Þjóðviljinn - 23.05.1985, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN
LANDIÐ
Til sölu
tvö falleg elnstaklingsrúm og nýlegur
ísskápur og gamaldags hjónarúm og
náttborð. Uppl. í síma 36198 eftir kl.
19.
Til sölu
örbylgjuofn. Uppl. í síma 75806.
Óska eftir að kaupa
barnakojur og hvítt klósett. Uppl. í
síma 667098 eftir kl. 18.
Brúnt kvenveski
tapaðist við strætóskýlið hjá Lands-
spítala (leið 14). Finnandi vinsam-
legast hringið í síma 78449.
íbúð til leigu
4ra-5 herb. íbúð til leigu í sumar.
Uppl. í síma 72900.
Notuð dekk
til sölu á Renault 4 og 1 nýtt. Uppl. í
síma 31197. Selst ódýrt.
Tvíburavagn til sölu
sterklegur og vel.meö farinn (Silver
Cross). Uppl. í símum 33974 og
76191.
íbúð til leigu
sem er fullbúin á tímabilinu frá 2. júní -
4. júlí. Reglusemi og góð umgengni
áskilin. Uppl. í síma 32742.
Vantar þig sumarvinnu?
Ef þú ert 17-20 ára og hefur eitthvað
vit á undirvinnu og á viðgerðum á
bílum, þá kemur þú til greina. Uppl.
gefur Sigurjón í síma 28511 eða
16198.
Ágæti lesandi!
Þú veist manna best hvað lítið þú
berð úr býtum, farðu því vel með
krónurnar. Við bjóðum góðar vörur á
enn betra verði t.d. gallabuxur á 790.-
kr., barnaskyrtur á 95.- kr. Lesendur
Þjóöviljans fá auk þess 10% afslátt
af öllum vörum.
Fatalagerinn,
Grandagarði 3, (gegnt Ellingsen).
Saumanámskeið
Tveir klæðskerar halda saumanám-
skeið á Skólavörðustíg 19. Nánari
uppl. í símum 83069 og 46050 eftir kl.
17.
Til sölu
myndavél, lítið notuð og í góðu lagi á
2.500.- kr. Yashica MG-1. Á sama
stað er linsusuðutæki til sölu. Uppl. í
síma 41648, Ester.
íbúð til leigu
í Vestur-Berlín frá 15. júli til 31. ágúst.
Uppl. í síma 27175 eftir kl. 19.
Tveggja herbergja íbúð
til leigu í nýuppgerðu gömlu „kúltúr-
húsi" í miðborg Stokkhólms (Söder-
malm) í skiptum fyrir íbúð í miðbæ
Reykjavíkur tímabilið 6. júní - 1. júlí
nk. Svar sendist auglýsingadeild
Þjóðviljans merkt „íbúð - Miðbær".
Atvinna í Noregi
Det skulle være hyggelgtg om du
kunne komme og arbeite hos oss i
Bergen for et half ár eller lenger. Vi
har plass til 2 anestesi-sykepleiere
(svæfingahjúkrunarfræðinga) fra 1.
sept. 1985.
Upplýsingar í síma 91 -34498.
Vil kaupa
notaðan barnabílstól. Uppl. í síma
20603, eftir kl. 19.
Til sölu
ZX-spectrum 48 K tölva, Timex Sin-
clair prentari og micro-drif með tengi-
stykkjum, segulbandstæki og fjöl-
straumsbreytir ásamt nokkrum forrit-
um. Uppl. í síma 40785 eftir kl. 19.
íbúð til leigu
í Vestur-Berlín frá 15. júlí til 31. ágúst.
Uppl. í síma 27175 e. kl. 19.
Til leigu
herbergi í íbúð með allri aðstöðu.
Verð kr. 5000.- Uppl. í síma 38900,
innanhússnúmer 25 kl. 9-16.
Vinna i júní
23 ára námsmanna vantar sárlega
vinnu í júní, heilan eða hálfan daginn.
Get einnig tekið að mér verk í styttri
tíma. Fær í flestan sjó. Uppl. í síma
621454.
Bíll óskast
Vill ekki einhver selja góðan, traustan
bíl? Verðhugmynd 40-60 þúsund. Út-
borgun 25 þúsund. Sími 29286.
Stokkhólmur - júlí
3ja herbergja íbúð í Stokkhólmi í
skiptum fyrir íbúð í Reykjavík í júlí.
Uppl. í síma 31519 e.kl. 17.
Gítarmagnari 100 watta
Sun, til sölu og Aria gítar. Uppl. í síma
16086.
Eldhúsinnrétting, glæný
Af sérstökum ástæðum er til sölu
glæný eldhúsinnrétting úr Ijósri eik.
Skápalengd samtals 4,5 m. Selst
ódýrt. Einstakt tilboð. Úppl. í síma
31447 eftir hádegi.
Brio, barnavagn
Til sölu blár flauelsvagn með dýnu,
sem nýr. Verð kr. 10 þús. Uppl. í síma
17574.
Hondueigendur, athugið
Óska eftir Hondu M.B. eða Hondu
N.T.. Uppl. í síma 44506 eða 42212.
Píanóleikara
bráðvantar æfingaraðstöðu frá 1.
júní. Uppl. í síma 38575.
Barnavagn
til sölu, fallegur og góður rauður flau-
elsvagn. Verð 8 þús.. Upþl. í síma
82249.
Timbur óskast
Óska eftir að kaupa heflað timbur, 1 x
6. Uppl. í síma 39694.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir apríl mánuð 1985, hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 28. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. júní.
Fjármálaráðuneytið, 20. maí 1985.
Blikksmiðja
Magnúsar
Thorvaldssonar
Blikksmiðjan hóf starfsemi
sína árið 1967. Hún tekur að
sér alla almenna blikksmíði og
framleiðir einnig sorpskápa og
pokahengi á veggi.
Ennfremur framleiðir Blikk-
smiðjan milliveggjastoðir úrstáli
sem þekktar eru víða um land. Þá
hefur það nýlega gert tilraunir
með framleislu á leiktækjum á
leikvelli. Loks má geta þess að
hjá Blikksmiðjunni hefur, sl. 5
ár, verið unnið að þróun uppfinn-
ingar eigandans, Magnúsar Thor-
valdssonar, á svonefndum Magn-
húsum. Er það ný gerð timbur-
einingahúsa, í senn einföld og
auðveld í uppsetningu.
-mhg
Sparisjóður
Mýrasýslu
Sparisjóður Mýrasýslu er
eina peningastofnunin í hérað-
inu. Viðskiptasvæði sjóðsins
er, auk Mýrasýslu, Borgar-
fjarðarsýsla innan Skarðs-
heiðar og sunnanvert Snæ-
fellsnes, einnig, í litlum en vax-
andi mæli, sveitirnar utan
Skarðsheiðar, síðan sam-
göngur urðu greiðari yfir fjörð,
með tilkomu Borgarfjarðar-
brúarinnar.
Sparisjóðurinn var stofnaður
árið 1913. Hann er til húsa í rúm-
góðu húsnæði að Borgarbraut 14.
Stærstu útlánaflokkar við Spar-
isjóðinn eru nú landbúnaður,
íbúðabyggingar og iðnaður ýmiss
konar. Starfsmenn eru 21. Spari-
sjóðsstjóri er Friðjón Svein-
björnsson en stjórnarformaður
Magnús Sigurðsson á Gilsbakka.
-mhg
Shell-
stöðin við
Brúartorg
Shellstöðin í Borgarnesi var
opnuð 1964 og var fyrsta stöð-
in á staðnum, sem veitti alhliða
þjónustu. Stöðin hefurfrá upp-
hafi séð um dreifingu á bensíni
og olíum á öllu Vesturlandi
fyrir Olíufélagið Skeljung h.f.,
að undanskiidu svæðinu
sunnan Skarðsheiðar. Þegar
hæst bar sá stöðin um dreif-
ingu allt til ísafjarðardjúps,
Hólmavíkur og Drangsness.
-mhg
Byggingafélagið
Bmg
Byggingafélagið var stofnað
árið 1976. Það hefur staðið
fyrir margskonar verkum, svo
sem smíði félagsheimilisins
Hlaða, húss Prjónastofu Borg-
arness, grunnskóla Borgar-
ness og einnig byggði fyrir-
tækið rannsóknahús á Hvann-
eyri og hús Loftorku í Borgar-
nesi.
Þá vann það að hitaveitufram-
kvæmdum við Borgarfjarðar-
brúna og hefur byggt og selt ein-
býlishús, raðhús og fjölbýlishús.
Byggingafélagið hefur sérhæft sig
í framleiðslu glugga, faga og úti-
hurða. Á síðustu þremur árum
hefur vélakostur fyrirtækisins
verið aukinn og endurbættur og
um mitt þetta ár verður flutt í nýtt
verksmiðjuhús að Sólbakka 11.
-mhg
Bók
um lyf
Komin er út hjá Vöku íslenska
lyfjabókin eftir Bessa Gíslason
lyfjafræðing, Helga Kristbjarn-
arson lækni og Magnús Jóhann-
esson lækni og eru þar kynnt öll
lyf sem skráð eru á íslandi.
í bókinni er ýmiss fróðleikur
um lyf, framleiðslu þeirra og
áhrif, en meginefnið er skrá um
lyfin þarsem hverju þeirra er lýst
og gefnar upplýsingar um fram-
leiðanda, innihald, form og gerð,
algenga skammtastærð, þekktar
aukaverkanir og notkunarhættu
fyrir viðkvæma sjúklinga, til
dæmis barnshafandi konur.
Bókin er ætluð öllum almenn-
ingi, og samin með hliðsjón af
þeirri nýhugsun meðal heilbrigð-
isstétta að lyfjataka sé ekki
einkamál læknisins heldur sé
öllum hollast að sjúklingnum sé
kunnugt um hvað hann lætur
ofan í sig.
ISLENSKA
IVPIA-
liirdn
r
Maður kvaddi, er hófst af sjálfum sér
og sýndi manndóm alla tíð í verki.
Alþýðunnar undir gekk hann merki,
um ýmsa byggð og landsins fiskiver.
Vegi landsins lagði marga hann,
leiðir nýjar vildi sjálfur kanna.
Sá var maður bœði frosts og fanna,
sem fegurðinni og sólskininu vann.
Slíka menn við eigum alltoffáa,
sem erfiðleikar kunna ekki að buga.
í hríðum lífs og heljarkulda duga, '
hrópa, við skulum reisa hið smáa.
Myndin skýr, sem þessi dáðadrengur
dró upp á tjaldið hér á göngu sinni.
Hún skal lýsa langt í framtíðinni,
leiftra á vegi, þar sem annar gengur.
Jóhann J.E. Kúld.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. maí 1985