Þjóðviljinn - 17.04.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 17.04.1986, Blaðsíða 14
NESKAUPSTAÐUR ! M m. KH í í:. . : ; I |j. ^ 1 Breiðablik heimsótt og leiguíbúðirog föndurstofa fyrir aldraðraskoðuð m , jUB í Wm * ; : f| ■'Æk . •• ;. HI^HHHHHHHHHHHBL ^SHs’&æætðiHHHHHHHHHHHHHHHHHHHIIHHHi Sigurbjörg Þorvaröardóttir sýnir blaðamanni ibúð sína í Breiðabliki. Frá sjúkraþjálfun á Fjórðungssjúkrahúsinu. Gamla fólkið virðist njóta boltaleiksins jafn vel og yngra fólk gerir. Myndir Sáf. Guðmundur Friðriksson, íbúi Breiðablik, vinnur að mynd á föndurstofunni. Öldrunarmál Aðstaða eldri íbúa batnað Stórt átak hefur verið gert til að bæta aðstöðu aldraðra í Neskaupstað. Voru byggðar 12 leiguíbúðir á vegum bæjar- ins og er innangegnt frá þeim inn í Fjórðungssjúkrahúsið. Nefnist húsið Breiðablik og fá íbúar þar alla þá þjónustu sem þeir óska. Geta íbúarnir m.a. fengið mat i mötuneytinu auk þess sem eldunaraðstaða er í hverri íbúð. Það eru tvær tegundir af íbúð- um í boði. Annarsvegar einstak- lingsíbúðir og hinsvegar íbúðir fyrir hjón. Nú stendur til að reisa 6 íbúðir til viöbótar en um 25 manns eru á biðlista eftir íbúð- um. Kristinn Ivarsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra- hússins, sagði við blaðamann Þjóðviljans, að íbúarnir væru ai- mennt mjög ánægðir með íbúð- irnar. Bjóst hann við að í framtíð- inni yrðu bæði byggðar leigu- íbúðir á vegum bæjarins fyrir aldraða auk þess sem vel kæmi til greina að byggja fbúðir sem íbú- arnir gætu eignast. Könnun sem gerð var á þessu leiddi hinsvegar í Ijós að mikill meirihluti óskaði fyrst og fremst eftir leiguíbúðum. Við Fjórðungssjúkrahúsið er einnig rekin öldrunardeild og ný- lega voru ráðnir tveir sjúkraþjálf- ar frá Hollandi til að þjálfa fólk sem hefur legið rúmfast lengi. Hefur gamla fólkinu verið boðið upp á slíka þjálfun. Sagði Krist- inn að oft væri erfitt að fá fólkið til að taka þátt í þjálfuninní en þegar það væri komið af stað þá virtist það fá mikið út úr henni og væri því einnig erfitt að fá fólkið til að hætta þó að það væri orðið vel rólfært og þyrfti ekki á henni að halda. í Breiðabliki er einnig rekin föndurstofa fyrir aldraða. Greið- ir bæjarsjóður laun einnar mann- eskju við stofuna en Rauði kross- inn hefur fjármagnað efniskaup. Var fönduraðstaðan tekin í gagn- ið sl. vor en lá niðri yfir sumarið. Var starfsemin svo sett á fullt í vetur og hefur verið mikið sótt bæði af íbúum Breiðabliks og eins fólki sem býr í bænum. Þegar blaðamaður heimsótti föndurstofuna var hópur fólks að tómstundaiðju þar. Var verið að sauma út og bródera, vinna að myndverkum og ýmsu öðru og luku allir einu orði á að þessi að- staða væri mjög til bóta fyrir eldri íbúa bæjarins. —-Sáf Kristinn V. Jóhannsson. Sigrún Cefrsdóiiir. Framboðslisti Alþýðubandalagsins í Neskaupstað við bæjarstjórnarkosningar 31. maí 1986 Aiþýðubandalagið í Nes- kaupstað ákvað framboðslista sinn á fjölmennum félagsfundi í gærkvöldi. Kjörnefnd hefur starfað að undanförnu og lagði hún fram tillögu að list- anum á fundinum og var sú til- laga samþykkt einróma.Listinn er þannig skipaður: 1. Kristinn V. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri. 2. Sigrún Geirsdóttir, húsmóðir. 3. Smári Geirsson, skóla- meistari. 4. Elma Guðmundsdóttir, hús- móðir. 5. Þórður Þórðarson, skrifstofu- maður. 6. Guðmundur Bjarnason, skrif- stofumaður. 7. Guðrún Sigurðardóttir, hjúkr- unarforstjóri. 8. Einar Már Sigurðarson, kenn- ari. 9. Steinunn Aðalsteinsdóttir, yfir- kennari. 10. Ólafur Sigurðsson, íþrótta- kennari. 11. Guðjón B. Magnússon, sjó- maður. 12. Karl Jóhann Birgisson, sjó- maður. 13. Jóna Katrín Aradóttir, hús- móðir. 14. Kapitola Jóhannsdóttir, bankamaður. 15. Kristinn S. Guðmundsson, rafeindavirki. 16. Elísabet Karlsdóttir, skrif- stofumaður. 17. Þórður Kr. Jóhannsson, kennari. 18. Már Lárusson, verkstjóri. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.