Þjóðviljinn - 13.04.1985, Blaðsíða 6
Byggingafulltrúi
Starf byggingarfulltrúa í Keflavík er laust til umsóknar
nú þegar. Umsækjendur skulu hafa réttindi sem kraf-
ist er í byggingarreglugerð. Laun samkvæmt kjara-
samningum S.T.K.B. Upplýsingar um starfið veitir
byggingarfulltrúinn í Keflavík í síma 92-1553. Um-
sóknir sendist undirrituðum.
Bæjarstjórinn í Keflavík
Hafnargötu 12
230 Keflavík
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ef nisvinnslu á
Suðurlandi 1985.
(Heildarmagn 55.000 m3).
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík og á Selfossi frá og með 15. þ.m. Skila skal
tilboðum fyrir kl. 14:00 þann 22. apríl 1985.
Vegamáiastjóri.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Laxárdals-
heiði.
(Undirbygging 37.000 m3, burðarlag 21.000 m3 og
malarslitlag 5.000 m3).
Verki skal lokið 1. október 1985.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerð ríkisins á Isafirði
og í Borgarnesi frá og með 15. apríl n.k.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14:00 þann 29. apríl 1985.
Vegamálastjóri.
Sögufélag
Aðalfundur Sögufélags verður haldinn laugardaginn
27. apríl 1985 í veitingahúsinu Duus við Fischerssund
og hefst kl. 2 e.h.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gunnar Karlsson, prófessor, flytur erindi: Staða
kvenna á þjóðveldisöld.
Stjórnin.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í
Reykjanesumdæmi.
(Magn 20.000 m3).
Verki skal lokið í ágústmánuði 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík frá og með 15. apríl n.k.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14:00 þann22. apríl 1985.
Vegamálastjóri.
W% Frá Grunnskólum
^ Garðabæjar
Vorskóli
Innritun sex ára barna þ.e. barna sem fædd eru á
árinu 1979, fer fram í Flataskóla s. 42656 og Hofs-
staðaskóla s. 41103 vikuna 15.-19. apríl kl. 10-15.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita börnin á
þessum tilgreinda tíma, eigi þau að stunda forskóla-
nám næsta vetur.
Ertu að flytja í Garðabæ?
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytja í
Garðabæ fyrir næsta vetur fer fram í skólanum vikuna
15.-19. apríi.
Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar skipu-
lagningar og undirbúningsvinnu að öll börn og ung-
lingar, sem svo er ástatt um, verði skráð á ofan-
greindum tíma.
Nemendur sem fara í 6.-9. bekk næsta vetur eru
innritaðir í Garðaskóla s. 44466.
Nemendur sem fara í forskóla - 5. bekk næsta vetur
eru innritaðir í Flataskóla s. 42656
ÍÞRÓTT1R
Handbolti
Vfldngur úr leik
Valur vann 28-23 og er eina liðið sem getur veitt FH keppni úr
þessu
Víkingar eru líklega búnir að
missa af möguleika á Islands-
meistaratitlinum þetta árið, en
þeir töpuðu fyrir Val í Hafnar-
firði í gærkvöldi. Valsmenn unnu
með 28 mörkum gegn 23 eftir að
staðan var 14-11 fyrir Val í hálf-
leik.
Víkingar byrjuðu mjög illa og
mistókust 6 fyrstu sóknir þeirra.
Valsmenn komust í 3-0, en Vík-
ingar jöfnuðu 4-4. Valsarar náðu
aftur yfirhöndinni og sigu framúr
og leiddu með 3 mörkum í hálf-
leik, 14-11.
Síðari hálfleikurinn byrjaði
eins og sá fyrri, Valsmenn juku
forskotiðíómörk, 17-11. Þátóku
Víkingar aftur við sér og með 4
mörkum í röð, minnkuðu þeir
muninn í 1 mark, 19-18. Þegar
staðan var 20-19 þéttu Valsmenn
vörnina og Einar Þorvarðarson
lokaði markinu, og staðan
breyttist í 24-19 og aðeins 9 mín.
eftir. Eftir þetta náðu Víkingar
ekki að ógna Valssigri og loka-
staðan 28-23.
Leikurinn var þokkalega vel
leikinn, en sveiflukenndur. Vals-
liðið var mjög jafnt eins og kvöld-
ið áður gegn KR, með þá Jón
Pétur Jónsson og Þorbjörn Guð-
mundsson sem bestu menn ásamt
Einari í markinu. Víkingar virð-
ast sakna Guðmundar Guð-
mundssonar og vantaði oft nokk-
uð á að leikkerfi þeirra gengi upp
og sóknirnar þá oft ráðleysis-
legar. Kristján Sigmundsson
varði mjög vel og Steinar Birgis-
son hélt liðinu á floti í byrjun.
Aðrir voru svipaðir.
Mörkin: Valur: Valdimar Grímsson 5,
Jakob Sigurösson 5, Jón Pétur 5/3, Þor-
björn Guðmundsson 4/1, Theódór Guð-
finnsson 3, Júlíus Jónasson 3, Þorbjörn
Jensson 2 og Geir Sveinsson 1.
Víkingur: Steinar Birgisson 6/1, Þor-
bergur Aðalsteinsson 5, Viggo Sigurðsson
og Karl Þráinsson 3, Hilmar Sigurgíslason
4 og Einar Jóhannesson 2.
HS/gsm
Jón Pétur Jónsson var Valsmönnum
drjúgur gegn Víkingi í gærkvöldi.
Handbolti
Sveiflukennt
FH missti forskotið en vann KR 27-23
Þegar 25 mínútur voru liðnar
af leik FH og KR í úrslitakepp-
ninni í Hafnarfirði í gærkvöldi
var staðan orðin 14-5, FH í hag.
Sigur í höfn? Jú, kannski, en KR-
ingar bitu hressilega frá sér, einu
sinni sem oftar og náðu að
minnka muninn niður í tvö mörk
áður en FH tók af skarið á ný og
sigraði að lokum 27-23. Þar með
er FH með 5 stiga forystu á Val
þegar 6 leikir eru eftir á lið.
FH lék af krafti, útfrá góðri
vörn, og auðvelt var það gegn
áhugalausum KR-ingum. En síð-
ustu fimm mínútur fyrri hálfleiks
gerði KR fimm mörk í röð og
staðan í hléi því 14-10, var 14-5
rétt áður. KR-ingar tóku síðan
Kristján Arason og Hans Guð-
mundsson úr umferð og
minnkuðu muninn í tvö mörk,
18-16, þegar seinni hálfleikur var
hálfnaður. Undir lokin gerði síð-
an FH fjögur mörk í röð, breytti
stöðunni úr 22-19 í 26-19. Síðan
27-20 en KR gerði síðustu 3
mörkin.
Hans átti mjög góðan leik með
FH og Kristján var drjúgur.
Þorgils Óttar Mathiesen naut sín
að vanda þegar þeir tveir voru
teknir úr umferð. Guðjón Árna-
son lék mjög vel í fyrri hálf-
leiknum og Jón Erling Ragnars-
son sömuleiðis í þeim seinni.
Haukur Geirmundsson var yfir-
burðamaður hjá KR og Haukur
Ottesen stóð sig einnig vel. Jens
Einarsson varði ágætlega fyrsta
korterið og Guðmundur Jóhann-
esson sem fékk síðar að spreyta
sig stóð fyrir sínu.
Mörk FH: Hans 9 (2v), Kristján 6, Jón
Erling 4, Þorgils Óttar 4 og Guðjón Á. 4.
Mörk KR: Haukur G. 8, Olafur Lárusson
5 (2v), Haukur Ott. 4, Páll Björgvinsson 2,
Hörður Harðarson 2, Friðrik Þorbjörnsson
1 og Bjarni Ólafsson 1.
Rögnvaldur Erlingsson og
Gunnar Kjartansson dæmdu
sæmilega.
- hs/VS
Staðan
í 1. deiid karla i hanknattleik eftir leikina
í gærkvöldi:
FH..............12 8 3 1 309-280 19
Valur.......... 12 5 4 3 243-243 14
Víkingur....... 12 5 1 6 257-258 11
KR............. 12 1 2 9 249-277 4
V.Pýskaland
Bremen stigi
fra Bayem
Markvörður Gladbach varði tvö víti.
Stuttgart malaði Diisseldorf
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans
í V.Þýskalandi:
Werder Bremen er aðeins stigi
á eftir Bayern Munchen í barátt-
unni um meistaratitilinn í vestur-
þýsku knattspyrnunni eftir 2-0
sigur á Mönchengladbach, sem er
í þriðja sæti, í gærkvöldi.
Bremen var mun betri aðilinn
og Rudi Völler skoraði gott
skallamark í fyrri hálfleik eftir
frábæran undirbúning Gúnter
Hemanns. Bremen fékk síðan
víti, en Ulrich Sude markvörður
Gladbach gerði sér lítið fyrir og
varði frá Uwe Reinders. Á 69.
mín. fékk Bremen annað víti og
aftur varði Sude, nú frá Norbert
Meier! Meier fylgdi hins vegar
vel og náði að skora, 2-0.
Stuttgart vann stórsigur á Fort-
una Dússeldorf, 5-2. Guido Buc-
hwald 2, Karl-Heinz Förster,
Karl Allgöwer og Júrgen Klins-
mann skoruðu mörkin fyrir Stutt-
gart. Förster gerði einnig sjálfs-
mark og Rudi Bommer gerði hitt
mark Dússeldorf. Ekkert var
sýnt frá leiknum í sjónvarpi og
ekkert minnst á Atla Eðvaldsson.
í þriðja leiknum vann Kaisers-
lautern loks sigur- vann Karlsru-
he 3-1. Efstu og neðstu lið eru þá
þessi:
BayernMunchen 26 15 7 4 60-34 37
Bremen.........26 14 8 4 69-40 36
Gladbach......25 13 6 6 64-38 32
Stuttgart......27 12 4 11 69-47 28
Dusseldorl....26 6 7 13 42-57 19
Bielefeld.....25 3 11 11 29-50 17
Braunschw.....25 7 2 16 30-59 16
Karlsruher....26 3 9 14 34-69 15
Fimm leikir eru á dagskrá í dag
- þar á meðal Bayern-Schalke og
Uerdingen-Hamburger SV.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNÍ Laugardagur 13. apríl 1985
Markahæstir:
Kristján Arason, FH...............78
Hans Guðmundsson, FH..............75
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi..66
ViggóSigurðsson, Víkingi..........63
HaukurGeirmundsson.KR.............54
Jakob Jónsson, KR.................54
Þriðja úrslítaumferðln fer fram í Laug-
ardalshöllinni, hefst á miðvikudags-
kvöldið og lýkur á föstudagskvöldið.
Lokaumferðin verður síðan á sama stað
26.-28. april.
Körfubolti
Öruggt
hjá lands-
liðinu
Landsliðið í körfuknattleik átti
í litlum erfíðleikum með pressu-
liðið í Keflavík í gærkvöldi.
Landsliðsmcnnirnir, sem halda á
Polar Cup í Finnlandi eftir
nokkra daga, sýndu oft mjög góð-
an leik og sigruðu 107-83. Valur
Ingimundarson var stigahæstur
hjá landsliðinu með 22 stig en Pét-
ur Guðmundsson var atkvæðam-
estur hjá pressuliðinu - tróð
nokkrum sinnum með tilþrifum
en samæfíngarleysi liðsins háði
honum og því mjög.
-VS