Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI Bæjamtgerðir undir hnífnum Nú hafa íhaldsöflin í Hafnarfirði og Reykjavík sameinast um að hrinda Bæjarútgerðunum í (Dessum byggðarlögum endanlega fyrir ættern- isstapa. Vinnubrögðin sem brúkuð eru við þennan óþokkagjörning eru fáheyrð. Framkoma meirihlutans í Hafnarfirði í málefn- um BÚH hefur raunar verið rakin rækilega í Þjóðviljanum síðustu daga. í anda frjálshyggju- villunnar sem helríður nú Sjálfstæðisflokknum og aftaníossum þeirra ákvað meirihluti hafnfirsku bæjarstjórnarinnar að drepa BÚH. Fyrsti hluti leikritsins sem sett var á svið frammi fyrir bæjarbúum fólst í því að rægja og níða allt sem viðkom BÚH. Skuldir þess voru stórum ýktar í hverjum fjölmiðli sem meirihlutinn gat þrengt sér inná, en eignirnar vanmetnar úr hófi fram. Þetta sást best þegar togarinn Júní var seldur, en hann var áður eign BÚH. Matsverð togarans var, samkvæmt meirihluta bæjar- stjórnarinnar, rétt rúmar þrjátíu miljónir. Þegar hann var seldur, galt kaupandinn hins vegar næstum því fjörfalt hærri upphæð fyrir togar- ann, eða 115 miljónir. Annar þáttur leikritsins var svo að búa til „al- menningshlutafélag" um BÚH. Send voru bréf til bæjarbúa þar sem þeim var boðið að gerast hluthafar í fyrirtækinu. Væri fólkinu raunveru- lega annt um fyrirtækið, sögðu fulltrúar hins ósvinna meirihluta, þá munu þeir náttúrlega kaupa sér hluti í hinu nýja „almenningshlutafé- lagi“. En annað hvort eru fulltrúar meirihlutans skroppnir öllu heilbrigði skyni, eða þeir hafa talið að hafnfirskur almenningur sé það. Því auðvitað kaupir enginn heilvita maður hlut í fyrir- tæki sem meirihluti bæjarstjórnar er búinn að básúna út um allar þorpagrundir að sé í óleysanlegri kuldaflækju, og til engra góðra hluta brúklegt. Enda var uppskeran eins og til var sáð: fáir hlutir seldust. Þarmeð var allt tilbúið fyrir þriðja og síðasta þátt leikritsins: sölu BÚH til einkaaðila. Eftir miklar umræður í bæjarstjórninni og harða and- stöðu Alþýðubandalagsins er nú búið að heim- ila bæjarstjóra að ganga til samninga um sölu fyrirtækisins. Allt bendir því til þess að á annað hundrað störf kunni að verða glatkistunni að bráð. í Reykjavík stendur Davíð Oddsson borgar- stjóri í svipuðum skollaleik. Hann hefur ákveðið að leggja Bæjarútgerð Reykjavíkur í hendur ís- birninum, fjölskyldufyrirtækisins í eigu nafntogaðra Sjálfstæðismanna. Lýðræðisást borgarstjóra er raunar með þeim ólíkindum, að hann tók ákvörðun um að hefja undirbúning samrunans án þess að láta nokkurn mann vita. Borgarráð, borgarstjórn eða útgerðarráð vissu ekkert um ætlan Davíðs. Framferði hans er ein- faldlega einræði af óþolandi tegund. Það er heldur tæpast tilviljun að það skuli vera vinir Davíðs í ísbirninum sem eiga að fá að leika sér með BÚR. ísbjörninn á í miklum fjár- hagserfiðleikum um þessar mundir, meðal ann- ars vegna dollaralána einsog Þjóðviljinn hefur flutt fréttir af. Til að bjarga þessari burðarstoð reykvíska íhaldsins hefur borgarstjóri nú ákveð- ið upp á sitt eindæmi að fórna fyrirtæki í félags- legum rekstri, sem um áratugaskeið hefur tryggt atvinnuöryggi í fiskiðnaði höfuðborgar- innar. Málið er einfaldlega það, að Davíð borgar- stjóri er að hysja buxurnar upp um einkafram- takið í reykvískri útgerð með því að láta það fá Bæjarútgerð Reykjavíkur upp í hendur. Krafan er kauptrygging Þjóðviljinn hefur bent á það rækilega, að til- boð VSI felur ekki í sér neina haldbæra kauptryggingu. Það hefur verið höfuðkrafa verkalýðssamtakanna að kauptrygging í ein- hverju nægilega styrku formi sé forsenda samninga. Á þingi Alþýðusambands íslands seint á síðasta ári var þessi krafa samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta; Tilboð VSÍ í núverandi formi er óaðgengilegt. Á grundvelli þess er ekki hægt að gera samninga, nema ákvæði um kauptryggingu komi til. Allt annað yrði einungis til að staðfesta kauprán síðustu ára, - festa í sessi rýrnun kaupmáttar. Þjóðviljinn telur þess vegna, að því aðeins sé unnt að ganga til samninga á grundvelli tilboðs VSÍ að krafan um kauptryggingu fái forgang. Ákvæði um kauptryggingu þarf ekki aðeins að vera vatns- og höggþétt, heldur verður það að vera svo einfalt og skýrt, að almenningur skilji það til fullnustu. Krafan er kauptrygging! -ÖS KUPPT OG SKORIÐ Það er nú að verða fastur liður með nokkurra mánaða millibili að Sjálfstæðisflokkurinn rýkur upp á nef sér og afþví þeir eru búnir að fá leiða á Framsóknar- mönnum, sem nenna ekki einu sinni að hafa fyrir því að hósta gegn íhaldinu lengur, þá ráðast þeir hver á annan. Yfirleitt er gangurinn sá, að AI- bert Guðmundsson kemur með yfirlýsingu: ef þetta og hitt gerist ekki, þá er ég hættur! Hins vegar hefur orðið minna úr efndunum einsog kunnugt er og það er hvorki boðað til afsagnar eða kosninga í kjölfar yfirlýsinga Al- berts Guðmundssonar. Þú gerir ekki sama hlutinn tvisvar í pólitík stendur einhvers staðar og Albert hefur orðið fyrir barðinu á því. Þegar nýjustu yfirlýsingarnar eru birtar, glotta samþingmenn hans í annað og segja hver við annann: Það er ekkert að marka karlinn, þetta er bara í nösunum. Þorsteinn að verða formaður? Þorsteinn Pálsson, sem hefur látið sér nægja að vera kurteis og elskulegur blaðafulltrúi Sjálf- stæðisflokksins einsog Styrmir spáði fyrir honum um árið, lætur að sér kveða í síðdegisblaðinu í gær. Um Albert ráðherra sinn og andstöðu hans við frumvörp til lausnar húsnæðisvandanum segir Þorsteinn í gær: „Þó hann vilji koma í veg fyrir lausn á vanda húsbyggjenda dugir þetta at- kvæði hans ekki til.“ Það skipti engu máli hvort Albert sé með eða á móti tillögum þeirra Stein- gríms, - einhver annar muni þá leggja frumvörpin fram. Engu er líkara en Þorsteinn ætli að fara að taka að sér for- mennsku, því svona mannalegar yfirlýsingar hafa ekki heyrst frá honum síðan hann talaði beint fyrir Vinnuveitendasambandið og sýndi þjóðinni línuritin. Snýta rauðu Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra og fyrrverandi tilvon- andi formaður Sjálfstæðisflokks- ins, einsog minnisgóðir Þjóðvilj- alesendur vita, er ævareiður vegna þess að sölufrumvarpið hans um Sementsverksmiðjuna var fellt á jöfnu í efri deild alþing- is. Þar eru þau ekki spöruð, þau hin penu orðin: „Ég vil sem fæst orð hafa um slík óheilindi eins og ég tek á þar. Og aumingjaskap auðvitað og þverbrest í mínum eigin flokki, það er ekki hægt að afsaka," hefur DV eftir ráðherr- anum í gær. Um Valdimar Indriðason al- þingismann Sjálfstæðisflokksins segir Sverrir: „Ég ætla ekki að tala um slíka uppákomu og kjark sem svona menn sýna og verða Alþingi til skammar". Og undir lokin á þessari frétt er haft eftir ráðherranum: „Og hætt er við að einhverjir fái að snýta rauðu út af þessu máli“. Það er aldeilis boðið uppá skemmtiat- riðin á kærleiksheimilinu. Ráðherradoði þingmanna verulegur Á alþingi gengur allt í basli og bægslagangi. Stjórnarþingmenn- irnir eru orðnir mjög þreyttir á yfirlýsingum og blaðri ráðherr- anna í þinginu og í eigin hóp. Þeir telja að ráðherrarnir séu að fara með fylgi stjórnarflokkanna til andskotans, enda muni fæstir þeirra eiga uppá pallborðið í næstu kosningum. Jafnvel ekki langa lengur. Til viðbótar bætist óánægja þeirra með undirbúning stjórn- arfrumvarpa og viðamikilla mála sem ríkisstjórnin leggur fyrir þingið. Auðvitað er Þorsteinn Pálsson og Eimreiðarklíkan að setja Albert í bobba með því að hafa í VSÍ-tilboðinu óútfyllta ávísun sem talin er geta kostað yfir miljarð. Það er verið að þrengja að Albert í pólitíkinni. Steingrími Hermanssyni og kó er ekkert á móti skapi að lækka rost- ann í Berta,- og tekur þátt í aðfö- rinni. Þegar svo gengið er til frumvarpssmíða sem kosta aukin fjárútlát þegar á þessu ári, er Al- bert jafnvel ekki hafður með í ráðum. Það er verið að storka honum með velþóknun þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem öfundast út í Albert vegna vallarins á honum. Við þetta bætist sá ráðherra- doði sem lýsir sér í hneykslun, vanlætingu og jáfnvel fjandskap hins almenna þingmanns stjórn- arinnar gagnvart ráðherra- genginu. Þeim er ósárt um ráðherrana. Kosningatal Þingmennirnir eru hættir að tala um að kosningar í haust séu háðar úrslitum samráðsins við VSÍ og verkalýðshreyfinguna. Nú eru þeir farnir að tala um að pirringurinn og ágreiningurinn í fyrsta lagi innan Sjálfstæðis- flokksins og í öðru lagi milli flokkanna muni leiða til kosninga í haust. Það sé best að vaða í þetta strax, hvorugur flokkanna „græði“ lengur á áframhaldandi stjórnarsamvinnu. Svo mörg mál liggi í rugli í nefndum þingsins og svo mörg eigi eftir að afgreiða að tæpast sé stætt á að lengja líf stjórnarinnar mun lengur, enda muni fleiri mál verða til ágrein- ings og óánægju í haust. Hins vegar hafa þeir fyrir satt niðri í þingi, að tveir nefndarformenn stjórnarinnar hafi unnið sæmi- lega, þeir Stefán Valgeirsson og Egill Jónsson. Aðrir hafi beðið eftir ráðherrum - og séu slegnir doða. -«g DIOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljósmyndir: Einar ólason, Einar Karlsson. Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir, Hreiðar Sigtryggsson. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmœður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðvlljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð ó mónuðl: 330 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ' Föstudagur 31. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.