Þjóðviljinn - 31.05.1985, Qupperneq 21
Kjarvalsstaðir
Fimm sýníngar
opnaðar
á morgun
Listmálarafélagið, Myriam Bat-
Yosef, Örn Ingi, Tryggvi Árnason og
tillögur um framtíðarskipan Arnar-
Nú er búiö að fjarlæga Gler-
brot ’85 af göngum Kjarvals-
staða að því frátöldu að flug-
drekinn hans Leifs Breiðfjörðs
hangir enn yfir gestum kaff-
istofunnar. I staðinn koma
fjórar nýjar sýningar og verða
þær allar oþnaðar á morgun
kl. 14.
Örn Ingi og færeyski kýrhausinn sem
slapp í gegnum tollinn þrátt fyrir ótta
við gin- og klaufaveiki.
Sú fímmta þjófstartar að vísu
kl. 16 í dag. Þá opnar Davíð
Oddsson borgarstjóri sýningu á
sex tillögum um framtíðarskipan
Arnarhóls. Verðlaun verða veitt
þeirri tillögu sem dómnefnd
skipuð af borgarstjórn og Seðla-
banka telur besta og væntanlega
hefjast bráðlega framkvæmdir á
hólnum í samræmi við hana.
í vestursal Kjarvalsstaða sýna
18 félagar í Listmálarafélaginu
verk sín. Valtýr Pétursson sagði
blaðamanni að þetta væri þriðja
sýning félagsmanna síðan félagið
var stofnað árið 1981. Þá sýndist
mörgum að málverkið væri að
Iognast út af, allir komnir í grafík
og skúlptúra oþh. Síðan hefði að
vísu hlaupið mikill fjörkippur á
málaralistina en félagið héldi
samt áfram að vera til.
í Listmálarafélaginu eru fé-
lagar 24. Átján þeirra sýna að
þessu sinni og eru þrír þeirra nýir,
þeir Benedikt Gunnarsson,
Gunnlaugur St. Gíslason og Pét-
ur Már Pétursson. Aðrir sem
sýna eru Bragi Ásgeirsson, Elías
B. Halldórsson, Einar Hákonar-
son, Einar G. Baldvinsson, Einar
Þoríáksson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Hafsteinn Austmann,
Hrólfur Sigurðsson, Jóhannes
Geir, Jóhannes Jóhannesson,
Kristján Davíðsson, Sigurður
Sigurðsson, Svavar Guðnason,
Steinþór Sigursson og Valtýr Pét-
ursson.
Atriði
úr erfðaskrá
Á ganginum fyrir framan
listmálarana gefur að líta verk
eftir Myriam Bat-Yosef sem er
frá ísrael en er reyndar íslenskur
ríkisborgari og heitir líka María
Jósefsdóttir. Hún kom fyrst hing-
að til lands árið 1956 og var þá gift
Erró. Hún hefur haldið fjölda
einkasýninga út um allan heim og
þetta er fimmta einkasýning
Þótt málverkið hafi rétt úr kútnum heldur Listmálarafélagið ótrautt áfram. Myndir: Valdís.
hennar hér á landi. Einnig hefur
hún framið gjörninga og tekið
þátt í samsýningum. Hún er nú
búsett í París.
Á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um eru um 100 verk og sýna þau
þverskurð af list Maríu. Þar eru
silkiþrykkt veggteppi sem eru
þeirrar náttúru að þau má þvo án
þess litirnir dofni, málaðir hlutir
og ljósmyndir af gjörningum. í
sýningarskrá segist listakonan
hafa málað erfðaskrá sína og sent
lögfræðingi en nokkur atriði úr
henni eru á sýningunni.
í kaffistofunni verða Arnar-
hólstillögurnar, en í austursaln-
um er Örn Ingi fjöllistamaður frá
Akureyri búinn að stilla og
hengja upp skúlptúra af ýmsu
tagi. Þar eru 42 verk stór og smá
úr margskonar efni. Uppstopp-
aðir fuglar, gler, j árn, tré, hrossa-
húðir, kýrhaus úr Færeyjum,
haus af grænlensku sauðnauti og
gróður. Þar er einnig brúðu-
leikhús fyrir lifandi fólk og margt
fleira. Sýninguna nefnir Örn Ingi
Sviðsmyndir í tilveru lífs og
dauða.
Myndlist
°9
tölvur
í austursalnum hefur Tryggvi
Árnason hengt upp ástarjátningu
til æskustöðva sinna og nefnir
Kæra Reykjavík. Þar gefur að líta
grafí'kmyndir, silkiþrykk og
mezzótintu. Stærsti hlutinn eru
myndir frá Reykjavík af ýmsum
húsum í gamla bænum. Önnur
deild eru stúdíur um kvenlíkama
gerðar með mezzótintu, sú þriðja
geymir „hálfgert flipp“ eins og
Tryggvi nefnir þær myndir og
loks verður myndröð sem sýnir
hvernig silkiþrykkmynd verður
til.
Tn'ggvi hóf myndlistarnám við
MHI 39 ára gamall og lauk því
árið 1983. Sama ár tók hann þátt í
sýningu sem nefndist Ný grafík
en þetta er fyrsta einkasýning
hans. Meðfram myndlistinni rek-
urTryggvi tölvuþjónustu en hann
var einn sá fyrsti sem fór út í slíkt
hér á landi.
Sýningarnar að Kjarvalsstöð-
Myriam Bat-Yosef, öðru nafni María
Jósefsdóttir.
um verða opnaðar á morgun,
laugardag, kl. 14 og verða opnar
daglega kl. 14-22 fram til 17. júní.
-ÞH
Elvar Guðni myndlistarmaður frá Stokkseyri. Mynd: E.ÓI.
Elvar Guðni sýnir á Selfossi
Arás á Rokk-á-rás
Grikklands-
vinir funda
Grikklandsvinafélagið Hel-
las sem stofnað var í vetur
heldur sinn þriðja fund í kvöld,
föstudag, í Oddfellowhúsinu
við Vonarstræti (Tjarnarbúð)
og hefsthannkl. 20.30.
Á fundinum flytur Eyjólfur
Kjalar Emilsson háskólakennari
fyrirlestur um upphaf grískrar
heimspeki. Síðan verður sýnd
stutt vídeómynd um Aþenu og
helstu sögustaði í nágrenni henn-
ar, svo sem Delfí, Mýkenu, Epí-
davros og eyjar í nágrenni
Aþenu. Myndinni fylgir enskur
skýringartexti. Loks flytja leikar-
arnir Karl Ágúst Úlfsson, María
Sigurðardóttir, Alda Amardóttir
og Rósa Þórisdóttir atriði úr gam-
anleik Aristófanesar, Þingkon-
unum, sem Kristján Árnason
hefur þýtt. Á milli atriða verður
leikin grísk tónlist af hljómp-
lötum og snældum.
-ÞH
Á morgun, laugardag, opnar
Elvar Guðni málverkasýningu í
Safnahúsi Selfoss. Á sýningunni
verða nær eingöngu vatnslita-
myndir sem málaðar eru á síðustu
tveimur árum og þess má geta að
sýningarskráin verður árituð
dúkrista með sjálfsmynd lista-
mannsins.
Þetta er ellefta einkasýning El-
vars Guðna en hann hefur áður
sýnt í heimabæ sínum, Stokks-
eyri, á Selfossi, í Hveragerði,
Reykjavík og Keflavík. Sýningin
verður opin um helgar frá kl. 14-
22 og virka daga kl. 17-22 fram til
9. júní.
ÞH
í kvöld verða haldnir stór-
hljómleikar í Tónabæ undir
merkinu Rokkárás og standa þeir
frá kl. 21-2. Þar koma fram þrjár
helstu rokksveitir fslands um
þessar mundir, Drýsill, Fist og
Gypsy. í frétt frá hljómsveitun-
um segir svo um tilurð og tilgang
tónleikanna:
íslensk rokktónlist hefur verið
í gífurlegum uppgangi undan-
fama mánuði og eru tónleikarnir
einstakt tækifæri til að sjá þessar
þrjár sveitir á einu bretti. Drýsill
hefur nýlega gefið út stóra plötu
með fmmsömdu efni og hefur
Sumarstarfsemi Árbæjarsafns
hefst núna um helgina. Að vanda
verða seldar veitingar í Dillons-
húsi en nú er lokið viðgerð á því
platan fengið mjög góðar við-
tökur. Gypsy vann fyrir stuttu
Músiktilraunir og er eflaust besta
„unga“ hljómsveitin í dag. Fist er
og hefur verið að skapa sér nafn
fyrir gífurlega vel flutt kaflaskipt
rokk. En þessir tónleikar eru
ekki bara einstakt tækifæri: Með
nafninu Rokkárás (sem lesa má á
tvo vegu!) er vakin athygli á lé-
legu tónlistarvali á rás tvö. Hing-
að til hefur rokktónlist verið úti í
kuldanum þrátt fyrir háværar
raddir um betrumbót. En nú er
komið að því að sýna viljann í
verki og mæta á Rokkarás.
sem staðið hefur yfir frá 1981.
Safnið verður opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.30-18.
-ÞH
Árbœjarsafn
opnað
Föstudagur 31. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 2Í