Þjóðviljinn - 13.04.1985, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 13.04.1985, Blaðsíða 10
AWINNUUF Iðnaður: Huga verður að því á hvaða sviðum helst er von til þess að auka megi útflutning á iðnaðarvörum. leiðir aðeins til 3% aukningar á útflutningsverðmæti í heild. Helsta forsenda aukinnar verðmætasköpunar sjávarútvegs- greina er að það takist að auka gæði afurðanna. Bætt meðferð og vitlegt skipulag veiða og vinnslu getur skilað miklu í þessu efni. Einnig er unnt að auka útflutn- ingsverðmæti með breyttri vinnslu, með því að fullvinna afurðir í meira mæli en nú er gert, með því að vinna nýjar afurðir og þá kannski fremur með breyttum vinnsluaðferðum en með því að vinna nýjar tegundir. í framtíð- inni hlýtur að verða að leita nýrra markaða og laga sig að þeim kröf- um sem þar eru hvort sem um er að ræða ferskan fisk, saltaðan eða frystan ellegar fisk verkaðan með öðrum hætti. Markmiðið er að fá aukið verð- mæti úr sama magni. Tímabund- in aukning gæti þá orðið á mann- afla í fiskiðnaði. Innan áratugs kann ný tækni hins vegar að leiða til breyttra aðstæðna og fækkun- ar starfsfólks. Iðnaður Öðrum iðnaði en fiskiðnaði má skipta í ýmsa flokka. Þar er um að ræða neysluvöruiðnað sem fram- leiðir fyrir innlendan markað, fjárfestingavöruiðnað sem fram- leiðir fyrir innlendan markað og svo þjónustuiðnað. í>á er hér úr- vinnsíuiðnaður sem framleiðir til útflutnings úr innlendu hráefni, fyrst og fremst ull og skinnum. Einnig ber að nefna stóriðju. Iðn- aður sem framleiðir úr innflutt- um hráefnum til útflutnings er óverulegur, sem sést best á því, að að slepptu sjávarfangi, afurð- um ullar og skinna, kísilvörum og áli er útflutningur iðnaðarvöru aðeins 1.2% af heildarútflutningi landsmanna. í umræðum í dag er iðnaði jafn- an ætlað að taka við stórum hluta þess mannfjölda sem kemur á vinnumarkað á næstu árum. Sú framtíðarsýn hefur hins vegar æði oft verið byggð á veikum rökum. Það hefur verið litið til landbún- aðar og dregin svipuð ályktun og hér að framan. Þar verður fækk- un, en ekki fjölgun. Á sama hátt hefur verið litið til fiskveiða og fiskiðnaðar og sú ályktun dregin, að þar sé ekki verulegrar aukningar að vænta. Síðan er því bætt við, að ekki geti allir lifað af því að klippa hver annan. Þjón- ustugreinarnar fái ekki þrifist nema undirstaðan sé einhvers- staðar lögð og því hljóti iðnaður að vera atvinnuvegur framtíðar- innar. Það hefur farið minna fyrir því að dregin væri upp mynd af því hvaða atvinnutækifæri muni bjóðast í iðnaði. Þetta endur- speglar, að hér er engin markviss stefna um iðnaðaruppbyggingu. ■ Það verður að setja markmið um markaðshiutdeild einstakra samkeppnisgreina og leitast við að treysta samkeppnishæfni með hagræðingu og bættu skipulagi. ■ Það verður að huga að því á hvaða sviðum helst er von til þess að auka megi útflutning á iðnað- arvörum. í því sambandi beinist athyglin e.t.v. fyrst að þjónustu og fjárfestingariðnaði í tengslum við sjávarútveg. Á þessu sviði búum við að tiltölulega stórum heimamarkaði og góðri þekk- ingu. Það er víst, að erlendis er borin nokkur virðing fyrir verk- tækni okkar. Efling þessara greina til útflutnings mundi ekki aðeins afla okkur gjaldeyris- tekna, heldur einnig tryggja að íslenskur sjávarútvegur verði alltaf í fremstu röð. ■ Nýta verður hágkvæma kosti á sviði orkufreks iðnaðar. Sé hrá- efnisöflun, framleiðslutækni og markaðsfærsla á okkar valdi er eðlilegt að slíkur iðnaður sé að stórum eða mestum hluta í eigu íslendinga. Ef erlendir aðilar hafa þessa þætti á sinni hendi eða rekstraráhætta er mjög mikil þarf í hverju tilviki fyrir sig að meta hve skynsamleg innlend eignar- aðild er. ■ Samstarf við erlenda aðila á sviði almenns framleiðsluiðnaðar getur opnað markaði og aflað okkur tækniþekkingar. Aðgát verður hins vegar að hafa í þessu efni svo erlendir aðilar verði ekki ráðandi í efnahagslífinu. Með öflugu uppbyggingar- starfi á íslenskur iðnaður að geta skilað fjölda nýrra starfa á kom- andi árum. Aðrar greinar Nauðsynlegt er að huga að út- flutningsaukningu og gjaldeyris- öflun á öllum sviðum. ■ Ferðamannaiðnaður hefur verið í töluverðum vexti og á því sviði má án efa auka gjald- eyrisöflun á næstu árum. Al- mennur ferðamannatími er hins vegar mjög stuttan hluta ársins svo erfitt getur reynst að ná góðri nýtingu. ■ Gjaldeyristekjur má auka á ýmsum sviðum þjónustu. Á ein- stökum sviðum búum við að góðri tækniþekkingu, m.a. varð- andi nýtingu jarðvarma. Þá þekkingu er hægt að selja öðrum þjóðum í auknum mæli. ■ Tækniþjónusta var nefnd í um- fjöllun um sjávarútveg ásamt aðfanga- og fjárfestingariðnaði honum tengdum. íslensk . fyrir- tæki eiga einnig að geta tekið að sér söluþjónustu á sviði sjávaraf- urða og aðfanga til sjávarútvegs í öðrum löndum. Til þess að svo geti orðið þarf að bæta og stór- auka sölustarfsemi. ■ Bygginga- og verktakastarf- semi á að geta haslað sér völl á sviði útflutnings. ■ íslensk fyrirtæki ættu að geta tekið að sér verkþætti í stórum verkefnum í þróunarlöndum. Nú er gert ráð fyrir auknu samstarfi Norðurlanda á þessu sviði og ís- lendingar verða að hafa vakandi auga fyrir öllum möguleikum. ■ Þó ólíklegt sé að íslendingar verði samkeppnisfærir í almennri tölvuframleiðslu næstu árin eru möguleikar á að með skipulegu starfi geti hugbúnaðargerð orðið umfangsmikil atvinnugrein á ein- stökum sérhæfðum sviðum. Sé vel haldið á spöðunum og hugviti beitt má á flestum sviðum afla gjaldeyris. ■ Verslun Síðari árin hefur verið nokkur aukning mannafla í verslun. Sú aukning kann að halda eitthvað áfram ef umsvif aukast í efnahag- slífinu en einmitt á sviði verslunar er þess að vænta að tækniframfar- ir leiði til fækkunar. Tölvuvæðing og aukin hlutdeild stórmarkaða í smásöluverslun gerir að verkum að færra fólk getur séð um aukin umsvif. ■ Byggingarstarfsemi Líklegt er að íbúðabyggingar haldist í meginatriðum óbreyttar næstu ár en umsvif í byggingar- starfseminni ráðast að öðru leyti af framkvæmdum fyrirtækja og opinberra aðila. Hlutfall af heildarmannafla gæti haldist óbreytt frá því sem nú er. ■ Samgöngur Aukin umsvif í samgöngum síð- ustu ár hafa ekki kallað á aukinn mannafla og sú hagræðing sem orðið hefur heldur enn áfram. Á þessu sviði er ekki að vænta mikillar fjölgunar starfsfólks. ■ Bankar og tryggingar og þjón- usta við atvinnulíf Ólíklegt er að mikil þensla síðari ára haldi áfram. Bankaþjónusta og tryggingastarfsemi mun enn aukast en tölvutæknin dregur úr starfsmannaþörf. Ýmis konar þjónusta við atvinnurekstur mun hins vegar fara hraðvaxandi. ■ Þjónustustarfsemi Þjónustugreinar geta þanist eins og almennur kaupmáttur og skattgreiðslur geta borið. Aukning á þeim sviðum er háð framförum í öðrum greinum og pólitískum ákvörðunum. Áfram- haldandi fjölgunar má vænta. f þessum greinum ekki síður en öðrum er brýnt að ýtrustu hag- kvæmni sé gætt, þannig að sem mest þjónusta fáist fyrir það fé sem til ráðstöfunar er á hverjum tíma. Forgangsröð þarf einnig að skoða, t.d. hvort skynsamlegt sé í heilbrigðiskerfinu að leggja alla áherslu á lækningar fremur en heilsuvernd. Samhengi atvinnulífsins Ef grannt er skoðað samhengi íslensks atvinnulífs er ljóst, að fiskveiðar eru frumforsenda þess efnahagslífs sem við búum að. Ýmis konar aðfangaiðnaður og þjónusta vinnur fyrir fiskveiðarn- ar og má þar nefna t.d. skipa- smíðar, veiðarfæraiðnað, verslun og ýmislegt fleira. Margs konar úrvinnsluiðnaður og þjónusta tekur við þeim afurðum sem fisk- veiðarnar skila. Má þar nefna fiskvinnslu, flutningaþjónustu, byggingarstarfsemi, verslun og margt fleira. Fiskveiðarnar og þær greinar sem þeim þjóna, Íeggja síðan forsendur að neyslu- vöruiðnaði í landinu, margs kon- ar þjónustu við einstaklinga og opinberri þjónustu. Eins og fram kemur hér að framan er nær óhugsandi að ná verulegri framsókn í tekjum og atvinnutækifærum nema verð- mætaaukning verði í sjávarútvegi og í þeim greinum sem þjóna honum. Samhliða verður hins vegar að auka útflutning annarra greina og ná þannig meiri breidd og auknu jafnvægi í atvinnulíf- inu. Árið 1981 var heildarfjöldi árs- verka talinn rúm 109 þúsund. Fram til aldamóta gæti fjölgun á vinnumarkaði numið um 35 þús- undum. Fjölgunin ræðst annars vegar af breytingum á atvinnu- þátttöku, sem aftur ákvarðast af breytingum á skólagöngu, starfs- aldri svo og vinnu giftra kvenna utan heimilis, svo helstu þættir séu nefndir. Hins végar er al- mennt atvinnuástand afgerandi um hver þróunin raunverulega verður. Þaö vantar stefnu Þegar leitað er svara við því af hverju við höfum dregist aftur úr öðrum þjóðum á síðustu árum er naumast vafi á að óljós markmið í atvinnumálum ráða miklu. Það má raunar taka svo djúpt í árinni, að segja að hér hafi engin stefna verið í þeim efnum. Líklega var síðasta stefnumarkandi ákvörð- un, sem stjórnvöld hafa tekið varðandi atvinnumál, ákvörðun um uppbyggingu togaraflotans og frystihúsanna. Þessi ákvörðun var tekin fyrir um hálfum öðrum áratug. Atvinnumál á íslandi hafa ein- kennst af bráðabirgðaráðstöfun- um og handahófskenndu poti, sjaldan hefur verið um sam- ræmda framkvæmd að ræða. Stefnumótun og breyttar áhersl- ur í atvinnulífinu eru forsendur árangurs. ■ Stefnumörkun Stjórnvöld verða að marka skýrar línur um stefnu komandi ára og samstilla alla þætti til að tryggja þeirri stefnu framgang. Fj árfestingalánakerfið, menntakerfið og beinar stjórnvaldsaðgerðir verða að þjóna stefnunni, í stað þess að eitt vinni gegn öðru. ■ Áhersla á nýsköpun Það er ljóst að í íslensku atvinnu- lífi hefur lengi verið lögð áhersla á að halda í það sem hefðbundið getur talist. Minna hefur verið hugað að nýsköpun. Eins og nánar verður vikið að hér á eftir kemur dýrkun þess hefð- bundna fram á ótal sviðum. Miklu skiptir að hér verði við- horfsbreyting og sú hugsun ráð- andi að allir möguleikar séu metnir út frá hagkvæmnissjónar- miði í víðum skilningi og áhersla lögð á atvinnurekstur sem getur greitt hátt kaup og er líklegur til þess að lyfta tæknistigi þjóðfél- agsins. ■ Lánakerfi Samræmingu og skýrar viðmið- anir vantar í lánakerfinu. Sam- hæfa verður starf lánasjóða og bankakerfisins að uppbyggingu atvinnulífsins. Fjármagnið verð- ur að nýta til þeirra framkvæmda og reksturs sem fjárhagslega er hagkvæmastur og losa um böndin við hefðbundin verkefni svo ný- sköpun fái jafnan aðgang að fé. Nokkur áhætta er réttlætanleg þegar nýsköpun á í hlut og minna verður á að ekki er síður mikil- vægt að leggja fjármagn í t.d. markaðsöflun en húsnæði og tæki. Vexti verður að lækka bæði til þess að auka svigrúm fyrir launa- hækkanir og möguleika á eigin- fjármyndun í fyrirtækjunum. ■ Rannsóknir Rannsóknir hér á landi eru tak- markaðar. Við eyðum minni fjár- hæðum hlutfallslega til þeirra en flestar nálægar þjóðir. Rannsóknarstarfsemi er ekki nægjanlega tengd atvinnurek- strinum og þeirri vöru og tækni- þróun sem hann þarf á að halda. ■ Menntakerfi Menntun á íslandi þjónar ekki nægilega þörfum samtíðarinnar. Menntakerfið verður á hverjum tíma að þróast í takt við atvinnu- líf, og taka tillit til framvindu tækni og vísinda. Fólki verður að gefast tækifæri til menntunar allt æviskeiðið. Menntakerfið verður að fullnægja þörfum atvinnulífs- ins m.a. með aukinni fjölbreytni. Hafa verður í huga, að menntunin nýtist einstaklingun- um aðeins að takmörkuðu leyti fái þeir ekki tækifæri til þess að spreyta sig í starfi á þeim sviðum sem þeir hafa lagt áherslu á í námi. ■ Sölustarfsemi Sölukerfi á íslenskum afurðum erlendis er sundurgreint og í allt of ríkum mæli aðgreint frá fram- leiðslunni. Sérstök sölusamtök sjá um sölu á frystum afurðum, önnur um sölu á saltfiski og þau þriðju á þurrkuðum fiski. Utanríkisþjónustan sinnir veislu- höldum og formlegum sam- skiptum, en í litlum mæli sölu- mennsku fyrir íslenskar afurðir og öflun tækni fyrir íslenska framleiðslu. Sölusamtökin sjá hver um sig um að koma viðkomandi afurð á framfæri, en sinna ekki öðrum tegundum framleiðslu eða leita eftir hvort þau lönd sem þau selja í hafa upp á eitthvað að bjóða, sem uppfyllt getur okkar þarfir. Framleiðendur líta svo á, að það 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.