Þjóðviljinn - 13.04.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 13.04.1985, Blaðsíða 12
Er Alþýðubandalagið í kreppu? Eiga forystumenn í verkalýðshreyfingunni að segja því fyrir verkum? Gengur hagsmunagæsla landsbyggðarþingmanna þvert á skynsamlega stefnu- mótun flokksins og vinstri- hreyfingarinnar? Hvernig eiga kjósendur að bera traust til for- ystumanna sem tala hver sinni tungu í fjölmiðlum? Lítur ungt fólk á Alþýðubandalagið sem einn kerfisflokkanna? Eru flokksstofnanirnar of þung- lamalegar þegar þarf að svara spurningum dagsins? Veldur glæst fortíð íhaldssamri varn- arstöðu við dagsbrún nýrrar umbyltingaraldar? Er sjálfs- sýn flokksins sem forystu- flokks verkalýðshreyfingar- innar að verða honum fjötur um fót? Á fundi Alþýðubandalagsins í Reykjavík á fimmtudagskvöld beindu menn spjótum að sjálfum sér og skirrðust hvergi við að vekja skorinort máls á þeim yfir- skyggðu stöðum stefnu og starfs sem í stjórnmálaflokkum teljast yfirleitt best geymdir í lágum hljóðum undir fjögur augu. Svavar Gestsson hóf umræður og reifaði það stjórnmálaástand sem nú er við að glíma. Fjár- magnsöflin hafa verið í sókn, sagði Svavar, - ríkisstjórnin situr í þeirra þágu og býr þeim í hag- inn. Verkalýðshreyfingunni hef- ur ekki tekist að andæfa, að verja sína ávinninga, þótt henni hafi sjaldan verið storkað eins og nú. Frammi fyrir þessu hefur Al- þýðubandalagið reynt að sam- eina til átaka gegn stjórninni. Fannig beitti flokkurinn sér gegn undanhaldi í febrúarsamningun- um í fyrra. Og þannig beitti flokkurinn sér fyrir viðræðum um nýtt landstjórnarafl, - en við- brögð við því frumkvæði leiddu í ljós að í raun eru nýju flokkarnir ábyrgðarlausir sundrungarflokk- ar. Alþýðuflokkurinn hefur eng- an áhuga sýnt slíkri samvinnu, enda er eftirtektarvert að sókn Alþýðuflokksins á undanförnum mánuðum helst ekki í hendur við aukna andstöðu við ríkisstjórn- ina í skoðanakönnunum. AB og verkalýðshreyfingin Alþýðubandalagið hefur haft í frammi margháttaðar tillögur um þá elda sem heitast brenna á al- þýðu manna, húsnæðismál, efna- hagsmál, kaupmáttartrygging. En þrátt fyrir sterka málefna- stöðu og gott starf hefur okkur ekki tekist að brjótast í gegn, sagði Svavar. Skoðanakannanir sýna fylgislægð sem menn hafa af áhyggjur í flokknum. Menn veröa að líta á gagnrýni innan flokksins sem jákvæða þegar hún er borin fram af góðum hug; deilur um áhersluatriði í okkar hóp eru ekkert örvæntingarmál. Hver er ástæða þess að flokk- urinn hafði frameftir árinu 1984 sterka stöðu, en ekki núna? Hvað hefur breyst? í kjarabaráttunni síðasta haust stefndi Verkamannasambandið og Iðja í eina átt, BSRB í allt. aðra. Þessi sundrung innan verkalýðshreyfingarinnar á sér félagslegar og faglegar skýringar, en hún skapar mikla erífiðleika fyrir hreyfinguna og fyrir Al- þýðubandalagið. Var rangt af flokknum að taka ekki afstöðu á annan hvorn veg- inn í þessari baráttu? Nei, slíkt hefði verið útilokað fyrir flokk- inn. Við tókum þá ákvörðun að taka ekki afstöðu, og töldum okkur þá vera að fórna skammtímaávinningi fyrir lang- tímaávinning. Svavar hafði ekki mikla trú á árangri úr nýhöfnum viðræðum ASÍ við VSÍ og ríkisstjórnina um kjaramál, atvinnumál og hús- næðismál. „En þótt þessari að- ferð sé beitt yrði Alþýðubanda- lagið að styðja verkalýðsh- reyfinguna til að sækja gull í greipar afturhaldsins”. Hinsvegar taldi hann greiðfær- ast að fylkja liði gegn atvinnurek- endum og ríkisvaldi þeirra, - al- þýðan ætti öll hagsmunalega samleið. Af hverju er þessi leið ekki farin? spurði Svavar, varla bara vegna þess að tveir ákveðnir menn geta samkvæmt blaðafrétt- um ekki talað saman! Svavar rakti í tölum kjara- skerðingu síðustu ára og benti á að hún hefði einkum bitnað á þeim sem minnst höfðu fyrir. Hann sagði þróunina þá að samn- ingar verkalýðsfélaganna yrðu æ þýðingarminni; atvinnurekendur réðu launaþróun með samning- um við hvern og einn. Að líða lágtaxtastefnuna veikir verkalýðshreyfinguna til fram- búðar, sagði Svavar, - og meðal annars vegna þessa er erfitt að ná verkalýðshreyfingunni saman um baráttulínu. Hin nýja stétt Merkust verkefni Alþýðu- bandalagsins fyrir landsfundinn í október sagði Svavar vera stefnu- umræðu meðal félaganna, til- lögur um breytingar í atvinnu- málum, mótun stefnuskrár um bætt kjör og félagslega þjónustu, og umræðu um raunhæfa kosti í utanríkismálum. Eitt brýnasta verkefni flokks- ins væri að auki að fullbúa til- lögur um uppstokkun á stjórnkerfinu í landinu. - Reynsla mfn í ríkisstjórnum segir mér að það er ekki farandi inní þetta stjórnkerfi óbreytt, sagði Svavar. Þetta stjórnkerfi elur af sér nýja stétt, stétt forréttinda- manna í austantjaldsstfl, óralangt frá hinum almenna launamanni. Þetta er óþolandi. Við verðum að berjast og safna liði, sagði Svavar að lokum. Al- þýðubandalagið á erindi .við alla launamenn og meirihluta íslend- inga, ekki síst nú þegar andstæð- urnar blasa við: okurbúllur spretta upp á hverju horni en al- menningur er niðurlægður með því kaupi sem honum er rétt. Miðjumoðið getur ekki veitt Framtíðin opnar nýjar dyr Svavar og Ólafur Ragnar á ABR-fundi: umrœður og endurnýjun. Ýmsar áherslur í viðhorfum til stefnu verkalýðsforystunnar. íhaldinu mótspyrnu, sagði Svav- ar, - þrátt fyrir neitun krata, BJ og kvennalista verður Alþýðu- bandalagið að mynda nýtt land- stjórnarafl. Kreppa Ólafur Ragnar Grímsson sagði undarlegt að á tímum kjaraskerð- ingar, húsnæðiskreppu og óáran- ar væri baráttuflokkur launafólks ekki í vexti. Lægð í skoðana- könnunum meðan nýir flokkar virtust vera að festa sig í sessi og Alþýðuflokkurinn yki fylgi sitt. Nú væri meiri hreyfing í stjórnmálum en í langan tíma, meiri en á síðasta áratug, - en sú hreyfing færi framhjá Alþýðu- bandalaginu sem í stað vaxtar virtist stefna til hægfara hnignun- ar. - Ég hef lýst því í blaðavið- tölum, sagði Ólafur, - að Al- þýðubandalagið sé í kreppu. Sumir félaga minna í forystusveit flokksins hafa skammað mig fyrir þetta, - vissulega óvenjuleg yfir- lýsing. Og það er von að menn spyrji: hverskonar kreppu? Ein- faldasta svarið er að Alþýðu- bandalagið er í kreppu vegna þess að það segist vera forystu- flokkur verkalýðshreyfingarinn- ar án þess að vera það. Flokkur- inn er ekki sá drifkraftur í baráttu launafólks sem hann var. Stefna forystu verkalýðshreyfingarinnar er ekkert sem flokkurinn hefur skrifað uppá; - það er til dæmis athyglisvert að nýlegt plagg frá forseta ASÍ um atvinnumál virð- ist vekja meiri fögnuð í Morgun- blaðinu en í Þjóðviljanum. Ólafur benti einnig á að við næstu kosningar yrði um helm- ingur kjósenda undir 35 ára aldri, - fólk sem hefði tekið út þroska sinn eftir 1970. Þetta fólk þekkti ekki viðreisnarstjórnina og hefði alist upp við stjórnarþátttöku Al- þýðubandalagsins. Mörgu ungu fólki þætti Alþýðubandalagið skorta stfl og spennu, vera gam- aldags, og liti jafnvel á Alþýðu- bandalagið sem kerfisflokk. Ólafur vakti athygli á að tveir þriðju kjósenda byggju í Reykja- vík, á Reykjanesi og á Akureyri: - flokkur sem ætlar að vera for- ystuflokkur launafólks verður að vera forystuflokkur á þessum svæðum. Það er hann ekki. Umræðu um endurnýjun Við þurfum að ræða saman í flokknum, sagði Ólafur Ragnar, - og til þess er væntanlega góður tími, kosninga er vart að vænta fyrren að ári. Og um hvað? í fyrsta lagi um flokkinn og verkalýðshreyfing- una. Áður fyrr sátu oddvitar flokks- ins og félagar í forystu verkalýðs- hreyfingarinnar jafnan á rökstól- um. Tengslin á milli voru virk og þeirra vegna fékk flokkurinn sérstaka vigt framyfir kjörfylgi sitt. Á þessu hefði orðið breyting síðustu misserin. Helstu alþýðu- bandalagsmenn í verkalýðsfor- ystu sætu ekki lengur í verkalýðs- málaráði AB, reglubundnir samráðsfundir væru úr sögunni, forystusveit flokksins frétti af Ólafur Ragnar: við lifum ekki á sögunni.... stefnu verkalýðsoddvita gegnum fjölmiðlana. Engu að síður væri sú krafa gerð til flokksins að hann styddi stefnu verkalýðsforyst- unnar án þess að hafa tekið þátt í að móta hana. Verkalýðshreyfingin stæði nú að stefnumótun á öðrum sviðum en í kjaramálum. Fyrr í vetur hefðu verkalýðsforingjar setið yfir skattamálum og jafnvel fjár- lögum, nú ræddu ASÍ-menn við ríkisstjórnina um húsnæðismál og fyrir nokkrum dögum hefði birst greinargerð frá ASÍ um at- vinnumál. Þróunin væri sú að verkalýðshreyfingin tæki upp beint stjórnmálasamband við ríkisstjórnina um flest samfél- agsmál. Milli skips og bryggju Flokkurinn stendur þá í að þurfa að velja á milli: á hann að styðja hugsanlegar niðurstöður úr viðræðum ASÍ, VSÍ og ríkis- stjórnarinnar, eða á hann að deila við verkalýðsforystuna um þessa stefnumótun? - Alþýðu- bandalagið í kreppu? Efast ein- hver? Vandinn er svo enn slungnari, sagði Ólafur, vegna þess að innan þessarar verkalýðshreyfingar ríkir ekki sú samstilling og ein- drægni sem þörf væri á, - þar er tortryggni meira áberandi, jafnvel fjandskapur. Þegar hart er deilt innan verkalýðshreyfing- arinnar getur flokkurinn kramist milli skips og bryggju: - taka af- stöðu og fá á sig óánægju hinna, taka enga afstöðu og missa traust meðal fylgismanna. Ný byggðastefna Ólafur taldi að annað brýnt umræðuefni innanflokks væri að móta nýja byggðastefnu. Alltof lengi hefði flokkurinn haldið við framsóknarlegar áherslur um varðveislu óbreytts ástands í stjórnkerfi og atvinnulífi á lands- byggðinni. Byggðastefna flokks- ins hefði verið rétt og gefist vel á fyrri áratugum. Nú væri hún orð- in úrelt, enda leitaði þorri lands- byggðarfólks annarra lausna. Umræður um þetta í flokknum væru tregar, ef til vill vegna þess að ýmsir forystumenn flokksins á landsbyggðinni teldu fylgi sínu best borgið með hagsmunagæslu í stjórnkerfinu. Þessu stjórnkerfi þyrfti hinsvegar að breyta, auka sjálfstæði byggðanna og færa valdið í hendur fólksins sjálfs í staðinn fyrir herradóm stjórnmála- og embættismanna í höfuðborginni. Fjölmiölatök Fjölmiðlarnir eru burðarásinn þegar stjórnmálamenn kynna stefnu sína, sagði Ólafur. í fjöl- miðlum nær stefna flokksins ekki skýrum fókus, enda viss óbeit innanflokks á að reka áróður. Flokkurinn hefur of þunglama- legan stíl, er stundum seinn á vettvang og lætur öðrum eftir frumkvæðið, - nýjasta dæmið er bflamál bankastjóranna. Slík mál ráða auðvitað ekki úrslitum þeg- ar til lengdar lætur, en á okkar tímum eru svona mál á við meðal- virkjun þegar almenningur gerir upp hug sinn. Þessu tengist að flokksmenn eru oft of uppteknir af hinu liðna. Við lifum ekki á sögunni. Og við skulum gera okkur grein fyrir að framtíðin opnar nýja möguleika fyrir sósíalíska hreyfingu. Nú standa yfir stórfelldar samfél- agsbreytingar, og það er mikil- vægt að vinstrimenn nái að virkja þær í þágu verkalýðs og allrar al- þýðu. Við getum ekki látið hægri- öflunum eftir að eigna sér fram- tíðina. Við verðum að huga að nýsköpun, að samfélaginu eins og við viljum að það verði árið 2000 eða 2010. Stjórnmálaflokkum líka ekki óþægileg tíðindi, sagði Ólafur að lokum, - en við verðum að þola umræðu, þola að vera ósammála til að ná tökum á eigin framtíð. Af stað Fundarmenn tóku vel hvatn- ingum framsögumanna um um- ræður þótt langt væri liðið á kvöld, og höfðu ræðumenn ýms- ar meiningar um kjaramál, verkalýðsforystu, byggðastefnu, stjórnarsamstarf, ásýnd Alþýðu- bandalagsins, forystuflokka, forræðishyggju, hentistefnu, þingflokk, atvinnulýðræði, slúbberta, skúrka, sveitarstjórnir og nýtt samfélag. Merkur fundur sumsé hjá Al- þýðubandalaginu í Reykjavík. -m 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.