Þjóðviljinn - 08.05.1986, Síða 20
Artúnsholtshverfi
skóli
Nýstofnuð íbúasamtök leggja
áherslu á að fá barnaskóla í
hverfið. Barnafjöldi eykst
stöðugt
Eittyngsta hverfi Reykja-
víkur er Ártúnsholtshverf-
ið. Það stendur í brekkunni
neðan við Árbæjarhverfið
og útsýni er vítt til allra átta.
Þetta hverfi hefur þotið upp
á síðustu fjórum til fimm
árum og verður líklega full-
byggt á næstu þrem. Þjóð-
viljinn hafði samband við
Dagnýju Helgadóttur
arkitekt en hún er formað-
ur nýstofnaðra íbúasam-
taka hverf isins, og spurði
hana hvernig uppbygging
hverfisinsgengi.
„Skólamálin eru stærsta málið
eins og er,“ ságði Dagný, „upp-
haflega var ekki áætlað að byggja
hér skóla en þetta er og verður
það barnmargt hverfi að það þarf
að koma hér skóli, að minnsta
kosti barnaskóli."
Sem stendur eru börn úr Art-
únsholtshverfi keyrð í Laugarn-
esskóla í skólabíl en íbúar hverf-
isins telja það bráðabirgðalausn
sem ekki verði unað við til lengd-
ar.
Danelíus Sigurðsson verkstjóri
Krakkamir úr Ártúnsholtshverfinu og Rafveituhverfinu að koma í skólann með skólabíl (Mynd Sig).
er einnig í stjórn íbúasamtakanna
og hann sagði að íbúar vonuðust
til að byggður yrði skóli í hverfinu
áður en langt um liði því þó íbúar
og nemendur úr þessu hverfi
hefðu mætt einstökum velvilja í
Orðsending
til þeirra sem huga að fjárfestingu í innréttingum á næstunni
N*JU
MVN
°4Ll
Laugarnesskóla væri það mikið
af börnum í hverfinu og það kæmi
til með að aukast mikið þegar
verkamannabústaðirnir yrðu
teknir í notkun að skóli í hverfið
væri nauðsyn. „Það er annað með
eldri krakka, í sjöunda til níunda
bekk, en skóla fyrir börn til 12 ára
aldurs þurfum við að fá,“ sagði
hann. „Fyrstu viðbrögð borgaryf-
irvalda þegar talað var um þessi
mál við þau voru að ekki væri hér
nóg af börnum. En það virðist
hafa verið misskilningur og þau
ekki gert sér grein fyrir því í
fyrstu hver barnafjöldinn í hverf-
inu er og hann kemur til með að
aukast. Eftir örfá ár verða hér um
50 börn í árgangi og fólk er farið
að kvíða því hvernig ástandið
verður á næstu árum ef ekki ræt-
ist úr “
„Þetta hefur mikla galla í för
með sér fyrir börnin, sérstaklega
félagslega," sagði Sesselja Snæ-
varr, fulltrúi íbúasamtakanna í
skólamálum. „Við erum búin að
senda fræðsluráði bréf um þetta
mál og það er verið að fjalla um
það þessa dagana og við eigum
von á svarbréfi frá þeim fljótlega.
Fólk vill hafa skóla í hverfinu,
a.m.k. fyrir yngri börnin. Það
hefur að vísu komið fram að
barnafjöldi er mestur í nýjum
hverfum í upphafi en fækkar síð-
an eftir því sem árin líða og því
hefur komið fram sú hugmynd að
byggja mætti fjölnota hús, sem
kæmi þá að öðrum og fjöl-
breyttari notum seinna meir.“
í framhaldi af þessari umræðu
hafði Þjóðviljinn samband við
Jón Frey skólastjóra Laugarnes-
skólans og spurði hvað væru
mörg börn úr Artúnsholtshverfi í
skólanum. Jón sagði þau hafa
verið um 150 síðastliðinn vetur.
Hann sagði að starfið hefði
gengið ágætlega en börnum úr
þessu hverfi ætti eftir að fjölga og
hann teldi skólann ekki þola
mikið meira, sérstaklega þar sem
einnig fjölgaði nú börnum í
Laugarneshverfinu. Hann sagði
svona aksturskerfi hafa bæði
kosti og galla. Það væri kostur að
bíll stæði tilbúinn fyrir börnin rétt
utan við heimili þeirra, einkum í
vondum veðrum, en þetta kerfi
hefði óhjákvæmilega stóra fé-
lagslega annmarka fyrir börnin
því þau þurfa að sækja félagslíf í
skólanum að mestu á eigin veg-
um.
-Ing
Söluumboð á Akureyri:
Bynor, Glerárgötu 30
S: 96-26449.
Nýbýlavegi 12, 200 Kópavogur,
sími 44011. Pósthólf 167
Dagný Helgadóttir, formaður íbúasamtakanna: Það er ýmsu ábótavant hér í hverfinu
langstærsta vandamálið (Mynd Sig).
Úrvaliö er mikið og ekki
vandalaust aö taka ákvörö-
un. En leggir þú saman
allan þann fjölda smáatriða
sem skipta máli í slíku vali
eru miklar líkur til að
niðurstaða númer 1 verði
Bjóðum ennfremur:
Tréstiga,
Perstorp gólfborð,
Blomberg heimilistæki,
loftlúgustiga.
DKE innrétting frá Innvali.
Og hvers vegna? kannt þú
að spyrja. Jú - svarið við
spurningunni er að finna í
verslun okkar að Nýbýla-
vegi 12 í Kópavogi.
Verið velkomin.
20 SÍÐA - REYKJAVÍKURBLAÐ