Þjóðviljinn - 08.05.1986, Page 8
Parhúsin viö Hjallasel. Borgin býður þau til sölu fyrir á fjórðu miljón. Aðeins tíu
sóttu um í fyrstu atrennu, en 1300 einstaklingar eru á biðlista eftir húsnæði hjá
borginni. Mynd Sig.
Aldraðir
Hundruð
í sárri
neyð
Húsnæðisvandi aldraðra í
Reykjavík eykst sífellt. 1300 á
biðlistum eftir húsnæði. Tvöföldun
síðan 1982.
Söluíbúðir leysa engan vanda.
Sjálfstæðisflokkurinn hafnar
tillögum Alþýðubandalagsins til
úrbóta
Málefni aldraðra Reykvíkinga
hafa verið mikið ágreiningsmál í
borgarstjórn á þessu kjörtíma-
bili. Minnihlutinn hefur gagnrýnt
stefnu Sjálfstæðisflokkins í þess-
um málaflokki og lagt fram fjöl-
margar tillögur til úrbóta, sem
hafa verið felldar enda er nú svo
komið að um 1300 einstaklingar
eru skráðir á biðlista eftir hús-
næði hjá borginni, og þar af er
talið að um 300 séu í sárri neyð.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lagt á það áherslu að hafa sam-
vinnu við félagasamtök um bygg-
ingu söluíbúða fyrir aldraða.
Borgin hefur þegar lagt mikið
fjármagn í byggingu þjónustu-
kjarna í tengslum við VR-
blokkina í Kringlunni og blokk
Samtaka aldraðra og Ármanns-
fells við Bólstaðarhlíð, og hefur
skuldbundið sig til að reka þessa
þjónustukjarna.
Hins vegar hefur meirihlutinn
látið hjá líða að byggja verndaðar
þjónustuíbúðir sem síðan verði
leigðar öldruðum gegn hæfilegu
gjaldi. Fram til þess hefur ekki
verið tekin ein einasta slík íbúð í
notkun á þessu kjörtímabili! Selj-
ahlíðin verður þó að öllum líkind-
um tekin í notkun nokkrum
dögum fyrir kosningar.
8 SÍÐA - REYKJAVÍKURBLAÐ
Guðrún Ágústsdóttir lagði í
vetur fram fyrirspurn í borgar-
stjórn um hversu margir af 1300
manna biðlista hjá borginni hafi
keypt íbúð af þeim félagasam-
tökum sem borgin hefur átt í sam-
vinnu við á kjörtímabilinu. í svari
Páls Gíslasonar koma fram að að-
eins 3 af 1300 hafa fengið inni í
þessum íbúðum. Það er því alveg
ljóst að sú stefna Sjálfstæðis-
flokksins að byggja nær eingöngu
söluíbúðir fyrir aldraða hefur
reynst til einskis nýt fyrir þá fjöl-
mörgu sem eiga í verulegum
húsnæðisvandræðum.
Borgin hefur einnig sjálf feng-
ist við að byggja söluíbúðir.
Byggðar hafa verið 18 íbúðir í
parhúsum við Hjallasel og voru
þær auglýstar til sölu nú í vetur.
Aðeins 10 umsóknir bárust, þrátt
fyrir að 300 aldraðir á biðlistum
teljist vera í sárri neyð vegna
húsnæðisskorts. Svo rammt hefur
kveðið að þessari neyð að borgin
hefur í sumum tilvikum þurft að
borga hótelherbergi fyrir fólk,
sem ekki hefur átt í önnur hús að
venda.
Skýringin á þessu er auðvitað
sú að þessar íbúðir eru all of dýr-
ar. Áætlað söluverð íbúðar við
Hjallasel er á fjórðu miljón. Það
Vistheimilið á Droplaugarstöðum byggt í tíð vinstri meirihlutans 1978-1982. Á þessu kjörtímabili hefur ekki ein einasta
leiguíbúð sérhönnuð fyrir aldraða verið tekin í notkun í Reykjavík.
segir sig nánast sjálft að til þess að
geta keypt slíka íbúð þarf fólk að
eiga góðar og auðseljanlegar
eignir, eða steypa sér í skuldir
ella. Það hefur fólk ekki reynst
tilbúið að gera.
Biðlistar
tvöfaldast
Þessi sölustefna Sjálfstæðis-
flokksins hefur leitt til þess að
biðlistar hjá félagsmálastofnun
hafa meira en tvöfaldast. Opin-
berar tölur segja að í ársbyrjun
1982 hafi 662 verið á biðlistum.
Af yfirlýsingum borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í vetur að
dæma þykir sýnt að flokkurinn
muni ekki láta af þessari stefnu
sinni í nánustu framtíð, og má því
búast við að neyð aldraðra muni
aukast enn á næsta kjörtímabili.
Enda er ekki vitað til þess að
meirihlutinn hafi nein áform uppi
um að byggja leiguíbúðir.
Tiliögur til
úrbóta felldar
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins hafa margsinnis lagt fram
tillögur til úrbóta í þessum efn-
um. í málflutningi sínum í borg-
arstjórn hafa þeir lagt áherslu á
nauðsyn þess að byggðar verði
verndaðar þjónustuíbúðir, sem
verði leigðar, enda sé greinilegt
að önnur lausn dugi ekki.
Á borgarstjórnarfundi í mars á
þessu ári lögðu alþýðubandalags-
menn til að þegar í stað yrði haf-
inn undirbúningur að byggingu
verndaðra þjónustuíbúða og yrði
bygging hafin ekki síðar en á
næsta ári. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins felldu þessa til-
lögu.
Á sama fundi lögðu alþýðu-
bandalagsmenn til að lóð við
Dalbraut yrði nýtt undir leiguí-
búðir á vegum borgarinnar, en sú
tillaga var einnig felld. Þessí stað
hefur þessari lóð verið úthlutað
til félagasamtaka, sem hyggjast
feta í fótspor VR og Samtaka
aldraðra og byggja söluíbúðir. Á
meðan lengjast biðlistar hjá fé-
lagsmálastofnun.
-gg
Konur
Launakjörin verði bætt
Tillaga Alþýðubandalagsins um að störf þar sem konur eru fjöl-
mennar verði tekin til sérstaks endurmats samþykkt. Karlar einoka
hæstu launaflokka
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins fluttu tillögu á borgar-
stjórnarfundi í mars sl. um að
þau störf hjá borginni sem konur
eru fjölmennar í verði tekin til
sérstaks endurmats og var til-
lagan samþykktsamhljóða. Einn-
ig var samþykkt tillaga Kvenna-
framboðs um að matinu skuli
Ijúka ekki síðar en um næstu ára-
mót.
Niðurstöður könnunar á röðun
í launaflokka eftir kynjum hjá
borginni sýna að konur eru mun
fjölmennari en karlar í lægstu
launaflokkum. Hins vegar ein-
oka karlar þær stöður sem best
eru launaðar.
í ljósi þessara niðurstaðna
flutti Alþýðubandalagið áður-
nefnda tillögu í þeim tilgangi að
lapnakjör kvenna verði bætt. í
tillögunni segir að sérstaklega
mikilvægt sé að endurmeta þau
störf sem fela í sér umönnun og
hjúkrun bama, aldraðra og
sjúkra. -gg