Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 12
_________TOLVUR_______ Tengsl við umheiminn Gagnaskiptanet Pósts og síma Fræðsla Hvar get ég lært á tölvu? Grunnskólar framhalds- skólar Samkvæmt upplýsingum Harðar Lárussonar í Skóla- rannsóknadeild menntamála- ráðuneytisins mun tölvukennsla nú hafin í flestum framhalds- skólum landsins. Árið 1983 var gert útboð vegna tölvukaupa í framhaldsskólana og í kjölfar þess fjölgaði mjög þeim skólum er bjóða upp á tölvunám. Víðast eru kennd forritunarmál eins og Basic og Pascal, fólk lærir að nota ýmis ritvinnslu- bókhalds- og reikniforrit o.s.frv. Tölvukennsla er enn ekki hafin í grunnskólunum - nema hvað til- raunakennsla hefur um skeið ver- ið í Melaskólanum. Að sögn Harðar stendur fyrir dyrum út- boð á tölvubúnaði í grunn- skólana. Námið yrði sennilega í fyrstu einvörðungu bundið efstu bekkjum þeirra. Ákveðið hefur verið að vinna sérstaklega hugbúnað fyrir skóla- kerfið og verður það gert í sam- ráði við Reiknistofnun Há- skólans og samtök kennara. Sem stendur háir einkum tölv- ufræðslu í skólunum að hentugan hugbúnað vantar og menntaðir kennarar fást ekki til starfa. bsk Þar eð menn hafa lengi beð- ið með eftirvæntingu eftir gagnaskiptaneti Pósts og síma, fór Þjóðviljinn á fund Jónasar Sigurðssonar tækni- fulltrúa og lagði fyrir hann nokkrar spurningar. Hvenær kemst netið í gagnið Jónas? Það er þegar komið í gagnið að því leyti að fólki gefst nú kostur á að reyna það næstu mánuðina hér innanlands. Og hvernig er þá unnt að tengj- ast því? Það má gera ýmist með fastri línu milli símstöðva og notenda eða með síma og mótaldi. Póstur og sími selur raunar mótöld og leigir til reynslu. Hvað er netið þéttriðið um landið sem stendur? Við höfum stöðvar í Reykjavík og Stykkishólmi, á ísafirði, Ak- ureyri, Blönduósi, Egilsstöðum og Hvolsvelli. Þær eru misstórar. Stjórnstöðin er í Reykjavík og hefur 140 línur, á Akureyri og Egilsstöðum eru 35 línur en 20 línur á hinum stöðunum. Seinna fjölgum við stöðvunum og línum eftir því sem þörf krefur. Hversu lengi stendur þetta reynslutímabil og hvaða löndum er áætlað að ísland tengist er fram líða stundir? Tengslum við önnur lönd verð- ur komið á vetrarbyrjun. Það er ekki ákveðið hvaða lönd verða fyrir valinu en menn hafa verið að tala um eitt Norðurlanda og Eng- land. Mér finnst ástæða til að vekja athygli á að með tengslum við tvö lönd erum við í raun kom- in í samband við miklu fleiri þ.e.a.s. öll lönd sem þessi tvö tengjast í gagnaskiptum. Fram- haldið verður svo bara í samræmi við eftirspurnina. Nú hefur oft verið rætt um að X-25 samskiptastaðall verði not- aður en gefst mönnum ekki kost- ur á fleiri stöðlum? Jú menn geta fengið hugbúnað til að vinna eftir svonefndu start- stop kerfi. Það má þá nota staðla eins og X-3 og X-28. En Jónas, það sem fólki liggur eflaust þyngst á hjarta - hvenær birtist gjaldskráin og hvernig verður hún? Það er búið að leggja fram til- lögur en ekkert frágengið ennþá. Þó má reikna með að stofngjaldið verði jöfnunargjald, þannig að menn borgi í upphafi hið sama hvar sem þeir eru niður komnir á landinu. I biii getur fólk þreifað sig áfram endurgjaldslaust - þ.e.a.s. meðan á reynslutíman- um stendur. -bsk. Allar geróir af á lager Eyðublöð á lager Bónusseðlar Launaseðlar Reikningar Reikningsyfirlit Límmiðar Að auki framleiðum við allar aðrar stærðir og gerðir tölvueyðublaða samkvæmt pöntun og prentum í eins mörgum litum og óskað er Prentsmiöjan Höföabakka 7 - Reykjavík - Sími 83366 Auglýsingastofa Gunnars

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.