Þjóðviljinn - 08.05.1986, Qupperneq 7
ness vegna á fólkið líka að ráða meiru. - Sig.
arhverfa. Þegar rædd eru mál á
borð við dagvistun, skóla, um-
ferð og almenningssamgöngur
sem snerta hverfin er sjálfsagt að
fulltrúar þeirra hafi sitt að segja
um það.“
Bolungarvíkur-
samkomulagið
Þegar Garðastrætissamkomu-
lagið var undirritað á sínum tíma
gagnrýndi Kristín það harðlega.
„Brýnasta málið í íslenskri pó-
litík núna er að brjóta á bak aftur
láglaunastefnuna sem ríkt hefur
undanfarin ár. Það er ekki bara
að hún hafi skapað marga pers-
ónulega harmleiki heldur er hún
beinlínis hættuleg fyrir framtíð-
ina og getur haft ægilegar afleið-
ingar hvað varðar lýðræði, menn-
ingu og félagslega þætti í samfé-
laginu.
Við sjáum bara hvernig fólk
flykkist úr undirstöðugreinum
einsog uppeldis- og fræðslustörf-
um en slfkt getur haft marþætt
áhrif á mannlíf framtíðarinnar.
Þetta er nokkuð sem verður að
takast á við og það er hægt að
gera það í borgarstjórn með því
að brjóta enn eitt skarð í lág-
launamúrínn og feta í fótspor
Bolvíkinga. Það er að mínu mati
eitt af frumskyldum þeirra sem
stjórna sveitarfélagi að sjá til þess
að fólkinu í sveitarfélaginu sé
boðið upp á sem mesta og besta
þjónustu og til að það sé hægt
verður að greiða þeim sem inna
þessi störf af hendi sómasamleg
laun. Annars fæst fólk með
menntun ekki til starfa. Þau ósið-
samlegu laun sem þessu fólki er
boðið upp á hafa orðið til þess að
það flýr störfin.
Þetta ástand hefur það m.a. í
för með sér að mjög ör skipti eru
á starfsfólki á barnaheimilum í
Reykjavík. Segist Kristín vita
dæmi þess að börn hafi allt að 10
sinnum fengið nýja manneskju á
deildina hjá sér á einu ári en slíkt
bitnar auðvitað á öryggi barn-
anna.
Réttindi barna
„Ástandið í dagvistarmálum
eru mjög slæmt í borginni. Ein-
göngu forgangshópar eiga kost á
dagheimilisvist allan daginn fyrir
börn sín. Fólk í sambúð verður
annaðhvort að leita til dag-
mæðra, en margt af því fólki er
láglaunafólk þar sem báðir aðilar
vinna úti fullan vinnudag og
jafnvel meira. Dagmæður eru
bæði óöruggur og dýr kostur.
Kostar um 10 þúsund krónur að
hafa barn hjá þeim og þær geta
vitaskuld ekki boðið upp á sama
aðbúnað og maður gerir kröfur til
á barnaheimilum. Þá er það al-
gengt að börn verði að skipta um
dagmæður vegna þess að þær eru
oft í þessu tímabundið.
Ég er þeirrar skoðunar að upp-
eldi bárna sé eitt viðkvæmasta og
vandasamasta starf sem hægt er
að taka að sér og treysti því best
því fólki, sem vegna áhuga hefur
aflað sér menntunar í uppeldis-
störfum og ég er viss um að gott
uppeldi barna á góðum barna-
heimilum getur átt ríkan þátt í að
jafna aðstöðu barna. Þar er hægt
að veita þeim örvun sem ekki er
tryggð á öllum heimilum.
Hinn kosturinn sem fólki í
sambúð er boðið upp á er að hafa
barnið hálfan daginn hjá dag-
mömmu og hinn hlutann á leik-
skóla. Þá þurfa foreldrarnir að
hendast í hádeginu og skutla
barninu af einum stað á annan
sem er óviðunandi bæði fyrir
barnið og foreidrana.
Það er yfirlýst stefna Sjálfstæð-
ismeirihlutans að leggja áherslu á
fjölgun leikskólaplássa og hefur
verið unnið í þeim anda þetta
tímabil. Við erum á móti þessari
stefnu. Við viljum, leggja áherslu
á dagheimili því þar er þörfin æp-
andi og þó æskilegt væri að öll
börn ættu kost á veru á barnahei-
mili þá verða börn þeirra sem eru
útivinnandi að njóta forgangs því
börn heimavinnandi fólks geta
frekar nýtt gæsluvellina.“
Húsnæðisekla
aldraðra
Annað mál sem Kristín telur
að verði að njóta forgangs í borg-
arstjórn eru húsnæðismál aldr-
aðra.
„Við þá þjóðfélagsbyltingu
sem orðið hefur, við það að staða
fjölskyldunnar hefur breyst og að
konur vinna mun meira úti en
áður, þá koma þær kröfur til sam-
félagsins að það beri ábyrgð á vel-
ferð barna og aldraðra. En einsog
börnin þá býr gamalt fólk í
Reykjavík við mikið óöryggi, það
sést best á því að 1300 manns eru
á biðlista eftir öruggu húsnæði í
Reykjavík og þessi biðlisti hefur
tvöfaldast í tíð núverandi borg-
arstjórnarmeirihluta. Þörfin
eykst stöðugt en úrbæturnar sl. 4
ár gagnast nær eingöngu þeim
efnameiri því öll áhersla er lögð á
uppbyggingu húsnæðis sem á að
selja gömlu fólki. Þessar nýju
íbúðir eru svo dýrar að jafnvel
fólk sem á skuldlausa ágætis íbúð
hefur ekki tök á að kaupa hvað þá
þeir sem eru í meirihluta á biðlist-
unum, fólk sem ekki á eigin íbúð.
Þarna vill Alþýðubandalagið
fara allt aðra leið. f fyrsta lagi
viljum við stórbæta heimaþjón-
ustuna og hjúkrunina fyrir aldr-
aða svo þeir geti búið sem lengst
heima. Auk þess viljum við
leggja áherslu á sérhannað hús-
næði með þjónustu fyrir gamalt
fólk þar sem það getur búið fyrir
lága leigu.“
Hús unga fólksins
Eitt stærsta áhyggjuefni nú-
tímaþjóðfélags er vaxandi vímu-
efnaneysla unglinganna. Segist
Kristín sannfærð um að það megi
vinna miklu markvissara að fyrir-
byggjandi starfi en nú er gert og
segist hún einkum horfa til félags-
málastofnunar Kópavogs í því
efni.
„Bæði sveitarfélög og ríkisvald
verða að fara að átta sig á hvers-
lags vandamál þetta er. Eitt dæmi
um sljóleika yfirvalda í þessu er
þegar meirihlutinn felldi tillögu
um að hálfri milljón væri veitt í
fræðslu um fíkniefni á síðustu
fjárhagsáætlun og voru látin
nægja 50 þúsund.
Það er annars mjög einkenn-
andi að fólk á aldrinum 15-20 ára
hefur fátt við að vera í borginni.
Ég sé fyrir mér stórt hús þar sem
þessi aldurshópur ræður ríkjum,
ákveður hverslags starf þar fer
fram og þar sem boðið er upp á
margs konar félagsstarfsemi og
skemmtanir, sem unga fólkið
stendur sjálft fyrir. Þetta hús er
rekið af þeim sem sækja það í
þeirra anda og á þeirra ábyrgð
einsog t.d. Húsið í Kaupmanna-
höfn. Þessar hugmyndir hafa
komist í gegnum ritskoðun hjá
vinum sonar míns „Öldugötu-
genginu“, en það er ekki ónýtt að
hafa þann hóp til að finna púlsinn
á næstu kynslóð."
Sonurinn er Hrannar Björn
Arnarson, 18 ára menntaskóla-
nemi, sem býr með móður sinni,
systurinni Melkorku og Óskari .
Guðmundssyni, ritstjórnarfull-
trúa Þjóðviljans, að Öldugötu 59.
Unga fólkið í dag
Kristín hefur löngum verið
kennd við 68-kynslóðina og þar
sem hún er nú nýbúin að
heimsækja námsmenn erlendis
þótti blaðamanni við hæfi að
ljúka viðtalinu á því að spyrja
hana hvort henni fyndist mikill
munur á námsmönnum nú og í
upphafi áttundarins?
„Ég var ekki vör við svo mikla
breytingu, enda var það fyrst og
fremst vinstri sinnað fólk sem
sótti fundina. Þetta fólk er með
kröfur um aukið lýðræði og fé-
lagslegt öryggi þykir því sjálf-
sagður hlutur, þá ríkir gjörbreytt
hugarfar hjá þessu fólki um stöðu
konunnar frá því sem var áður.
Það var líka áberandi hversu mik-
inn áhuga þetta fólk hafði á
skipulagsmálum og hversu góða
grein það gerði sér fyrir að það
„Brýnasta málið í
íslenskri pólitík núna
er að brjóta á bak
aftur
láglaunastefnuna sem
ríkt hefur undanfarin
umhverfi sem fólki er búið þarf
fyrst og fremst að miða við þarfir
fólksins.
Ég er þeirrar skoðunar að það
eigi að reyna að halda borginni
saman en ekki þenja hana út.
Mitt draumaland hvað varðar ný-
byggingarlóðir í Reykjavík er
flugvöllurinn.
Auk þessa þá verðum við að
standa vörð um að ekki sé verið
að rífa niður húsnæði þó það sé
komið til ára sinna. Það má kosta
töluverðu til að það umhverfi
sem minnir okkur á fortíð okkar
og sögu fái að vera til og njóta sín.
—Sáf
REYKJAVÍKURBLAÐ - SÍÐA 7