Þjóðviljinn - 08.05.1986, Side 22
Skúlagötu
U
§3
vH
•P •
CQ
C0
s
flö
£
ESS r_ ,7/
ami & S8S
Dæmí um útlit Skúlagötu milli Klapparstígs og Frakkastígs. (Mynd frá Borgarskipulagi.)
Stórfyrirtækjum hyglað
Ibúasamtökin í Skuggahverfi, Arkitektafélagið, Torfusamtökin og fjölmargir einstaklingar gerðu athugasemdir við
skipulagið. Sjálfstæðisflokkurinn hundsaði alla gagnrýni. Tæknilega illa unnið. Skipulagsstjóri andvígur skipulaginu.
Háhýsi byrgja sýn. Flokksgæðingar sleppa við að greiða tugmiljónir í gatnagerðargjöld
Inni á borði hjá félagsmálaráð-
herra liggur nú og bíður úrskurð-
ar deiliskipulagstillaga að Skúla-
götusvæðinu frá borgarstjórnar-
meirihlutanum í Reykjavík. Þessi
tillaga gerir ráð fyrir niðurrifi
fjöimargra gamalla húsa og bygg-
ingu nýrra háhýsa í stað þeirra og
hefur m.a. fyrir þessar sakir þótt
vera hið mesta óhappaverk.
Tillaga Sjálfstæðisflokksins um
skipulag að þessu svæði mætti
talsverðri andstöðu strax í upp-
hafi.
Velferð hverfisins
í tvísýnu
Almenn gagnrýni hefur fyrst
og fremst beinst að þeirri fyrirætl-
an íhaldsins að rífa gömul hús
sem eru talin hafa ótvírætt varð-
veislugildi, t.d. Völundarhúsið
Klapparstíg 1 og Kveldúlfshúsin.
í stað þessara húsa er ráðgert að
komi 11-12 hæða hús, sem auk
þess að vera óaðlaðandi að
mörgu leyti munu byrgja nábúum
útsýn.
Það sem vakir líklega fyrir
Sjálfstæðisflokknum með bygg-
ingu þessara háhýsa er að þar
með næst geysilega há nýting
lóða á þessu svæði. Rætt er um að
nýtingin verði allt að 1.8, sem er
óvenjuhátt. í athugasemdum
sem stjórn íbúasamtaka Skugga-
hverfis sendi til borgaryfirvalda
vegna tillögunnar segir að stjórn-
in telji bogann hafa verið of hátt
spenntan varðandi nýtinguna og
öll byggð ofan við 5 hæðir sé um-
fram æskileg mörk.
Há nýting lóðar gerir hana
verðmeiri, en stjórn íbúasamtak-
anna segir að engin fjárhagsáætl-
un geti réttlætt glannaskap í
skipulagi. í athugasemdinni lýsir
stjórnin sig andvíga tillögunni og
telur velferð hverfisins stefnt í
tvísýnu og að réttur fbúanna hafi
verið fyrir borð borinn.
Gagnrýni að
engu höfð
Fjölmörg önnur félög og
hagsmunaaðilar sendu inn at-
hugasemdir við tillögu Sjálfstæð-
isflokksins, sumar hverjar mjög
harðorðar, en flokkurinn hafði
þessar athugasemdir að engu.
Meðal þeirra sem sendu inn at-
hugasemdir voru Arkitektafélag
íslands og Torfusamtökin. Alls
var 38 tillögum einstaklinga og
samtaka hafnað — en ekki tekið
mark á einni einustu við af-
greiðslu Sjálfstæðisflokksins á
málinu.
Það sem eftir stendur í þessari
gagnrýni er einkum þetta: Menn-
ingarsögulegt gildi gamalla húsa
er hundsað. Nýtingarhlutfall lóða
er of hátt. Rök fyrir niðurrifi eru
ófullnægjandi. Enda má gera ráð
fyrir því að borgin verði krafin
um skaðabætur þegar og ef skipu-
lagið kemur til framkvæmda.
Tillagan var samþykkt í borg-
arstjórn í febrúar með atkvæðum
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, en minnihlutinn greiddi at-
kvæði á móti og lagði fram sam-
eiginlega bókun þar sem segir að
skipulagið sé ekki tilbúið til stað-
festingar. Það sé einnig gallað í
ýmsum veigamiklum atriðum og
I
því sé ekki hægt að samþykkja
það. Skúlagötuskipulagið hefur
verið meðal veigamestu
ágreiningsmála milli minnihluta
og meirihluta á þessu kjörtíma-
bili.
Ágreiningur í
skipulagsstjórn
Eftir að borgarstjórn hafði
fjallað um málið fór það til skipu-
lagsstjórnar ríkisins þar sem það
var einnig staðfest. Það gerðist
hins vegar ekki átakalaust, og
lýstu bæði Stefán Thors skipu-
lagsstjóri og Guðrún Jónsdóttir
fulltrúi félagsmálaráðherra sig
andvíg því að það yrði staðfest
eins og það er. Stefán lagði til að
það yrði staðfest í áföngum þar
sem nánari útfærslu vantaði, en
meirihluti skipulagsstjórnar
hafnaði því. í gagnrýni Stefáns
kemur fram að enn vantar
Duglegir og sparney tnir
vinnubílarfrá PEUGEXXT
HAFRAFELL
símar 685211 - 683537
UMBOOIÐ A AKUREVRI
VÍKINGUR SF.
FURUVOLLUM 1 1
SÍMI: 21670
TALBOT 1100 VF 2
Vélastærð 1118-3 55 HA
Framhjóladrifinn
Sjálfstæö fjöðrun
Flutningsrými 2600 lítrar
Buröargeta 500 kíló
Kostar kr. 304.000.-
PEUGEOT 504GR PICK-UP
Vélastæröir: 1796-380HA Benzín
2304-370HA Diesel
Afturhjóladrifinn
„Splittaö drif“
Pallstærö 1,45 x 2,00 M.
Buröargeta 1400 KG.
Kostar frá kr. 479.000,-