflokkurinn í hitteð-
fyrra og þingmaður Bandalags
Jafnaðarmanna í kjördæminu,
Kolbrún Jónsdóttir, er meðflutn-
ingsmaður á tillögu Steingríms
Sigfússonar á alþingi gegn stað-
setningu fleiri ratsjárstöðva hér á
landi. Ekki er kunnugt um að
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkur inn í kjördæminu hafa
ályktað um málið.
—óg
Vestfirðir
Öflug
andstaða
Á Vestfjörðum er áformað að
koma ratsjárstöðinni fyrir á
Stigahlíðarfjalli, en heima-
menn telja margir réttara að
tala um Bolafjall í námunda
við Bolungarvík. Vestfirðingar
hafa lagt mikla vinnu í and-
stöðuna við ratsjárstöðvar,
einstaklingar úr öllum flokk-
um.
í fyrra var samþykkt ályktun á
Prestastefnu Vestfjarða gegn
hernaðarmannvirkjum í fjórð-
ungnum og prestar hafa að
mörgu leyti staðið fremst í fylk-
ingu efasemdarmanna um rat-
sjárstöðina vestra. lOOnafnkunn-
ir Vestfirðingar sendu bænarskrá
sl. haust um að ekki yrði komið
upp ratsjárstöð í héraðinu. Upp-
úr því var stofnaður 1. des-
hópurinn sem vann að gerð
blaðsins Ratsjá sem borið var út
inná hvert heimili á Vestfjörðum.
Á Bolungarvík var farin blysför í
desember mánuði, haldnir hafa
verið fundir á ísafirði og svo
mætti lengi telja.
-óg
Vestfirðir
Allir flokkar
nema
Sjálfstœðis-
flokkurinn
á móti?
Á Vestfjörðum hefur andstað-
an verið jafnvel enn almenn-
ari en á Norð-Austurlandi. Á
kjördæmisþingum hafaallir
flokkar nema Sjálfstæðis-
flokkur sent frá sér ályktanir
gegn staðsetningu ratsjár-
stöðva í kjördæminu.
Á þingi Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum 1983 var samþykkt
harðorð ályktun um hugmyndir
af þessum toga, en á sl. ári var
ályktun sama efnis vísað frá með
bolabrögðum. Þá gengu margir
fulltrúar út og lýstu yfir óánægju
sinni með þverbrotin fundar-
sköp. Á kjördæmisþingi Alþýðu-
flokksins 1983 var sömuleiðis
samþykkt ályktun gegn staðsetn-
ingu ratsjárstöðva.
Sjálfstæðisflokkurinn á Vest-
fjörðum hefur ekki ályktað um
þetta mál, en engu að síður er
vitað að fjölmargir nafnkunnir
flokksmenn Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu eru stöðvunum and-
vígir. Engu að síður er talið að
enginn þingmaður frá Vestfjörð-
um muni verða fulltrúi andstöð-
unnar á alþingi.
—óg
Sunnudagur 31. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17