Þjóðviljinn - 08.05.1986, Qupperneq 14
Borgarsaga
Bakara-
brekka
eða
Banka-
stræti?
Greinargerð Guðjóns
Friðrikssonar um
sögu nafngifta
Bankastrætis
Bakarameistarafélagið sendi
borgarráði bréf ekki alls fyrir
löngu þar sem þeirri spurningu er
velt upp hvort ekki sé rétt að gefa
Bankastræti sitt gamla nafn, Bak-
arabrekka. Borgarráð hefur ekki
tekið ákvörðun í málinu, en bað
Guðjón Friðriksson að skrifa
greinargerð sína á fund borgar-
ráðs í vikunni og fer hún hér á
eftir:
„Árið 1834 reisti P.C.Knudt-
zon kaupmaður í Reykjavík bök-
unarhús, íbúðarhús og geymslu-
hús í brekkunni fyrir ofan Lækinn
og réð til sín bakara að nafni
Daníel Bernhöft til að veita bak-
aríinu forstöðu. Um svipað leyti
var sett trébrú yfir lækinn norðan
og neðan við þessi hús. Þar sem
bæjarbúar áttu tíðum erindi til
bakarans var brúin oftast nefnd
Bakarabrúin og stígurinn upp að
húsunum Bakarastígur eða Bak-
arabrekka.
Áður fyrr lá þjóðvegurinn inn í
bæinn yfir Arnarhólstún að
Lækjarósnum. Þegar Bakarabrú-
in kom varð Bakarastígurinn hins
vegar fljótlega aðalleiðin inn til
Reykjavíkur enda var mokað yfir
hinar gömlu Arnarhólstraðir að
skipan stiftamtmanns. í gjörða-
bókum bæjarins er vegurinn nið-
ur brekkuna ýmist kallaður „al-
faravegurinn" eða aðeins „stfgur-
inn upp Ingólfsbrekku“ en húsin
ofan við Lækinn voru kölluð „við
Ingólfsbrekku" um þær mundir. í
fundargerð frá bæjarstjórnar-
fundi 26. maí 1843 er fyrst talað
um Bakarabrú og í fundargerð 6.
júlí 1859 er fyrst rætt um Bakara-
stíg og jafnan síðan þar til nafn-
inu var breytt í Bankastræti. Ein-
staka sinnum er þó notað orðið
Bakarabrú um brekkuna alla.
Nafnið Bakarabrekka kemur
ekki fyrir í fundargerðum en það
mun jafn oft hafa verið notað af
almenningi sbr. endurminningar
gamalla Reykvíkinga svo sem
Knuds Zimsens, Árna Thor-
steinssonar og Ágústs Jósefsson-
ar þar sem bæði nöfnin koma
fyrir. Þó að nafnið Bakarastígur
sé notað í fundargerðum bæjar-
stjórnar og nefnda bæjarins virð-
ist aldrei hafa verið gerð formleg
samþykkt um þetta nafn.
Árið 1886 var Landsbanki fs-
lands stofnaður og var hann fyrst
í leiguhúsnæði í húsinu Banka-
stræti 3 sem enn stendur. Á fundi
bæjarstjórnar 19. janúar 1888
var gerð samhljóða samþykkt um
nafngiftir gatna og númerun húsa
og þar er nafnið Bankastræti fast-
Hljóðkutar — púströr — pústklemmur
Allt í pústkerf ið
Ath. Opið laugardaga
frá kl. 10.00-14.00.
ust n.f
na
sidumúla 7-9 Sími 82722.
BENIDORM
Beint flug í sólina
Brottfarardagar og okkar ótrúlega hagstæða verð 16. mai 9. okt. 5.júní 26.júni 18. sept. 17. júli 7. ágúst 28. ágúst
2 i smáibúð, 3 vikur 20.460,- 24.640,- 26.780,-
Hótel með morgunverði
og kvöldverðarhlað-
borði 29.690,- 33.840,- 36.240,-
COSTAdel SOL
Gerið sjálf
verðsamanburð
íbúðir og hótel á eftirsóttustu stöðunum.
5. júni 17. júli
ótrúlega hagstæða verð 9. okt. 26.júni 18. sept. 7. ágúst 28. ágúst
Ibúðahótel xxx 2 i ibúð, 3 vikur 24.800 27.900 30.900
Hótel xxx með morgunverði 27.200 30.700 31.900
Ennfremur leiguflug á þriggja vikna fresti til annarra eftirsóttra sólskinsstaða.
MJLLORCJ - COSTJ BRJVJ
íslenskir fararstjórar og fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir.
FIUGFERÐIR -----
SOLRRFLUG 15331 ’og 22100