Þjóðviljinn - 13.04.1985, Page 3

Þjóðviljinn - 13.04.1985, Page 3
FRETTIR Siðlaus blaðamennska RHstjóm NT kærð Gunnar Sandholt: Ógeðsleg blaðamennska afversta tagi. Hjördís Hjartardóttir: Sýnir makalaust virðingarleysifyrir þeim unglingum sem hluteiga að máli. Fréttir Fjölskylduheimili fyrir unglinga: Blóðug f jöldaátök meðal vistmanna Glerbrotum grýtt og kylfum sveiflað pillinu \ið hlu' |ha\ iuljðj Ai' .m .ii.inciii' Du iiiuiiiin Ull mijmi '|iiii.iimi|I.i vmuvliciipin. 'iAjn al 'vlluiini lull nioVii ii umln .itniluin 'iniu.ln.i unJ.nlju' .il •illuni I>I<mViii"iii h.i-iV 'IjIIuiii m i ••>: •mNiuíii 'im uni h.ctlulc|:ii i fn i .i'l.intli 't ni |vu I tcii tticii^)jiiii.i toiu llullii f.iu j 'ItvukiUhji v Siiiij'jiiih.iinl'l.iu'l t.u \ 11S .itt'ikum jviiu hvggmguiu þ.u 'cni 'iniiiin t ji hcimil'int t.11 kti«hl .1 vcliv.ing inih.tntli Sljit"lulkj lil iiðstoðwvið lngicglu.cn hun lil 21* Ég á vart orð til að lýsa skoðun- um mínum á þeirri frétta- mennsku sem birtist á forsíðu NT í gær, sagði Gunnar Sandholt for- stöðumaður fjölskyldudeildar Félagsmáiastofnunar Reykjavík- ur í samtali við Þjóðviljann í gaer. Tilefnið var þær fréttamyndir sem Nútíminn birti á föstudag af blóðugum unglingi frá Fjöl- skylduheimili fyrir unglinga, sem Félagsmálastofnun rekur að Búð- argerði 9 í Reykjavík. Heimili þetta er starfrækt fyrir heimilis- lausa unglinga á aldrinum 14-18 ára. Hér er um ógeðslega blaða- mennsku að ræða af versta tagi, Á rbæjarhverfi Niður- troðnar gras- flatir Hestamenn riðu íhópum yfir og eftir grasflötunum Þannig eru velflestar grasflatir miðsvæðis í Árbæjarhverfinu út- lítandi eftir að hestamenn fóru í hópum í gegnum hverfið um páskahelgina. „Þetta er allt út- sparkað einmitt þegar gróðurinn er hvað viðkvæmastur. Það versta við þetta er að þessi leikur hestamanna að ríða yfir grasflat- irnar endurtekur sig á hverju vori”, sagði Steinn Halldórsson íbúi í Arbæjarhverfi er hann hafði samband við Þjóðviljann. Steinn sagði að það virtist bera lítinn árangur þótt kvartað væri yfir þessu við hestamenn og yfir- völd en vonandi lærðu menn að bera meiri virðingu fyrir gróðri en sýnt hefði sig hingað til. Grasflatirnar í Arbæjarhverfi eru margar illa útsparkaðar eftir hestamenn. Mynd - E.ÓI. Hagvangur Lesendum dagblaða fækkar um fjórðung sagði Gunnar, sem þjónar ekki öðrum tilgangi en þeim í versta falli að staðfesta neikvæða sjálfs- ímynd unglingsins og eyðileggja það uppbyggilega starf sem átt hefur sér stað á Fjöiskylduheimi- linu í Búðargerði. Við höfum ákveðið að kæra þessa umfjöllun fyrir siðanefnd Blaðamannafélagsins og höfum í athugun hvort unglingurinn sem á í hlut muni ekki höfða mál á hendur ritstjórn Nútímans, sagði Hjördís Hjartardóttir forstöðu- kona Fjölskylduheimilisins í sam- tali við Þjóðviljann. Við vitum að það gerist því miður daglega, ef ekki oft á dag, að lögreglan er kvödd á vettvang í heimahús til þess að stilla til friðar. Sem betur fer búum við við það öryggi að slíkt hefur ekki talist fréttaefni í fjölmiðlum hing- að til, sagði Hjördís. Það er þeim mun furðulegra þegar slíkar myndbirtingar sem hér um ræðir eru gerðar að forsíðuefni þar sem eiga í hlut unglingar sem eiga undir högg að sækja í okkar þjóðfélagi. Þetta undirstrikar að mínu áliti makalaust virðingar- leysi gagnvart þessum ung- liiigum, og er um leið til þess fall- ið að ýta undir þau sjónarmið, sem því miður eru fyrir hendi í þjóðfélaginu, að unglingar séu upp til hópa óþjóðalýður. -ólg Gramm Gefur út plötu með breskri hljómsveit „Tónlist árangur helgrar samvinnu” „Það má líta á þetta albúm sem heimild um heimsókn breskra listamanna til íslands”, sagði Ás- mundur Jónsson í Gramminu við Þjóðviljann um útgáfu Grammsins á plötu með hljóm- sveitinni Psychic TV. „Þetta er tvöföld plata, gefin út í takmörkuðu upplagi og hér er um að ræða upptöku á tónleikum Psychic TV í Hamrahlíðarskóla 23. nóvember ’83. Auk hljóm- sveitarinnar sjálfrar lögðu ýmsir íslenskir tónlistarmenn hönd á plóginn, þeir Þorsteinn Magnús- son, Eyjólfur B. Alfreðsson, Guðlaugur Óttarsson og Hilmar Örn Hilmarsson sem nú er með- limur Psychic TV. Eða eins og segir á umslagi plötunnar „tónl- istin er árangur helgrar samvinnu sem að vissu leyti yfirstígur rúm og tíma”. Sveinbjörn Beinteins- son allsherjargoði kemur einnig við sögu en hann gifti 2 meðlimi hljómsveitarinnar að ásatrúarsið á Draghálsi og fléttast sá atburð- ur inní tónlistina. Platan er á leiðinni til landsins”, sagði Ás- mundur að lokum. _aró Blikkiöjan lönbúð 3, Garðabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtiiboð SÍMI 46711 Skoðanakönnunin býður uppá margs konar túlkanir. Einungis hluti hennar birtur almenningi. Háskólamenntaðir Dagblaðalestur á íslandi hefur dregist saman um 25% ef miðað er við könnun á vegum auglýsing- astofanna sem birt var 4. mars 1983 og framkvæmd af Hagvangi einsog sú sem nú hefur verið birt. Einungis Þjóðviljinn og Morgun- blaðið hafa haldið nokkurn veg- inn í horfinu meðan NT og DV hafa misst töluverðan hluta af les- endahópnum. Könnun sú sem gerð var í árs- lok 1982 og birt var í mars 1983 sýnir að gamli Tíminn var þá les- inn af 29% dagblaðalesenda en samkvæmt nýbirtu könnuninni frá Hagvangi lesa 15.8% lands- manna NT. Þá voru dagblöðin öll lesin af 179.5% (þ.e. margir lesa fleiri en eitt blað) en samkvæmt nýju könnuninni lesa 133.5% blöðin. Þannig hafa líka öll blöð- in tapað lesendum, Morgunblað- ið minnst eða 10.8% og NT mest yfir 45% samdráttur. í Reykjavík hefur Þjóðviljinn samkvæmt nýju könnuninni 18.3% en NT 16.4%, Morgun- blaðið 80.4%, DV 43.4% og Al- þýðublaðið 5.1%. Nýja skoðanakönnunin hefur verið kynnt í fréttatilkynningu en í heild er könnunin til sölu fyrir 50 þúsundir. Þjóðviljinn hefur fregnað að mikillar óánægju gæti víða vegna niðurstaðna hennar og m.a. vegna þess hve erfitt er að bera saman við fyrri kannanir. DV segir tölurnar fyrst og fremst sýna dreifingu áskrifta og að ósk blaðsins um spurningu sem ætla mætti að gæfi til kynna raunveru- Iega dreifingu hafði verið hafnað. Þá er orðalag misvísandi frá þess- ari könnun til hinnar síðustu og býður þetta með öðru upp á margs konar túlkanir svo sem sjá hefur mátt í blöðum og hér að ofan. -óg. ríkisstarfsmenn í BHMR Félagsmenn HÍK hafa staöið í fjárfrekri bar- áttu fyrir hönd okkar allra. Okkur ber skylda til aö standa viö bakið á þeim, fjárþörfin er mikil og því brýnt aö allir leggi umtalsvert framlag í VINNUDEILU- SJOÐ BHMR er nr: 21-21-22 viö Alþýöu- bankann Suöurlandsbraut. Ef greitt er meö gíró er stofnnúmer 815 og höfuöbókarnúmer 25. STJÓRN VINNUDEILUSJÓÐS BHMR: Laugardagur 13. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.