Þjóðviljinn - 17.04.1986, Blaðsíða 12
NESKAUPSTAÐUR
NESKAUPSTAÐUR
Saltfiskurinn verkaður af ungum sem öldnum og vinnubrögðin eru örugg enda saltfiskverkunin á gömlum merg í Neskaupstað.
Atvinnulífið
A félagslegum
\grunni
Þær Elísabet Birgisdóttir, Guðbjörg
Þórisdóttir og Unnur Hafsteinsdóttir
skera roðið utan af skötuselnum áður
en honum er pakkað í loftþéttar umbúð-
ir á Frakkland.
Kristinn V.
Jóhannsson,
forseti
bæjarstjórnar og
efsti maður G-
listans segir frá
atvinnumálum
Kristinn V. Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar, fyrsti maður á G-listanum í bæjarstjórn-
arkosningunum.
'V-ZSít *
Norðfirðingar hafa farið þá leið að
byggja höfuð atvinnufyrirtæki stað-
arins upp á félagslegum grunni.
Bæjarfélagið sjálft er ekki mikið
með beinan atvinnurekstur, heldur
eru fyrirtækin rekin sem almenn-
ingshlutafélög. Síldarvinnslan er
stærsta fyrirtækið á staðnum og næst
stærsta fyrirtæki í sjávarútvegi á ís-
landi. Stjórnarformaður þess er
Kristinn V. Jóhannsson, sem skipar
fyrsta sæti lista Aiþýðubandalagsins í
sveitarstjórnarkosningunum.
Kristinn er forseti bæjarstjórnar
en einnig er hann framkvæmdastjóri
SÚN, Samvinnufélags útgerðar-
manna í Neskaupstað. Blaðamaður
Þjóðviljans leit við á skrifstofu Krist-
ins í Steininum svokallaða, er hann
var á ferð í Neskaupstað í fyrri viku
og ræddi við hann um atvinnumál
staðarins.
Blandað hagkerfi
Kristinn sagði að Norðfirðingar
væru þeirrar skoðunar að í sjávar-
plássi einsog Neskaupstað þyrfti að
efla einkaframtakið við hlið þess hið
félagslega. Undirstöðuatvinnufyrir-
tæki einsog Síldarvinnslan yrðu að
vera í félagslegri eigu, enda þekktu
íbúar á Norðfirði það af gamalli raun
þegar allur rekstur slíkra fyrirtækja
er í eigu örfárra eigenda. Það þarf
ekki annað en kynslóðaskipti til að
fyrirtæki verði lögð niður.
Það er svo sjálfsagt að leyfa einka-
framtakinu að njóta sín í smábát-
aútgerðinni, þjónustufyrirtækjum,
verslunum og smáiðnaði.
Atvinnuleysi óþekkt
Atvinnuleysi er óþekkt fyrirbæri í
Neskaupstað nú orðið. Fiskvinnslan
er stöðug allt árið og hefur það mikið
að segja að útgerð og vinnsla í landi
er allt á einni hendi. „Við reynum að
skipuleggja veiðarnar þannig að
vinnslan hafi nægt hráefni allan árs-
ins hring. Við höfum beitt skipunum
í samræmi við kvótann þannig að
vinnslan sé stöðug."
Neskaupstaður hefur hinsvegar
fengið að kynnast öðru vandamáli,
sem margir útgerðarstaðir hafa átt
við að glíma, en það er fólkseklan í
fiskvinnslunni.
„Það hefur oft reynst erfitt að fá
fólk í pökkun og snyrtingu og hefur
það orðið til þess að ekki hefur verið
unnt að reka frystihúsið á fullum af-
köstum. T.d. var húsið aldrei fullnýtt
allt síðasta ár og kom það verulega
niður á afkomu þess 1985.
„Annað sem nefna má í sambandi
við hvernig við látum vinnuna í landi
ganga fyrir er að við siglum ekki með
aflann nema tryggt sé að nægur afli
sé í landi. Vegna toppanna sem kom-
ið hafa út af fólkseklunni höfum við
þó látið Börk sigla nokkrum sinnum-
Ríkisstjórnin
andvíg sjávarútvegi
„Útlitið í atvinnumálum bæjarins
var mjög dökkt í upphafi kjörtíma-
bilsins. Þá höfðum við nýlega reist
loðnuverksmiðju og voru miklar
skuldir hvílandi á henni. Einnig
höfðum við nýlega keypt Beiti og átti
að gera hann út á loðnuna en þá skall
loðnuveiðibannið á. Þetta og aðrar
ytri aðstæður gerði það að verkum
að verulegt tap varð á rekstri Síldar-
vinnslunnar árin 1983 og 1984. Það
má með sanni segja að stefna núver-
andi ríkisstjórnar hafi verið mjög
andvíg sjávarútveginum og markast
það best á því að fólk er hætt að tala
um útgerðarauðinn en talar þess í
stað um verslunarauðinn."
Kristinn sagði að afkoman hefði
batnað á síðasta ári, einkum hjá út-
gerðinni. Þar hjálpast að betri afla-
brögð og hagstæðara verð á er-
lendum mörkuðum. Þá varð loðnu-
veiðin aftur að verulegum tekju-
stofni. „Einsog ástandið er núna hjá
útgerðinni þarf hún nokkur topp-
aflaár í röð til að ná sér upp.“
Þó útgerðin hafi hjarnað töluvert
við að undanförnu eru enn erfið-
leikar hjá fiskvinnslunni í landi.
Olíuverðlækkunin
Fram til þessa hefur fjármagns-
kostnaðurinn og olíuverð reynst
bæði fiskvinnslu og útgerð erfiðast.
Nú er hinsvegar búist við að vextir
lækki vegna nýgerðra kjarasamninga
og auk þess hefur olíuverð farið
hríðlækkandi á heimsmarkaði þó
enn hafi sú lækkun ekki skilað sér
hingað til lands nema að hluta.
„Margir útgerðarmanna eru orðn-
ir langeygðir eftir frekari lækkun hér
því olíuverðið hefur lækkað mun
örar í nágrannalöndum okkar. Ég
talaði nýlega við umboðsmann okk-
ar í Grimsby og tjáði hann mér að
lítrinn væri seldur á 5,65 kr. þar þann
daginn en hér er hann u.þ.b. helm-
ingi dýrari, kostar 10,70 kr. Miðað
við meðaleyðslu togara gerir mis-
munurinn um 6 milljónir á ári.“
Síldarvinnslan gerir út þrjá skut-
togara og tvö nótaskip. Nú íhuga
þeir að setja frystibúnað og rækju-
vinnslubúnað í Beiti þar sem fundist
hafa ný og fengsæl r^ekjumið út af
Austfjörðum. Er þetta gert til að
lengja starfstíma skipanna því ann-
ars eru þau bara á loðnu. Hefur verið
sótt um lánsfé til þessa en það ekki
fengist enn. Sagði Kristinn að þeir
vonuðust eftir jákvæðari svörum
næsta ár.
Nýtt síldarævintýri
Fiskifræðingar hafa talað um að
síldin muni á næstu árum heimsækja
miðin í kringum landið aftur. Búast
margir við mjög öflugum göngum
þar sem stofninn við Noreg er mjög
sterkur. Spurði undirritaður Kristin
hvort hann byggist við nýju síldaræ-
vintýri.
„Ékki neitt í líkingu við gamla síld-
arævintýrið því komi hún í einhverj-
um mæli verður líklega að veiða
hana að mestu í bræðslu þar sem
mjög erfiðlega hefur gengið að selja
saltsíldina. Það myndi vissulega
lengja vinnslutíma bræðslunnar en
hún er í gangi um helminginn af ár-
inu núna.“
Mörgum Norðfirðingum þykir
nóg um að þurfa að þola nábýlið við
bræðsluna hálft árið vegna þeirrar
loftmengunar sem fylgir henni.
Sagði Kristinn að bæjarstjórnin í
Neskaupstað hefði beitt sér fyrir því
að þau bæjarfélög sem reka loðnu-
vinnslu á Austfjörðum tækju sig
saman um að beita stjórnvöld þrýst-
ingi, svo fjármagnsfyrirgreiðsla
fengist til að koma upp hreinsiútbún-
aði á bræðslurnar.
„Við teljum bræðslurnar það
þjóðhagslega mikilvægar að
stjórnvöld ættu að hlaupa undir
bagga. Það sætir eiginlega furðu að
ekki skuli hafa tekist að fá nauðsyn-
lega fyrirgreiðslu til að setja upp
þennan hreinsibúnað."
Síldarvinnslan hefur þegar stigið
fyrsta skrefið og komið upp búnaði
sem hreinsar mesta rykið úr
reyknum, auk þess sem töluverð
vinna hefur verið lögð í undirbúning
en lokaátakið kostar um 16-17
milljónir á núvirði og að sögn Krist-
ins er útilokað að taka slíka fjármuni
út úr rekstrinum.
„Við erum bara að fara fram á lán
en enn sem komið er hefur það ekki
fengist. Við erum því að vonast til að
þrýstingur fólksins verði það mikill
og sterkur að augu ráðamanna opn-
ist fyrir þessu vandamáli.“
Sjávarútvegurinn
undirstaðan
En hvernig sér Kristinn framtíðina
á Norðfirði?
„Ég er sannfærður um að sjávar-
útvegurinn verður undirstaðan í
atvinnulífi okkar, að minnsta kosti
svo langt sem ég get séð. Ég tel al-
gjörlega óraunhæft að álíta að
eitthvað geti komið í staðinn fyrir
hann í útgerðarbæ einsog Neskaup-
stað. Hann er og verður undirstaðan
undir lífið hér. Það er svo mjög
mikið undir stefnu stjórnvalda kom-
ið hvernig til tekst. Okkur sem vinn-
um við að skapa þessi verðmæti
finnst við bera lítið úr bítum. Gjald-
eyririnn sem við öflum er afhentur
öðrum á spottprís.“
Mjög mikilvægt er að breyting
verði til batnaðar á vinnuaðstöðu og
réttindum þess fólks sem vinnur í
frystihúsunum. „Það þarf að koma
skilningur á að vinnuaðstöðu þessa
fólks verði að gera meira aðlaðandi
og sem betur fer virðist hann vera að
vakna. Það jákvæða við síðustu
samninga er að mínu mati, að rétt-
indi og möguleikar fiskvinnslufólks
til að afla sér menntunar og fá hana
metna til launa, eru aukin.“
Óvissan eða öryggið
Nú eru sveitarstjórnarkosningar í
aðsigi og undirritaðan langaði til að
vita að lokum hvað þær kosningar
snérust um að mati fýrsta manns á
lista Alþýðubandalagsins.
„Norðfirðingar velja um það núna
hvort áfram verða tryggð þau tengsl
sem eru milli stjórnenda atvinnulífs-
ins og stjórnenda bæjarmála eða
hvort óöryggi sundurlyndra afla
verði kallað yfir bæjarfélagið,“ sagði
Kristinn V. Jóhannsson að lokum.
—Sáf
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. apríl 1986
Sparisjóður
Norðfjarðar
Egilsbraut 25 • Neskaupstað
Símar 7125 og 7425
Afgreiðslutími kl. 9.15-16.00 frá mánudögum
til föstudaga.
Öll almenn bankaþjónusta.
Það er lán að skipta við sparisjóðinn.
Hittumst í sparisjóðnum.
C. PLATH NAVIGAT IX
Knár og smár
N_______________________________________________-/
Leitið upplýsinga.
Kristinn Gunnarsson & Co.
Grandagarði 7 Reykjavík Símar: 26677 og 21811
r ' n
ÚTGERÐARMENN - SKIPSTJÓRAR
NAVIGAT IX
Gýróáttaviti og sjálfstýring
sambyggt
/