Þjóðviljinn - 04.08.1985, Síða 6
Alþjóðlegur
„mónókúltúr"
og óstralskur fjölmiðlakóngur
íslenskur menningarvlnur gerist boðberi eins öflugasta fjölmiðlaveldis í heimi. Eigandi
Sky Channel er veikur fyrir sóðalegum hasarblöðum og smýgur yfir landamœri að vild.
Ekki alis fyrir löngu skrifaði
Jón Óttar Ragnarsson dósent
grein í DV. Það er í sjálfu sér
engin frétt því maðurinn er einn
af afkastameiri kjallaraskríbent-
um og umræðuhestum landsins. I
þessari tilteknu grein gerði hann
að umræðuefni hættu sem hann
telur að steðji að mcnningu Vest-
urlanda. Þar er margt sagt sem er
bæði satt og rétt og við skulum
bera niður í greininni á nokkrum
stöðum.
„Furðulegur faraldur er í upp-
siglingu á Vesturlöndum. Bendir
ýmislegt til að hann muni, áður en
yfir lýkur, leggja menningu þessa
heimshlutaað velli. Pessi faraldur
kallast „andleg stöðlun “ og birtist
m.a. í því að allir staðir verða
smám saman eins og allt fólk fer
að hugsa eins, tala eins og dreyma
eins. “
Öll þessi ósköp eru því að
kenna að markaðslögmálunum
er leyft að valta yfir þjóðfélögin
óheft. „Virðist þvífátt geta aftrað
því, að með tíð og tíma verði al-
þjóðleg lágmarksmenning, eða
mónókúltúr, orðin ríkjandi afl...
Afleiðingin verður því ekki ein-
asta stöðlun og gleðileysi, heldur
að lokum aigjör stöðnun. A því
lokastigi vestrœnnar menningar
rœður lágmarksmenningin, món-
ókúltúrinn, ríkjum ein og
óskipt. “
Rómantík
eða dauði
Lokaorð Jóns Óttars eru þessi
og ætti hver sósíalisti að geta
skrifað kinnroðalaust undir flest
sem þar stendur:
„Svo ofurseld eru Vesturlönd
orðin markaðslögmálunum að
þeir skapandi standa œ verr að
vígi gagnvart hinum hjólsmurðu
kerfisþrœlum markaðsþjóðfé-
lagsins. Einasta vonin - síðasta
vonin - eru því mótþróafullir ein-
staklingar sem kjósa hugvit og
rómantík fram yfir hagfræðilegan
stórasannleik og andlegan dauða.
Vonandi kemur sá dagur að mað-
urinn hœttir að þjóna markaðin-
um og lœtur hann þess ístað þjóna
sér. En það gerir hann aðeins með
því að hafna frjálshyggjunni og
taka upp frjálslynda stjórnar-
hœtti. Fram að þeim tíma mun
faraldurinn halda áfram að fœra
út kvíarnar. “
Jón og
himintunglin
Það var nú það og skyldi engan
undra að þessi orð hrjóti úr
penna Jóns Óttars Ragnarssonar
sem er þekktur fyrir áhuga sinn
og afskipti af íslenskri menningu,
eins og hann á kyn til.
En tveimur dögum eftir að DV
birti þessa grein dósentsins kom
frétt í Morgunblaðinu um að höf-
undur þeirra orða sem hér hafa
verið tíunduð hafi, ásamt konu
sinni og tvennum vinahjónum,
stofnað félag sem ætlar sér að
dreifa til íslenskra sjónvarps-
eigenda efni frá breska sjón-
varpsgervihnettinum Sky Chann-
el. Úr þeim hnetti munu fyrir til-
stilli Jóns Óttars streyma inn í
stofu íslendinga kvikmyndir, af-
þreyingarþættir og tónlistar-
skonrokk, að sjálfsögðu í bland
við auglýsingar, tíu tíma á dag.
Gjaldinu fyrir þennan enska
menningarstraum verður stillt í
hóf, það á að verða lægra en á-
skrift að dagblaði.
Útsendingar Sky Channel hóf-
ust fyrir þremur árum og í fyrra
höfðu 106 kapalkerfi í níu
löndum í Evrópu keypt dreifing-
arréttinn á efni hans og náði það
þá til 1.630.000 evrópskra heim-
ila. Vísast hefur þeim fjölgað síð-
an því kannanir sýna að hnöttu-
rinn nýtur vaxandi vinsælda.
Ástralskur
athafnamaður
Sky Channel er einn angi af
veldi ástralska fjölmiðlakóngsins
Rupert Murdochs og hér á eftir er
ætlunin að skoða umsvif hans
sem mörgum er farið að standa
stuggur af.
Keith Rupert Murdoch er 54
ára Ástralíumaður sem hóf af-
skipti sín af fjölmiðlun þegar
hann réðist sem blaðamaður við
Lundúnablaðið Daily Express að
loknu námi við Oxford. Áð föður
sínum látnum sneri hann heim til
Ástralíu og tók við fjölskyldufyr-
irtækinu sem var rekstur tveggja
lítilla dagblaða. Hann efldi þau
og styrkti og fór svo að kaupa upp
önnur áströlsk blöð. Nú á hann
27 blöð og tímarit þar í álfu auk
tveggja sjónvarpsstöðva.
Árið 1969 birtist hann aftur í
Englandi og nú í þeim erinda-
gjörðum að kaupa helgarblaðið
News ofthe World. Það er hasar-
blað af ódýrustu sort og banda-
ríska vikuritið Time kallar það „a
Sunday scandal sheet". Stuttu
síðar keypti hann síðdegisblaðið
Sun og jók útbreiðslu þess á
þremur árum úr 800 þúsund ein-
tökum á dag upp í yfir 3 miljónir.
Nú er Sun gefið út í rúmlega 4
miljónum eintaka á dag og er
stærsta blað í heimi sem gefið er
út á ensku.
Mesta athygli vakti þó þegar
Murdoch keypti virðulegasta
blað heims, The Times of
London, ásamt með helgarút-
gáfu þess, The Sunday Times.
Þessi blöð höfðu rambað á barmi
gjaldþrots og staðið í kostnaðar-
sömu stríði við prentara vegna
tæknibreytinga.
Blaðaveldi Murdochs er eilítið
undarlega samansett. Annars
vegar eru æpandi hasarblöð af
ódýrustu sort, svo sem New York
Post og Sun, hins vegar virðuleg
blöð á borð við The Times og
jafnvel til þess að gera róttæk
blöð eins og Village Voice í New
York en það á sér fortíð sem eitt
helsta málgagn bandarísku hipp-
anna.
Því er haldið fram að raunveru-
legur áhugi Murdochs sé að gefa
út hasarblöð með stríðsletri þar
sem blóð og rógur drýpur af
hverri síðu. Hins vegar veit hann
að til þess að afla sér álits í fínni
kreðsum þar sem peningarnir eru
þarf hann að geta skreytt sig með
nokkrum virðulegum blómum.
Þess vegna vildi hann kaupa The
Times.
Fjórða
stórveldið
Árið 1973 hélt Murdoch svo
innreið sína í Bandaríkin. Þar fór
hann strax að kaupa blöð. Hann á
nú fjölda dagblaða í New York
(New York Post, Village Voice),
Boston (Boston Herald), Chic-
ago (Sun-Times) og víðar auk í
það minnsta 13 tímarita, þám.
('tar sem gefið er út í New York.
í vor komst Murdoch aftur í
heimsfréttirnar vegna umsvifa
sinna í Bandaríkjunum. Þá gerði
hann sér lítið fyrir og keypti
helming hlutafjár í kvikmynda-
fyrirtækinu 20th Century-Fox
ásamt með sex sjónvarpsstöðv-
um. Stöðvarnar tilheyra keðju
óháðra stöðva sem tengjast sam-
an í fyrirtækinu Metromedia en
það er stærsta sjónvarpskeðja í
Bandaríkjunum að risunum
þremur, ABC, NBC og CBS, frá-
töldum. Murdoch hefur látið þau
orð falla að hann stefni að því að
gera Metromedia að fjórða stór-
veldinu á bandarískum sjón-
varpsmarkaði, þe. að skapa
keðju sem nær um allt landið.
Samanlagt telur heimsveldi
Murdochs yfir 80 blöð og tímarit
ásamt með nokkrum sjónvarps-
stöðvum í þremur heimsálfum en
fram til þessa hefur hann haldið
sig við enskumælandi lönd. Og
meira að segja lesendur Þjóðvilj-
ans komast daglega í kynni við
eínn angann af þessu stórveldi því
í vetur efndi enska fréttastofan
Reuters til hlutafjárútboðs og
meðal þeirra sem sýndu því
áhuga var News International,
fyrirtæki sem Murdoch á að öllu
leyti, en það keypti 9,5% hluta-
fjár í Reuters.
Tvenns konar
blöð
Eigendur blaða eru með ýms-
um hætti og hafa mismikil af-
skipti af ritstjórnarstefnu þeirra
blaða sem þeir gefa út. Fyrir-
myndin að hinu rétta sambandi
útgefanda og ritstjórnar er sú að
útgefandi ráði þann ritstjóra sem
honum hugnast best en láti hann
síðan í friði við mótun stefnu og
mannaráðningar á ritstjórn.
Roy Thomson sem gaf út The
Times í aldarfjórðung er gott
dæmi um þessa tegund af útgef-
anda. Hann bar alla tíð lítið
spjald í vasa sínum og sýndi það
öllum þeim sem reyndu með ein-
hverjum hætti að hafa áhrif á rit-
stjórnarstefnu blaða sem hann
gaf út. Þar stóð m.a.:
„Ég lýsi því yfir í fyllstu ein-
lœgni að enginn, hvorki einstak-
lingur né hópur, getur keypt eða
með öðrum hœtti aflað sér stuðn-
ings þeirra blaða sem Thomson
fyrirtækið gefur út... Ég hefþá trú
að blöð verði ekki rekin af neinni
skynsemi nema ritstjórn þess sé
frjáls og óháður hópur vel
menntaðra og áhugasamra fag-
manna. Þetta er og verður stefna
mín. “
Svo er það hin tegundin sem
rekur blöð og fjölmiðla til þess að
reka sína einkapólitík. Það er í
sjálfu sér ekkert við það að at-
huga ef menn gangast við því.
Hins vegar gegnir eilítið öðru
máli um slíkt heimsveldi sem fjöl-
miðlahringur Murdochs er. Og
það leikur enginn vafi á því að
Murdoch reynir að hafa áhrif á
ritstjórnarstefnu þeirra fjölmiðla
sem hann rekur.
Æ sér gjöf
til gjalda
Þegar Murdoch keypti The
Times \ar Harold Evans ritstjóri
helgarútgáfunnar, The Sunday
Jón Óttar Ragnarsson ætlar að ryðja
brautina fyrir Murdoch á fslandi.
Times. Murdoch réð Evans sem
ritstjóra The Times en sú dýrð
stóð ekki lengi því Evans sagði
upp eftir rúmlega eins árs sam-
starf við Ástralíumanninn og gaf
síðan út fræga bók sem ber heitið
Good Times, Bad Times. Þar lýs-
ir hann ma. hvernig uppsögn
hans bar að.
Þegar Murdoch keypti The
Times árið 1981 gaf hann bresku
stjórninni það loforð að hann
myndi engin afskipti hafa af rit-
stjórnarstefnu blaðsins né reyna
að losa sig við ritstjóra sem væru
honum ekki að skapi. Fyrir
bragðið sleppti stjórn Thatchers
honum við að mæta fyrir Einok-
unarnefndinni sem hefur það
hlutverk að koma í veg fyrir ó-
æskilega auðhringamyndun og
einokun á breskum markaði.
En æ sér gjöf til gjalda og tæpu
ári síðar stóð Margareth Thatcher
í kosningaslag og þurfti á öllum
þeim stuðningi að halda sem hægt
var að rífa upp. Murdoch hafðk
þegar tryggt henni stuðning News
of the Woríd og Sun en það var
ekki nóg að dómi forsætisráð-
herrans. f ritstjórastól The Times
sat sá þrjóski hundur Harold
Evans og neitaði að blaði sínu
yrði beitt fyrir vagn íhaldsflok-
ksins í Bretlandi, hvað þá Reag-
ans í Bandaríkjunum eins og þau
Thatcher og Murdoch vildu.
Úr einni af sjónvarpsstöðvunum sex sem Murdoch keypti í vor, NEW-TV i
New York. Svo gæti farið að Murdoch yrði að velja á milli hennar og eins
af uppáhöldunum sínum, hasarblaösins New York Post.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. ágúst 1985