Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 3
Reykjavík Fiystihús BÚR lagt niður? Elín Hallgrímsdóttir starfsmaður: Ekkert verið við okkur rœtt. Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi: Stefnan að leggja BÚR niður Eg hef ákveðið, sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í Morg- unblaðsfrétt, - og hefur skrifað bréf til ísbjarnarins um viðræður um samruna við Bæjarútgerð Reykjavíkur. Útgerðarráð, yfir- stjórn BÚR, var kynnt bréf Da- víðs í fyrradag og hafði ekki heyrt fyrr um málið. A fundi ráðsins lagði Sigurjón Pétursson fram bókun þarsem hann segir augljóst að borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins stefni mark- visst að því að leggja BÚR niður og hvetur allt verkafólk til að berjast gegn þeim áformum. Ekki hefur náðst í borgarstjóra í tvo daga en í fréttatilkynningu sinni í Morgunblaðinu ræðir hann um samstarf eða samruna fyrir- tækjanna og vill flytja alla starf- semi þeirra í Örfirisey. Þar er nú frystihús ísbjarnarins og virðist stefnt að því að Ieggja niður frystihús BÚR á Grandagarði. ísbjörninn hefur átt í veru- legum rekstrarerfiðleikum und- anfarin ár, einkum vegna mikils fjármagnskostnaðar af nýju fryst- ihúsi. Þar hefur líka skort hrá- efni, og í Alþýðublaðinu í gær eru því gerðir skórnir að Davíð ætli að fórna hagsmunum BÚR til að geta komið ísbjarnareigendum til aðstoðar, meðal annars með því að leggja þeim til afla BÚR- togaranna, eða togarana sjálfa. Elín Hallgrímsdóttir varafor- maður Framsóknar og starfsmað- ur í BÚR sagði við Þjóðviljann í gær, að enn væru fréttir af þessu máli of óljósar til þess að hægt væri að tjá sig að ráði. Starfsfólki BÚR hefur ekki verið kynnt mál- ið frekar en yfirstjórninni. Hinn fasti kjami starfsfólks tæki tíð- indunum með ótta um starfs- öryggi sitt og áunnin réttindi. Bókun Sigurjóns Péturssonar í útgerðarráði er svohljóðandi: Rafmagnsverð Dæmi um 65% hækkanir „Augljóst er að borgar- stjórnarmeirihluti Sjálfstæðis- flokksins stefnir markvisst að því að leggja Bæjarútgerð Reykja- víkur niður. Bæjarútgerðin var stofnuð til að skapa verkafólki í Reykjavík atvinnuöryggi og treysta fram- leiðsluatvinnugreinar í borginni. Frá stofnun BÚR hafa fjölmörg Á fjölmennum aðalfundi Dagsbrúnar í gærkvöldi voru menn á einu máli um að ekki væri nokkurt vit í að ganga til samn- inga við VSÍ nema samið yrði um haldbæra kauptryggingu. Samþykkt var afdráttarlaus ályktun þar sem segir m.a. „launahækkanir án kauptryg- gingar virka sem sjálvirk kaup- máttarlækkun við íslenskar að- stæður. ...Fundurinn varar við þeim hættum sem verkalýðshreyfing- unni stafar af því að glata frum- útgerðarfyrirtæki í Reykjavík í einkaeigu lagt upp laupana þegar illa hefur árað að mati eigenda, og verkafólk við það misst at- vinnu sína. Þótt misjafnlega hafi árað þá hefur BÚR til þessa stað- ið af sér öll áföll og er stærsta og öflugasta útgerðarfyrirtæki í borginni. En þótt BÚR hafi getað staðið kvæði í kjaramálum í hendur VSÍ ög festa þar með í sessi núverandi kaupmáttarstig. Kaupmáttar- trygging verður að vera megin- inntak næstu samninga. Dags- brún varar við þeim hættum sem leynast í tilboði VSÍ þótt yfir- borðið virðist lokkandi, það megnar ekki einu sinni að stöðva kaupmáttarhrapið á næsta ári.“ Jafnframt var samþykkt á fundinum að óska eftir viðræðum við VSÍ þar sem áhersla verði lögð á „nýja kaupmáttarviðmið- un ásamt kaupmáttartryggingu, af sér ytri áföll þá er hætta á að þessu merka tímabili í atvinnu- sögu Reykjavíkur verði brátt lok- ið vegna frjálshyggjudrauma borgarstjórnarmeirihlutans. Þeg- ar er búið að selja tvo af togurum BÚR fyrir um 30 milljónum króna undir markaðsverði hvorn, og þó nú sé aðeins talað um könn- un á hagkvæmni þess að leggja sem annaðhvort verði í formi ríkisstjórnarábyrgðar á ákveðn- um umsömdum kaupmætti eða vísitölu." Jafnframt verði gert bindandi samkomulag um nýtt launakerfi fyrir Dagsbrún sem verði tilbúið fyrir 1. júní 1986 og opnað fyrir sérsamninga handa ýmsum hópum innan félagsins. Einnig verði gengið frá sérstök- um hækkunum fyrir fiskvinnslu- fólk umfram tilboð VSÍ. í lok fundarins var 15 manna samninganefnd Dagsbrúnar kjönn. -ÖS/-lg. Útvarpið Dagsbrún Kauptrygging forsenda samninga BÚR niður í núverandi mynd þá tel ég fullvíst að það verður gert hvað sem það kostar, einsog togarasölurnar benda ótvírætt til. Alþýðubandalagið mun berj- ast af alefli gegn því að BÚR verði lögð niður og heitir á allt verkafólk að taka þátt í þeirri baráttu.” -m VSÍ-tilboðið Óaðgengilegt Karl Steinar: Vantar kaupmáttarákvœðin VSÍ-tilboðið er óaðgengilegt í því formi sem það hefur verið kynnt fyrir okkur, sagði Karl Steinar Guðnason varaformaður Verkamannasambandsins í sam- tali við Þjóðviljann í gær. - Ég tel að vanti kaupmáttar- tryggingu og sveigjanleika í til- boðið til nauðsynlegra leiðrétt- inga sérstaklega innan Verka- mannasambandsins, - en ég tel sjálfsagt að ræða það og fá skýr- ingar á því. Mér finnst að verk- lýðshreyfingin hafi hagað sér eins og gamalt og gigtveikt tröll sem eigi erfitt með hreyfingu gagnvart tilboðinu. Það verður að gæta að því að VSÍ-tilboðið kemur fram áður en verklýðshreyfingin hefur sett fram nokkrar kröfur, sagði Karl Steinar. El Salvadornefndin Félagsfundur Félagsfundur E1 Salvador- nefndarinnar verður haldinn laugardaginn 1. júní, kl. 14.00 að Mjölnisholti 14 (3. hæð). Dagskrá: Starfið á undanförnum mánuð- um. Starfið í sumar. Alþjóðleg friðarganga í Mið-Ameríku í des/jan í vetur. Allir sem áhuga hafa á málefn-' um Mið-Ameríku eru hvattir til að mæta. £| Salvadornefndin. Hljómsveit í uppsiglingu Hljómsveitin skipuð 14 hljóðfæraleikurum. Fjórir útsetjarar ráðnir. Nú í maí mánuði eru notendum að berast rafmagnsreikningar frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Eru það fyrstu reikningarnir sem sendir eru út eftir breytinguna sem borgarstjórn samþykkti á gjaldskrá RR. Mörgum smán- cytendum bregður í brún þar sem reikningar þeirra hækka veru- lega við þessa breytingu. Einn les- enda Þjóðviljans sem nú er kom- inn á eftirlaun þarf að greiða 65% hærri upphæð en hann þurfti í janúar s.l. Að sögn talsmanns RR geta verið ýmsar ástæður fyrir þessari hækkun, ekki bara tilurð fast- eignagjaldsins, heldur einnig 12% hækkun á rafmagnsverði sem varð 1. janúar. Jafnframt gæti verði um að ræða hærri áætl- un vegna meiri notkunar á fyrra ári. Breyting sú sem samþykkt var í borgarstjórn f janúar felst í því að í stað lágmarksgjalds sem bara þeir þurftu að borga sem ekki notuðu fyrir meira en 1400 kr. er nú tekið upp fastagjald á hvern mæli að sömu upphæð, og KWh verðið lækkaði úr 3.88 í 3.60. kr. -SG Þetta verður 14 manna hljóm- sveit skipuð úrvalsmönnum. Hér koma bæði við sögu popparar og djassarar. Við erum búnir að gerh samning við fjóra útsetjara sem munu vinna með hljóm- sveitinni. Þetta sagði Ólafur Þórðarson starfsmaður tónlista- deildar útvarpsins sem hefur haft veg og vanda af stofnun nýrrar útvarpshljómsveitar. Ólafur sagði að í hljóm- sveitinni yrðu 8 blásarar, tveir á slagverki, gítarleikari, bassa- leikari og tveir hljómborðsleikar- ar. Gunnar Þórðarson, Þórir Baldursson, Stefán Stefánsson og Vilhjálmur Guðjónsson hefa ver- ið ráðnir til að útsetja fyrir hljóm- sveitina, og munu þeir einnig semja eitthvað af nýjum lögum fyrir hana. Ekki hefði verið ráð- inn neinn stjórnandi en útsetjarar munu hver um sig stjórna flutn- ingi sinna verka. Hljómsveitin kemur fram op- inberlega í fyrsta sinn á Lækjar- torgi á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. A dagskrá hljómsveitarinn- ar verða eingöngu íslensk lög. Útvarpinu verður heimilt að nota upptökur með hljómsveitinni hvenær sem er í sinni dagskrá án sérstaks aukagjalds. Allir með- limir hljómsveitarinnar eru laus- ráðnir og sagði Ólafur að líta mætti á þetta sem tilraun til að endurverkja útvarpshljómsveit sem ekki hefði verið til síðan á fimmta áratugnum. -SG. Alþingi Utveqsskóli á Höfn? Þrír þingmenn Austurlands flytja tillögu um nám ísjávarútvegsfrœðum á Höfn Þrír þingmenn Austurlands mennirnir eru Helgi Seljan, Jón hafa flutt þingsályktunartil- Kristjánsson og Egill Jónsson. I greinargerð er minnt á að rír þingmenn Austurlands hafa flutt þingsályktunartil- lögu um framhaldsnám í sjávar- útvegsfræðum á Höfn í Horna- firði. Gerir tillagan ráð fyrir því að ríkisstjórnin beiti sér fyrir at- hugun á þessu máli og er miðað við að námið geti þróast í fram- tíðinni yflr á háskólastig. Þing- nám tengt sjávarútveginum er ekki ýkja fjölbreytt eða fyrir- ferðarmikið í menntakerfi okkar. Á Höfn í Hornafirði er mikill áhugi fyrir einhvers konar fram- haldsnámi í sjávarútvegsfræðum, enda fjölbreytni í sjávarfeng ærin og aðstaða í fiskiðju mjög góð á okkar mælikvarða. Könnun á möguleikum slíks náms á Höfn er sjálfsögð að mati flutningsmanna sem vilja hreyfa málinu með til- lögugerðinni. -ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.