Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 15
TOLVUR Tölvurnar rabba! Fræösla HVAR GET ÉG LÆRT r A TÖLVU? Námskeiö Reiknistofnunar Fyrri hluta júnímánaðar gengst Reiknistofnun Háskólans fyrir eftirtöldum námskeiðum: 1. Turbo-Pascal á IBM- einkatölvum 4.-11. júní. Menn læra að skrifa útreiknings- og skráarvinnslu- forrit í Turbo-Pascal. 2. IFPS áætlanakerfið 3.-4. júní. Þetta er sérhæft kerfi ætlað fyrirfjárhagsáætlanir, arðsem- isreikninga og þess háttar. IFPS er á VAX-tölvum Reiknistofnunar en einnig fáanlegt fyrir IBM Pc. 3. UNIX-stýrikerfið 10.-14. júní. Þátttakendur læra m.a. að nota UNIX-skipanir og C- hugsunarhátt við tölvuvinnu; skilyrði er að þeir hafi nokkra reynslu í tölvunotkun og for- ritun. Frekari upplýsingar um nám- skeiðin geta menn fengið í Frétta- bréfi Reiknistofnunarnr. 11. Þau hefjast öll auglýsta daga kl. 18.15 í sumarhúsi Reiknistofnunar við Hjarðarhaga. bsk Tölvufræðsla fyrir fatlaöa Þjóðviljinn hafði samband við Arnþór Helgason á Blindrabókasafninu til að fá upplýsingar um tölvufræðslu fyrir fatlaða. Af beinu skóla- námi er það helst að segja að í sérdeild Öskjuhlíðarskólans hafa tölvur verið notaðar um skeið við menntun fjölfatlaðra nemenda. Rauði krossinn, Öryrkja- bandalag íslands og fleiri standa svo að Starfsþjálfun fatlaðra. Frá því í janúar 1983 hafa þar verið endurhæfðir í þjónustugreinum, menn sem fatlast hafa af völdum slysa eða sjúkdóma. Nemendum er m.a. kennt á tölvur. Ekki er unnt að kenna nema einum hópi í einu og verður næsti hópur tek- inn inn í skólann árið 1986. Upp- lýsingar um námið má m.a. fá hjá Hólmfríði Gunnarsdóttur er starfar hjá Rauða krossinum. En ýmislegt er að gerast og hef- ur gerst sem tengist tölvufræðslu fatlaðra án þess að um beint skólanám sé að ræða. Fyrir frum- kvæði Safírs-hópsins þ.e. Sam- taka aðstandenda fatlaðra í Reykjaneskjördæmi, hefur þannig verið komið á laggirnar nefnd til að undirbúa stofnun Tölvumiðstöðvar fatlaðra. Hún verður eins konar gagnabanki eða leiðbeiningarstöð sem stuðl- ar að gerð vélbúnaðar og hug- búnaðar fyrir fatlaða. Blindrafélagið sér um að út- vega tæki sem nýst geta blindum og sjónskertum við tölvuvinnslu, jafnt jaðartæki sem sjálfstæðan tölvubúnað. Nú er og verið að vinna að ritvinnslukerfi fyrir blinda og sjónskerta sem á að gera þeim kleift að standa jafnfætis öðrum við skólanám. bsk „Easylink - nýjungin felst í því að nú er ekki lengur nauðsynlegt að menn fái sér telextæki eða hafi upp á e-m sem á slíkt tæki, vilji þeir komast í sambandi við telex- netið. Eigi menn tölvu, þurfa þeir bara að tengja hana með modem- tæki við símann, afla sér áskriftar að Easylink, verða sér úti um samskiptahugbúnað aö hringja til Easylinktölvunnar í London. Tölvurnar tvær ræða þá málin uns upplýsingar, sem óskað er eftir, liggja fyrir eða skilaboð og pant- anir komin á sinn stað.“ Þannig fórust Guðmundi Ólafssyni hjá Símtækni s.f. orð þegar blaðið leitaði hjá honum fregna af tölvu- póstþjónustu Easylink sem ís- lendingum gefst nú kostur á. Öíl fyrirtæki og einstaklingar sem vilja afla upplýsinga, senda skilaboð eða leggja fram pantanir um telexkerfið geta hagnýtt sér þjónustu Easylink. Á fslandi hef- ur verið dýrara en víðast annars staðar að nota telexkerfið þar eð innflutningsgjöld á telextækjum eru há, sömuleiðis afnota- og rekstrargjöld. Easylinkþjónustan er miklum mun ódýrari en venjuleg telex- þjónusta og skiptir þá engu hvort miðað er við að menn eigi sín tel- extæki sjálfir eða noti svonefnt símatelex. Tölvuþjónustan verð- ur jafnvel ódýrari þó gert sé ráð fyrir að menn eigi ekki tölvu, og kaupi hana sérstaklega til að komast í sambandi við telexnet- ið, sbr. eftirfarandi töflu: Telexgjöld (Gjaldskrá P&S 1/8 83) 1. Stofngjöld Númer í telexstöð 19.170kr. bæjarlína 4.763. kr telextæki 160-220.000 kr (rafeindgerð) 2. Afnotagjöld númer í telexstöð + bæjarlína á mán. 2.745. kr 3. Leiga af gömlu telextæki frá P&S Á mánuði Easylinkgjöld 1. Stofngjöld Áskrift að Easylink 30£ = Tölvafrá 50 hugbúnaður + modem frá 2. Afnotagjöld Ámán. 12£= 603. kr. „En Easylink sparar ekki að- eins fé, hún sparar og tíma,“ sagði Guðmundur, „ritvinnslu- forrit auðvelda t.d. alla vinnu“. Á skýringarmyndinni kemur fram hvernig Easylinkþjónustan virkar. Sem stendur tengist mo- demtækið Easylinktölvunni um símnetið en jafnskjótt og tölvu- netið verður komið í gagnið hér- lendis munu samskiptin verða um það og lækkar þá kostnaður veru- lega. bsk Ný tölva sem byggir á nýjustu tækni Þá er hún komin nýja SONY tölvan HiT 3ET meö nýja tölvustaðlinum rm sem flestir helstu rafeindaframleiöendur heims hafa sameinast um ivieöal helstu eiginlelka: RAM-minni 64 K, stækkanleg strax f 128 K • ROM-minni 32 K, stækkanleg strax í 64 K Diskettustöö, nú þegar fáanleg 500 K • Hljóö: Átta áttundir, þrír tóngjafar ( ‘ „ Frábær teiknigeta 16 litir • Fullkomið alvöru lyklaborö Innbyggður tengibúnaður fyrir: mP Diskettustöö Prentara Tvö stýripinna tengi (fáanlegur þráðlaus stýriþinni) Tvö tengi fyrir forritakubba Þrjár tegundir skjátengja: Sjónvarþ, myndband og RGB,. segulbandstengi viö venjulegt kassettutæki sendibraöi 24 Baud Þrjú fjölbæf heimilisforrit innbyggö t.d. skrá yfir: símanúmer, heimilisföng, nafnaskrá og minnisatriði þ.e. reikninga, endurnýjun í haþþdrætti eöa annaö í þeim dúr (dagbók) og síðast en ekki síst gífurlegt framboö á forritum bæöi í kubbum og/eöa kassettum. -c SOIMY HíTBiT, tölvan sem vex upp meö þér. Kynningarverð aöeins kr. 12.800,00 stgr. 'JAPIS hf BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133 HAFNARGATA 38 KEFLAVfK SfMI 92-3883 4.807. kr. 1.508. kr. -100.000 kr. 10.000. kr. Nýjung Hugbúnaður 7 vélbúnaður Komnar eru á markaðinn ýmsar nýjungar frá Hugbúnaði hf. Meðal þeirra eru eftirtaldar: 1. Textaleitarforritið Hugleit sem auðveldar leit og meðhöndl- un á upplýsingum úr venjulegum textaskrám sem útbúnar eru í skjárita eins og Hugsýn. 2. Forritið Hughnit. Aðgerðir þess eru að sinni fyrst og fremst bundnar við gatnagerð og lóða- mælingar. Þar eru þrjár grunn- einingar: punktar, línur og hring- ir og oftast einvörðungu reiknað í tvívídd. 3. Hugriti á PDP-tölvur. Þeir sem vilja kaupa þessa nýju útgáfu af Hugrita fá hana með 10% af- slætti, panti þeir fyrir 20. júní. bsk. Fræðsla Hvar get ég lært á tölvu? Einkaskólar Undanfarin ár hafa ýmsir einkaskólar staðið fyrir tölvu- námskeiðum fyrir byrjendur og þá sem lengraeru komnir, svo og sérstöku starfsnámi þar sem fólk er beinlínis þjálfað til ákveðinna tölvustarfa í atvinnulífinu, t.d. ritvinnslu. Dálítið er erfitt að henda reiður á hversu margir einkaskólar eru starfandi hverju sinni, en eftir því sem blaðið komst næst eru þeir nú fjórir þ.e.a.s. Tölvuskólinn Framsýn, Tölvufræðslan, Tölvufræðsla Stjórnunarfélagsins og Tölvu- mennt sf. bsk Nýjung Ericsson einka- og feröatölvur Kristján Skagfjörð býður um þessar mundir til sölu Erics- son-tölvur af ýmsum gerðum. Um er að ræða einkatölvur, sambærilegar við IBM og ferðatölvur sem komu á mark- aðinn í Hannover fyrir u.þ.b. mánuði. Einaktölvurnar eru fáanlegar jafnt með tveimur disklinga- drifum sem 10 mb hörðum diski. Minni þeirra er allt að 640 k og stýrikerfið MSDOS. Önnur stýri- kerfi standa og til boða. Ferðatölvurnar er 7.6 kg að þyngd og með óvanalegum stór- um skjá - þ.e.a.s. 12 tommu - miðað við það sem venjan er með slíkar tölvur. Hægt er að kaupa þær með einu disklingadrifi en stækkunarmöguleikar eru ýmsir. Stýrikerfið er MSDOS eins og á einkatölvunum. bsk. ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.