Þjóðviljinn - 08.05.1986, Page 4
Spilling
60 miljón króna gjöf
Davíð greiddi
fjölskyldu
úr innstakjarna
Sjálfstæðis-
flokksins
tugi miljóna
fyrirjörðina
Olfusvatn sem
metin er á
hálfa miljón.
Dæmi um
spillinguna sem
er farin að
þrífastí skjóli
ofurvalds
Sjálfstæðis-
flokksins.
„Svo rnátt þú koma í heimsókn og fá að nota sumarbústaðina sem við ætlum að byggja fyrir vextina af 60 miljón krónunum sem þú qafst okkur
Davíð minn“.
í júní í fyrra knúði meirihluti
Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn Reykjavíkur í gegn að
borgin keypti jörðina Ölfusvatn.
En verðið sem Sjálfstæðisflokk-
urinn lét borgina greiða var hins
vegar ekki 400 þúsund krónur
einsog fasteignamatið þó gerði
ráð fyrir. Það var ekki einu sinni
fjórar miljónir, ekki fjörutíu
miljónir, heldur hvorki meira né
minna en heilar sextíu - 60 milj-
ónir króna!
Þessi kaup eru eitt gleggsta
dæmið um þá spillingu sem hefur
gert vart við sig í tíð núverandi
meirihluta Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Því eigendur Ölfus-
vatns, sem fengu með þessu af-
hentar 60 miljónir króna úr sjóð-
um Reykvíkinga á silfurfati voru
ekki neinir venjulegir meðaljón-
ar, heldur gamalgróin íhaldsætt
úr Reykjavík, sem vantaði pen-
inga. Þetta voru erfingjar Sveins
Benediktssonar, sem fyrrum var
einn af forystumönnum Sjálf-
stæðisflokksins.
Ættin í Flokknum
Fyrir hönd Davíðs hefur Jó-
hannes Zöega hitaveitustjóri
skrifað undir og séð um fram-
kvæmdir á Nesjavöllum. Næstu
jarðir við Nesjavelli eru Hagavík
og Ölfusvatnsland, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn keypti af erf-
ingjum Sveins Benediktssonar.
Jóhannes Zöega er giftur Guð-
rúnu Benediktsdóttur, systur
Sveins Benediktssonar.
Eigendur Ölfusvatnslands eru
erfingjar Sveins; Helga Ingi-
mundardóttir ekkja hans og syn-
irnir Benedikt Sveinsson lögfræð-
ingur og í stjórn Eimskips. Einar
Sveinsson forstjóri Sjóvá og Ingi-
mundur Sveinsson varaformaður
skipulagsnefndar borgarinnar
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Halda öllum
réttindum
En eigendur Ölfusvatns fengu
ekki aðeins 60 miljónir króna
fyrir jörð, sem er metin á 400 þús-
und krónur. Þeir fengu líka fram-
gengt, að þeir mega nota jörðina
áfram gersamlega endurgjalds-
laust.
f kaupsamningnum er nefni-
lega tekið fram, að gömlu eigend-
urnir, megi nota jörðina einsog
þeir vilja í næstu 50 ár án endur-
gjalds. í ofanálag mega þeir líka
reisa þar þrjú sumarhús, og
leggja veg um jörðina, auk þess
sem bygging bátaskýla er líka
heimil. Gömlu eigendurnir halda
líka öllum veiðiréttindum í Þing-
vallavatni. Hins vegar er tekið
fram að Reykjavíkurborg, hinn
nýi eigandi, megi ekkert reisa á
jörðinni í aldarfjórðung. Til að
kóróna þetta er svo tekið fram í
kaupsamningnum, að eftir 50 ár
hafa gömlu eigendurnir „for-
leigurétt að ofangreindu svæði“
einsog það er orðað í samningn-
um.
Hvað þýðir þetta í raun? Ekk-
ert annað en það, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur með þessu greitt
fjölskyldu úr innsta kjarnaflokks-
ins 60 miljónir af sjóðum
Reykvíkinga fyrir jörð, sem
eigendurnir mega nota áfram án
endurgjalds og halda því í raun-
inni áfram að „eiga“ jörðina.
Flokksskírteini í Sjálfstæðis-
flokknum getur greinilega á
stundum komið sér vel.
Ótrúleg stjórnsnilld!
Þegar fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar kröfðu Sjálfstæðis-
menn skýringa á kaupunum vafð-
ist þeim tunga um höfuð. Að lok-
um var þó sú skýring gefin upp,
að í þriðjungi jarðarinnar væri að
finna jarðhita. Það gæti alltaf
komið sér vel fyrir borgina að
eiga jörð í Grafningi með jarð-
hita - eða hvað? Stjórnarand-
staöan vildi þá fá svör við því,
hvenær það gæti komið sér vel!
Og eftir því sem menn komast
næst, þá er svarið: hugsanlega
seint á næstu öld!
Árið 1985 eru Reykvíkingar
sem sagt látnir greiða sem svarar
60 miljónum fyrir jörð sem getur
kannski orðið borginni brúkleg
eftir hundrað ár. Á sama tíma er
ekki til fé til að ráða bót á neyðar-
ástandi sem samkvæmt tals-
mönnum Sjálfstæðisflokksins
sjálfs ríkir í húsnæðismálum hjá
hundruðum aldraðra Reykvík-
inga. Það er ekki heldur hægt að
byggja heilsugæslustöðvar, og
engir peningar eru til í með-
ferðarstöð fyrir unglinga sem
hafa orðið illa úti vegna fíkni-
efna.
Björgunaraðgerð
Á þingi hefur komið fram til-
laga um að háhitasvæði einsog
það sem finnst í þriðjungi Ölfus-
vatns verði gert að þjóðareign.
Það er meir en líklegt að vinstri
sinnuð ríkisstjórn - og næsta
stjórn kynni að vera af slíkum
toga - myndi gera slíkt frumvarp
að lögum. Þarmeð væru öll rök
fyrir uppsprengdum kaupum á
jörðum með hita eins og Ölfus-
vatn, fallin um sjálf sig. Þess
vegna lá flokkksgæðingunum
svona á að láta borgina kaupa
jörð, - þess vegna var ekki beðið í
þá áratugi sem eiga eftir að líða
uns mögulega þarf að nýta jörð-
ina.
Vegna þessa notaði flokkurinn
ítök sín í borgarstjórn Reykjavík-
ur til að færa flokksgæðingum 60
miljónir, nánast að gjöf, til að
koma í veg fyrir að væntanleg
samþykkt frumvarp á þingi kæmi
síðar í veg fyrir að slíkt yrði hægt.
Þessvegna var flýtirinn - og þess-
vegna vorum við, skattgreiðend-
ur, látnir borga.
Leyndin
Kaupsamningurinn var aldrei
kynntur sérstaklega í borgar-
stjórn. Drög að honum höfðu
verið lögð fram í borgarráði, en
það var fulltrúi G-listans sem tók
málið upp í borgarstjórn.
Aldrei var skýrsla eða greinar-
gerð af einhverju tæi lögð fram í
málinu. Og þegar umræða fékkst
um það kom í ljós að borgarstjóri
var þegar búinn að undirrita
.samninginn með fyrirvara, án
þess að leyfa borgarstjórn að
segja eitt eða neitt um málið.
Á sínum tíma var einnig bent á,
af borgarfulltrúum stjórnarand-
stöðunnar, að Morgunblaðið,
sem að eigin sögn leggur metnað
sinn í hlutlausan fréttaflutning,
sagði ekki aukatekið orð um af-
greiðslu jarðakaupanna í borgar-
stjórn. Mánuði fyrr hafði blaðið
þó greint frá því þegar samning-
urinn var lagður fram í borgar-
ráði. En þegar í ljós kom, hversu
rammur spillingarkeimur var af
kaupunum, þá dró blaðið sig í
hlé, því frásögn af þessum dýr-
keypta greiða við flokksgæðing-
ana var ekki nógu hagstæður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Davíð.
Staðreynd þessa máls er ein-
föld: Meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn Reykja-
víkur kaus að gefa áhrifamikilli
fjölskyldu úr kjarna flokksins
heilar sextíu miljónir (72 miljónir
á núvirði) af fé Reykvíkinga og
fær bókstaflega ekkert í staðinn.
Kaupin eru einungis gerð vegna
tengsia jarðeigandanna við flokk-
inn. Undarleg þögn Morgun-
blaðsins undirstrikar eðli þessa
máls.
Ossur Skarphéðinsson
„Þetta er svo vitlaust að það nær ekki
nokkurri átt. Eg hefekki heyrt dœmi
um svona hátt verð áður. Efborgin
þarfá þessu landi að halda er
eðlilegasta leiðin aðleita heimildartil
eignarnáms, “ (Árni Jónasson
ráðunautur hjá Búnaðarfélaginu 10.
maíl985, ensamkvœmt
fasteignamati er jörðin 400þúsund
króna virði)
Hagavík er á milli Nesjavalla og
Ölfusvatnslands. ÞeirSveinn
Benediktsson ogHelgi Tómasson
keyptu á sinni tíð þessar jarðir saman
og er talið líklegtað jarðhitinn sé
einnig lögformlega íeigu
Hagavíkurjarðeigenda. Einn
aðaleigandinn að Hagavík er
Ragnhildur Helgadóttir
(Tómassonar). Hún er líka í
Sjálfstœðisflokknum.
Fjölskyldan heldur allri sinni
aðstöðu og hlunnindum í hálfa öld,
þráttfyrir sölu landsins. Þar eru sex
sumarbústaðir og neta- og
stangveiðiréttindi. Aukþess er
fjölskyldunni heimiltað byggjaþrjá
sumarbústaði til viðbótar í landinu-
með bátaskýlum. Fyrir landið fékk
fjölskyldan engu að síður 60
miljónir.
4 SÍÐA - REYKJAVÍKURBLAÐ Fimmtudagur 8. maí 1986