Þjóðviljinn - 08.05.1986, Síða 13
Fiskvinnslukonur flytja úr BÚR í ís-
björninn snemma á árinu. Mikil óá-
nægja gaus upp meðal starfsfólks
vegna þessara flutninga, uppsagna
starfsmanna og hvernig staðið var að
sameiningunni. Mynd E.ÓI.
niður, en síðar kom annað í ljós.
Það er nú kapítuli út af fyrir sig
hvað lagt var til grundvallar við
þessa hagkvæmnisathugun, en
niðurstöður voru ekki lagðar
fyrir borgarráð fyrr en 23. ágúst
og sendar borgarfulltrúum aðeins
fjórum dögum áður“.
Kirkjusandsbréfið
undir stól
„í millitíðinni hafði það gerst
að Kirkjusandur hafði skrifað
borginni og óskað eftir að fá að
taka þátt í þessari könnun, en
þetta bréf var aldrei lagt fram.
Borgarstjórinn stakk því undir
stól, enda átti að halda því leyndu
fyrir minnihlutanum. Það var
fyrst og fremst þetta sem gerði
mönnum ljóst að þarna var ekki
um neina hagkvæmnisráðstöfun
að ræða. Það var búið að ákveða
það löngu áður en hagkvæmnis-
athugun var gerð að sameina
BÚR og ísbjörninn.
Ég sat í nefnd sem skipuð var til
að vinna að samningsgerðinni.
Þessi nefnd hitti fulltrúa ísbjarn-
arins aðeins einu sinni. Þrátt fyrir
ítrekaðar og bókaðar óskir um að
fá að sjá reikninga ísbjarnarins
var því stöðugt synjað. Að lokum
voru mér boðnar þessar upplýs-
ingar sem algjört trúnaðarmál,
en því hafnaði ég að sjálfsögðu“.
300 miljónir
í lausaskuldir
„Eftir öðrum leiðum fékkst
hins vegar upp gefið að skulda-
staða ísbjamarins var óskaplega
slæm. Skammtímaskuldir fyrir-
tækisins, sem voru að verulegu
leyti fallnar í gjalddaga, námu
yfir 300 miljónum. Taprekstur-
inn var mikill og fyrirséð að fyrir-
tækið myndi lenda í gjaldþrota-
skiptum innan fárra mánaða ef
því yrði ekki réttur björgunar-
hringur.
Þegar allar þessar upplýsingar
lágu fyrir var öllum orðið ljóst að
þessi skollaleikur með hag-
kvæmnisathugun og þess háttar
var eingöngu til að réttlæta að
borgarsjóður og BÚR yrðu not-
uð til að bjarga fjárhag og efna-
hag fjölskyldunnar sem voru
eigendur ísbjarnarins,“ sagði
Sigurjón.
—gg
Nei,nei,nei!
Ekki borða auglýsinguna!
Það er alveg óþarfi að borða auglýsinguna.
Þú getur með lítilli fyrirhöfn eldað þessa
ljúffengu fiskrétti úr frystu ýsuflökunum frá
R.A. Péturssyni hf. Þau fást í flestum mat-
vöruverslunum í handhægum 400 gr.
pakkningum og eru roðlaus og beinlaus.
Aftan á pakkningunum eru uppskriftir af
dýrindis fiskréttum sem auðvelt er fyrir
hvern sem er að matbúa.
Framleiðandi:
R.A. Pétursson hf.
Ytri-Njarðvík
ísland
Sími 92-3225
4-
REYKJAVÍKURBLAÐ - SÍÐA 13