Þjóðviljinn - 08.05.1986, Blaðsíða 17
G-LISTINN
NESJAVELLIR
STJÓRNLA USAR FJÁRFESTINGAR
Fjáraustur
___________þeirra_________________
■ Á Nesjavöllum er þegar búiö aö
fjárfesta um 700 miljónir króna.
■ Á þessu ári er gert ráö fyrir aö eyða nær
200 miljónum króna í viðbót í
framkvæmdirog rannsóknirá
Nesjavöllum.
■ Þannig er Ijóst, aö stórfelldar
framkvæmdireru hafnar, og enn meiri
fyrirhugaöar á svæöi Hitaveitu
Reykjavíkur á Nesjavöllum, án þess að
nokkur f ullnaðarákvörðun um svæðið
hafi nokkru sinni verið tekin af
borgarstjórn.
■ Enginviðunandiarðsemiskönnun
hefur nokkru sinni veriö gerð fyrir
Nesjavallavirkjunina.
■ Aðrirvalkostir, svosem rafskautskatlar
og orkusparnaður, hafa alls ekki verið
skoðaöir.
■ í ofanálag byggjastframkvæmdir á
Nesjavöllum á úreltum orkuspám
hitaveitustjóra. Það sést best á því að
nýjustu tölur f rá þeirri stofnun sem ætti að
hafa mest vit á orkuspám, sjálfri
orkuspárnefnd, sýna að orkuþörf mun
aukast margfalt hægar en hitaveitustjóri
heldurfram.
■ Ofurkapp hitaveitustjóra á að reisa sér
minnisvarða með virkjun Nesjavalla hefur
því leitt til óhóflegs framkvæmdahraða og
þarmeð ótímabærrafjárfestinga.
■ Einungis vegna
framkvæmdagleðinnar á Nesjavöllum
hefur gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur
hækkað um 20%, auk allra annarra
hækkana.
■ Við blasir hækkun upp á önnur 20 til
30 prósent ofan á allt annað, verði ekki
komið vörnum við óhóflegri
framkvæmdagleði hitaveitustjóraá
Nesjavöllum.
Afstaða
okkar
G-listinn
erekki andvígurvirkjun Nesjavalla.
Við teljum hana hagkvæman
framtíðarkost. Hins vegar er Ijóst,
að einungis fyrsti áfangi
virkjunarinnar mun kosta 2 til 3
miljarða. Þettaerugífurlegar
upphæðir.
■ ■ ■
Einungis
fjármagnskostnaðurinn myndi því
velta hundruðum miljóna króna á
ári. Með þeim óþarfa og
óhagkvæma framkvæmdahraða
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
fallist á til þessa, er Ijóst að
orkuverð í Reykjavík mun hækka
verulega, af þeirri einföldu ástæðu
að markaðurinn er ekki ennþá
nógu stórtil að bera þessar
gífurlegu fjárfestingar.
■ ■ ■
Þess vegna vill G-listinn leita
allra leiða til að fresta þessari
framkvæmd, uns markaðurinn
hefur náð þeirri stærð að arðsemi
virkjunarinnar og lágt orkuverð í
Reykjavíksétryggt.
■ ■ ■
Við viljum ekki ana út í
ótímabærar f ramkvæmdir sem
kynnu að leiða til 20 til 30 prósent
hækkunar á gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur.
ÞETTA VILJUM VIÐ:
Við leggjum til nýja áætlun, sem miðar að því að:
1 Fresta Nesjavallavirkjun um tíu ár.
2Nýta hina gífurlegu umframorku
Landsvirkjunar næstu ár til upphitunar á vatni.
Þetta er fjárhagslega mjög hagkvæmur kostur.
3Með auknum rannsóknum og samnýtingu við
raforku viljum við bæta nýtingu
jarðhitasvæðanna í grennd við Reykjavík, og
kanna betur ný svæði nálægt borginni.
4Bæta nýtingu með orkusparnaði. Gífurleg orka
tapast vegna þess að stýring hitakerfa er víða
svo ófullkomin að vatnið rennur 40 til 50 gráðu
heitttil sjávar, einsog gufumökkurinn frá
klóökum borgarinnar ber glöggt vitni um.
Hvað myndi vinnast?
Fjarmagnskostnaður við byrjunaráfanga Nesjavallavirkjunar veltir
250 til 300 miljónum króna á ári hverju.
Árlegur sparnaður af f restun Nesjavallavirkjunar getur numið
verulegum hluta af þessari upphæð. Þessvegna skiptir mjög miklu
máli að framkvæmdagleði hitaveitustjóra og Sjálfstæðisf lokksins á
Nesjavöllum verði hamin - það getur sparað Reykvíkingum
miljónahundruð á ári.
REYKJAVÍKURBLAÐ - SÍÐA 17