Þjóðviljinn - 04.08.1985, Síða 8
Gólfslá, marmaramáluð bekkjarbrík og
bekknum sjálfum hafa varðveist vegna
anna sem breyttu kirkjunni 1949-1950.
Ingi.
Ferðamenn sem leið eiga
um Snæfellsnes heimsækja
gjarnan Búðir, ýmisttil að
ganga um hvítan fjörusandinn
og gróðursælt hraunið eða til
að bragða á krásum sumar-
hótelsins, nema hvort tveggja
sé. í sumar hefur þessi vin-
sæli áningarstaður heldur
betur breytt um svip: Hátt yfir
honum er að rísa kirkjubygg-
ing, rétt norðan við gamla kirkj-
ugarðinn, sem sagan segir
að Snæfellingar hafi gert með
því að bera skeljasand neðan
úr fjöru í stóra hraungjótu sem
þarvar.
En þetta er ekki venjuleg
kirkjubygging, því hér er verið að
endurgera gömlu kirkjuna á Búð-
um, sem reist var 1847 og vígð á
nýársdag 1850. Það er Hörður
Ágústsson, listmálari, sem hefur
umsjón með því verki, en við
kirkjusmíðina sjálfa vinna þrír
innansveitarmenn: smiðirnir
Haukur Þórðarson á Ölkeldu II,
Vigfús Vigfússon í Hlíðarholti og
handlangarinn Örnólfur Rögn-
valdsson á Staðastað.
Gamla
innréttingin
milli þilja
Hörður Ágústsson sagði blaða-
manni að séra Rögnvaldur Finn-
bogason á Staðastað hefði haft
frumkvæði að því að kirkjan yrði
lagfærð og var Hjörleifur Stef-
ánsson arkitekt fenginn til að
mæla hana upp á vegum húsa-
friðunarnefndar en Hörður tók
síðan við verkinu 1981 þegar
Hjörleifur fór í frí.
„Ég fann upprunalega úttekt á
kirkjunni," sagði Hörður, „og
þegar tekið var innanúr henni í
fyrrasumar kom í ljós að upp-
runalega innréttingin var þar fal-
in milli þilja - hafði verið notuð
til viðgerða þegar kirkjunni var
breytt um miðja öld. Þarna komu
í ljós bekkjarbríkur, bakslár og
þiljur og á grundvelli þeirra, út-
tektarlýsingarinnar og gamalla
ljósmynda er hægt að setja kirkj-
una saman 80% rétta en 20%
nýtni
Ljósm
leifar
smið
Jón
„Ætli það sé ekki bara himnafaðirinn sem er yfir-
smiður hér - við vinnum svo við þetta undir stjórn
Harðar Ágústssonar," sagði Haukur Þórðarson,
sem hér ber við klukknaportið. Ljósm. ÁL
hljóta að byggja á skáldlegu
innsæi."
Útlitsteikning Harðar Ágústssonar af kirkjunni endurgerðri.
Snœfellsnes
Búðakirkja
endurreist
Rœttvið Hörð Ágústsson listmálara um
kirkjuna á Búðum sem reist var 1847
„án tilstyrktar hinna andlegu feðra“ og
nú er í endursmíð með tilstyrk alþingis
og húsafriðunarnefndar
„Án tllstyrktar
hlnna andlegu
feðra“
Búðir er með yngstu kirkju-
stöðum á landinu, því þar var
ekki reist kirkja fyrr en 1703 af
Bendt Lauridtsen, skánskum
kaupmanni og útgerðarmanni á
staðnum. Þá bjuggu um 100
manns að Búðum. Málið vandað-
ist þegar gera átti kirkjugarð í
hraunklöppunum. Það var leyst
sem fyrr segir og þótti mikið verk
og erfitt en garðurinn stendur
enn og í honum miðjum mun
gamla torfkirkjan hafa verið.
Hún var afnumin með konungs-
bréfi 1816 og var tóftin notuð til
að þurrka mó og torf.
Sagan segir að eitt sinn hafi
Steinunn Sveinsdóttir ekkja
Guðmundar Guðmundssonar
verslunarstjóra á Búðum verið að
róta í tóftinni og sækir þá að
henni svo mikil syfja að hún
steinsofnar og dreymir að til
hennar komi sjálfur Bendt Laur-
idtsen og er reiður yfir því að
kirkjan skuli hafa verið rifin. Var
Steinunn friðlaus eftir að hún
vaknar uns hún hafði reist nýja
kirkju á Búðum 1847 og borgað
hana úr eigin vasa því stiftsyfir-
völd vildu ekkert með kirkju-
smíðina hafa. Var kirkjan reist í
norðurhorni kirkjugarðsins „án
tilstyrktar hinna andlegu feðra"
eins og segir á dyrahring kirkj-
unnar sem Steinunn gaf og lét
áletra. Legstaður hennar er í
kirkjugarðinum og yfir honum
var veglegur timburfleki sem nú
er í Þjóðminjasafninu.
Tlgnarstaður
j „Kirkjan var vígð á nýársdag
1850“ segir Hörður, „og skrokk-
i urinn svo prýddur smátt og smátt
að innan. Það er sett í hana loft og
gengið endanlega frá henni 1855.
Þetta var mikið hús, um 50 fer-
metrar að stærð og þótti ein
prýðilegasta timburkirkjan í
prófastsdæminu. Árið 1880 er
sett spónþak á kirkjuna og
skömmu síðar bárujárn á þakið.“
„Kirkjan var iíla staðsett,"
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. ágúst 1985