Þjóðviljinn - 17.04.1986, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR
Allt annað
gegn Skotum
Góður leikur íslenska liðsins og annar
sigur í tveimur leikjum
Það var allt annað að sjá til
íslcnska liðsins á móti Skotum í
gær, en gegn írum á þriðjudag.
Islenska liðið vann góðan sigur,
75-71. Staðan í hálfleik var 37-32.
„Þetta var miklu betri leikur en
á móti Irum og munaði þar mest
um að lykilntenn okkar, Pálmar
og Valur voru mjög góðir,“ sagði
Torfi Magnússon fyrirliði ís-
lenska liðsins í samtali við Þjóð-
viljann eftir leikinn í gær. „Bar-
áttan var mun meiri núna og
vörnin góð. Eg held við eigum
góða möguleika gegn Portúg-
ölum á morgun, en leikurinn við
Norðmenn verður erfiður."
Leikurinn fór rólega af stað.
Skotar skoruðu fyrstu körfurnar,
en svo tóku íslendingar við sér og
náðu 6 stiga forskoti. Skotar
jöfnuðu það upp fljótlega og var
leikurinn jafn allt fram að hálf-
leik, en á síðustu sekúndunum
skoraði Torfi glæsilega körfu frá
miðju og var staðan í hálfleik 37:
32 Islandi í hag.
Skotar byrjuðu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og kom-
ust 5 stig yfir. Þá tók Pálmar
skemmtilega rispu og skoraði 15
stig á næstu 6 mínútum. Staðan
var þá 60-55. Skotar náðu að
EMIKörfubolti
ísland á
toppnum
ísland er í efsta sæti C-riðilsins eftir
tvö fyrstu leikkvöldin. Staðan er
þessi:
Island.........2 2 0 148-143 4
Noregur........1 1 o 106-79 2
Skotland.......2 1 1 138-140 2
Portúgal.......1 0 1 65-67 0
írland.........2 0 2 151-179 0
Stigahæstir:
Valurlngimundarson, Islandi..........43
Ralton Way, Skotlandi................40
Hakon Austerfjord, Noregi............39
PálmarSigurösson, Islandi............39
Karl Butler, Irlandi.................36
í kvöld kl. 19.30 mætast ísland og
Portúgal í Laugardalshöllinni og kl.
21 hefst viðureign Norðmanna og
Skota. Takist íslenska liðinu að halda
áfram sigurgöngunni í kvöld verður
næsta örugglega hreinn úrslitalcikur
gegn Norðmönnum á laugardaginn.
—VS
minnka rnuninn aðeins, en ís-
lendingar áttu svo góðan kafla og
náðu 9 stiga forskoti, 68-59, þeg-
ar 5 mínútur voru til leiksloka.
Skotar náðu að minnka þennan
mun niður í 4 stig þegar um ein
mínúta var eftir, en Islendingar
léku síðustu mínútuna af skyn-
semi og uppskáru góðan sigur.
Islendingar léku þennan leik
mjög vel. Vörnin var sterk og
rnikil pressa á Skotum allan tím-
ann. Torfi stjórnaði vörninni og
átti mjöggóðan leik. Sóknarleik-
urinn var mun beittari en í
leiknum við íra og hittni var öllu
betri. Pálmar, Valur og Guðni
hittu allir mjög vel. Pað sem ein-
kenndi iiðið þó helst var mjög
góð barátta, það barðist allan
tímann.
Skoska Iiðið virðist vera mun
betra en það írska og munar mest
um hve mikið hærri og sterkari
Skotarnir eru. Það dugði þeim þó
ekki gegn íslendingum. Ralton
Way var bestur í liði Skota og
John Duncan átti einnig góðan
leik. Annars virkaði skoska liðið
frekar þungt.
Stig Islands: Pálmar Sigurðsson
23, Valur Ingimundarson 14, Guðni
Guðnason 12, Torfi Magnússon 10,
Páll Kolbeinsson 8, Birgir Mikaelsson
6 og Þorvaldur Geirsson 2.
Flest stig Skota gerðu Way 29,
Hoffman 14 og Duncan 11.
ísland, Skotland, Portúgal og
írland virðast öll vera með svipuð
lið, en Norðmenn nokkuð sterk-
ari. Island mætir Portúgal í kvöld
og Noregi á laugardag.
- Logi
EM/ Körfubolti
Stórsigur
Norðmanna
Norðmenn fóru létt með íra í fyrri
leiknum í gærkvöldi. Þeir sigruðu
106-79 og þurftu ekki að hafa sérstak-
lega mikið fyrir því. Norska liðið er
grcinilcga það sterkasta á mótinu og
íslensku strákarnir þurfa að eiga stór-
leik til að sigra þá á laugardaginn.
Hakon Austerfjord, norski Kan-
inn, var atkvæðamestur og skoraði
heil 39 stig. Eivind Gronli skoraði 19
stig og Torgeir Bryn 18. Fyrir íra
skoraði Tom OSullivan 20 stig og Karl
Butler 19.
—Logi/VS
Pálmar Sigurðsson átti mjög góðan leik gegn Skotum í gaerkvöldi og skorar hér eina af körfum sínum. Snemma í
seinni hálfleik skoraði hann 15 stig á 6 mínútum, á kaflanum þar sem íslenska liðið sneri leiknum sér í hag og náði forystu
sem Skotar réðu ekki við. Hann hefur gert 39 stig i tveimur fyrstu leikjum íslands, aðeins Valur Ingimundarson hefur
skorað fleiri, eða 43. Mynd: E.ÓI.
England
Liverpool efst á ný
Handbolti
Piltamir á NM
Piltalandslið íslands, skipað
leikmönnum 18 ára og yngri, hélt
í morgun til Danmerkur þar sem
það tekur þátt í Norðurlandamót-
inu. Leikið verður við Svía annað
kvöld, Norðmenn og Grænlend-
inga á laugardag og Dani og Fær-
eyinga á sunnudag.
Geir Hallsteinsson þjálfari
valdi 14 leikmenn til fararinnar
og eru þeir cftirtaldir:
Bergsveinn Bergsveinsson, FH
Ólafur Kristjánsson, FH
Stefán Kristjánsson, FH
Héðinn Gilsson, FH
Sigtryggur Albertsson, Gróttu
Halldór Ingólfsson, Gróttu
Einar Einarsson, Stjörnunni
Hafsteinn Bragason, Stjörnunni
Stefán Steinsen, Víkingi
Bjarki Sigurösson, Víkingi
Jón Kristjánsson, KA
Axel Björnsson, KA
Konráð Ólafsson, KR
Sigurður Sveinsson, Aftureldingu —VS
Liverpool cndurheimti forystu
sína í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar í gærkvöldi með 1-0 sigri á
gervigrasinu í Luton. Craig
Johnston skoraði sigurmarkið en
Luton var sterkari aðilinn í
leiknum. Liverpool hefur
jafnmörg stig og erkióvinurinn,
Everton, en hcfur lcikið cinum
leik meira.
Manchester United rétti sig við
með góðum sigri í Newcastle, 4-
2. Mark Hughes gerði tvö mark-
anna. Aston Villa vann sinn ann-
an sigur í röð, sigraði Ipswich 1-0
í fallbaráttuleik og hefur styrkt
mjög stöðu sína. Steve Hodge
gerði sigurmarkið. Nágrannar
þeirrra, Birmingham, eru hins-
vegar fallnir í 2. deild að öllu öðru
leyti nema tölfræðilega eftir 2-0
ósigur gegn Tottenham.
Urslit í gærkvöldi:
l.deild:
Aston Villa-lpswich.................1-0
Luton-Liverpool....................0-1
Newcastle-Manch.Utd.................2-4
Sheff.Wed.-Arsenal..................2-0
Tottenham-Birmingham................2-0
2. deild:
Brighton-Fulham.....................2-3
3. deild:
Lincoln-Plymouth...................1-1
Reading-Brentford..................3-1
4. deild:
Hereford-Stockport..................3-2
Skoska úrvalsdeildin:
Aberdeen-Dundee Utd............0-1
Staða efstu og neðstu liða 1.
deildar:
Liverpool.......38 22 10 6 79-36 76
Everton.........37 23 7 7 77-38 76
Man.Utd.........39 21 8 10 65-35 71
óhelsea.........37 20 10 7 54-44 70
WestHam.........35 20 6 9 56-33 66
Sheff.Wed.....38 18 9 11 56-51 63
Leicester.......39 9 12 18 53-70 39
Ipswich.........38 10 8 20 28-49 38
Coventry........39 9 10 20 45-69 37
Oxford..........38 8 12 18 55-75 36
Birm.ham........39 8 5 26 30-65 29
W.B.A...........38 4 10 24 29-81 22
—VS/Reuter
Fimmtudagur 17. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23